Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Blaðsíða 28
FÖSTUDAGUR 22. MARS 1996
Frá Dagsbrúnarfundi. Þar hefur
oft verið heitt í kolunum.
Geta átt ellilíf-
eyrisþegana og
öryrkjana
„Hinir vinnandi Dagsbrúnar-
menn munu fylkja sér yfir til
okkar. Hinir geta þá haft ellilíf-
eyrisþegana og öryrkjana.“
Kristján Árnason, í DV.
Mannvonska?
„Ég vænti þess að þetta sé
fremur gert af vanþekkingu en
mannvonsku."
Benedikt Davíðsson, um um-
deilt frumvarp, í Alþýðublað-
inu.
Ummæli
Leikmenn barðir
„Dómarar virðast ekki þola að
við þá sé talað en þeir horfa upp
á að leikmenn séu barðir til
óbóta.“
Giis Stefánsson, fyrrum handbolta-
kappi, í Morgunblaðinu."
Versnandi
pistlahöfundar
„Pistlahöfundarnir hafa
versnað til muna, hliðra sér hjá
kommúnismanum en prédika
þess í stað sósíalisma."
Magnús Ólafsson, í lesendabréfi, í DV.
Síðustu
Breiðhyltingarnir
„Það eru bara tveir búnir að
skila öskubökkum hjá okkur í
dag, það eru líklega síðustu tveir
Breiðhyltingarnir sem reyktu.“
Lyfjatæknir í Breiðholtsapóteki, í Tím-
anum.
Óperur geta verið bæði góðar og
mjög langar.
Langar óperur
og stuttar
Af þekktum óperum sem fluttar
eru að staðaldri er Meistarasöngv-
ararnir eftir Richard Wagner
lengst. Óstytt var hún sýnd í Sadl-
er’s Wells leikhúsinu í tæpan
mánuð árið 1968 og þá tók flutn-
ingurinn 5 klukkustundir og 15
mínútur. Til eru lengri óperur og
má nefna Trúvillingana eftir
Gabriel von Wayditch (1888-1969).
Hún er útsett fyrir 110 hljóðfæri
og tekur flutningur hennar 8
klukkustundir og 30 mínútur.
Stysta ópera sem samin hefur ver-
ið er Frelsun Þeseifs eftir franska
tónskáldið Darius Milhaud
Blessuð veröldin
(1892-1972). Það tekur 7 minútur
og 27 sekúndur að flytja hana.
Hún var frumflutt árið 1928.
Lengsta óperuarían
Lengsta óperuarían er aría
Brynhildar í Ragnarökum eftir
Richard Wagner. Þessa aríu syng-
ur Brynhildur áður en hún hverf-
ur á bálið í síðasta þætti. í þekktri
plötuupptöku tekur arían ná-
kvæmlega 14 mínútur og 46 sek-
úndur.
Slydda og hvasst
í dag verður suðvestan- og síðan
vestanátt á landinu, fremur hæg í
fyrstu, stinningskaldi eða allhvasst
vestan til á landinu þegar líður á
daginn. Sunnan- og vestanlands má
Veðrið í dag
búast við slyddu í dag en slydduélj-
um í kvöld og nótt. Hiti verður frá 4
niður í 1 stigs frost. Á höfuðborgar-
svæðinu verður sunnan- og suðvest-
ankaldi og súld eða rigning í dag en
suðvestan- og síðan vestankaldi og
skúrir eða slydduél í kvöld og nótt.
Hiti 1 til 3 stig.
Sólarlag 1 Reykjavík: 19.51.
Sólarupprás á morgun: 7.17.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.33.
Árdegisflóð á morgun: 8.55.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri léttskýjaö 2
Akurnes léttskýjaö -0
Bergsstaóir skýjaö 2
Bolungarvík skýjaö 3
Egilsstaöir heiöskírt -6
Keflavíkurflugv. úrkoma í grennd 2
Kirkjubkl. alskýjaö -0
Raufarhöfn hálfskýjaö -5
Reykjavík úrkoma í grennd 1
Stórhöföi úrkoma í grennd 2
Helsinki þokumóóa -10
Kaupmannah. þokumóöa -1
Ósló alskýjaö -6
Stokkhólmur þokumóóa -6
Þórshöfn alskýjað 4
Amsterdam rigning 7
Barcelona þokumóóa 10
Chicago heiöskírt -2
Frankfurt skýjað 7
Glasgow mistur 4
Hamborg rign. á síó.klst. -0
London þokumóóa 8
Los Angeles alskýjaö 16
Lúxemborg þokumóöa 4
París skýjaó 7
Róm þokumóða 7
Mallorca þoka í grennd 5
New York skýjaö 5
Nice hálfskýjaó 8
Nuuk skýjaö -13
Orlando léttskýjaö 8
Vín alskýjaó 4
Washington skýjað 2
Winnipeg snjókoma -7
Gerður G. Óskarsdóttir, forstöðumaður Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur:
Skólamálin eru áhugamál og hugsjón
„Með sto&iun Fræðslumiðstöðv-
arinnar er verið að sameina verk-
efni sem hafa verið á þrem stöðum
hingað til: verkefni af Skólaskrif-
stofu Reykjavíkur, sem hefur eink-
um haft með það að gera sem snýr
að byggingum og búnaði skóla,
síðan er það Fræðsluskrifstofa
Reykjavíkur, sem er á vegum rík-
isins og sinnir einkum innra starfi
skólanna, þróunarstarfi og þjón-
ustu, og svo eru það verkefni
vegna fjármála sem munu flytjast
frá menntamálaráðuneytinu,“ seg-
ir Gerður G. Óskarsdóttir, nýráð-
inn og fyrsti forstöðumaður
Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur.
Maður dagsins
Fræðslumiðstööin hefur mjög
víðtækt starfssvið og þar þarf að
huga að mörgu: „Þetta verður ein
af stærstu stofnunum landsins.
Fjármagnið sem stofnunin veltir
er um fimm milljarðar króna á
ári, starfsmenn eru um 2000 og
nemendur í grunnskólum borgar-
innar eru 14.000.“
Gerður, sem hefur doktorspróf í
stjórnun í menntakerfi og stefnu-
Gerður G. Óskarsdóttir.
mörkun, sér Fræðslumiðstöðina
sem faglegt forystuafl í skólamál-
um í Reykjavík og segist ákaflega
spennt að taka við starfinu: „Ég tel
að minn bakgrunnur nýtist vel í
þessu starfi. Ég hef mjög breiða
reynslu af skólakerfinu almennt,
hef kennt á öllum skólastigum,
hyrjaði að kenna í barnaskóla í
Reykjavík fyrir þrjátíu árum og
hef kennt bæði í grunnskóla, fram-
haldsskóla, í fullorðinsfræðslu og í
háskóla, var skólastjóri bæði á
grunn- og framhaldsskólastigi í
Neskaupstað, starfaði í mennta-
málaráðuneytinu í þrjú ár og tók
við starfi kennslustjóra í kennslu-
fræðum við Háskólann árið 1983.
Því starfi og einkum starfinu í
menntamálaráðuneytinu hefur
fylgt að sitja í nefndum og starfa
að stefnumörkunarverkefnum á
ýmsum sviðurn."
Gerður sagði að í byrjun væri
starf hennar að ganga frá skipu-
lagningu Fræðslumiðstöðvarinnar
og átta sig á mannaflaþörf og fara
inn í þau verkefni sem eru í gangi
á vegum borgarinnar. Gerður á
tvö börn sem bæði eru í doktors-
námi erlendis. Dóttirin er í sál-
fræðinámi í Bandaríkjunum og
sonurinn í námi í Þýskalandi í
sagnfræði og stjórnmálafræði. Um
áhugamál sín sagði Gerður:
„Skólamálin eru fyrir mér bæði
áhugamál og hugsjón og hafa ver-
ið alla tíð, en ég hef einnig mjög
gaman af ferðalögum og göngu-
ferðum." -HK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1474:
Forsala
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði
Önnur viður-
eign KA og FH
í fyrsta leik KA og FH i und-
anúrslitum í handboltanum fóru
KA- menn frekar illa með FH og
sigruðu örugglega. Sá leikur fór
fram á Akureyri en í kvöld er
leikur númer tvö og hann fer
fram á heimavelli FH í
Kaplakrika í Hafnarfirði og þar
verður FH ekki auðveld bráð svo
búast má við spennandi og
íþróttir
skemmtilegum leik.
í kvöld fer einnig fram fjórði
leikur Keflavikur og Njarðvíkur
í undanúrslitum í körfuboltan-
um. Staðan er nú þannig að Kefl-
víkingar hafa unnið tvisvar og
Njarðvíkingar einu sinni. Ef
Keflvíkingar vinna í kvöld eru
þeir komnir í úrslitin og þar sem
leikurinn fer fram á heimavelli
þeirra verða þeir að teljast lík-
legri til sigurs en það má ekki
gleyma því að Njarðvíkingar eru
deiídarmeistarar og þeir mæta
örugglega grimmir til leiks.
Þriðja úrslitaviðureignin í
kvöld er í blaki, Stjarnan og
Þróttur leika sinn annan leik í
keppninni um íslandsmeistara-
titilinn. Fyrsta leikinn vann
Þróttur. Allir leikir kvöldsins
hefjast kl. 20.
TÓNLISTARKROSSGÁTAN NR. 104
Lausnir sendist til : Rásar 2
Efstaleiti 1 150 Reykjavík
Merkt: TÓNLISTARKROSSGÁTAN
Bridge
Það er ekki oft sem maður doblar
slemmu sem andstæðingarnir
frjálsmelda sig í og setur slemmuna
Öóra niður. Enn furðulegri er staðan,
þegar félagi þess sem doblar tekur alla
varnarslagina fimm! Það kom þó fyrir í
sterkri tvímenningskeppni í Bandaríkj-
unum í byrjun marsmánaðar. Suður
hafði opnað á einum spaða, norður
geimkrafði með tveimur laufum og (
sagði síðar frá fjögurra spila stuðningi
í hjarta. Suður taldi hönd sína góða og
þvingaði sagnir alla leið í 6 hjörtu.
Vestur sleppti þvi að dobla, en þegar
sögnin kom til austurs þá lagði hann
doblmiðann á borðið. Hann taldi að fé- 4
lagi ætti lengd í hjartalitnum, en hefði
ekki þorað að dobla slemmuna af ótta
við að andstæðingarnir gætu flúið í 6
grönd. Sá samningur var næsta vís til
að fara illa, miðað við hendi austurs og
því var doblið ekki erfið sögn. Allar
hendurnar voru svona:
4 85
* K642
♦ P
4 A96532
* ÁG1032
ÁD103
* Á32
* 4
I austursætinu sat Bandaríkjamað-
urinn Allan Siebert og hann datt i
lukkupottinn. Útspilið var laufkóngur
frá vestri sem sagnhafi drap á ás og
svínaði strax spaðatiunni. Félagi
Sieberts, Joe Kievel, drap á drottningu
og spilaði áfram laufi. Sagnhafa fannst
besta framhaldið vera að svína spaöa
aftur og Kievel fékk á kónginn. Þegar
reyknum létti hafði vestur einnig feng-
ið 3 slagi á tromp og AV fengu 1100
skráða í sinn dálk. En sá sem doblaði,
fékk engan slag! fsak Örn Sigurðsson
N
V A
S
* 964
♦ KG7654
* DG87
* KD7
G9875
* 1098
* K10