Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Side 3
FÖSTUDAGUR 22. MARS 1996
3
I>V
Fréttir
Feröamálaráö leitar eftir samvinnu um aö auka sölu á hestaferðum til íslands:
Bestu ferðamennirnir
koma vegna hestanna
- segir Birgir Þorgilsson en á síöasta ári komu 9000 útlendingar í hestaferðir
„Þeim fjölgar stöðugt ferðamönn-
unum sem koma til landsins bein-
línis vegna hestanna. Dvalartími
þessa fólks hér á landi er líka lengri
en almennt gerist um ferðamenn og
það eyðir meiru. Hestar, veiði og
nýting jarðhita til heilsubótar eru
helstu vaxtarbroddarnir í ferðaþjón-
ustunni,“ segir Birgir Þorgilsson,
formaður Ferðamálaráðs íslands, í
samtali við DV.
Birgir hefur i vetur viðrað hug-
myndir um að auka enn á þjónustu
við ferðamenn sem hingað koma
vegna hestanna, í von um að þeim
fjölgi enn meir. M.a. leggur hann til
að komið verði á fót nefnd hags-
munaaðila til að gera fimm ára
áætlun um stóraukna sölu á hesta-
ferðum til íslands.
Þá er einnig uppi hugmynd um að
efna hér á landi til alþjóðlegrar
hestasýningar í líkingu við Equit-
ana-sýninguna í Essen í Þýskalandi.
Slíkar sýningar laða jafnan að fjölda
ferðamanna.
„Hestamennska á Islandi er lúxus
og það á að selja ferðirnar hingað
sem slíkar. Við getum aðeins tekið
við takmörkuðum fjölda ferða-
manna og því skiptir miklu að ná í
þá bestu. Á síðasta ári.komu ekki
færri en 9000 erlendir ferðamenn
hingað í hestaferðir," segir Birgir.
Landssamband hestamannafélaga
hefur m.a. haft hugmyndir Birgis til
umfjöliunar en hann kynnti þær
fyrst á þingi sambandsins síðasta
haust. Fátt hefur þó orðið úr aðgerð-
um þrátt fyrir áhuga.
„Ég er mjög ánægður með þessar
hugmyndir hjá Birgi. Við höfum
sótt um styrk hjá landbúnaðarráðu-
neytinu til að koma vinnu af stað en
ekki fengið enn. Það eru margir að
fást viö þessa hluti en það vantar
Næsta leikár LR:
Undirbúningur
liggur niðri
Undirbúningur næsta leikárs Leik-
félags Reykjavíkur í Borgarleikhús-
inu liggur alveg niðri eftir að Viðar
Eggertsson var rekinn á dögunum.
Engar ákvarðanir eru teknar um
verkefni eða annað á meðan stjóm fé-
lagsins hefur ekki ákveðið hvernig
hún stendur að ráðningu nýs leikhús-
stjóra í stað Viðars.
Fundahöld hafa verið stíf í Borgar-
leikhúsinu seinustu daga. Stjórnin
hefur komið saman nánast daglega og
síðastliðinn mánudag var haldinn
starfsmannafundur. Búist er við ein-
hverjum tíðindum næstu daga en lík-
legt þykir að stjórnin fari þá leið að
auglýsa ekki eftir leikhússtjóra held-
ur ræða einstaklega við þá aðila sem
til greina koma, m.a. þá sem sóttu um
stöðuna sl. haust ásamt Viðari. -bjb
Noregur:
íslendingur
dæmdur
Grímur Th. Valdemarsson hefur
verið dæmdur í fjögurra mánaða fang-
elsi í hæstarétti Noregs fyrir að mis-
þyrma fjórum ungum börnum sínum.
Þetta er mildari refsing en undir-
réttur taldi réttmæta. Fyrir tæpu ári
var Grímur dæmdur í héraðsréttinum
í Flisa í sex mánaða fangelsi.
Grímur var fundinn sekur um að
hafa með. skipulögðum hætti mis-
þyrmt börnum sínum á árunum 1992
tÚ 1994. Hann hefur um skeið búið í
Noregi. -GK
betri samræmingu," segir Sigurður
Þórhallsson, framkvæmdastjóri
sambandsins.
Sigurður nefndi m.a. að enn vant-
aði mikið á að hér á landi væru boð-
legir reiðvegir sem væru nauðsyn-
legir til að fjölga ferðum á hestum
um landið. -GK
SHARP m
C-550H 160Wereinstaklega
vönduð hljómrækjasamsfæða:
• 3 diska geislaspilari \í
• 32 laga minni 1
• Öflugir hótalarar 1
• XB5-tveggja þrepa bassastilling
• 5 bando rónjafnari með:
Flat, Heavy, Vocal og BGM
• Alsjólfvirkr tvöfalt kasserturæki
• Hraðupptaka . ■ E
• Sjólfvirk spilun beggja hliða Hp 1
• Utvarp með FM og MW
• 40 stöðva minni
• Sjðlfvirk stöðvaleit
• Klukka
• Tímasfillir
• Svefnrofi
• Tengi fyrir heyrnartól, Aux og Video
• Sérlega fullkomin fjarstýring
Skipholti 19
Sími: 552 9Ö00
V?:WRAOGBEfÐSLUR
k Pi J
í Ji ]
v |