Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 22. MARS 1996
Spurningin
Hvað finnst þér vera
kurteisi?
Gyða Johansen verslunarstjóri:
Góð framkoma og skilningur.
Sigmar Guðbjörnsson bóndi: Það
er bara að koma vel fram við náung-
ann.
Pétur Thor Einarsson nemi: Ég
hef ekki hugmynd um það.
Theodór Guðnason kokkur: Bara
að koma vel fram við náungann.
Sigurveig Sæmundsdóttir aðstoð-
arskólastjóri: Virðing við aðra og
góð framkoma.
Lesendur
Ekki meir,
ekki meir
Páll Skúlason, prófessor við HÍ. - Hefur varið ferli sínum til að greiða úr
flækjum og hjálpa mönnum til að finna hinn rétta tón í samhljóminum, seg-
ir m.a. í bréfi Ólafs.
Ólafur Jón Ólafsson skrifar:
Finnst ekki fleira venjulegu fólki
en mér mál til þess að stíga eitt
skref af skynsamlegu viti? - Það
stendur svo sérstaklega á að við eig-
um þess völ.
Hvert hneykslismálið af öðru villist
í darraðardans fjölmiðlafársins.
Spaugstofan þarf ekki lengur að
skálda fíflaganginn, bara raða hon-
um saman. Mórallinn er orðinn und-
ir lágmarki og enginn sér bót í sjón-
máli. Pólitíkusar eru farnir af stað
með sinn hefðbundna dans um það
hver eigi að hreppa hnoss embættis-
ins til að ljúka ferli sínum.
En við eigum kost. Þjóðin, almenn-
ingur, getur þjappað sér saman um
einn ungan, gáfaðan siðfræðing og
heimspeking til að gefa kost á sér í
forsetastólinn. Pál Skúlason prófess-
or, sem löngum hefur reynt að leið-
beina okkur í skínandi góðum erind-
um og fyrirlestrum í útvarpi og sýn-
ist mér birtast þar stefna sem gæti
bjargað okkur upp úr forarpollinum.
Til Páls hef ég lengi þekkt og verð
að fullyrða það að hann er einstak-
ur að öllu atgjörvi. Gáfaður, vel
menntur, skipulagður í hugsun og
verki, einarður en hæglátur, við-
ræðugóður og vel máli farinn. Gjör-
hugull og góðviljaður, með hreinan
skjöld í lífi og starfi og engum háð-
ur. Honum er einkar annt um vernd
náttúrunnar og hefur um hana hug-
myndir, góðar og fullmótaðar. Hann
er laus við dramb og hroka og tjáir
sig á máli sem almenningur skilur,
þvi er hann mjög eftirsóttur til fyr-
irlestrahalds hjá öðrum þjóðum.
Séð hef égshann styðja þá sem hall-
oka hafa farið í lífinu til sjálfshjálp-
ar með alþýðuheimspeki.
Það er tími til kominn að venjulegt
fólk segi við pólitíkusa, framámenn
og sjálfskipaða siðferðisþrasara að
nóg sé komið. Að menn þagni og
hefjist handa við að taka til hver i
eigin ranni og sameiginlega.
Við gerum þetta með því að kjósa
mann til forsetaembættis sem varið
hefur ferli sínum til að greiða úr
flækjum og hjálpa mönnum til að
finna hinn rétta tón í samhljómin-
um. Tökum nú höndum saman af
ábyrgð og yfirvegun og gerum okk-
ur heppin!
Skrýtinn sparnaðurf ráðherra
Öryrki skrifar:
Enn og aftur kemur heilbrigðis-
ráðherrann okkur á óvart í sparnað-
arhugmyndum sínum. Núna skal
spara ríkinu einar 80 milljónir
króna á ári með því að stórfækka
bílakaupastyrkjum til öryrkja. En
þessi styrkur er 235.000 krónur og
hefur raunar staðið í stað í fjögur
eða fimm ár.
Nú vitum við að lágmarksverð á
bifreið er um það bil 1 milljón
króna (að undanskilinni Lödu). Af
þessari einu milljón fara að
minnsta kosti 500 þúsund í vöru-
gjöld og tolla til ríkisins.
Mér sýnist því að ríkið hagnist á
þessum styrkjum þegar grannt er
skoðað, því bílakaup minnka sem
nemur styrkjafækkun, þar sem ör-
yrkjar hafa fæstir efni á því að
kaupa bO án þessarar aðstoðar. Þar
á meðal er ég.
Ég var þó svo heppinn að fá styrk
áður en ráðherrann komst að með
niðurrifsstarfsemi sina. Ég kemst
þvi ferða minna núna á nýjum bíl,
sem annars væri óseldur í umboð-
inu eða jafnvel aldrei verið fluttur
inn.
Niðurstaðan er þvi sú að fjár-
málaráðherra, húsbóndi heilbrigðis-
ráðherrans, hefur fengið að minnsta
kosti 300 þúsund krónum meira frá
mér en ég fékk frá honum. - Þetta
er vert að hafa í huga.
En það eru fleiri öryrkjar en ég í
landinu og á þeim eiga eftir að bitna
þær gerræðisákvarðanir sem felast
í fækkun bílakaupastyrkja fyrir
þann hóp sem hefur þó mjög brýna
þörf fyrir þá.
Níðingshögg á Richard Nixon
Richard Nixon og Georges Pompidou í Reykjavík.
Ragnar skrifar:
Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi
að sjá kvikmyndina Nixon á frum-
sýningu hennar. En mikið óskaplega
er þetta yfirborðslegt. Flokka verður
hverja senuna eftir aðra samvisku-
samlega og raða niður upp á nýtt.
Allt í samræmi við staðreyndir sem
öllum eru kunnar og hafa verið tíun-
daðar í gegnum tíðina. Höfundurinn
og leikstjórinn, er augsýnilega ekki
sáttur við Nixon í forsetastarfi.
Fyrir það fyrsta var hinn hæfileik-
aríki leikari Anthony Hopkins ekki
rétti leikarinn, því hann komst ekki
nærri því að stæla Nixon. Auk þess
gerði leikarinn (að fyrirskipan leik-
stjórans eðlOega) Nixon að hreinu
skrýmsli í augum þeirra sem ekki
þekkja betur tO. Nixon var t.d. ávallt
glaður í bragi gagnvart almenningi
þrátt fyrir ýmislegt mótlæti og hann
var ávallt í uppáhaldi hjá fólkinu.
Meira að segja hér í Reykjavík vildi
hann fara einn og sjálfur í gönguferð
um götur borgarinnar að kvöldlagi
eftir að hann hafði setið fundi
daglangt. Man einhver eftir öðrum
ráðamanni erlendum sem vildi
kynnast íslendingum á þennan hátt?
Nixon var ef tO vill ekki elskurík-
asti forseti sem Bandaríkin hafa átt
en hann gerði meira fyrir þau en
margir fyrirrennarar hans og eftir-
komendur. Hann var einskær áhuga-
maður og ákafamaður um stjórnmál
og lét flest annað lönd og leið. Hann
var þjóðhetja sem þorði að fram-
kvæma. Einungis fyrir hans, til-
verknað myndaðist þýðan milli
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna í
byrjun. - Myndin Nixon er venOegt
níðingshögg á frábæran forseta og
stjórnmálamann síðari tíma. En
myndin er líka fróðleg og óþarfi að
hallmæla alfarið. Oliver Stone á eft-
ir að þroskast sem aðrir og sjá Nixon
í öðru ljósi en í þessari kvikmynd.
Ófeimnir sjó-
menn?
K.T. skrifar:
Manneskja nokkur, sem sækir
allfast aö hljóta æðsta virðing-
arembætti þjóðarinnar meðal al-
þýðunnar, hitti m.a. nokkra sjó-
menn að máli. Sagðist hún vera
steinhissa á því hversu sjómenn-
imir hefðu verið „ófeimnir" við
hana! Þessi yfirlýsing segir lik-
lega meira um frambjóðandann
en hann hefði sjálfur kosið. Af
hverju í ósköpunum ættu is-
lenskir sjómenn að vera feimnir
frammi fyrir þessum frambjóð-
anda? Vegna ættgöfgi, menntun-
ar, menningarframtaks? Eða ætti
venjulegt vinnandi fólk helst að
finna til feimni og óframfæmi
frammi fyrir slíkri persónu?
Frambjóðandinn lítur svo á að
sumir séu best geymdir úti á sjó
þar sem vinir lista og menningar
eiga ekki á hættu að rekast á þá.
„Almennt,
bara almennt"
- segir prestur
Jóhann Sigurðsson hringdi:
Alþingismaðurinn og prestur-
inn Hjálmar Jónsson var tekinn
tali í sjónvarpsfréttum sl. þriðju-
dagskvöld. Hann var spurður og
spurður án afláts um biskupsmál
og kynferðislega áreitni en vOdi
engu svara nema „bara almennt"
eins og hann orðaði það. Hann
sagði að í raun ætti að leysa öO
slík mál áður en þau kæmu tO
kasta dómstóla! Þá vitum við
það. Líklega þýða þessi orð hans
einfaldlega að hann vOji ekki
láta dæma kynferðisglæpamenn.
Þetta er þó eftir kerfiskörlunum,
vOja bara helst ekkert af svona
málum vita. Það er líka ábyrgð-
arminnst.
Mjólkurdeilur
magnast
Birgir Guðjónsson skrifar:
Enn eru þær komnar á stað
deOurnar sem upphaflega risu út
af úreldingu Mjólkursamlagsins í
Borgarnesi. Það er kannski ekki
skrýtið. Marga hefur nefnOega
grunað að helsta ástæðan fyrir
því aö leggja samlagið í Borgar-
nesi niður væri sú að farið var
að selja mjólk frá samlaginu í
Hagkaupi í þeim umbúðum sem
afls staðar tíðkast nema hér í
Reykjavík. Mjólkursamsalan hafi
því séð að þessar pakkningar
yrðu svo vinsælar að mjólk frá
MS seldist ekki lengur. Það var
því ekki um annað að ræða en að
loka fyrir Borgarnesframleiðsl-
una! - Ótrúlegt en líklega
dagsatt!
Óþægilegt
morgunflug
Hildur skrifar:
Afskaplega finnst mér óþægi-
legt að þurfa að vakna á morgn-
ana tO að ná flugvél tO Evrópu.
Það er ókristilegur tími að vakna
um kl. 5 eða eiga á hættu að
missa af fluginu. Eina flugið sem
er þægilegt af hendi Flugleiða er
það sem fer tO Ameríku siðdegis.
Hví þarf aOt flug tO Evrópu að
vera á sama tíma svona
eldsnemma morguns? Þaö ætti
að vera auðvelt að dreifa brott-
för véla eitthvað meira en nú er.
Biskup á ferö
ogflugi
Anna Kristjánsd. hringdi:
Einhver heföi nú sagt að æðsti
maður kirkjunnar þyrfti að vera
á landinu þegar öO þessi ósköp
dynja á stofnun hans. En ónei,
biskup er á ferð og flugi erlendis,
sækir ráðstefnu á vegum ríkisins
og tekur sér svo ótOgreint leyfi.
Maður skOdi það ef hann heföi
vikiö sæti sem biskup en það hef-
ur hann ekki gert.