Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Page 13
FÖSTUDAGUR 22. MARS 1996 13 DV Stórveldið Kaupfélag Árnesinga: Fréttir Reka verslanir um allt Suðurland Panasonic Ferðatæki RX DS15 Ferðatæki með geislaspilara, 40W magnara, kassettutæki, og útvarpi. - velta mun aukast um hálfan milljarð við sameiningu KÁ og KR „Stjórnir beggja félaganna sam- þykktu að sameina félögin á föstu- dag í síðustu viku og jafnframt að Kaupfélag Árnesinga tæki rekstur Kaupfélags Rangæinga á Hvolsvelli á leigu,“ segir Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri KÁ, í samtali við DV- KÁ og KR voru sameinuð fyrir helgi en að sögn Þorsteins hefur KR átt í erfiðleikum undanfarin ár og menn töldu sameiningu betri en sundrung. Bankar og lánasjóðir kaupa fasteignir og önnur verð- mæti, samtals rúmlega hundrað milljónir, til að létta á skuldum KR. Kaupfélag Rangæinga tapaði tals- vert á síðasta ári. Veltan hefur aukist merkjanlega hjá KÁ sem teygir anga sína um allt Suðurland. KÁ rekur verslun í Þor- lákshöfn, Vík í Mýrdal, Hveragerði, Eyrarbakka, Stokkseyri, Selfossi, Klaustri og tvær í Vestmannaeyjum auk verslunaninnar á Hvolsvelli og útibús á Rauðalæk. Veltan hefur aukist verulega á sumum þessara staða á milli ára. Fyrirtækið sjálft hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum. „Velta fyrirtækisins var 2,5 millj- arðar á síðasta ári á móti 2,2 millj- örðum árið áður. í upphafi árs 1995 seldum við nokkrar einingar þannig að raunveruleg aukning á þremur meginsviðum félagsins er úr tæp- lega tveimur milljörðum í tæplega 2,5. Veltuaukning er áætluð hálfur milljarður við sameiningu félag- anna. Við höfum verið að stefna í - rétta átt og höfum unnið að endur- skipulagninu á fyrirtækinu. Það er sambland af mörgu sem orsakar að okkur hefur tekist að auka veltuna. Við einbeitum okkur að þremur sviðum sem eru búrekstrardeild, verslanir og ferðaþjónustusvið. Við höfum einnig selt einingar eins og Hveragerði liyjtöiur jÍÁ Selfoss Eyrarbakki Stokkseyri Hvolsvöllur $ Vestmannaeyjar tvær verslanir DV k'ónur ITILBOÐ JAPISS BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI þvottahús, byggingavöruverslanir, bifreiðaverkstæði, smurstöð og varahlutaverslanir,“ segir Þor- steinn. Ferðaþjónustusvið KÁ rekur söluskála og bensínstöðvar sem velta um 350-400 milljónum á ári. Búrekstrardeildin veltir í kringum 300 milljónum á ári. Einnig rekur fyrirtækið trésmiðju og vélsmiðju á Selfossi. „Við rekum fyrirtækið meira sem keðju umfram það sem áður var. Veltuaukningin stafar af aðlögun og að við höfum markvisst reynt að auka veltu með samhæfingu versl- ana, markaðssetningu og öðru slíku. Meiri einbeiting að rekstrarþættin- um orsakar að við náum aukinni veltu,“ segir Þorsteinn Pálsson. -em 11501)1 COCA-COLA TflPp 4() ViKijLe«a ISLENSKI LISTINN ER BIRTUR I DV A HVERJUM LAUGARDEGI OG SAMA DAG ER HANN FRUMFLUTTUR Á BYGLJUNNI FRÁ KL. 16-18. BYLGJAN ENDURFLYTUR LISTANN Á MÁNUDAGS- KVOLDUM MILLI KL. 20 OG 22. Kynnir: Jón AxeI Ólafsson o BQTT ÚTVARPI Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Kaupfélags Árnesinga. DV-mynd KE KASK á Höfn: Hagnaður í fyrsta sinn í 5 ár DV Höfn: Uppgjöri hjá Kaupfélagi Austur- Skaftfellinga, KASK, fyrir árið 1995 er nú lokið. Starfsemi félagsins gekk vel og skilaði reksturinn hagn- aði af reglulegri starfsemi í fyrsta sinn á fimm ára tímabili. Rekstrarbati i afkomu af reglu- legri starfsemi var tæpar 12 milljón- ir króna frá árinu á undan. Hagnað- ur ársins eftir óreglulega liði var 12,9 milljónir. Velta ársins var 1153 milljónir og jókst frá fyrra ári um 0,4%. Veltufé í rekstri var 39 milljónir og hafði aukist um 17 milljónir frá 1994. Á síðustu tveimur árum hefur efnahagur félagsins styrkst og veltu- fjárstaða batnað verulega. Hreint veltufé í árslok 1955 var jákvætt um 114 milljónir og hafði aukist um 43 milljónir á árinu. Veltufjárhlutfall er komið i 1,36. Eigið fé félagsins í árslok var 496 milljónir og eignar- íjárhlutfall var rúmlega 44%. Deildarfundir hófust 18. mars og aðalfundur KASK verður síðan haldinn laugardaginn 30. mars nk. -JI ÍSLENSKILISTINN ER SAMVINNUVERKEFNIBYLGJUNNAR, DV OG COCA-COLA Á (SLANDI. LISTINN ER NIÐURSTAÐA SKOÐANAKÖNNUNAR SEM ER FRAM- KVÆMDAF MARKAÐSDEILD DV í HVERRIVIKU. FJÖLDI SVARENDA ER Á BIUNU 3<XM00, Á ALDRINUM14-35 ÁRAAF ÖLLU LANDINU. JAFNFRAMT ER TEK- IÐ MIÐ AF SPILUN Á ISLENSKUM ÚTVARPSSTÖÐVUM. ÍSLENSKI LISTINN BIRTIST Á HVERJUM LAUGARDEGI ( DV OG ER FRUMFLUTTUR Á BYGJUNNI Á LAUGARDÖGUM KL 1&-18. LISTINN ER BIRTUR AÐ HLUTA ( TEXTAVARPIMTV SJÓNVARPSSTÖÐVARINNAR. (SLENSKILISTINN TEKUR ÞÁTT f VALI „WORLD CART“ SEM FRAMLEIDDUR ER AF RADIO EXPRESS ILOS ANGELES. EINNIG HEFUR HANN ÁHRIF Á EVRÓPULISTANN SEM BIRTUR ER f TÓNLISTARBLAÐ- INU MUSIC & MEDIA SEM ER REKIÐ AF BANDARÍSKA TÓNLISTARBLAÐINU BILLBOARD.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.