Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Síða 16
16
FÖSTUDAGUR 22. MARS 1996
FÖSTUDAGUR 22. MARS 1996
25
íþróttir
Eiður Smári
vakti athygli
DV. HoUandi:
Eiður Smári Guðjohnsen vakti
mikla athygli fyrir frammistöðu
sína í leik PSV Eindhoven gegn
Barcelona í UEFA-bikarnum í
knattspymu í fyrrakvöld. Eiður
kom inn á í seinni hálfleik og
upp frá því náði PSV yfirhönd-
inni. Hann átti strax tvö af bestu
marktækifærum PSV og lagði
upp eitt til viðbótar. Hollensk
blöð eru á einu máli um að PSV
hafi verið betri aðilinn þrátt fyr-
ir 2-3 ósigur. -EE
Grindavík vann
Grindvíkingar sigruðu Gróttu,
5-1, í deildabikarkeppninni í
knattspymu í fyrrakvöld en leik-
ið var á sandgrasvellinum í
Kópavogi. Gunnar Már Gunnars-
son skoraði þrennu fyrir Grinda-
vík og Zoran Ljubicic og Grétar
Einarsson geröu eitt mark hvor.
Flitcroft til Blackburn
Enska knattspymufélagið Black-
bum festi í gær kaup á miðju-
manninum Gary Flitcroft frá
Manchester City fyrir 320 miilj-
ónir króna. Flitcroft, sem hefur
leikið með 21-árs landsliði Eng-
lands, kostaði City ekki krónu
þegar hann kom tfl félagsins fyr-
ir Fimm ámm.
Brolin strax til sölu
Svíinn Thomas Brolin virðist
vera á fórum frá Leeds eftir
skamma viðdvöl. Hann hefur ekki
fest þar rætur og Leeds vill selja
hann fyrir 300 mifljónir króna en
félagið keypti hann frá Parma fyr-
ir 450 mifljónir.
Bruce Rioch á förum?
Bresk blöð leiddu að því get-
um í gær að Bruce Rioch væri á
förum frá Arsenal eftir skamma
dvöl þar sem framkvæmdastjóri.
Rioch hefur ekki verið mjög vin-
sæll hjá leikmönnum liðsins.
Dublin til Boro?
Bryan Robson, stjóri Middles-
boro, hefur boðið Coventry 300
milijónir króna í sóknarmann-
inn Dion Dublin en fengið neitun.
Hann ætlar þó að reyna aftur.
Spáð í McClair
Líkur em á að sóknarmaður-
inn reyndi Brian McClair yfir-
gefi Manchester United á næstu
dögum. Coventry, Everton og
ShefField Wed. hafa öll sýnt
áhuga á að kaupa hann áður en
markaðnum verður lokað næsta
fimmtudag.
Áfall hjá Bolton
Bolton, lið Guðna Bergssonar,
hefur orðið fyrir miklu áfalli því
markvörðurinn, Keith Brannig-
an, er meiddur á hné og leikur
sennflega ekki meira á þessu
tímabfli.
íslandsmót í kata
íslandsmeistaramótið í kata
verður haldið í íþróttahúsinu
við Strandgötu í Hafnarfirði á
morgun, laugardag, og hefst
klukkan 12 með undanrásum.
úrslit hefjast klukkan 14.40 og
mótinu er slitið klukkan 16. Sýn-
ing heimsmethafans í múr-
steinabroti, RafFi Liven, hefst
klukkan 14.
íslandsmót í borðtennis
íslandsmótið í borðtennis fer
fram í TBR-húsinu um helgina .
Það hefst í kvöld og því lýkur
með úrslitaleikjum í meistara-
flokkum kvenna og karla klukk-
an 15.30 og 16 á sunnudag.
Iþróttir
SA varð Islandsmeistari
DV, Akureyri:
SA sigraði SR í hreinum úrslita-
leik um íslandsmeistaratitilinn í
ísknattleik á Akureyri í gærkvöldi,
lokatölur 7-4, (3-0, 5-3, 7-4).
„Þetta var mjög erfiður leikur.
Við lékum vel framan af og náðum
þá forystu sem við náöum að halda
út leikinn," sagði Sigurgeir
Haraldsson, fyrirliði SA, í samtali
við DV eftir leikinn.
SA fékk brottvísanir í 11 mínútur
í leiknum en SR í 2 mínútur.
Mörk SA: Haraldur Viktorsson 2,
Jens Gíslason 2, Rúnar Rúnarsson
2, Héðinn Bjömsson 1.
Mörk SR: Heiðar Ingi Ágústsson
2, Clark McGormick 1.
-SK/-KG
„Þetta var fmn sigur og menn voru
ákveðnir i að selja sig dýrt eftir tapið
í fyrsta leiknum. Við náðum okkur
þar með í oddaleik og þar ætlum við
að fara með sigur af hólmi. Við fórum
að spila meira agað þegar leið á seinni
hálfleikinn, bíða eftir betri færum og
það skilaði sér vel. Ég var ekkert
smeykur þó svo að við misstum þá
fram úr okkur í síðari hálfleik því ég
hafði afltaf trú á að við myndum taka
þetta,“ sagði Guðmundur Hrafnkels-
son, markvörður Vals, eftir sigur á
Aftureldingu, 22-25, í Mosfellsbæ í
gær. Þar með jöfnuðu Valsmenn met-
in og tryggðu sér oddaleik i Valsheim-
ilinu á laugardaginn.
Valsmenn gerðu út um leikinn með
góðum leikkafla um miðjan síðari
hálfleik. Þeir skoruðu þá 8 mörk gegn
2 og þar með var eftirleikurinn
auveldur. Valsmenn virtust vera að
taka leikinn í sínar hendur undir lok
fyrri hálfleiks. Þeir náðu þá fjögurra
marka forskoti og i upphafi síðari
hálfleiks var munurinn þrjú mörk.
Mosfellingar neituðu að gefast upp.
Þeir náðu upp sterkum varnarleik og
góðri markvörslu og á skömmum
tima náðu þeir að komast tveimur
mörkum yfir. Heimamenn náðu ekki
að fylgja þessum góða leikkafla eftir.
Þeir virtust ekki hafa trú á að þeir
gætu lagt Valsmenn og þar með tryggt
sér sæti í úrslitum í fyrsta sinn.
„Betra liðið vann í kvöld. Við átt-
um í vandræðum í sókninni og síö-
asta korterið töpuðum við mikið mað-
ur gegn manni í vörninni. Ég vona
bara að það trúi því enginn nema við
sjálfir að við getum unnið þá aftur á
Hlíðarenda. Við höfum enn bullandi
sjálfstraust og höfum eflst við hverja
raun,“ sagði Bergsveinn Bergsveins-
son, markvörður Aftureldingar.
Hætt er við að róðurinn verði þung-
ur fyrir Aftureldingu á laugardaginn
en enginn skyldi þó afskrifa liðið eins
og það hefur verið að leika að undan-
fórnu. Róbert Sighvatsson var bestur
í liði heimamanna og þeir Bjarki Sig-
urðsson og Bergsveinn léku mjög vel.
Valsmenn hafa ekki í hyggju að láta
íslandsmeistaratitlinn svo glatt af
hendi. Þeir sýndu styrk sinn svo um
munaði þegar mest á reyndi og upp-
skáru sanngjaman sigur. Jón Krist-
jánsson fór fyrir sinum mönnum og
lék mjög vel og þeir Ólafur Stefánsson
og Dagur Sigurðsson komu sterkir
upp í síðari hálfleik. Sóknarleikur
Vais hefur þó oft verið betri og
markvarslan sömuleiðis. -GH
Baldur Jónasson 20, Ingimar
Guðmundsson 6, Hrafn
Kristjánsson 5, Þórður Jensson 4,
Finnur Þórðarson 4, Unnar
Hermannsson 4.
Stig Þórs: Sigurbjörn Þórðarson
17, Champ Wrenchr 16, Björn
Hjörleifsson 7, Atli Sigurþórsson 7,
Sævar Sigmundsson 5, Sigurbjörn
Björnsson 4, Vignir Bjarnason 3,
Ágúst Grétarsson 2.
Það kemur nú i hlut Þórsara aö
mæta Akurnesingum um hitt lausa
sætið í úrvalsdeildinni og það lið
fer upp sem fyrr vinnur tvo leiki.
-SK
4-2, 8-12, 17-14, 23-17, 28-20, 36-25,
36-37, 43-39 (47-41), 57-48, 63-61, 74-72,
82-72.
Stig Grindavíkur: Rodney Dobard,
22, Marel Guðlaugsson 17, Guðmundur
Bragason 17, Unndór Sigurðsson 12,
Páll A. Vilbergsson 7, Helgi J. Guð-
fmnsson 3, Hjörtur Harðarson 3, Ingi
Karl Ingólfsson 1.
Stig Hauka: Jason Williford 23,
Pétur Ingvarsson 18, Sigfus Gizurarson
13, Bergur Eðvarðsson 8, Jón Amar
Ingvarsson 7, ívar Ásgrímsson 3.
Fráköst: Grindavík 25, Haukar 30.
Flest fráköst Grindavíkur: Dobard
15, Guðmundur 3, Marel 3, Unndór 3.
Flest fráköst Hauka: Sigfus 10,
Williford 7.
Flestar stoösendingar Grindavík-
ur: Hjörtur 5, Dobard 4.
Flestar stoðsendingar Hauka: Pét-
ur 3, ívar 2, Sigfús 2, Jón Amar 2.
Varin skot: Dobard 2, Marel 1, Páll
1, Helgi 1 - Haukar 0.
3ja stiga körfur: Grindavik 5/17,
Haukar 6/16.
Vítanýting: Grindavík 21/26, Hauk-
ar 10/14.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og
Jón Bender, mjög góðir.
Áhorfendur: Um 850.
Maðttr leiksins: Rodney Dobard,
Grindavík.
Helgi Jónas Guðfinnsson og félagar í Grindavík eru komnir í úrslit
íslandsmótsins í körfuknattleik og mæta Njarðvfk eða Keflavík.
0-1, 3-2, 5-6, 7-11, (11-13), 11-14, 13-15, 17-15, 18-18, 19-24, 21-24,
22-25.
Mörk Aftureldingar: Bjarki Sigurðsson 7/2, Ingimundur Helgason
6/3, Jóhann Samúelsson 4, Þorkell Guðbrandsson 2, Róbert
Sighvatsson.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 14/1.
Mörk Vals: Ólafur Stefánsson 7/2, Dagur Sigurðsson 6/1, Jón
Kristjánsson 5, Sveinn Sigfinnsson 3, Valgarð Thoroddsen 2, Júiíus
Gunnarsson 1, Ingi Rafn Jónsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 6/1.
Brottvísanir: Afturelding 10 mín, Valur 10 mínútur.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigurgeir Sveinsson, dæmdu í heild
mjög vel.
Áhorfendur: 780 (húsið pakkað).
Maður leiksins: Jón Rristjánsson, Val.
Panasonic
Iþróttafréttir eru einnig á bls. 26 og 27
»mi viwm^ wv mU
Valur
ísfirðingar eru komnir á landa-
kortið í íslenskum körfuknattleik.
í gærkvöldi náði körfúknattleiksfé-
lag staðarins þeim merka áfanga
að tryggja sér sæti í úrvalsdefld-
inni með því að sigra Þór frá Þor-
lákshöfn með 78 stigum gegn 61 i
oddaleik liðanna um deildarmeist-
aratitilinn í 1. deild karla.
Lið KFÍ var stutt dyggflega í
gærkvöldi af um eitt þúsund áhorf-
endum sem troðfylltu íþróttahúsið
og var stemningin gífurleg.
Lið KFÍ hefur um nokkurt skeið
verið í fremstu röð á Vestfjörðum.
í fyrra vantaði ekki mikið upp á
úrvalsdeildarsætið. En í gærkvöld
voru ísfirðingar samhentir og ger-
sigruðu andstæðing sinn og gaman
verður að fylgjast með gengi ísfirð-
inga næsta vetur.
„Þetta er auðvitað
stórkostleg stund“
„Þetta var auðvitað stórkostleg
stund og eftir þessu höfum við beð-
ið í nokkur ár. Nú tókst þetta og
við erum vonandi komnir til að
vera á meðal þeirra bestu. Aimenn-
ingur hér á ísafirði troðfyllti
íþróttahúsið og þeir veittu okkur
gífuriegan stuðning,“ sagði Guðjón
Þorsteinsson, þjálfari Körfuknatt-
leiksfélags ísafjarðar, í samtali við
DV í gærkvöldi eftir að úrvals-
defldarsætið var í höfn.
Staðan í leikhléi var 39-35 fyrir
KFÍ en í síðari hálfleik gripu
heimamenn tfl þess ráðs að skarta
sterkri svæðisvöm og við hana
réðu gestirnir ekki. Smátt og smátt
breikkaði bilið og 25 stiga sigur
KFÍ var staðreynd í leikslok.
„Það er mikill áhugi á
körfuknattleik hér á ísafirði og
ekki minnkar hann við þetta. Við
erum í sjöunda himni með þennan
árangur. Það hefur verið mikil
stígandi í þessu hjá okkur og nú er
bara að halda þessu áfram og gera
enn betur,“ sagði Guðjón en hann
má telja föður körfuknattleiksins á
ísafirði og hefur hann unnið
frábært starf við uppbyggingu
iþróttarinnar á staðnum.
Bæjarstjórnin gaf KFÍ hálfa
milljón
Stig KFÍ: Christopher Ozment 34,
Ferðatæki RX DS2S
Ferðatæki með geislaspilara,
40W magnara, kassettutæki,
útvarpi m/stöðvaminni og
fjarstýringu.
Nöldur í Degi
Dagur Sigurðsson, fyrirliði Vals, lék mjög vel fyrir
sína menn í gær. Einn ljóður var þó á leik þessa frá-
bæra leikmanns. Hann var síröflandi við dómarana
nær allan tímann og ekki í fyrsta sinn sem hann stund-
ar þá iðju. Undirritaður skorar á Dag að láta af þessum
ósið og einbeita sér þess í stað að handboltanum þar
sem kraftar hans njóta sín miklu betur. Og þar sem
Dagur er á leið í atvinnumenskuna er ekki seinna
vænna en að hætta þessu strax!
Brynjar á bekknum
Brynjar Harðarson, formaður handknattleiksdefldar
Vals, tók virkan þátt í leiknum. Ekki sem leikmaður
heldur stjómaði hann innáskiptingum af mikilii rögg-
semi og lét sína menn heyra það óspart. -GH
Handarhlaup hjá Begga
Bergsveinn Bergsveinsson sýndi nýja tegund af mark-
vörslu undir lok leiksins í gær. Þegar Guðmundur,
kollegi hans í Valsmarkinu, brá sér í sóknina undir lok-
in og fór inn úr horninu fór Bergsveinn á handahlaup-
unum út á móti honum og varði skot Guðmundar.
Róbert sterkur á línunni
Engum blöðum er um að fletta að Róbert Sighvatsson
er besti línumaður Nissandefldarinnar og þó víðar væri
ieitað. Þegar Róbert fékk boltann inn á iínuna í gær var
það undantekningarlaust mark eða víti. Hann skoraði 2
mörk í leiknum, flskaði 6 vítaköst og í þrígang þurftu
Valsmenn að fjúka út af eftir að hafa brotið óþyrmilega
á honum.
-GH
Afturelding - Valur (11 -13 ) 22 - 25
___%___________________________________
Grindavík - Haukar
( 47-41) 82 - 72
Allt vitlaust
^ ■ Æm ■
a Isafirði
- eftir að KFÍ tryggði sér úrvalsdeildarsæti í gærkvöld
Dagur Sigurðsson átti góðan leik með Val í gærkvöld er Valsmenn lögðu Mosfellinga í úrslitakeppni Nissandeildarinnar. Á
innfelldu myndinni fagna hann og félagar hans úrslitunum í leikslok. Á stærri myndinni sækir Páll Þórólfsson að vörn
Valsmanna. DV-mynd Brynjar Gauti
Úrslitakeppnin í handknattleik:
Meistararnir
komu til baka
- og tryggðu sér oddaleik að Hlíðarenda á laugardag
Grindvíkingar í úrslit úrvalsdeildar:
„Þeir áttu ekki
svar við góðri
vörn okkar“
DV, Suöurnesjum:
„Við erum búnir að spila frábæran
varnarleik í þessum leikjum og það
var vöm okkar sem kláraði þetta aö
þessu sinni. Þeir áttu einfaldlega ekk-
ert svar við varnarleik okkar í kvöld.
Þetta er mikill léttir og það kom ekki
til greina að fara aftur í Strandgöt-
una. Við ætluðum að klára þetta með
stæl á heimavelli,“ sagði Friðrik Ingi
Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga
sem í gærkvöldi tryggðu sér réttinn
tfl þess að leika um íslandsmeistara-
titilinn i körfuknattleiik þriðja árið í
röð.
Bikarmeistarar Hauka geta sjálf-
um sér um kennt hvemig komið er
því þeir klúðruðu einvíginu gegn
Grindavík á eigin heimavelli.
Grindvíkingar virðast vera í sókn
þessa dagana og eiga góða möguleika
á að hampa íslandsbikarnum í móts-
lok í vor.
Úrslit leiksins gegn Haukum réð-
ust ekki fyrr en á lokasekúndunum
þrátt fyrir tíu stiga sigur heima-
manna. Marel raðaði niður vítaskot-
um í lokin eftir tæknivillu á Hauk-
ana og það frekar tvær en eina. Mar-
el gerði síðustu 8 stigin af vítaiínunni
í lokin.
„Það er ekki nóg að spila einn góð-
an leik í svona baráttu gegn Grind-
víkingum. Ég er ánægður að við
skyldum ná okkur upp aftur eftir
skellinn í síðasta leik. Það er gríðar-
lega sárt að vera úr leik og ég var
mjög óhress með dómarana í þessum
leik,“ sagði Reynir Kristjánsson,
þjálfari Haukanna, eftir leikinn.
Liðsheild Grindvíkinga var sterk
með þá Dobard og Guðmund sem
bestu menn, Marel átti góða kafla.
Liðið er til alls líklegt í næstu leikj-
um gegn Keflavík eða Njarðvík og
víst er að Grindvíkinga hungrar í tit-
flinn.
Hjá Haukum var Williford bestur
og Pétur sýndi á köflum frábær til-
þrif og skoraði ævintýralegar körfur.
Haukar eru úr leik að þessu sinni en
margir áttu von á að sjá liðið í úr-
slitaviðureignunum. Af því veröur
ekki þetta árið og enn verða Hafnfirð-
ingar að bíða eftir liði sfnu í úrslitum
úrvalsdeildar. -SK/-ÆMK
-h