Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Síða 23
FÖSTUDAGUR 22. MARS 1996
31
v_________________________________________' ___________Fréttir
Stjörnubló - Draumadísir: *★
Ekki er allt gull sem glóir
Grár og nöturlegur veruleikinn gefur oft
tilefni til dagdrauma og vinkonurnar tvær
Steina og Styrja eru engar undantekningar í
þeim efnum. í byrjun Draumadísa þegar
Steina sér kærastann í fanginu á annarri
stelpu þá gefur hún sér að ilmur karlmennsk-
unnar sé lykt af leðri, viskí og vindlum og
þessari lykt fylgja þær stöllur eftir þar til
draumaprinsinn er fundinn. En draumur er
draumur og veruleiki er veruleiki, þetta
blandast illa saman eins og síðar kemur i
ljós.
Steina er mun skýrari persóna en Styrja,
aðallega vegna þess að myndin er byggð upp
í kringum viðhorf hennar til lífsins þar sem
fjölskylduaðstæöur hafa haft mótunaráhrif.
Veruleikinn er napur, móðirin einstæð
drykkjukona, sem er alls ófær um að sjá fyr-
ir fjölskyldunni, sem samanstendur af henni,
Steinu og litlu systurinni, Guggu. Systurnar
flýja raunveruleikann hvor á sinn hátt. Þeg-
ar Steina finnur draumaprinsinn er hún ekk-
ert að hika við heldur gerir leifturárás inn á
heimili hans. Það vill svo til að Drauma-
prinsinn er ósköp venjulegur smákarl í við-
skiptum sem er með allt niðri um sig og ætl-
ar að nota sér traust deyjandi vinar til að
bjarga sér og fyrirtæki sínu.
Sagan sem sögð er í Draumadísum hefði
alveg eins getað verið sögð á dramatískan
hátt því viðskiptahættir Gunnars og þá sér-
staklega fjölskylduaðstæður heima hjá Stein-
unni er varla nokkuð til að gera grín af, en
leikstjórinn og handritshöfundurinn Ásdís
Thoroddsen kýs að segja söguna á gaman-
saman hátt þar sem húmorinn er oft nokkuð
dökkur en þó meö léttu yfirbragði og það er
myndin í raun öll.
Það er viss ferskleiki yfir Steinu og Styrju,
sem eru oftast eðlilegar tvítugar stelpur, en
það má deila um hversu rökréttar athafnir
þeirra eru í lokin. Styrja geldur þess nokkuð
að vera ekki nógu skýr frá höfundar hendi,
hún er stundum bæði vinur og óvinur og það
er til að mynda galli að það er ekki einu orði
minnst á hennar fjölskylduaðstæður. Silja
Hauksdóttir og Ragnheiður Axel standa fyrir
sínu, það örlar stundum á stirðleika en þeg-
ar á heildina er litið þá er leikur þeirra góð-
ur.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
Gunnar sem reynist enginn draumaprins
og bókari hans Vala, sem þráir það eitt að
komast yfir fyrirtækið eru yfirborðskenndar
manneskjur sem gefa lítið frá sér og eru at-
riðin þar sem þau tvö eru saman þau veiga-
minnstu í myndinni. Baltasar Kormákur er
eins og skapaður fyrir hvíta tjaldið og nær
hann góðum tökum á persónunni. Ragnhild-
ur Rúriksdóttir gerir vel úr því litla sem hún
hefur úr að moða.
Þær persónur sem aftur á móti skilja mest
eftir sig eru Ragnheiður, móðirin drykkfellda
og litla systirin Gugga, Margrét Ákadótir og
Bergþóra Aradóttir stela senunni i hvert
skipti sem þær birtast. Hin unga Bergþóra
sýndi í Tár úr steini að hún hefur ótrúlega
mikinn þroska sem leikkona og hér á hún
hverja taug í áhorfendanum. Það má kannski
segja að Margrét Ákadóttir geri Ragnheiði
um of kómíska, en á móti kemur að hún er
ákaflega eðlileg fyllibytta í öllum hreyfingum
og töktum og þrátt fyrir kómískar uppákom-
ur þá leyfir hún sér aldrei að fara út í hrein-
an farsaleik sem er mjög skynsamlegt.
Það vill svo til að öll útiatriði í Draumadís-
um eru tekin um hávetur og það á einhveij-
um versta vetri í manna minnum, veturinn í
fyrra, þannig að útlit myndarinnar er nokk-
uð kalt, sem er oft ekki til bóta, en leikstjórn
Ásdísar er örugg og það er broddur í sögunni
og samtöl oft snjöll. Öll tæknivinna er vel af
hendi leyst, en enn einu sinni bregður hul-
dufólki fyrir í íslenskri kvikmynd og satt
besta að segja eru þessar óljósu verur sem af
og til birtast til óþurftar, sagan stendur vel
fyrir sínu án þeirra.
Leikstjóri og handritshöfundur: Ásdís
Thoroddsen. Kvikmyndataka: Halldór
Gunnarsson, Hljóðupptaka: Siguröur Hr.
Sigurðsson. Leikmynd: Þorvaldur Böðvar
Jónsson. Búningar: María Valies. Klipping:
Valdís Óskarsdóttir. Tónlist: Einar A. Melax.
Aöallleikarar: Silja Hauksdóttir, Ragnheiður
Axel, Baltasar Kormákur, margrét Akadótt-
ir, Ragnhildur Rúriksdóttir og Magnús
Ólafsson.
Smáauglýsingar - Sími 550 5000 Þverholti 11
# Þjónusta
Til þjónustu reiðubúinn! Tökum að
okkur allt sem lýtur að málningar-
vinnu. Áratugareynsla. Gerum tilboð
þér að kostaðarlausu. Fag- og snyrti-
mennska í hávegum. Sími 554 2804.
Raflagnir, dyrasímaþjónusta. Tek að
mér raflagnir, raftækjaviðg. og dyra-
símaviðg. Visa/Euro. Löggiltur raf-
virkjameistari. S. 553 9609 og 896 6025. ,
Hreingemingar
B.G Teppa- og hreingerningaþjónustan.
Djúphreinsun á teppum og húsgögn-
um í heimahúsum, stigagöngum og
fyrirtækjum. Einnig allar alm. hrein-
gemingar, veggjaþrif og stórhrein-
gemingar. Ódýr og góð þjónusta. Ath.
sérstök vortilboð. S. 553 7626/896 2383.
Garðyrkja
Alhliða garðyrkjuþjónusta. Tijáklipp- ingar, vetrarúðun, húsdýraáb. og önnur vorverk. Halldór Guðfinnsson skrúðgarðyrkjum., s. 553 1623.
Tilbygginga
Mótaefni óskast, 1”x6” og 2”x4”, einnig óskast ódýr borðsög. Upplýsingar í síma 896 4616 eða 587 5156.
& Vélar - verkfæri
Standborvél, gírdrifin, með tvöfóldu
plani, hjakksög, bandslípivél, punkt-
suðuvél 7,5 kWa, Esab 250 AMP MIG-
vél, Esab-transari, vals fyrir rör,
vinnuborð og hillur ásamt fleira.
Uppl. í símum 554 4332 og 587 3714.
Ferðaþjónusta
Runnar, Borgarfirði. Góð aðstaða fyrir
fjölskyldumót og hópa, m.a. heitur
pottur og gufubað. Næg tjaldstæði.
Ferðaþj. Borgarf., s. 435 U85/-1262.
Landbúnaður
Óskum eftir að kaupa mjólkurkvóta,
50-100 þús. lítra, strax, góðar
greiðslur. Syör sendist DV,
merkt „K-5429.
Úrvals kúahey til sölu, engin klaufdýr
á bænum. Upplýsingar í síma 853 7065.
77/ sölu
Amerísku heilsudýnurnar
Listhúsinu Laugardal
Simi: 581-2233
Ítikiö úrval af amerískum rúmgöflum.
slensku, amerísku og kanadísku
kirópraktorasamtökin setja nafn sitt
við og mæla með Springwall
Chiropractic.
Betri dýna, betra bak.
Svefh & heilsa, sími 581 2233.
IDE BOX
Þegar þú vilt sofa vel skaltu velja
Ide Box, sænsku fjaðradýnumar.
Margar stærðir. Mjúkar, millistífar
eða harðar dýnur, allt eins og passar
hveijum og einum. Yfirdýna fylgir
öllum stærðum og verðið er hagstætt.
Þúsundir íslendrnga hafa lagt leið
sína til okkar og fundið réttu dýnuna
með aðstoð sérhæfðs sölufólks.
Idé Box fjaðradýnurnar fást aðeins í
Húsgagnahöllinni, sími 587 1199.
Úrval
á næsta
blaðsölustað
Kamínur! Höfum til sölu ýmsar gerðir
af kamínum. Framleiðum allar gerðir
af reykröram, einnig þakkanta, þak-
rennur, steypurör fyrir undirstöður,
útsogsháfa og hvaðeina úr blikki og
jámi. Blikksmiðjan Auðás ehf., Vest-
urvör 21, Kóp., s. 564 1280.
Kgl Verslun
Str. 44-60. Nýjar vörur. Frábærar strets-
buxur. Eldri vörur á ótrúlegu verði.
Stóri listinn, Baldursg. 32, s. 562 2335.
Jlgl Kerrur
Kerruöxlar
með eða
án hemla
Evrópustaðlaðir á mjög hagstæöu verði
fyrir flestan burð. Mikið úrval hluta
til kerrasmíða. Sendum um land allt.
Góð og öragg þjónusta!
Fjallabílar/Stál og stansar ehf.,
Vagnhöfða 7, 112 Rvk, sími 567 1412.
/ Varahlutir
Jafnvægisstillt
drifsköft
Smíðum ný og gerum
við allar gerðir
Mikiö úrval af hjöruliðum, dragliöum,
tvöföldum Uðum og varahlutum í
drifsköft af öllumgerðum.
í fyrsta skipti á íslandi leysum við titr-
ingsvandamál í drifsköftum og véla-
hlutum með jafhvægisstillingu.
Þjónum öllu landinu, góð og öragg
þjónusta. Fjallabflar/Stál og stansar
ehf., Vagnhöfða 7,112 Rvk, s. 567 1412.
22.900 kr. Við jöfnum önnur tilboð ef
þau era lægri. Léttar og nettar bresk-
ar fólksbflakerrur úr galvaniseraðu
stáli. Stærð 120x85x30 sm. Eigin
gngd aðeins 50 kg. Burðargeta 250
. Ljós og glitaugu fylgja. Verð:
amsett kerra, 22.900, afborgunar-
verð 25.444, yfirbreiðslur með festing-
um, 2.900 stgr. Samsetning 1.900.
Visa/Euro raðgreiðslur. Póstsendum.
Nýibær ehf., Álfaskeiði 40, Hafnarf.
(heimahús, Halldór og Guðlaug).
Vinsamlega hringið áður en þið
komið. Sími 565 5484 og 565 1934.
Frábært verö. Eigum uppgerða fram-
drifsöxla í flestar gerðir jeppa og fram-
drifsbfla, t.d. GM, Chrysler, Subaru
o.fl. Mjög hagstætt verð. Þeir öxlar
sem ekki era á lager era hraðpantaðir
án aukagj. Útv. uppgerðar stýris-
maskínur á hagst. verði og eigum fyr-
irliggjandi vacuumdælur og membrur
í flesta dísilbfla. Tökum gömlu hlutina
sem greiðslu upp í nýja. Bflabúð
Rabba, Bfldshöfða 16, s. 567 1650.
Úrval
á næsta
blaðsölustað
^VARAHLUTAVERSLUNIN
BRAUTARHOLTI 16 • 105 REVKJAVÍK
Vélavarahlutir, vélahlutir, vélar.
• Original vélavarahl. ,í miklu úrvali
í vélar frá Evrópu, USÁ og Japan, s.s.
Benz, Scania, Volvo, BMW, VW, Ford,
Lada, Opel, Fiat, GM, Peugeot, AMC,
MMC, Toyota, Mazda o.m.fl.
• Vélavarahlutir ffá viðurkenndum
ffamleiðendum. Það margborgar sig
að kaupa gæðavöra á hagstæðu verði.
• Yfir 40 ára reynsla á markaðnum.
• Sér- og hraðpöntunarþjónusta.
• Upplýsingar í síma 562 2104.
M Bilaleiga
Bílaleiga Gullvíðis. jeppar og fólksbílar
á góðu verði. Á daggjaldi án km-
gjalds eða m/innif. 100 km á dag. Þitt
er valið! 896 3862,896 6047 og 554 3811.
Tilboö: 118.575 stgr.
i
L.
VAGNHOFÐA 23 • SlMI 587-0-507