Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Síða 25
FÖSTUDAGUR 22. MARS 1996
33
dv Sýmngar
Kirkjuhvoll á Akranesi:
Grafíksýning
Gunnhildar
Ólafsdóttur
DV; Akranesi:
Gunnhildur Ólafsdóttir (Góla)
heldur grafíksýningu á Listasetrinu
Kirkjuhvoli og sýnir hún tréristur
og steinþrykk.
Gunnhildur Ólafsdóttir er fædd
áriö 1954 og útskrifaðist frá Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands, graf-
íkdeild, árið 1989. Gunnhildur hefur
tekið þátt i nokkrum samsýningum
og er þetta þriðja einkasýning henn-
ar.
Sýningin stendur yfir frá 23. mars
til 8. apríl. Listasetrið er opið virka
daga frá klukkan 16-18 og um helg-
ar frá klukkan 15-18. -DÓ
Héraðsbókasafn
Kjósarsýslu:
Farandsýningin
Á norrænni slóð
Farandsýningin Á norrænni slóð
verður opnuð samtímis alls staðar á
Norðurlöndunum á morgun, laugar-
daginn 23. mars, á norrænum degi.
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra opnar sýninguna hér á landi
kl. 14 í Héraðsbókasafni Kjósar-
sýslu, Þverholti 2 í Mosfellsbæ.
Sýningin er hluti af Nordliv-verk-
efni norrænu félaganna sem er ætl-
að að efla umræðu um það sem
sameinar Norðurlöndin og skilur
þau að og hvaða máli samvinna
skiptir fyrir okkur.
Á sýningunni eru ljósmyndir,
teikningar og kort ásamt texta og
má líkja henni við ferðalag um sögu
Norðurlandanna. Viðkomustaðirnir
sýna þróun landanna til dagsins í
dag. Á leiðinni er dregin upp mynd
af sameiginlegri fortíð, góðri sem
slæmri.
Farandsýningin verður á ferðinni
um landið næstu tvö árin og verður
sett upp á byggða- og bókasöfnum
og í skólum víða um land. -ÞK
Gallerí Sjónarrönd
á Internetinu:
Umbreytingar
I Gallerí Sjónarrönd stendur yfir
sýning í mars-apríl á verkum eftir
Arngunni Ýr Gylfadóttur. Nefnist
sýningin Umbreytingar.
Gallerí Sjónarrönd var opnað á
Internetinu í nóvember 1995. Það
hefur farið fremur hægt af stað en
þó hafa mörg hundruð gestir, bæði
íslenskir og erlendir, litið þar inn.
í framtíðinni munu fara fram
reglulegar sýningar í galleríinu.
Sýningarnar koma flestar til með að
tengjast umhverfis- og náttúruskoð-
un. -ÞK
Símbréfa- og
símsvaralist
Sýning á list í formi símbréfa og
símsvaraskilaboða verður opnuð á
morgun, laugardaginn 23. mars, í
sýningarsalnum Við Hamarinn að
Strandgötu 50 í Hafnarfirði.
Eins og nafnið á sýningunni, Sim-
bréfa- og símsvaralist, gefur til
kynna eru verkin á sýningunni
símbréf og skilaboð á símsvara sem
fjölbreyttur hópur listamanna hefur
sent inn undanfarna daga.
Segja má að stór hluti listar sé
miðlun skilaboða á einn eða annan
hátt, segir í kynningu frá aðstand-
endum sýningarinnar. Tilgangur
sýningarinnar er að láta reyna á list-
ræna möguleika þessara hefðbundnu
skilaboðatækja sem hingað til hafa
verið notuð til að flytja skilaboð af
öðrum toga en listrænum.
Aðstandendur sýningarinnar telja
þó að öll listform geti komið skila-
boðum sínum á framfæri i gegnum
þessi tæki, til dæmis myndlist, ritlist
og tónlist.
Sýningin stendur til miðvikudags-
ins 3. apríl og er opin frá klukkan 14
til 18 alla daga nema mánudaga. -ÞK
____________________Bridge
Siglufjarðarmót
f sveitakeppni
10 sveitir tóku þátt í und-
ankeppni Siglufjarðarmóts í
sveitakeppni. 4 efstu sveitirnar
spila síðan innbyrðis til úrslita í
32ja spila leikjum. Röð efstu
sveita í undanúrslitunum varð
þessi:
1. sveit Böðlanna 358 stig
2. sveit Fljótamanna 338 stig
3. sveit Bræðragengisins 322
stig
4. sveit Ingvars Jónssonar 305
stig
5. sveit Níelsar Friðbjarnar-
sonar 291 stig
í sveit Böðlanna spiluðu: Jón
Tryggvi Jökulsson, Ólafur Jóns-
son, Reynir Karlsson og Páll
Ágúst Jónsson.
Nú stendúr yfir 3ja kvölda tví-
menningur, SHELL-mótið, og sér
Haraldur Árnason, umboðsmað-
ur SHELL á Siglufirði, alfarið um
mótiö og gefur verðlaunin. 20 pör
taka þátt og er röð efstu para eft-
ir fyrsta kvöldið þessi:
A-riðill
1. Jóhann Stefánsson - Stefan-
ía Sigurbjörnsdóttir 127 stig
2. Sigfús Steingrímsson - Sig-
urður Hafliðason 127 stig
3. Anton Sigurbjörnsson - Bogi
Sigurbjörnsson 120 stig
4. Björk Jónsdóttir - Björn
Ólafsson 111 stig
B-riðill
1. Páll Ágúst Jónsson - Reynir
Karlsson 136 stig
2. Kristrún Halldórsdóttir -
Jakobína Þorgeirsdóttir 131 stig
3. Ólafur Jónsson - Sólrún JÚI-
íusdóttir 124 stig
4. Stefán Guðmundsson - Vil-
helm Friðriksson 117 stig.
Tapað fundið
Klói týndur
Kötturinn Klói hvarf af heimili
sínu við Langholtsveg í byrjun febr-
úar. Hann er svartur og hvítur með
stýri í skottinu, ekki hálsól, merkt-
ur í eyra R4H075. Upplýsingar í
síma 553-8184.
Fundir
Aðalfundur MIR
Aðalfundur Félagsins MÍR verður
haldinn í félagsheimilinu Vatnsstíg
10 nk. laugardag, 23. mars, kl. 15, en
daginn eftir verður hin fræga kvik-
mynd Sergeis Eisensteins, Alexand-
er Névskí, sýnd í bíósalnum. Að-
gangur ókeypis á kvikmyndasýn-
inguna.
Aðalfundur Vináttufélags
íslands og Kúbu
Vináttufélag íslands og Kúbu boð-
ar aðalfund laugard. 30. mars kl.
14.00 á veitingahúsinu Lækj-
arbrekku, efri hæð. Á dagskrá eru
venjuleg aðalfundastörf, auk
skýrslu og umræðna um Kúbu í dag
og verkefni félagsins.
Byrjun
uppboðs
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins, Austurvegi 6,
Hvolsvelli, þriðjudaginn 26.
mars 1996, kl. 15.00 á eftirfar-
________andi eignum:______
Lækjarhvammur, A-Landeyja-
hreppiÞingl. eig. Gísli H. Stefánsson.
Gerðarbeiðendur eru sýslumaður
Rangárvallasýslu og Stofrdánadeild
landbúnaðarins.
Miðgarður, lóð nr. 5, Hvol-
hreppiÞingl. eig. Erlendur F. Magn-
ússon.Gerðarbeiðendi er sýslumað-
urinn á Selfossi.
SVSLUMAÐURiNN í RANGÁRVALLASÝSLU
Fréttir
Leikhús
Dagsbrún:
Þeir
hafi
sína, við
okkar
- segir Kristján Árnason
Haft var eftir Kristjáni Árna-
syni í DV í gær að Verkalýðsfé-
lag Reykjavikur og nágrennis -
ný Dagsbrún sé félag vinnandi
verkamanna og forysta Dags-
brúnar geti áfram haft ellilífeyr-
isþega og öryrkja innan sinnan
vébanda.
Þessi orð Kristjáns hafa vakið
talsverð viðbrögð innan Dags-
brúnar og víðar og vill Kristján
Ámason, formaður félagsins,
taka fram að hann hafi hér átt
við þá öryrkja og ellilífeyrisþega
sem kusu A-lista, Iista stjómar
og trúnaðarráðs Dagsbrúnar í
kosningunum á dögunum. „Við
fengum talsvert af atkvæðum
öryrkja og þess vegna hefði átt
að standa - það er að segja, þá
sem kusu A-Iistann - í fram-
haldi af því sem haft var eftir
mér,“ segir Kristján.
Kristján segir að þrátt fyrir
mikið fylgi B-lista meðal vinn-
andi verkamanna hafx listinn
orðiö undir vegna þess að rúm-
lega 260 manns á aldrinum 70-94
ára greiddu atkvæði og meiri-
hluti þess kaus stjórnarlistann.
„Hefði þetta fólk haft tillögurétt
en ekki kosningarétt hefðum við
unnið þetta,“ segir Kristján.
-SÁ
Nemendur úr Dansskóla Heiðars
Ástvaldssonar verða með sölubás í
Kolaportinu laugard. 23. mars frá kl.
11-17 til styrktar keppnisferð til
Blackpool. Seldar verða kökur, plöt-
ur og ýmislegt kompudót.
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Bjarnarbraut 2,
Borgarnesi, fimmtudaginn 28.
mars I996 kl. 10.00, á eftirfar-
________andi eignum:_____
Amarklettur 1, Borgamesi, þingl. eig
Ólafrxr Þór Jónsson, gerðarbeiðendu
Lífeyrissjóður verslunarmanna, Raí
veita Borgamess, Sameinaði lífeyris
sjóðurinn og sýslumaðurinn í Borgar
nesi.
Réttarholt 6, Borgarnesi, þingl. eig
José A. Rodriques Lora og Huld,
Karitas Harðardóttir, gerðarbeiðand
Kaupfélag Borgfirðinga.
Stóri-Lambhagi, Skilmannahreppi
þingl. eig. Guðbjörg Greipsdóttii
gerðarbeiðendur Byggingarsjóðu
ríkisins og Skilmannahreppur.
Vatnsendahlíð 5, Skorradalshreppi
þingl. eig. Öm Stefánsson, gerðar
beiðandi tollstjórinn í Reykjavík.
SÝSLUMAÐURINN f BORGARNES
STEFÁN SKARPHÉÐINSSOF
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
SÍMI 568-8000
STÓRA SVIÖ KL. 20.00:
HIÐ UÓSA MAN
eftir íslandsklukku Halldórs
Laxness i leikgerð Bríetar
Héðinsdóttur
5. sýn. sud. 24/3, gul kort gilda, örfá
sætl laus, 6. sýn. fim. 28/3, græn kort
gilda, fáein sæti laus 7. sýn. Id. 30/3,
hvít kort gilda, uppselt.
ÍSLENSKA MAFÍAN
eftir Einar Kárason og Kjartan
Ragnarsson.
Lau. 23/3, fös. 29/3. Sýningum fer
fækkandi.
Stóra sviðið ki. 14.00
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Sud. 24/3, sud. 31/3, sud.14/4.
Sýningum fer fækkandi.
STÓRA SVIÖ KL. 20:
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Fös. 22/3, fáein sæti laus, sun 31/3.
ld.13/4, Þú kaupir einn miða, færð tvo!
Samstarfsverkefni
við Leikfélag Reykjavíkur:
Leikhópurinn Bandamenn sýna á Litla
sviði
AMLÓÐA SAGA
eftir Svein Einarsson og leikhópinn.
Lau 23/3 kl. 17.00, sud,.24/3 kl. 17
þri. 26/3 kl. 20.30, fid. 28/3 kl. 20.30.
Alheimsleikhúsið sýnir á
Litla sviði kl. 20.00:
KONUR SKELFA
toilet-drama eftir Hlín
Agnarsdóttur.
Föd. 22/3, uppselt, laud. 23/3, uppselt.
sud. 24/3 uppselt, mið. 27/3, uppselt,
fös. 29/3, uppselt, lau. 30/3, uppselt,
fös. 12/4, Id. 13/4, fáein sæti laus.
Barflugurnar sýna á
Leynibarnum.
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
Föd. 22/3, kl. 20.30, uppselt, laud. 23/3
kl. 23.00, örfá sæti laus, föst. 29/3, kl.
23.00, örfá sæti laus, sud. 31/3, kl.
20.30, fáein sæti laus, fös. 12/4,
uppselt, Id. 13/4.
Tónleikaröð LR
á stóra sviðinu kl. 20.30
Þriöjud. 26/3, Graudualekór
Langholtskirkju, Kór Öldutúnsskóla og
Skólakór Kársness, Miðaverð 1.000.
Fyrir börnin: Línu-bolir og
Linupúsluspil.
Miðasalan er opin alla daga frá
kl. 13-20, nema mánudaga frá
kl. 13-17, auk þess er tekið á
móti miðapöntunum í sima
568-8000 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar
- frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
STÓRA SVIðlö KL. 20.00:
TRÖLLAKIRKJA
eftir Ólaf Gunnarsson í leikgerð
Þórunnar Sigurðardóttur.
6. sýn. á morgun, uppselt, 7. sýn. fid.
28/3, uppselt, 8. sýn. sud. 31/3 kl.
20.00. 9. sýn. föd. 12/4,10. sýn. sud.
14/4.
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
í kvöld, uppself, föd. 29/3, uppselt, 50.
sýn. lau 30/3 uppselt, fid. 11/4, Id. 13/4,
fid. 18/4, föd. 19/4, uppselt.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Á morgun kl. 14.00, örfá sæti laus,
sud. 24/3 kl. 14.00, uppselt, sud. 24/3
kl. 17.00, örfásæti laus, Id. 30/3 kl.
14.00, uppselt, sud. 31/3 kl. 14.00,
uppselt, 50. sýn. Id. 13/4 kl. 14.00, sud.
14/4kl. 14.00.
LITLA SVIÐIÐ KL. 20.30.
KIRKJUGARDSKLÚBBURINN
eftir ívan Menchell
Á morgun, uppselt, sud 24/3, laus
sæti, fid. 28/3, uppselt, sud. 31/3,
uppselt.
SMÍÖAVERKSTÆÖIA KL. 20.00:
LEIGJANDINN
eftir Simon Burke
Á morgun, fid. 28/3, næst síðasta sýn.,
sud. 31/3, síðasta sýning.
Sýningin er ekki við hæfi barna. .
Ekki er hægt að hleypa gestum inn í
salinn eftir að sýning hefst.
Gjafakort í leikhús -
sígila og skemmtileg gjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og
fram að sýningu sýningardaga.
Einnig símaþjónusta frá kl. J0.00
virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Faxííei 1200
SÍMI MlðASÖLU: 551 1200
SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ!
Tónleikar
Hollenska pönkhljómsveitin
Bobwire
Hoflenska pönkhljómsveitin Bo-
bowire heldur síðdegistónleika kl.
17 í dag, 22. mars, í Hinu húsinu.
Síðar um kvöldið stígur sveitin á
stokk í Norðurkjallara MH og Maus,
Saktmóðigur og Örkuml verða
henni til halds og trausts. Laugar-
dagskvöldið 23. mars eru lokatón-
leikar á Tveimur vinum, þá munu
einnig leika Saktmóðigur, Örkuml
og Botnleðja.
Faxnúmer 568-0383.
FRAMBOÐSFRESTUR
Ákveðið hefur verið að viðhafa
allsherjaratkvæðagreiðslu í Verzlunarmanna-
félagi Reykjavíkur um fulltrúa á 38. þing
Alþýðusambands íslands.
Kjörnir verða 65 fulltrúar og jafnmargir til vara.
Listar ásamt meðmælum 100 fullgildra
félagsmanna VR þurfa að hafa borist kjörstjórn
á skrifstofu Verzlunarmannafélags Reykjavíkur,
Húsi verzlunarinnar, fyrir kl. 12 á hádegi
mánudaginn 25. mars nk.
KJÖRSTJÓRN