Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Qupperneq 32
Alla laugardagai jt Vertu viðbúin(n) mmm vinningi! KIN FRETTASKOTIO SÍMINN SEMALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað 1 DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum alian sólarhringinn. 550 5555 FOSTUDAGUR 22. MARS 1996 Helgarblað DV: Aldrei á svið aftur í helgarblaði DV kennir margra grasa að þessu sinni líkt og endranær. Þar er að finna opnuvið- tal við Bergþóru Árnadóttur söng- konu sem segist ekki stíga á svið framar eftir alvarlegt bílslys sem hún lenti í fyrir hálfu þriðja ári. Bergþóru, sem búið hefur í Dan- mörku undanfarin átta ár, hefur mætt mikið mótlæti en hún neitar að gefast upp. ^ Þá er rætt við Helga Skúlason ~sem leikstýrir á ný eftir 14 ára hlé og Hafstein Hafliðason garðyrkju- mann um vorverkin og gildi garð- verka fyrir sálina. Þá er í blaðinu umfjöllun um hálsbindi og binda- karla. 16 ára ökumaður: Eltur af lög- reglu austur í Þrengsli Sextán ára gamall ökumaður og _ ung stúlka á stolnum bíl voru í nótt ^"elt af lögreglu úr Kópavogi og aust- ur á Þrengslaveg. Þar missti hinn ungi ökumaður bílinn út af og ævin- týri næturinnar lauk. Búið var að kalla út aðstoð lög- reglu á Selfossi og láta Reykjavíkur- lögregluna vita áður en ökuferðin var á enda. Nokkrar skemmdir urðu á bílnum en ungmennin sluppu ómeidd. Bílnum hafði verið stolið í fyrri- nótt. Um klukkan tvö í nótt kom Kópavogslögreglan auga á hann á Dalvegi og hófst þar eftirförin. Ekið var greitt út úr bænum og upp á Suðurlandsveg. Skömmu eftir að komið var á Þrengslaveg- inn reyndi ökumaðurinn að komast _úit á hliðarveg sem ekki reyndist ökufær. -GK BOLLALEGGINGARNAR ERU FLÓKNARí LANG- HOLTINU! Allsherjaratkvæðagreiðsla Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Sindra á Austfjörðum: Meirihluti heimilar stjórn úrsógn úr FFSÍ - vilja stofna sjómannasamtök á Austfjörðum vegna óánægju með landssamtökin „Það var samþykkt með miklum meirihluta að heimila stjórn fé- lagsins að segja skilið við Far- manna- og fiskimannasamband fs- lands. Það voru 74 prósent félags- manna sem samþykktu að gefa sitt umboð til úrsagnar en 24 prósent voru. á móti,“ segir Sturlaugur Stefánsson, formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Sindra á Austfjörðum, um úrslit allsherjar- atkvæðagreiðslu sem fram fór meðal félagsmanna. Félagar í Sindra, félagi skip- stjórnarmanna á Austfjörðum, greiddu atkvæði samkvæmt sam- þykkt félagsfundar um það hvort stjóm félagsins væri heimilt að segja sig úr Farmanna- og fiski- mannasambandi íslands. Áður hafði aðalfundur félagsins sam- þykkt tillögu um að grípa til úr- sagnar. Sturlaugur segir að óá- nægja þeirra Sindramanna snúist um slaka frammistöðu forystu- manna landssamtaka sjómanna. „Þessi óánægja er ekki bundin við forystumenn Farmannasam- bandsins eina og sér. Þetta á við alla forystu landssamtakanna. Menn telja samninga vera afskap- lega lélega. Þar ber hæst löndunar- frí á loðnu sem ekki eru til. Þá má nefna ákvæði um rétt til launa i veikindafríum og margt fleira,“ segir Sturlaugur. Hann segir að næsta skref verði að rita öðmm félögum sjómanna á Austfjörðum bréf með ósk um við- ræður sem miði að því að stofna samtök sjómanna í fjórðungnum. „Það er draumurinn að stofna til samtaka sjómanna á Austfjörð- um. Við munum taka okkur góðan tíma til að skoða þessi mál. Það skýrist innan nokkurra mánuða hvort af endanlegri úrsögn verð- ur,“ segir Sturlaugur. Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands, vildi í samtali við DV ekkert segja um niðurstöðu Sindramanna þar sem samband- inu hefði enn ekki verið kynnt niðurstaðan formlega. „Við verðum með stjómarfund þann 1. apríl og þar verður okkur væntanlega gerð grein fyrir þessu máli, sagði Guðjón. -rt „Þú mátt kyssa brúðina“ hljómaði í Bláa lóninu í gær. Marokkómaðurinn Jamal Etahiri kom sinni elskulegu skemmti- lega á óvart með því að undirbúa hjónavígslu á litlum báti í lóninu í gær. Brúðurin, sem er bandaísk og heitir Sus- anne Marten, var yfir sig hrifin af framtakinu. Bláa lónið varð fyrir valinu þar sem Jamal þykir það fegursti staður jarðar. Sjá frétt bls. 2 -em/DV-mynd Ægir Már Kárason Úthafskarfi: íslendingar fá 45 þús- und lestir í sinn hlut „Þetta sýnir mönnum bara að það er hægt að ná samkomulagi. Vonandi er að samkomulagið verði hvatning til þess að samið verði um veiðar í Barentshafi og á norsk-ís- lenska síldarstofninum," sagði Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra í morgun um samkomulagið um úthafskarfaveiðarnar sem náð- ist í gær. Tillaga íslendinga og Grænlend- inga um veiðar á úthafskarfa á Reykjaneshrygg var samþykkt af fimm þjóðum af sjö á fundi NEAFC í London í gær og er það tilskilinn meirihluti. Skipting afla samkvæmt tillögunni er sú að íslendingar mega veiða 45 þúsund lestir, Grænlend- ingar og Færeyingar saman 40 þús- und lestir, Rússar 36 þúsund lestir, Norðmenn 6 þúsund lestir, Pólverj- ar 1 þúsund lestir og aðrir 2 þúsund lestir. Rússar og Pólverjar greiddu at- kvæði á móti tillögunni og svo get- ur farið að Rússar virði ekki sam- komulagið. Þá myndu þeir ekki fá að landa hér á landi og yrðu þá veið- ar á svæðinu þeim mun dýrari og erfíðari en ella vegna vegalengdar til heimahafna. -S.dór L O K I Veðriö á morgun: Kólnandi veður Samkvæmt spánni verður suðvestan- og vestanátt og kóln- andi veður. É1 verður um vest- anvert landið og einnig með norðurströndinni er líður á daginn, annars verður bjart veður. Hitinn verður frá -3-0 stig. Veðrið í dag er á bls. 36 Flexello Vagn- og húsgagnahjól Voulsen Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499 -Hut Sími 533 2000 Ókeypis heimsending

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.