Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Síða 6
LAUGARDAGUR 11. MAÍ1996
e útlönd
stuttar fréttir
Fórust í þyrluslysi
Sextán fórust þegar tvær banda-
riskar herþyrlur á bresk- banda-
1 rískri heræfingu í Norður- Karólínu-
I ríki rákust saman.
Sagði af sér
p.v.
Narasimha Raó
I sagði af sér
sem forsætis-
ráðherra Ind-
lands í kjölfar
: : þingkosning-
anna þai' sem
|| Kongressflokk-
I urinn galt afhroð. Vinstriflokkamir
horfa til marxista sem næsta forsæt-
ó isráðherra.
Bátafólks leitaö
Lögregla í Hong Kong kembdi
hæðimar umhverfis borgina í leit aö
| víetnömsku bátafólki. Bátafólkið
| hafði kveikt í Ðóttamannabúðunum
I og flúið vegna þess að senda átti það
aftur til Víetnam.
m >■, .
Óvissa um flóttamenn
Övissa ríkti um afdrif þúsunda Lí-
i; beríubúa sem flúið höfðu ógnaröld-
J ina heima fyrir á ryðbmnnu flutn-
ingaskipi. Yfirvöld á Filabeinsströnd-
i: inni vildu ekki taka á móti fólkinu
|j en skipíð var á leið til Ghana þegar
I síðast fréttist.
Sakaður um hlutdrægni
Lögmenn, sem verja Serbann Dus-
j an Tadic við stríðsglæparéttarhöldin
j í Haag, ásökuðu eitt sérfróðra vitna
| um að sýna hlutdrægni á kostnað
1 Serba.
Vill frið fyrir kosningar
Boris
Jeltsín, forseti
| Rússlands,
sagðist ætla til
| Tsjetsjeníu á
næstunni og
I vonaðist til að
samningar um
| frið yrðu und-
á irritaðir fyrir
forsetakosningarnar 16. júní.
Drukknaði
Krufning leiddi í ljós að William
| Colby, fyrrum yfirmaður bandarisku
leyniþjónustunnar, CIA, kann að hafa
fengið hjartaáfall áður en hann féll út-
'k byrðis af bát og drukknaði.
„Bara arabar“
ísraelskir hermenn sögðu að eld-
: flaugaárásin á flóttamannabúðimar í
I Kana í Líbanon, þar sem yfir 100
■ manns fórast, hafi verið mistök en
þeir sæju ekki eftir neinu þar sem
fómarlömbin hefðu „bara verið hópur
I araba“.
INiðurskuröur
Ný hægristjóm Spánar hefur hafið
niðurskurðarhnífinn á loft og fækkaö
opinberum störfum um þriðjung.
■
At obláturnar
Pólsk kona á fertugsaldri á þriggja
ára fangelsisdóm yfir höfði sér fyrir
að hafa etið allar oblátumar og dmkk-
I ið messuvínið í kirkjunni sinni.
Heimsmarkaðsverð:
Bensín og hrá-
olía lækkaöi
Mitt í öllu tali olíufélaganna hér
heima um hækkandi heimsmark-
aðsverð á bensíni og olíu, sem rök-
stuðning fyrir verðhækkunum til
neytenda, þá lækkaði verðið í Rott-
erdam og London í vikunni. Tonnið
af 95 oktana bensínið lækkaði úr 236
í 234 dollara, tonnið af 98 oktana
bensíni lækkaði úr 240 í 238 dollara
og hráolíutunnan lækkaði í London
úr tæpum 20 dollurum í 19 dollara.
Fyrir mánuði var tunnan seld á
rúma 23 dollara. Verðlækkunin á
mánuði er 17%.
Hlutabréfaverð í helstu kauphöU-
um heims virtist vera á uppleið í
lok vikunnar eftir einhverja lækk-
un að undanfömu, sér í lagi i WaU
Street vegna ótta við aukna verð-
bólgu og hækkandi vexti. -Reuter
Njósnarannsóknar krafist í Danmörku:
Langtum fleiri á
skrá en í Noregi
Pálmi Jónasson, DV, Kaupmannahöfn:
Afhjúpun á njósnum og ólöglegri
skrásetningu upplýsinga í Noregi
hefur orðið til þess að nú er krafist
sams konar rannsóknar í Dan-
mörku. í kalda stríðinu skrásettu
leyniþjónustur lögreglunnar og
danska hersins upplýsingar um
mun fleiri borgara en í Noregi, þar
sem 50 þúsund voru skráðir.
Gert Petersen, fyrrum formaður
Sósíaliska þjóðarflokksins, hefur
krafist þess að andrúmsloftið verði
hreinsað og segist sannfærður um
að hann sjálfur hafi verið settur á
lista árið 1947 vegna ferðar sinnar
til Júgóslavíu.
Á danska þinginu í gær kom fram
krafa um að Björn Westh dóms-
málaráðhera og Hans Hækkerup
vamarmálaráðherra settu af stað
sams konar rannsókn og gerð var í
Noregi og ollið hefur miklu írafári
þar.
Erling Jensen, sem var dóms-
málaráðherra 1978, upplýsti það ár
að þá hefðu 300 þúsund verið teknir
af skrá leyniþjónustunnar á árun-
um 1965- 1978, þar af 15 þúsund
1977. Aldrei hefur þó komið fram
hver heildarfjöldinn hefur verið eða
hve margir eru á skrá nú.
„Leyniþjónustan er grunsamlega
leyndardómsfull þótt ég trúi því
ekki að hún hafi átt jafn náið sam-
starf við sósíaldemókrata og gerðist
í Noregi," sagði Gert Petersen í við-
tali við JyHands-Posten á föstudag.
Bandaríski leikstjórinn Francis Ford Coppoia lék á als oddi þegar dómnefndin á kvikmyndahátíðinni í Cannes var
kynnt í maísólinni í gær. Coppola er formaður nefndarinnar en hún hefur það verkefni að velja bestu myndina úr hópi
22 mynda sem sýndar verða á hátíðinni sem lýkur 20. maí. Sú besta hlýtur gullpálmann. Hér er Coppola í fylgd dóm-
nefndar- og leikkvennanna Gretu Scacci og Nathalie Baye sem er frönsk. Símamynd Reuter
Hungruö börn í argentínskum fátækrahverfum:
flá og éta ketti
Drepa,
Myndir af börnum í fátækrahverf-
um borgarinnar Rosario í Argentínu,
þar sem þau drepa, flá og elda ketti,
hafa valdið mikUli hneykslun og
komið yfirvöldum, sem státa af efna-
hagsumbótum, í afar vandræðalega
stöðu.
Yfirvöld vísuöu fréttum um kattaát
barnanna á bug í fýrstu og héldu þvi
fram að fjölmiðlar hefðu greitt þeim
fyrir að matreiða kettina. En fuUyrð-
ingar yfírvalda fengu takmarkaðan
hljómgrunn meðal almennings í Arg-
entínu og innan skamms var samúð-
in ÖU barnanna.
Mikið atvinnuleysi er í Rosario
sem er iðnaðarborg. Stjórnmálamenn
lofuðu strax auknum íjárframlögum
tU fátækrahjálpar í borginni þar sem
gríðarleg vandamál blasa hvarvetna
við. Kattaát barnanna þykir vera í
mikiUi andstöðu við fuUyrðingar yfír-
valda um velmegun en Carlos Menem
forseti hefur lýst því yfir að hann vUji
koma Argentínu í hóp tíu auðugustu
ríkja heims fyrir aldamót.
Reuter
í varðhald fyrir
handsprengju-
tilræði
Dómari í Kaupmannahöfn hefur
; dæmt tvítugan mann í 27 daga
; gæsluvarðhald en hann er grmiað-
ur um að hafa kastað. tveimur
handsprengjum á meðlimi Hells
; j Angels mótorhjólagengisins fyrr í
vikunni. Maðurinn er ekki meðlim-
1 ur erkióvina HeUs Angels,
IBanditos-gengisins, en stuðnings-
maður þeirra.
Samkvæmt vitnum köstuðu
tveir menn handsprengjum inn á
' lóð Brians „The Brake“ Jacobsens,
I meðlims Hells Angels, en sá var að
vinna við öryggisgirðingu um-
(hverfis heimUi sitt í einu úthverfa
Kaupmannahafnar ásamt unnustu
| sinni og vini. Jacobsen missti ann-
;; an fótinn fyrir neðan hné í tUræð-
Iinu en unnustan og vinurinn
sluppu með skrámur. Jacobsen
virðist hafa átt von á hefnd vegna
dauða tveggja Banditos-meðlima
sem myrtir voru í síðasta mánuði
en hann var klæddur skotheldu
vesti og var með hlaðna byssu í
beltinu.
Spænskum
dómurum hótað
lífláti
; Tveir spænskir dómarar, sem
rannsaka „óhreina stríðið" gegn
aðskilnaðarhreyfmgu Baska á síð-
Iasta áratug, hafa fengið mörðhótan-
ir um síma. Óþekktur maður
hringdi í annan dómarann og
sagði: „Tíkarsynimir ykkar. Þið
eigið eftir að mæta sömu örlögum
og vinur ykkar, saksóknarinn." Er
talið að hringjandinn hafi verið að
vísa tU Carmen Tagles saksóknara
sem Baskar myrtu 1989.
Dómararnir hafa ákært nokkra
fyrrum frammámenn sósíalista í
innanríkisráðuneytinu og þrjá for-
ingja i öryggislögreglunni vegna
meintra tengsla við dauðasveitir
sem stofnaðar vom tU höfuðs að-
| skUnaðarhreyfingu Baska| ETA.
I
Smokkaleysi og
mannfjölgun
vegna
kosninga
Vegna anna við að undirbúa
þingkosningamar á Indlandi
gleymdu stjórnvöld að semja um
innkaupsverð á smokkum frá fram-
leiðendum og skapaði það mikið
óvissuástand á miUjónum ind-
1 verskra heimUa og víðar. Að sögn
sérfræðinga um fjölskyldumál hafa
1 kosningarnar ekki einungis verið
: dýrar i sjálfú sér heldur haft þau
| áhrif að átta milljón fleiri böm fæð-
í ast á Indlandi eftir áramót en ráð
j var fyrir gert. Auk þess hefur bar-
í áttan gegn útbreiðslu kynsjúkdóma
I orðið fyrir verulegu áfaUi.
Stjórnvöld kaupa smokka og láta
: heUsugæslustöðvar um að gefa þá.
Þar kom fólk hins vegar að tómum
| kofunum og fæstir tímdu að kaupa
? smokka annars staðar á upp-
sprengdu verði. Um 25 milljónir
| indverskra para nota um 1,5 mUlj-
| arða smokka árlega.
Heimtar skaða-
bætur vegna
auglýsinga
; Fyrirsætan Linda Evangelista
hefur kært þjóðemisflokk Jean
; Maries Le Pens í Frakklandi og
í heimtar um 13 miUjónir króna í
; skaðabætur vegna þess að flokkur-
í inn notaði mynd af henni í auglýs-
ingum sínum í leyfisleysi. Notaði
f flokkurinn myndir af Lindu í gevi
: Jóhönnu af Örk á auglýsingaskUt-
t um sem auglýstu fundi og göngur
flokksins í París 1. maí. Lögmaður
I Lindu segir að ekki megi tengja
I. fólk pólitískum samtökum eða nota
ímynd þess án leyfis. Hann sagði
auglýsingarnar rýra mjög ímynd
i; Lindu. Reuter