Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Qupperneq 10
10
Ik í fréttum
LAUGARDAGUR 11. MAI 1996
Rúnar Alexandersson er bjartasta von Islendinga í fjmleikunum:
Klifraði
„Ég byrjaði fimm ára að æfa fim-
leika. Pabbi minn kynnti það fyrir
mér en hann var sjálfur að stunda
kraftlyftingar. Hann tók eftir þvi að
ég var alltaf að klifra upp um allt og
hann taldi að fimleikar myndu
henta mér vel. Ég var bara að leika
mér i þessu í byrjun og prófa mig
áfram í ýmsum áhöldum og svo fór
ég smám saman að fá meiri áhuga á
fimleikunum, vildi fara að keppa og
ná einhverjum árangri," segir Rún-
ar Alexandersson, fimleikamaður í
Gerplu.
Rúnar, sem er ein bjartasta fim-
leikastjarna íslendinga, heitir réttu
nafni Ruslan Ovtchinnikov. Hann
er 19 ára gamall, fæddur i Smolensk
í Rússlandi en alinn upp í Tallinn i
Eistlandi. Rúnar flutti hingað til
lands árið 1994 ásamt eistneskum
þjálfara sínum, Matta Kirmes, og
hlaut íslenskan ríkisborgararétt í
fyrra en Matti þjálfar meistaraflokk
fimleikafélagsins Gerplu ásamt
Heimi Jóni Gunnarssyni.
Miklar vonir eru bundnar við
Rúnar, sérstaklega á uppáhaldsá-
haldinu hans, bogahestinum, í fram-
tíðinni. Hann er aðeins 19 ára gam-
all og á langan tíma eftir til að kom-
ast á toppinn. Blómatími fimleika-
manna er einmitt á aldrinum 23-26
ára og nýverandi ólympíumeistari
er 25 ára þannig að tíminn er næg-
ur. Rúnar tók nýverið þátt í Evrópu-
móti með góðum árangri og hefur
hlotið rétt til þátttöku á Ólympíu-
leikunum í Atlanta í sumar.
allt
krakki
cvnrnoiÆ
upp
við íþróttaanda
Rúnar er fáorður um sjálfan
og uppvöxt sinn í Tallinn.
Hann segir að móðir
sín, faðir og bróðir
búi ennþá í Tallinn
en hann hefur ekki
fengið tækifæri til
að hitta þau í
nokkur ár.
Mamma hans er
heimavinnandi
húsmóðir enda
segir Rúnar að
erfitt sé að fá vinnu
í Eistlandi og
pabbi hans
vinnur í
kapal-
verk-
smiðju.
Rúnar
sig
a emn
yngri bróður sem
hefur æft fimleika en
hann hætti æfingum
fyrir nokkrum árum.
„Fjölskyldan er áhugasöm um
íþróttir og ég er alinn upp við
íþróttaanda á heimilinu," segir
Rúnar en neitar því að jafnmikil
íþróttadella hafi ríkt meðal barna
og unglinga í Eistlandi og Sovétríkj-
unum sálugu meðan hann var að al-
ast upp og óneitanlega ríkir hér á
landi. Rúnar segir að krakkar hafi
almennt séð leikið sér í íshokkí, fót-
bolta og ýmsum leikjum og íþrótt-
um en áhuginn hafi beinst á fleiri
brautir en hér á landi þar sem
neinn ríkisborgararétt,“ útskýrir
Rúnar og segir að ástandið hafi ver-
ið skrýtið í Eistlandi því að Rússun-
um hafi ekki líkað neitt sérlega vel
við Eistana og öfugt.
-En hvernig skyldi það hafa kom-
ið til að hann fluttist til íslands? Það
er Heimir Jón sem verður fyrir
svörum.
Gaf strax
jákvætt svar
„Árið 1993 fór ég til Eistlands
á þjálfaranámskeið og sá hvað
var í gangi þar og að þeir voru með
toppfimleikamenn. Þá kynntist ég
Matta Kirmes. Strákarnir í fim-
leikalandsliðinu þeirra voru notaðir
til að sýna og
______ þjálfa og ég
iHÍ hreifst af
þjálfun-
araðferð-
unum hjá
honum.
Ári seinna
vantaði okkur
karlaþjálfara, ég
hringdi í hann til
Miklar vonir eru bundnar við rússnesku fimleikastjörnuna Rúnar Alexanders-
son sem keppir fyrir hönd íslands á Óiympíuleikunum í fimleikum í Atlanta í
sumar. Rúnar er meðal 19 bestu á bogahesti í heiminum og hefur tímann fyrir
sér því að hann er aðeins 19 ára. íslenskir fimleikamenn vona að hann komi ís-
landi á kortið í fimleikaheiminum.
Eftir að Eistlendingar hlutu sjálf-
stæði var Rúnar í þeirri undarlegu
aðstöðu sem fæstir íslendingar
þekkja að vera ríkisfangslaus og
fékk því ekki að keppa á stórmótum
í útlöndum. Eins og margir
DV-mynd BG
Svíþjóðar, þar sem hann bjó á þeim
tíma, og hann gaf fljótlega jákvætt
svar,“ segir Heimir.
í millitíðinni hafði Rúnar sam-
band við Matta Kirmes og bað hann
að þjálfa sig en þjálfunar- og æflnga-
aðstaða hans hafði farið í upp-
lausn með upplausn
Sovétríkjanna. Matti
og Rúnar komu
báðir hingað til
lands til að
kanna aðstæður,
leist vel á sig og
ákváðu að slá
til. Matti og
Heimir þjálfa
nú saman
meistarahóp
Gerplu
en segja má að Matti sé persónuleg-
ur þjálfari Rúnars og fylgir hann
honum í keppnisferðalög til út-
landa.
Mikið á mótum
erlendis
Rúnar æfir fimleika hjá Gerplu
að meðaltali í þrjá og hálfan tíma á
hverjum degi og hefur þjálfað tvo
yngri hópa. Hann hefur aðlagast ís-
lensku þjóðfélagi mjög vel. Hann er
mikið á ferðinni á fimleikamót er-
lendis og var til dæmis á Evrópu-
móti í fimleikum nýlega. Hann
saknar að vonum fjölskyldu sinnar í
Eistlandi en er í miklu og góðu sam-
bandi við fólkið í Gerplu, þjálfara og
annað fímleikafólk, og svo eru þeir
góöir vinir, hann og Gunnlaugur
Hjálmarsson handboltadómari, en
Gunnlaugur er húsvörður hjá
Gerplu.
Rúnar skilur íslensku mjög vel og
talar hana prýðilega þó að hann sé
aðeins búinn að búa hér í rúmt ár.
Hann býr hjá eistneska þjálfaranum
sínum, Matta Kirmes, og konu hans
og á íslenska kærustu, sem að sjálf-
sögðu æfir líka fimleika hjá Gerplu.
Rúnar segist ekki eiga mörg mark-
mið í lífinu en stefnir þó að því að
standa sig vel í fimleikunum.
Fékk undanþágu
Rúnar Alexandersson er eini ís-
lenski fimleikamaðurinn sem fer á
Ólympíuleikana í Atlanta í sumar
en hann var einn af fjölmörgum
sem ekki sóttu um á tilskildum tíma
og einn af örfáum sem fengu undan-
þágu til að keppa. Heimir segir að
menn hafi verið búnir að gefa upp
alla von um að Rúnar fengi undan-
þáguna þegar svarið barst enda sé
samkeppnin mikil. Aðstæður hans
hafi óneitanlega verið sérstakar,
hann hafi verið landlaus og því ekki
fengið að keppa á heimsmeistara-
mótinu i Sabai í Japan síðasta haust
en bestu fimleikamennirnir fengu
þátttökurétt á Ólympíuleikunum.
„Við stefnum að því að hann
komist í úrslit á sínu besta áhaldi,
bogahestinum. íslendingar eru ekki
þekktir í fimleikaheiminum og það
tekur tíma fyrir hann að sanna sig,“
segir Heimir og bendir á að Rúnar
sé þegar kominn í hóp þeirra
bestu. Hann hafi orðið Norður-
landameistari nú nýlega þó að
hann haíi ekki verið upp á sitt
besta þann dag sem keppnin
fór fram og svo hafi hann
lent í 19. sæti á heims-
meistaramóti karla í Pú-
erto Ríkó.
„Við erum sáttir við
það,“ segir Heimir og
bendir á að Rúnar sé að-
eins 19 ára. Hann eigi
mikinn tíma eftir. -GHS
Rúnar Alexandersson,
fimleikamaður í Gerplu,
hefur aðlagast íslensku
þjóðfélagi mjög vel.
Hann á íslenska kær-
i ustu og umgengst mest
I félaga sína í fimleikafé-
laginu. Hann er hér í
i sjómanni með hús-
■ verðinum í Gerplu,
Gunnlaugi Hjálmars-
H syni handboltadóm-
11 ara. DV-mynd BG