Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Síða 16
16
istamennska
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996
Þytur frá Hóli sló í
gegn í Danmörku
Þrír íslenskir kynbótahrossadóm-
arar fóru tvær ferðir til Danmerkur
nýlega að dæma kynbótahross.
Fyrri ferðin var farin til Vil-
helmsborgar á Jótlandi sem er mið-
stöð fyrir hestamennsku í Dan-
mörku. Var það aöalkynbótasýning
sumarsins
Kristinn Hugason og Jón Vil-
mundarson leiddu sitt hvora dóm-
nefndina og unnu með þeim tveir
danskir dómarar. Helgi Eggertsson
fór utan sem viljadómari.
Danir hafa tekið upp kerfi sem er
svipað okkar kerfi en hafa viðhald-
ið að menn megi sýna fet ef þeir
vilja og eins er viljadómari. Þeir
telja enn þá að óvant sýningarfólk
geti haft áhrif á dóma og því sé
ávinningur að því að reyndur reið-
maður dæmi hrossin.
Á Hedeland á Sjálandi var miklu
minni sýning, nánast eingöngu fyr-
ir Sjáland. Ekki voru dæmd kyn-
bótahross með afkvæmum en
nokkrir stóðhestar voru sýndir með
afkvæmum, svo sem Jarl frá Gran-
bakken, Kvistur frá Gerðum og
Darri frá Kampholti.
Gassi frá Vorsabæ var kynntur
sem nýkeyptur stóðhestur.
Þytur frá Hóli, sýndur af Jóhanni
R. Skúlasyni, fékk langbestu út-
komu sýningarinnar, 7,95 fyrir
byggingu, 8,81 fyrir hæfileika og
8,47 í aðaleinkunn.
Sæfaxi frá Susja fékk 8,07 í aðal-
einkunn. Sjö stóðhestar á aldrinum
fimm til sjö vetra voru fulldæmdir
og þessir tveir fyrrnefndu hestar
voru
þeir einu sem
fengu 7,75 í aðal-
einkunn eða meir.
Fjórir fjögurra
vetra hestar voru
byggingardæmdir.
Strákur frá Arn-
akke fékk
8,08 í ein-
kunn og
Djákni frá
Eriksholm
8,00.
Þrettán
hryssur
aldrinum sex til
átta vetra fengu fullnaðardóm og
fengu sex þeirra 7,50 eða meira og
stóð Kolbrún frá Brjánslæk efst
7,98 í aðaleinkunn. Hún
var sýnd af Gurra
, Ágústssyni.
Þá voru full-
dæmdar sex hryss-
ur, níu vetra og
eldri, og fengu
», tvær þeirra 7,50
eða meira.
E.J.
f mm?
Margir Islendingar á
topp tíu listanum í Þýskalandi
Fjórgangur
Þegar keppni lauk á fjórum
helstu íþróttamótunum í Þýska-
landi árið 1995 var reiknaður út ár-
angur helstu knapanna. Lagður er
saman besti árangur fyrir hverja
grein á tveimur mótum.
íslenskir knapar blönduðu sér í
baráttuna á top tíu listanum fyrir
árið 1995, jafht þeir sem gera út frá
íslandi sem Þýskalandi.
Má nefna Styrmi Árnason sem
náði efsta sæti í gæðingaskeiði á
Nótt frá Hlemmiskeiði en í þeim
flokki voru fimm íslendingar í sex
efstu sætunum. Aðrir íslenskir
knapar eru nefndir á listanum sem
hér fylgir en þar er nefndur efsti
knapinn í hverri grein og íslending-
ar í 2.-10. sæti.
I 150 og 250 metra skeiði gilda rll11ITig8ligUr
tölurnar fyrir samanlagðan tíma á o a
tveimur mótum.
6. Jóhann G. Jóhannesson 13,84
á Galsa frá Skarði
7. Styrmir Árnason 13,70
á Frökk frá Skammbeinsstöðum
1. Gaby Fúchtenschnieder 14,83
á Merg frá Wendaliushof
10. Styrmir Árnason 13,23
á Bessa
Slaktaumatölt
1. Bernd Vith 16,13
á Þorra frá Fljótsdal
10. Jón Steinbjörnsson 14,53
á Hálegg frá Fossi
Tölt
Styrmir Arnason er efstur á gæðingaskeiðslistanum í Þýskalandi.
DV-mynd E.J.
1. Karly Zingsheim 14,27
á Gyðju frá Mosfelli
3. Birgir Gunnarsson 14,03
á Hatti
5. Einar Hermannsson 13,86
á Golu frá Skáney
1.-2. Tanja Gundlach 14,27
á Geysi frá Hvolsvelli
1.-2. Karly Zingsheim 14,27
á Feyki frá Roderath
7.-8. Styrmir Árnason 13,14
á Frökk frá Skammbeinsstöðum
7.-8. Einar Hermannsson 13,14
á Golu frá Skáney
9.-10. Jóhann G. Jóhannesson
13,10 á Galsa frá Skarði
150 metra skeið
1. Jens Fúchtenschneider 30.00
á Dreng frá Hoftúnum
5. Sigurður Birgisson 31,06
á Þrótti frá Miðhjáleigu
250 metra skeið
1. Lothar Schenzel 44,24
á Gammi frá Krithóli
2. Hinrik Bragason 44,42
á Eitli frá Akureyri
3. Klaas Dutihl 44,64
á Trauta frá Hall
4. Styrmir Árnason 45,23
á Nótt frá Hlemmiskeiði
7. Einar Hermannsson 45,98
á Torfa frá Hjarðarhaga
10. Styrmir Árnason 46,57
á Sindra
Gæðingaskeið
1. Styrmir Ámason 17,67
á Nótt frá Hlemmiskeiði
2. Einar Hermannsson 16,19
á Torfa frá Hjarðarhaga
3. Hinrik Bragason 16,01
á Eitli frá Akureyri
5. Jón Steinbjörnsson 14,57
á Snudda frá Raufarfelli
6. Ragnar Ólafsson 14,55
á Víði E.J.
Fær norskan styrk til að
rækta íslenska hesta
„Ég er búinn aö standa í stappi við norsk yf-
irvöld í töluverðan tíma um að fá styrk til að
rækta íslenska hesta,“ segir Terje Nordstrand,
bóndi á eynni Huftaröy í Noregi.
„Mig langar að rækta íslenska hesta en þeir
vildu að ég ræktaði norska fjarðarhesta. Mér
var alvara og nú hef ég fengið mínu fram-
gengt, enda vil ég rækta hesta sem fólki líkar
við.
íslensku hestarnir hafa vakið mikla athygli
hér á eynni. Þeir eru geðbetri og hlýðnari en
norsku fjarðarhestarnir og margir aðilar hér
hafa lýst yfir áhuga á að eignast íslenska
hesta. Ég hef verið með kýr og hænur í eynni
en eggin hafa lækkað í verði svo ég verð að
huga að öðrum atvinnugreinum.
Ég er búinn að kaupa stóðhestinn Sindra
frá Kjarnholtum frá íslandi og hryssuna Golu
frá Bjarnarhöfn keypti ég ásamt þremur af-
kvæmum hennar undan Spæni frá Efri-Brú
frá Per Kolnæs í Noregi. Hann er þekktur
hrossaræktandi íslenskra hesta í Noregi og
aðstoðar mig við ræktunina. Ég þarf að kaupa
fimm til tíu unghross á ári hverju og það verð-
ur að vanda vel valið.
Ég hef heyrt um fleiri aðila í Noregi sem
hafa óskað eftir
styrkjum til að
rækta íslenska
hesta en þeir hafa
ekki náð því tak-
marki.
Sennilega verð
ég að vera duglegur við ræktunina því norsk
yfirvöld hafa sett 50.000 króna toll á hvern
þann íslenskan hest sem er fluttur inn i land-
ið. Það finnst mér alltof hár tollur og hann
ætti hreinlega að afnema,“ segir Terje Nord-
strand. -E.J.
Stóðhesturinn Sindri frá Kjarnholtum hefur
verið keyptur til Huftaröy í Noregi. Knapi er
Þórður Þorbergsson.
DV-mynd E.J.