Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 „Mánudagurinn var hinn dæmi- geröi vinnudagur með fund eftir fund. Ég hafði verið í fríi á föstu- deginum þannig að fyrsti hálftím- inn fór í það að taka á móti pósti sem hafði borist og pfgreiða hann,“ segir Jóhann Pálsson, garðyrkju- stjóri í Reykjavík, en hann hefur verið fenginn til að lýsa'degi í lifi sínu á þessu fallega vori, sem ver- ið hefur. x' „Klukkan hálftíu hófst stór fund- ur hjá borgarverkfræðingi með ýmsum aðilum, sem koma að sum- arvinnu skólafólks; stjóm Vinnu- skólans, atvinnufulltrúa borgar- innar, og fulltrúa Vinnumiðlunar- innar, iTR og Gatnamálastjóra. Þetta fólk hefur hist vikulega frá því um áramót til að skipuleggja Vinnuskólann og sumarvinnuna þannig að hún nýtist betur og verði borginni ekki eins dýr og verið hefur. Sumarvinnan fer að hefjast hvað úr hverju og það er nokkurn veginn ljóst hvernig sum- arvinnu unga fólksins verður hag- að í sumar og líklega í framtíð- inni,“ segir Jóhann. | Fundinum hjá borgarverkfræð- ingi lauk rúmlega hálfellefu og þá var innanhússfundur um sumar- vinnuna hjá garðyrkjudeild og embætti Gatnamálastjóra. Þar var verið að skipuleggja þann hluta sumarvinnunnar sem verður hjá þessum embættum. Af þessum fundi fór Jóhann beint á hádegis- verðarfund i skipulagsnefnd en Jóhann Pálsson garðyrkjustjóri eyddi mánudeginum í fundahöld um sumarvinnu skólafólks og síðdegið fór svo í það að skoða garða og ræða við íbúa sem hafa sótt um að fá að fella tré. DV-mynd BG Dagur í lífi Jóhanns Pálssonar, garðyrkjustjóra í Reykjavík: þurftu afgreiðslu. Það vakna allir til lífsins þegar fer að vora og þurfa að fá úrlausn sinna mála þannig að það var mikið af málum. Menn hringja og spyrja hvort hægt sé að fá tré á autt svæði, í nýju hverfi hafa myndast tjarnir fyrir utan eitt húsið og fólk vill losna við þær og alls kyns svona mál. Síðan þurfti ég að ganga frá mál- um í sambandi við Færeyjar en ég hef verið beðinn um að halda fyr- irlestur þar í lok júlí. Ég þurfti að hafa samband við Færeyingana til að fá upplýsingar um ferðir og tímasetningu. Þá var klukkan kortér yfir fjögur og vinnudagur- inn í raun átt aö vera búinn. Þá var eftir að afgreiða umsóknir um leyfl til að fella tré. Ég keyrði um bæinn, skoðaði garðana og ræddi við þá íbúa sem voru heima. Þetta er oft skemmtilegur hluti starfs míns því að ég sé garða sem ég hef aldrei séð áður og hitti nýtt fólk,“ segir hann. Rétt fyrir sjö fór Jóhann og keypti í matinn og fór svo heim til að elda. „Konan var að vinna álíka lengi og það var minn dagur að sjá um eldamennskuna," segir hann. Kvöldinu var ekki öllu eytt í sjónvarpsgláp en þó var horft á sjónvarpsfréttirnar. „Ég hafði tekið svolítið af mynd- um um helgina og ég þurfti að ganga frá þeim, skrá þær niður og það tók upp undir klukkutíma af Skoðaði garða og ræddi sumarvinnu skólafólks hann er þar áheyrnarfulltrúi og fulltrúi umhverfismálaráðs. „Ég þarf að fylgjast með þeim málum sem þar eru afgreidd. Eitt af stóru málunum þar var verið að kynna er hverfaskipulag að hverfi sjö, allt frá Ártúnsholti yfir í Selás. Það er alltaf verið að endurskoða skipulagið á eldri hverfum borgar- innar, hvað má betur fara og hvað þarf að laga. Það er verið að ljúka við að fara yfir borgina á þennan hátt. Þetta er eitt af þeim stóru verkum sem voru þarna til með- höndlunar. Annað stórt mál var líka strætis- vagnamiðstöðin i Kvosinni en þar þarf að endurskipuleggja því að fyrirhugað er að endastöð strætis- vagnanna verði aftur í Kvosinni eins og áður var. Það er mikið púsluspil hjá þeim í Borgarskipu- lagi í þessari þéttu byggð. Á fund- inum var ekkert af málum sem sérstaklega snertu grænu svæðin í borginni,“ segir Jóhann. „Að loknum fundinum hjá Borg- arskipulagi um tvöleytið hófst hin eiginlega vinna hjá mér. Þá þurfti ég að sinna þeim málum sem höfðu hlaðist upp í garðyrkjudeild- inni, til dæmis ýmis símtöl sem kvöldinu. Maður tekur alltaf svo- lítið af vinnunni með sér heim, að minnsta kosti á þessum árstíma," segir Jóhann Pálsson garðyrkju- stjóri. -GHS Finnur þú fimm breytingar? 358 Nafn:. Heimili: Vinningshafar fyrir þrjú hundruð fimmtugustu og sjöttu getraun reyndust vera: 1. Sísí Ólafsdóttir Hólagötu 35 900 Vestmannaeyjum 2. Sif Sigurðardóttir Tunguvegi 68 108 Reykjavík Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur flmm atriðum veriö breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: SHARP vasadiskó með útvarpi að verðmæti kr. 7.100, frá Hljómbæ Skeif- unni 7, Reykjavik. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr. 1.790. Annars vegar James Bond-bókin Gullauga eða Goldeneye eftir John Gardner og hins vegar bók Luzarfne North, Fín og rík og liðin lík. Vinningarnir verða gendir heim. I Merkið umslagið með iausninni: Finnur þú fimm breytingar? 358 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.