Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Síða 25
DV LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996
25
Þórir Barðdal myndhöggvari rekur legsteinagallerí:
Stutt á milli myndlistar og legsteina
„Þegar ég hef haldið sýningar hef-
ur fólk verið að biðja mig um leg-
stein vegna þess að listaverkin mín
eru mjög trúarlegs eðlis. Ég nota
mikið trúarleg tákn í verkunum
enda kemur mín andlega leit út í
þeim. í fyrstu leit ég á þetta sem
móðgun en þetta var fyrst og fremst
hroki listamannsins sem fannst
hann yfir það hafinn að gera eitt-
hvað veraldlegt. Svo áttaði ég mig á
því að það er mjög stutt á milli
myndlistarinnar og legsteina
þannig að það var í raun mjög auð-
velt að setjast niður og hanna nokk-
ur verk en þau eru líka byggð á
gömlum hefðum,“ segir Þórir Barð-
dal.
Féll fyrir
marmaranum
Þórir er listamaður og mynd-
höggvari sem hefur haldið fjölda
einkasýninga hérlendis og erlendis.
Hann lærði í Myndlista- og handíða-
skólanum en hélt svo til Þýskalands
þar sem hann nam við Listaaka-
demíuna í Stuttgart.
„Þar féll ég fyrir marmaranum
sem ég hef unnið með í 15 ár. Fyrir
vikið flutti ég til Portúgals þar sem
er mikið af steinefnum eins og
marmara og graníti. Þar hef ég unn-
ið undanfarin fimm ár en er nú að
flytja heim. Reyndar höfum við
hjónin ailtaf komið heim á sumrin
þar sem við erum með heilsubótar-
daga á Reykhólum á hverju ári. Þá
hef ég venjulega komið með eina
sýningu með mér,“ segir Þórir en
eiginkona hans er Sigrún Olsen
myndlistarmaður.
Þórir hefur nú opnað höggmynda-
og legsteinagalleríð Sólsteina við
Nýbýlaveg í Kópavogi. Steinana fær
hann tilsagaða frá Portúgal en hann
fullvinnur þá síðan hér heima.
„Ég vinn sjálfur útflúrið í stein-
ana og merki þá með málmstöfúm
eða sandblásnum stöfum. Hins veg-
ar hefur það tekið mig ár i undir-
búningi að opna þetta gallerí. Ég hef
þurft að fara nokkrum sinnum utan
tO að panta steinana, hanna þá og
saga út. Nú er þetta allt að smella
saman.“
Þórir segist fyrst og fremst vilja
bjóða upp á fallega steina en bætir
því við fallegir steinar þurfi ekki að
vera dýrir.
Fejjurðin
skiptir miklu
„Ef steinar eru vel hannaðir - ef
það er jafnvægi í þeim - þá er hægt
að hafa þá á góðu verði. I öllum
steinum mínum er miöjuform - þeir
samsvara sér beggja megin. Ég hef
haldið því fram að þegar fólk kemur
að leiði eigi steinninn að hafa ein-
hver skilaboð, útgeislun eða áhrif.
Mér finnst því skipta miklu máli
hvað er á leiðinu. Fólk tengir stein-
inn ástvinum sínum sem eru famir
og því skiptir fegurðin miklu.“
Þórir segir hugmyndaflugið eitt
setja sér skorður í verkefnum sín-
um. „Ef fólk kemur til mín og vill
einstakt minnismerki yfir leiði þá
get ég hannað og smíðað sérstök
verk.“
Trúarlegu táknin sem hann vinn-
ur með eru til dæmis dúfan, sem
hann segir tákn andans eða guð-
dómsins. Síðan notar hann hring-
inn sem tákn eilífðarinn- í ;
ar, þríhyrninginn,
sem m.a. er tákn
þrenningarinnar
eða visku, máttar
og fegurðar.
„Þetta eru element ||
sem fara oft sam-
an.“
Táknin ráða
mestu í verkum Þór-
is. „Mér finnast táknin
oft ná lengra heldur en
náttúrulífsmyndir. Þau hafa
líka breiðari skírskotun og
víðari merkingu.“
Þórir segist mjög trúaði
trúin sé alltaf að verða'lítærri
hluti af hans lífir Hann leitist
við að auka skilning sinn á líf-
inu - í raun leitar hann feg-
urra lffs og aukinnar þekk-
ingar.
„Þetta eru þættir sem taka
meiri tíma eftir því sem ég
eldist. Þeir verða mikilvægari
og þá þessi andlega leit líka.
Þetta tengist allt vinnu minni.
Steinninn stendur fyrir ein-
hvern varanleika í þessari
u
4
efhislegu
tilveru sem
er alltaf að
breytast -
varanleg-
ur ef hægt
er að tala
um 500 til
1000 ár sem
varanleika.“
-PP
Þórir segir
höndina sem
sést hér
vera ójarö-
neska í eig-
inlegum
; skilningi.
) Hér sé í
rauninni
um hönd
Guðs að
| ræða enda
I heitir verk-
ið Blessun.
■ DV-mynd BG
Grísakjöt er kjötið sem er alltaf ferskt, það er ó sérlega
hagstæðu verði og matreiðslumöguleikarnir eru óteljandi.
Grísakjöt tilheyrir öllum gleðskap og góðum stundum.
I sumar munu grillmeistararnir ó flrgentínu steikhúsi
kynna grísakjöt í verslunum og leiða okkur í allan sannleika
um hversu ótrúlega einfalt er að grilla grísakjöt.
Prófaðu að grilla grísakjöt næstu daga - Það svínvirkar.
Gi'ísakjöt