Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Page 27
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 ísland — plötur og diskar— | 1.(1) ^he Score Fugees t 2. ( 2 ) Reif í botn Ýmsir | 3. ( 3 ) Pottþétt 3 Ýmsir t 4. ( 5 ) Jagged Líttle Pill Alanis Morissette # 5. ( 4 ) Evil Empire Rage against the Machine t 6. ( 8 ) Sunburned & Paranoid Skunk Anansie f 7. (_ ) To the Faithful Dcparted The Cranbcrries t 8. (Al) Gangsta's Paradíse Coolio I 9. ( 6 ) Presidents of the USA Presidents of the USA 110. (- ) Bítlaárin '60-70 Ýmsir 111. (Al) (What's The Story) Morning Glory? Oasis # 12. (10) Greatest Hits Take That 113. ( 9 ) The Bends Radiohead # 14. ( 7 ) Grammy Nominees 1996 Ýmsir # 15. (11) Falling into You Celine Dion #16. (12) Outsidestrange Days David Bowie Úr kvikmynd # 17. (15) Music for the Jilted Generation Prodigy 118. (Al) Post Björk 119. ( - ) The Coming Busta Rhymes 120. (Al) Melon Collie and the Infinite Sad.. Smashing Pumpkins London -lög- | 1.(1) Fast Love George Michael | 2. ( 2 ) Return of the Mac Mark Morrison | 3. ( 3 ) Ohh Ahh...Just a Little Bit Gina G t 4. ( 5 ) CeceiliaWalking Suggs Featuring Louchie Lou and... t 5. ( - ) Charmless Man Blur t 6. ( 8 ) Move Move Move (The Red Tribe) The 1996 Manchester United Fa... t 7. (- ) Cut Some Rug/Castle Rock The Bluetones t 8. ( - ) Woo-Hahl! Got You All In Chcck Busta Rhyms # 9. ( 4 ) A Design For Life Manic Street Preaches t 10. ( - ) Klubbhopping Klubbheads NewYork -lög- l | 1.(1) Always Be My Baby Mariah Carey t 2. (-) The Crossroads Bone Thugs- N-Harmony Í # 3. ( 2 ) Because You Loved Me Celine Dion # 4. ( 3 ) Nobody Knows The Tony Rich Project # 5. ( 4 ) Ironic Alanis Morissette | 6. ( 6 ) You’re the One SWV # 7. ( 5 ) 1,2,3,4 (Sumpin' New) Coolio | 8. ( 8 ) Count on Me Whitney Houston & Cece Winans # 9. ( 7 ) Down Low (Nobody Has to know) R. Kelly Featuring Ronald Isley t 10. (14) Give Me One Reason Tracy Chapman Bretland — plötur og diskar — ) 1.(1) Jagged Little Pill Alanis Morissette t 2. (-) ToThe Faithful Departed The Cranberries # 3. ( 2 ) Greatest Hits Take That # 4. ( 3 ) (What’s the Story) Morning Glory? Oasis t 5. ( - ) ln Sides Orbital # 6. ( 5 ) Hits Mike and the Mechanics # 7. ( 6 ) Garbage Garbage # 8. ( 7 ) Falling into You Celine Dion t 9. (11) Bizarre Fruit/Bizarre Fruit M People # 10. ( 4 ) Return of the Mac Mark Morrison Bandaríkin — plötur og diskar— t 1. ( - ) New Fairweather Johnson Hootie & The Blowfish t 2. ( 3 ) The Score Fugees # 3. ( 2 ) Jagged Little Pill Alanis Morissette t 4. ( - ) Sunset Park Úr kvikmynd # 5. ( 4 ) Falling into You Celine Dion # 6. (1 ) Evil Empire Rage Against The Machine t 7. (- ) Bluc Clear Sky Ceorgc Strait # 8. ( 5 ) Borderline Brooks & Dunn t 9. ( - ) New Beginning SWV #10. ( 7 ) Sixteen Stone Bush Hin óþreytandi Cranberries írska hljómsveitin The Cranberries hefur notið griðarlegrar athygli og vinsælda víða um heim síðustu þrjú ár. Allt síðan Bandaríkjamenn uppgötv- uðu lagið Linger af fyrstu plötu hljómsveitarinnar, Everybody Else Is Doin’ It, So Why Can’t We? Fram að því var liðsfólk Cran- berries alls óþekkt nema í þröngum hópi heima á ír- landi. Vinsældum Linger og fleiri laga af fyrstu plöt- unni var hins vegar fylgt eftir með plötu sem átti eft- ir að skapa hópnum enn frekari vinsældir um allan heim. Platan sú nefndist No Need To Argue og henni fylgdi hljómsveitin eftir með heimsferð í fyrra og hittifyrra. Eftir slíka þolraun hefðu flestir vafalaust tekið sér ærlegt fri, slappað af og notið auðæfanna sem fylgja út- gáfu tveggja metsöluplatna og margra laga af þeim sem hafa komist í hæstu hæðir vinsældalistanna. Fjórmenn- ingarnir i The Cranberries gerðu þó ekkert slíkt. Þeir bókuðu sig í hljóðver í Dyflini og tóku þar upp þriðju plötuna sína á methraða. Þetta er platan To The Faithful Departed sem kom út í lok síðasta mánaðar. Áður hafði lagið Salvation reyndar verið gefið út á smágeisla og feng- ið ágætisviðtökur. Unnið með hraði Það vakti töluverða athygli að Cranberries skyldu velja Bruce Fairbarn til að stýra gerð nýju plöt- unnar. Fairbarn hefur aðallega getið/sér gott orð fyrir samstarfið við kröft^gar rokksveitir á borð við Aerosmith, Van Halen og Poison á síðustu árúm. „Við hittum Bruce öll og okkur geðjaðist vel að honum,“ segir Noel Hogan, gítarleikari Cranberries. „Við vorum líka sammála um að það sem hann hafði gert fyrir aðra hljómaði vel svo að við treystum honum fullkomlega til að vera okk- ur til halds og trausts." Platan To the Faithful Departed var tekin upp á aðeins fjórum vik- um í nóvember í fyrra. Það urðu meira að segja ófyrirsjáanlegar taf- ir við vinnuna þegar söngkonan, Dolores O’Riordan, veiktist af in- flúensu. „Við lágum ekki yfir nein- um smáatriðum og tókum sjaldan yfir það sem við vorum búin að festa á band,“ segir Noel. „Fyrir bragðið er auðvitað hráabragð af einu og öðru á plötunni en þannig vildum við hafa haha.“ Gengið í lagabanka í fyrrasumar, löngu áður en heimsferðinni til að fylgja eftir plötunni No Need to Argue lauk, áttu The Cranberries orð- ið nóg af lögum til að byrja að hljóðrita nýjá plötu. Og þó lögðu fjórmenningarnir ekk- ert sérstaklega hart að sér að semja ódauðlega ópusa sem gerði þeim kleift að fylgja fyrri plötunum tveimur eftir með sæmd og bæta heldur á vinsældirnar en hitt. „Okkur hefur afltaf verið nokkuð sama um afla vel- gengnina og við lifum ekki og störfum eftir einhverri formúlu sem á stöðugt að auka á hana,“ segir Dolores. „Við erum þar af leiðandi ekki undir neinni pressu með að gera sífellt betur og betur. Við erum bara við og fólk verður að taka okkur eins og við erum.“ Mörg lögin á nýju plötunni urðu til á æfíngum eða hljóðprufum fyrir tónleika (þeir voru reyndar fleiri en tvö hundruð í tuttugu og þremur löndum á árunum 1993 og ’94). „Stundum áttum við meira að segja smá- stund fyrir okkur sjálf. Þá tókum við upp nokkra hljóma. Dolores tók svo upptökuna með sér og samdi lag- línu og texta síðar þegar hún hafði tíma til. Þannig unn- um við í gamla daga áður en við urðum vinsæl og það er gott að geta haldið í þá vinnuaðferð." Tll minningar um látna Stór hluti laganna á To the Faithful Departed er til heið- urs látnu samferðafólki, svo sem John Lennon og Kurt Cobain, afa Dolores, sem hún var mjög hænd að, og Denny Cordell sem varð fyrstur manna til að gera plötusamning við The Cranberries árið 1991. „Það er samt ekki drungaleg stemning i þessum lögum þótt þau fjalli um látið fólk,“ segir Dolores. „Ég tel að dauðinn sé af hinu góða. Að hinir látnu fari til betri staðar en þeir voru á í lifanda lífi. Og flestir hafa skilið eftir sig eitthvað gott sem við hin getum lært af.“ Víða er komið við í textun- um. War Child fjallar til dæmis um bömin sem verða fórnar- lömb stríðsátaka í Bosníu og víðar. Lagið varð til í kjölfar tískusýningar sem Brian Eno stóð fyrir og kallaðist War Child Fashion Show. Eno bað Dolores að hanna eitthvað sem hægt væri að sýna á henni. Það reyndist ekki unnt vegna þess hve tónleikaáætlun The Cran- berries var ströng á þeim tíma. Einn morguninn, skömmu eftir sýninguna, var Dolores á hótel- herbergi sínu og sá fréttaút- sendingu frá Bosníu. Andinn kom þá yfir hana og hún samdi lagið War Child á tíu mínútum. Fastlega er búist við að plat- an To The Faithful Departed eigi eftir að hljóta jafngóðar viðtökur og fyrri plötur The Cranberries, ef ekki betri. Fjór- menningarnir í hljómsveitinni eru þó jafn ákveðnir og fyrr að láta velgengnina hafa sem minnst áhrif á sig. „Við erum í eigin augum sami gamli hópurinn og fyrr,“ segir Feargal Lawler trommu- leikari. „Það er bara athyglin á okkur sem hefur breyst.“ Dolores O’Riordan, söng- kona The Cranberries: Hún segist ekki reyna að lifa og starfa eftir formúlu sem auki vinsældir hennar stöðugt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.