Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Síða 27
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996
ísland
— plötur og diskar—
| 1.(1) ^he Score
Fugees
t 2. ( 2 ) Reif í botn
Ýmsir
| 3. ( 3 ) Pottþétt 3
Ýmsir
t 4. ( 5 ) Jagged Líttle Pill
Alanis Morissette
# 5. ( 4 ) Evil Empire
Rage against the Machine
t 6. ( 8 ) Sunburned & Paranoid
Skunk Anansie
f 7. (_ ) To the Faithful Dcparted
The Cranbcrries
t 8. (Al) Gangsta's Paradíse
Coolio
I 9. ( 6 ) Presidents of the USA
Presidents of the USA
110. (- ) Bítlaárin '60-70
Ýmsir
111. (Al) (What's The Story) Morning Glory?
Oasis
# 12. (10) Greatest Hits
Take That
113. ( 9 ) The Bends
Radiohead
# 14. ( 7 ) Grammy Nominees 1996
Ýmsir
# 15. (11) Falling into You
Celine Dion
#16. (12) Outsidestrange Days
David Bowie Úr kvikmynd
# 17. (15) Music for the Jilted Generation
Prodigy
118. (Al) Post
Björk
119. ( - ) The Coming
Busta Rhymes
120. (Al) Melon Collie and the Infinite Sad..
Smashing Pumpkins
London
-lög-
| 1.(1) Fast Love
George Michael
| 2. ( 2 ) Return of the Mac
Mark Morrison
| 3. ( 3 ) Ohh Ahh...Just a Little Bit
Gina G
t 4. ( 5 ) CeceiliaWalking
Suggs Featuring Louchie Lou and...
t 5. ( - ) Charmless Man
Blur
t 6. ( 8 ) Move Move Move (The Red Tribe)
The 1996 Manchester United Fa...
t 7. (- ) Cut Some Rug/Castle Rock
The Bluetones
t 8. ( - ) Woo-Hahl! Got You All In Chcck
Busta Rhyms
# 9. ( 4 ) A Design For Life
Manic Street Preaches
t 10. ( - ) Klubbhopping
Klubbheads
NewYork
-lög-
l
| 1.(1) Always Be My Baby
Mariah Carey
t 2. (-) The Crossroads
Bone Thugs- N-Harmony
Í # 3. ( 2 ) Because You Loved Me
Celine Dion
# 4. ( 3 ) Nobody Knows
The Tony Rich Project
# 5. ( 4 ) Ironic
Alanis Morissette
| 6. ( 6 ) You’re the One
SWV
# 7. ( 5 ) 1,2,3,4 (Sumpin' New)
Coolio
| 8. ( 8 ) Count on Me
Whitney Houston & Cece Winans
# 9. ( 7 ) Down Low (Nobody Has to know)
R. Kelly Featuring Ronald Isley
t 10. (14) Give Me One Reason
Tracy Chapman
Bretland
— plötur og diskar —
) 1.(1) Jagged Little Pill
Alanis Morissette
t 2. (-) ToThe Faithful Departed
The Cranberries
# 3. ( 2 ) Greatest Hits
Take That
# 4. ( 3 ) (What’s the Story) Morning Glory?
Oasis
t 5. ( - ) ln Sides
Orbital
# 6. ( 5 ) Hits
Mike and the Mechanics
# 7. ( 6 ) Garbage
Garbage
# 8. ( 7 ) Falling into You
Celine Dion
t 9. (11) Bizarre Fruit/Bizarre Fruit
M People
# 10. ( 4 ) Return of the Mac
Mark Morrison
Bandaríkin
— plötur og diskar—
t 1. ( - ) New Fairweather Johnson
Hootie & The Blowfish
t 2. ( 3 ) The Score
Fugees
# 3. ( 2 ) Jagged Little Pill
Alanis Morissette
t 4. ( - ) Sunset Park
Úr kvikmynd
# 5. ( 4 ) Falling into You
Celine Dion
# 6. (1 ) Evil Empire
Rage Against The Machine
t 7. (- ) Bluc Clear Sky
Ceorgc Strait
# 8. ( 5 ) Borderline
Brooks & Dunn
t 9. ( - ) New Beginning
SWV
#10. ( 7 ) Sixteen Stone
Bush
Hin óþreytandi Cranberries
írska hljómsveitin The Cranberries hefur notið griðarlegrar athygli og
vinsælda víða um heim síðustu þrjú ár. Allt síðan Bandaríkjamenn uppgötv-
uðu lagið Linger af fyrstu plötu hljómsveitarinnar, Everybody Else Is Doin’
It, So Why Can’t We? Fram að því var liðsfólk Cran-
berries alls óþekkt nema í þröngum hópi heima á ír-
landi. Vinsældum Linger og fleiri laga af fyrstu plöt-
unni var hins vegar fylgt eftir með plötu sem átti eft-
ir að skapa hópnum enn frekari vinsældir um allan
heim. Platan sú nefndist No Need To Argue og henni
fylgdi hljómsveitin eftir með heimsferð í fyrra og
hittifyrra.
Eftir slíka þolraun hefðu flestir vafalaust tekið sér
ærlegt fri, slappað af og notið auðæfanna sem fylgja út-
gáfu tveggja metsöluplatna og margra laga af þeim sem
hafa komist í hæstu hæðir vinsældalistanna. Fjórmenn-
ingarnir i The Cranberries gerðu þó ekkert slíkt. Þeir
bókuðu sig í hljóðver í Dyflini og tóku þar upp þriðju
plötuna sína á methraða. Þetta er platan To The Faithful
Departed sem kom út í lok síðasta mánaðar. Áður hafði
lagið Salvation reyndar verið gefið út á smágeisla og feng-
ið ágætisviðtökur.
Unnið með hraði
Það vakti töluverða athygli að Cranberries skyldu
velja Bruce Fairbarn til að stýra gerð nýju plöt-
unnar. Fairbarn hefur aðallega getið/sér
gott orð fyrir samstarfið við kröft^gar
rokksveitir á borð við Aerosmith, Van
Halen og Poison á síðustu árúm.
„Við hittum Bruce öll og okkur
geðjaðist vel að honum,“ segir Noel
Hogan, gítarleikari Cranberries.
„Við vorum líka sammála um að
það sem hann hafði gert fyrir aðra
hljómaði vel svo að við treystum
honum fullkomlega til að vera okk-
ur til halds og trausts."
Platan To the Faithful Departed
var tekin upp á aðeins fjórum vik-
um í nóvember í fyrra. Það urðu
meira að segja ófyrirsjáanlegar taf-
ir við vinnuna þegar söngkonan,
Dolores O’Riordan, veiktist af in-
flúensu. „Við lágum ekki yfir nein-
um smáatriðum og tókum sjaldan
yfir það sem við vorum búin að
festa á band,“ segir Noel. „Fyrir
bragðið er auðvitað hráabragð af
einu og öðru á plötunni en þannig
vildum við hafa haha.“
Gengið í lagabanka
í fyrrasumar, löngu áður en
heimsferðinni til að fylgja eftir
plötunni No Need to Argue
lauk, áttu The Cranberries orð-
ið nóg af lögum til að byrja að
hljóðrita nýjá plötu. Og þó
lögðu fjórmenningarnir ekk-
ert sérstaklega hart að sér að
semja ódauðlega ópusa sem
gerði þeim kleift að fylgja
fyrri plötunum tveimur eftir
með sæmd og bæta heldur á
vinsældirnar en hitt.
„Okkur hefur afltaf verið
nokkuð sama um afla vel-
gengnina og við lifum ekki og störfum eftir einhverri formúlu sem á stöðugt
að auka á hana,“ segir Dolores. „Við erum þar af leiðandi ekki undir neinni
pressu með að gera sífellt betur og betur. Við erum bara við og fólk verður
að taka okkur eins og við erum.“
Mörg lögin á nýju plötunni urðu til á æfíngum eða
hljóðprufum fyrir tónleika (þeir voru reyndar fleiri en
tvö hundruð í tuttugu og þremur löndum á árunum
1993 og ’94). „Stundum áttum við meira að segja smá-
stund fyrir okkur sjálf. Þá tókum við upp nokkra
hljóma. Dolores tók svo upptökuna með sér og samdi lag-
línu og texta síðar þegar hún hafði tíma til. Þannig unn-
um við í gamla daga áður en við urðum vinsæl og það
er gott að geta haldið í þá vinnuaðferð."
Tll minningar um látna
Stór hluti laganna á To the Faithful Departed er til heið-
urs látnu samferðafólki, svo sem John Lennon og Kurt
Cobain, afa Dolores, sem hún var mjög hænd að, og Denny
Cordell sem varð fyrstur manna til að gera plötusamning við
The Cranberries árið 1991.
„Það er samt ekki drungaleg stemning i þessum lögum
þótt þau fjalli um látið fólk,“ segir Dolores. „Ég tel að
dauðinn sé af hinu góða. Að hinir látnu fari til
betri staðar en þeir voru á í lifanda lífi. Og
flestir hafa skilið eftir sig eitthvað
gott sem við hin getum lært af.“
Víða er komið við í textun-
um. War Child fjallar til dæmis
um bömin sem verða fórnar-
lömb stríðsátaka í Bosníu og
víðar. Lagið varð til í kjölfar
tískusýningar sem Brian Eno
stóð fyrir og kallaðist War
Child Fashion Show. Eno bað
Dolores að hanna eitthvað sem
hægt væri að sýna á henni. Það
reyndist ekki unnt vegna þess
hve tónleikaáætlun The Cran-
berries var ströng á þeim tíma.
Einn morguninn, skömmu eftir
sýninguna, var Dolores á hótel-
herbergi sínu og sá fréttaút-
sendingu frá Bosníu. Andinn
kom þá yfir hana og hún samdi
lagið War Child á tíu mínútum.
Fastlega er búist við að plat-
an To The Faithful Departed
eigi eftir að hljóta jafngóðar
viðtökur og fyrri plötur The
Cranberries, ef ekki betri. Fjór-
menningarnir í hljómsveitinni
eru þó jafn ákveðnir og fyrr að
láta velgengnina hafa sem
minnst áhrif á sig.
„Við erum í eigin augum
sami gamli hópurinn og fyrr,“
segir Feargal Lawler trommu-
leikari. „Það er bara athyglin á
okkur sem hefur breyst.“
Dolores O’Riordan, söng-
kona The Cranberries: Hún
segist ekki reyna að lifa og
starfa eftir formúlu sem
auki vinsældir hennar
stöðugt.