Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Side 31
DV LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 fréttir á jörðinni sem viðheldur lífí og um- breyta hernaðarstefnunni til að takast á við geigvænlegan skort á efnahagslegri og félagslegri þróun mannkyns, afnámi sjúkdóma, lífs- bjargarleysis og þjáninga hvar sem er. Það á að fara að ráðum Jesaja spámanns og breyta sverðinu í plóg og að þjóðir skuli ekki beita sverði hvor gegn annarri né leggja stund á stríðsrekstur Þá á hreyfingin að rannsaka or- sakir og áhrif átaka innan ríkja og á alþjóðlegum vettvangi og finna að- ferðir til að draga úr þeim. Loks skal stuðla að því að gerður verði alþjóðlegur jarðarsáttmáli um það að afstýra átökum, um- breyta hernaðarstefnu og hernaðarútgjöldum og gera þau að stjórntækj- um hins gagnstæða, þ.e. að stuðla að félagslegri framþróun verndun náttúru og náttúruauðlinda. IMútíma útópía - barnaskapur - Þetta eru hugmyndir sem láta vel í eyrum en eru skólabókardæmi um nýtísku útópíuhugmyndir sem aldrei munu ganga upp. Þau mark- mið og óskir Friðar 2000 og hug- myndir um að leggja niður styrjaldi eru ámóta raunsæjar eins og að ætla sér að leggja blátt bann við slæmu veðri segir leiðarahöfundur Sunday Times 18. desember sl. efn- islega Leiðarinn er ritaður af því tilefni að ritstjóra barst sending frá Peace 2000 sem í var lítið jólatré, auglýs- ingabæklingur um starfsemi og fýr- irætlanir samtakanna og bréf frá „Thor Magnusson" - Ástþóri Magn- ússyni sem í bréfinu kynnir fyrir ritstjóranum áhugaverðan og ábatasaman happavinning (an interesting an profitable jackpot) og tíundað að fyrsta stórverkefni sam- takanna sé að koma upp orkufram- leiðslu í Hvíta-Rússlandi með sólar- og vindrafstöðvum. Leiðarahöfundur segir að það sé útbreiddur misskilningur að styrj- aldir og þjáningar séu einfaldlega afleiðingar gríðarlegrar misskipt- ingar auðlinda jarðar. Vitanlega sé útilokað að tíu vikna útgjöld til hernaðarþarfa í heiminum geti mettað alla jarðarbúa sem líða hungur. Og hver ætti að ráðstafa upphæðinni og hvernig? Hvaða áhrif myndi slík stórbreyting hafa á hagkerfi og menningarsamfélög? Ef aðeins fjórðungi árlegra hern- aðarútgjalda I heiminum yrði skyndilega ráðstafað öðruvísi, hvaða heimspólitísk og hernaðarleg áhrif myndi það hafa í for með sér? Svarið er, segir leiðarahöfundur, að það myndi leiða til spillingar og efnhagslegs- og pólitísks hruns og svo myndi styrjöld fylgja fljótlega í kjölfarið. Ástæð- una segir hann liggja einfaldlega í mannlegu eðli. Sannleikurinn sé nefnilega sá að styrjaldir verða ekki vegna þess að fjármunum er eytt í vígbúnað heldur öfugt. Styrj- aldir hafa orðið og munu áfram verða vegna árásarhvatar manns- ins, vegna stolts og reiði, vegna öf- undar og græðgi og hvorugu verði útrýmt á einhverjum „mannlegum" nótum. í leiðaranum segir að friðartal á nótum Friðar 2000 sé því miður ekki meinlaust þótt það sé vel meint. Ef hugmyndir af þessu tagi komast í framkvæmd er það bitur reynsla að þær eru stórskaðlegar því að þegar óraunhæfar hugmyndir eru notaðar til að leysa pólitisk vandamál þá mun veruleikinn óhjákvæmilega rekast á við draumsýnina og fjand- inn verði laus fyrr eða siðar, eins og sýndi sig með t.d. Þjóðabandalagið og í Versalasamningunum 1918. „Þetta þýði þó ekki að við skulum vera svartsýn. Staðbundin stríð er hægt að stöðva eða þau stöðvast ein- hverntíman. Það gerist hins vegar aðeins þegar stríðsaðilar og heið- virðir friðflytjendur hafa áttað sig á hinum pólitískum veruleika og leysa deilumálin þann ófullkomna og tímabundna máta sem er ein- kennandi fyrir mannlegt samfélag yfirleitt.“ Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða tii sýnis þriðjudaginn 14. ma( 1996 kl. 13-16 í porti bakvið skrifstofu vora að Borgartúni 7 og víðar. (Inngangur frá Steintúni.) 1 stk. Mercedes Benz 300 SEL 1986 1 stk. Chrysler Saratoga SE 1991 1 stk. Daihatsu Charade CS 1991 1 stk. Lada station 1987 1 stk. Renault Express sendibifreið 1990 1 stk. Nissan Sunny Wagon dísil 1992 2 stk. Toyota Corolla station 4x4 1991-94 1 stk. Mazda 2000, 7 farþ., bensín 4x4 1988 3 stk. Toyota HiLux D.c., dísil 4x4 1991-92 2 stk. Daihatsu Rocky bensín 4x4 1989-90 1 stk. Ford Bronco, bensín 4x4 1988 1 stk. Nissan Patrol, 6 farþ. dísil 4x4 1990 2 stk. Mitsubishi L-300, dísil 4x4 1989-90 1 stk. Mitsubishi L-200, bensín 4x4 1990 1 stk. Bedford, bensín (slökkvibifreið) 4x2 1966 1 stk. dráttarvél Deutz DX3 m/ámoksturst. 4x4 1988 1 stk. Harley Davidson, FL 1200, lögreglubifhjól 1980 1 stk. rafstöð Honda ES 5500, 5,0 KVA m/rafstarti, tveggja strokka Til synis hjá Landhelaisaæslu íslands. smábátahöfn í Kópavoqi 1 stk. bátur, skráningarnr. 6522. Báturinn er smíðaður í Englandi 1983. Vél: Volvo Penta 96 kV. Efni: trefjaplast. Báturinn er frambyggður með húsi sem rúmar allt að 7 manns. Aðalmál: lengd 6,26 m, breidd 2,07 m, djúp rista 0,90 m, brúttótonn 2,43, nettótonn 0,72, rúmlestatala 2,18, Til svnis hiá Löarealuvarðstofunni. Gunnarsbraut á Dalvík 1 stk. Mitsubishi L-300, 6 farþ., bensín 4x4 (biluðvél) 1989 Til svnis hiá Veqaqerðinni á Selfossi 1 stk. Volvo F-10 vörubifreið með 11.000 lítra Elnyre dreifitanki 1981 1 stk. malardreifari, Salco, HS-380 1981 Til sýnis hiá Veaaaerðinni á Akurevri: 1 stk. vatnstankur, 10.0001, með 4“ dælu 1980 1 stk. rafstöð Davson, K BF-037, 30 kW, í skúr á hjólum 1-972 1 stk. efnisflutningavagn Bedford 2000 4x4 1972 1 stk. loftþjappa drifskaftstengd Hydor K 13B6 án borhamra 1974 Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri sama dág kl. 16.30 að viðstöddum bjóðend- um. Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum sem ekki teljast viðunandi. Borgartúni 7. 105 Reykjavik. Slmi 552 6844. Fax 562 6739 Ath., inngangur í port frá Steintúni Aðilar að Peace 2000 og lánaðar fjaðrir: Mislitur hópur - skipti mönnum ekki í flokka né spyr þá um hvar þeir eru í pólitík, segir Ástþór Magnússon í drögum að ársskýrslu 1996, sem gefin er út i nafni Peace 2000 Institute, eru á blaðsíðu 2 taldar upp á ann- að hundrað stofnanir og samtök sem sögð eru vera meðlimasamtök Peace 2000 eða þá samstarfsaðilar í verkefnum (Project Alliances). Meðal þeirra eru UNESCO, Rauði krossinn í Bosníu-Herzegóvínu, deild Amnesty International í Amman í Jórdaniu, Lands- björg og Gandhi International Foundation. Aðspurður hvort þessar stofnanir séu meðlimir í Peace 2000 segir Ástþór Magnússon, stofnandi Peace 2000, að bæði séu taldir upp í listanum samstarfsaðil- ar um ýmis verkefhi sem og aðildarfélög og -stofnan- ir. Björn Hermannsson, framkvæmdastjóri Lands- bjargar, segir DV að Landsbjörg sé ekki félagi í Peace 2000 heldur hafi aðstoðað við að útbúa og senda jóla- pakka til barna í Sarajevo með flugvél frá Peace 2000 skömmu eftir síðustu jól. Ástþór staðfestir að Lands- björg sé á listanum vegna þessa samstarfs og sama sé aö segja um Rauðakrossinn í Sarajevo, hann hafi tek- ið að sér að dreifa pökkunum. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, stjórnandi íslandsdeildar Amnesty Intemational, sagði við DV að Amnesty Intemational hefði þá meginreglu að vera ekki innan vébanda annarra samtaka, hvorki heildarsamtökin né einstakar deildir þeirra. Varðandi þessa Amnesty- deild í Amman, sem nefnd er í skýrslunni, þá væri að- eins ein Amnesty-deild í Jórdaníu en hún starfaði ekki í Amman heldur annars staðar í landinu. Jó- hanna sagði að þetta mál væri í athugun hjá aðal- skrifstofu samtakanna í London og hefði skrifstofan beðið um nánari upplýsingar frá Peace 2000. Þegar listinn yfir aðildar- og samstarfsaðila Peace 2000 er skoðaður nánar sést aö þar koma fyrir ýmis samtök og hópar sem hafa látið umhverfismál til sín taka og eru sum nokkurs konar klofningsgreinar út úr Greenpeace. Þeirra á meðal eru samtökin Friends of the Earth, Earth Action International, Earth Watch, Partners for Global Responsibility o.fl. samtök sem þekkt eru af öfgafullum skoðunum, ekki sist í málum sem varða hvali og nýtingu þeirra og hafa sum orðið uppvís að skemmdarverkum á mannvirkj- um og eignum þeirra sem samtökin telja að séu að spilla jörðinni á einhvern hátt. Eitt þessara félaga hefur komist í heimsfréttir fyrir að standa að kynlifsferðum á höfrungaslóðir. Ástþór Magnússon var spurður hvort ekki væri varasamt fyrir hann að bendla samtök sin við slíka hópa. „Ég geri enga skilgreiningu á milli fólks og skipti því ekki í flokka. Þetta er þannig til komið að ég tók lista yfir rúmlega tvö þúsund samtök, alls kon- ar samtök úti um allan heim. Ég hef síðan sent þessu fólki upplýsingar, haft samband við það og ferðast um og kynnt þeim málin. Ég er ekkert að spyrja: Hvar ert þú í pólitík? eða neitt slíkt. Peace 2000 er félagsskap- ur opinn öllum, kannski öllu heldur markmið um að hafa frið næsta árþúsundið og ég segi við menn: Kom- ið og verið með mér til að koma þessu markmiði fram.“ Samkvæmt upplýsingum DV þá er sú Ghandi-stofn- un sem nefnd er í upptalningunni í ársskýrslu Peace 2000 ekki Ghandi-stofnunin í Indlandi, sem hefur átt samskipti við nokkra íslendinga, þeirra á meðal Ólaf Ragnar Grímsson, heldur er þetta bandarísk stofnun. Þessi bandaríska stofnun eða fyrirtæki er í eigu fjarskylds ættingja Mahatmas Ghandis, fyrrum leið- toga Indverja. Ghandi-stofnunin í Nýju Dhelí er hins vegar kennd við Indiru Ghandi, fyrrverandi forsætis- ráðherra, en hún var dóttir Nehru sem var arftaki Mahatmas Ghandis. TITLA VERÐ FRÁ KR.99,- Kellogg's Corn Flakes 500gr. kr. 145,- Kellog's Rice Crispies 440gr kr. 80,- Osram Perur 40/60w kr. 50 Johnson's Baby Shampoo kr. 99,- Duracell rafhlöður 4 stk AA kr. 159,- GIFURLEGT URVAL SKARTGRIPA A LANDSINS BESTA VERÐI ÞÚSUNDIR EYRNALOKKA • LANDSINS MESTA ÚRVAL AF SÓLGLERAUGUM ŒtenssxzminiH] FAXAFENI10 • SÍMI 533 2 533 E kJ: IVIÐSKIPTANETIÐ HF. FLESTAR VÖRUR ER HÆGT AÐ GREIÐA MEÐ VN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.