Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Page 37
LAUGARDAGUR 11. MAI1996 0lk í fréttunh Ford-stúlkan 1994 og 1995 eru á leið í fyrirsætustörf til Parísar: Örlítið smeykar bví kröfurnar eru miklar Þátttaka í Ford-keppninni hefur gefiö mörgum ungum stúlkum tæki- færi til að hasla sér völl í tísku- heiminum og hafa margar þeirra farið út um allan heim og starfað sem fyrirsætur í lengri eða skemmri tíma. Þetta gildir óneitan- lega um stöllurnar Þórunni Þorleifs- dóttur og Elísabetu Davíðsdóttur, sem sigruðu í Ford-keppninni í fyrra og hittifyrra. Elísabet hefur þegar unnið sem fyrirsæta í eitt ár í ýmsum löndum og saman fara þær til Parísar í sumar þar sem Þórunn ætlar að stíga sín fyrstu skref í bransanum. „Ég byrja á því að safna myndum í möppu, það tekur svona tvær vik- ur og svo fer ég beint að vinna en Elísabet fer beint að vinna þegar við komum út. Hún er náttúrulega búin að vera þarna áður og er komin með myndir í möppu,“ segir Þórunn. Hún ákvað að fara ekki að starfa strax sem fyrirsæta eftir sigurinn í Ford-keppninni í fyrravor heldur fara aftur í skólann. Að vísu fór hún í fimm daga myndatökur til Parísar en síðan ekkert meir fyrr en í aðal- keppnina í Las Vegas í desember. Nú ætlar hún sér hins vegar að stíga skrefið. Fjölbreyttari vinna Byrjar í París Þórunn segir að starfsmaður Ford Models hafi ráðlagt sér að byrja fyrirsætuferilinn í París frek- ar en á Miami í Bandaríkjunum. Kona á vegum fyrirtækisins stakk upp á þvi að Þórunn og Elísabet færu til Parísar saman. Þær munu leigja litla íbúð saman enda verða þær báðar að vinna á vegum Ford Models París, að minnsta kosti fyrsta mánuð inn, en eftir það skilj ast leiðir. Þórunnj ætiar að vera í tvo mánuði í París en El- ísabet fer til Lund- úna og ætlar að vinna þar einhvern tíma. „Ég hafði mjög gaman af þessu og mér gekk ágætlega Auðvitað v? þetta stundum erfitt en maður man bara eft- ir þessu skemmti- lega. Verk-( efnin voru voðalega misjöfn, allt frá myni sýningar," segir Elisabet um fyrir- sætustörf sín í útlöndum. Elísabet bar sigur úr býtum í Ford- keppninni vorið 1994. Eftir keppnina hélt hún áfram í skólan- um en fór svo utan til aö vinna rétt fyrir jólin. Hún var við fyrirsætu- störf í um það bil eitt ár, fyrst í Par- ís, svo í Mílanó í fimm mánuði, svo aftur í París í einn og háifan mánuð og loks i Lundúnum. Hún kom heim um síðustu jól og settist þá aftur á skólabekk. Hún stefnir að því að Mér líkaði vel á öllum þessum stöðum en mér fannst skemmti- legast að vinna í London. Ég held að fólkið þar sé líkara okkur og vinnan er fjölbreyttari. Markaðurinn er náttúrulega minni og það er auðveldara að fá vinnu Þórunn Þor- leifsdóttir og Elísabet Dav- •'ösdóttir eru á leið Parísar í sum- ar til að vinna á vegum Ford Models. DV-mynd GS þar en þaö var líka gaman að dvelj- ast í París út af borginni sjálfri. Ég hef verið þar tvisvar og er vissulega svolítið smeyk að fara þangað aftur. Það eru miklu meiri kröfur gerðar þar en til dæmis í London,“ segir El- ísabet. Skrifstofa Ford Models sér um að senda fyrirsæturnar í prufumynda- tökur þegar þær hefja störf þannig að þeim takist að safna sér góðum myndum í möppu. Elísabet segir að með myndirnar frá París standi þær mjög sterkt, hvort heldur í Mílanó, Paris eða London. Undirbúningur að Ford-keppn- inni og Fegurðarsamkeppni íslands 1996 er í fullum gangi. Ford-stúlkan 1996 verður valin á Hótel íslandi 24. maí samhliða því sem Ungfrú Island 1996 verður valin. Það er 21 stúlka sem keppir, níu af höfuðborgar- svæðinu og tólf utan af landi, og eiga einhverjar þeirra sjálfsagt eftir að fá tækifæri til að starfa sem fyr- irsætur í útlöndum. -GHS upp BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Kirkjusandur 1-5 (áður Laugarnesvegur 89) Staðgreinireitur 1.340.5 í samræmi við 17. og 18. grein skipulagslaga er auglýst kynning á breyttu deiliskipulagi á lóðinni Kirkjusandur 1-5. Kynningin fer fram í sal Borgarskipulags og bygg- ingarfulltrúa að Borgartúni 3, 1. hæð, kl. 9.00 - 16.00 virka daga og stendur til 20. júní 1996. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíku eigi síðar en fimmtudaginn 4. júlí 1996. Blómatilboð 3 plöntur að eigin vali á aðeins kr. 2.790 Fíkus 80-100 cm kr. 1.190 Dvergpálmi 70-80 cm kr. 1.190 Drekatré 90-110 cm kr. 1.190 Gullpálmi 70-90 cm kr. 1.190 Afskorin blóm í niiklu úrvali fyrir mæðradaginn STOFUASKUR KR. 295 KROTON KR. 390 HYPOCYRTA KR. 390 SMAPLÖNTUR 5 plöntur að eigin vali á aðeins kr. 990 v/Fossvogskirkjugarð, sími 55 40 500 Opið alla daga 10-22 Einar Sigurðsson er 26 ára fiskur sem á bara ketti. Hann er á ferð og flugi þessa dagana og á ótrúlega annasamt sumar í vcendum. Það snertir málningu, spasl, blóm og múrbrot, svo eitthvað sé nefnt. a\\t milff hlmjfa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.