Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Síða 48
56
leikhús
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 TWT
Skákmenn framtíðarinnar
tefldu á Eyrarbakka
- Jón Viktor og Sigurður Páll íslandsmeistarar
Á landsmótinu voru saman
komnir sigurvegarar undanrása úr
hverju kjördæmi og á sýslumótum
en landsmótið í skólaskák er jafnan
fjölmennasta skákkeppni ársins hér
á landi. Telja má að um 3.000 nem-
endijir í skólum landsins taki þátt í
keppninni. í úrslitakeppninni er því
hvert sæti vel skipað, eins og oftast
er raunin, en snjöllustu skákmenn
landsins á grunnskólaaldri hafa
sjaldan látið sig vanta. Mótið í ár
var hið 17. í röðinni.
í næstu sætum á eftir ólympíu-
meisúmmum í eldri flokki komu
Davíð Ingimarsson, Reykjavík, og
Ingi Þór Einarsson, Hafnarfirði,
með 7,5 v. Gunnar B. Helgason, Sel-
fossi, og Guðjón Sveinsson, Blöndu-
ósi, komu þar á eftir með 4,5 v.,
Halldór Bjarkason, Vestfjörðum,
fékk 4 v. og Björgvin R. Helgason,
Suðurlandi, 3 v.
í yngri flokki sigraði Sigurður
Páll Steindórsson, Reykjavík, eins
og áður sagði en hann hlaut 10 vinn-
inga af 11 mögulegum. Hjalti Rúnar
Ómarsson, Kópavogi, fékk 9,5 v. og
varð í 2. sæti og Guðni Stefán Pét-
ursson, Reykjavík, hlaut 9 v. og
þriðja sæti. Næstir komu Guðjón
Valgarðsson, Reykjavík, og Gunn-
þór Kristinsson, Selfossi, með 6,5 v.,
Skúli H. Sigurðarson, Reykjanesbæ,
og Hlynur Hafliðason, Reykjavik,
sem fengu 6 v., Stefán Bergsson,
Norðurlandi eystra, með 5 v., og
Pálmar Jónsson, Eyrarbakka, með 3
v, en hann var jafnframt yngsti
keppandi mótsins, nýorðinn 10 ára
gamall.
Þrátt fyrir að fjölmiðlar virðist
hafa tekið upp á því að sinna skák-
■listinni minna en oft áður lætur
æska landsins það ekki á sig fá og
er það vel. Sýnt hefur verið fram á
að skákiðkun eflir einbeitingu, örv-
ar einstaklinginn til dáða og er góð-
ur stuðningur við skólanámið.
Úr smiðju Nigels Shorts
Enski stórmeistarinn Nigel Short
sér um skákdálk í enska blaðinu
Sunday Telegraph. í umfjöllun hans
um stórmót VSB-bankans í Amster-
dam fyrir skömmu dró hann fram
áhugaverð skákbrot sem vert er að
segja frá.
Búlgarinn Veselin Topalov kom
skemmtilega á óvart í Amsterdam
og lagði m.a. sjálfan Garrí Kasparov
að velli. Þetta var í annað sinn sem
Topalov tókst að leggja meistarann.
Virkur sóknarstíll Búlgarans hefur
þegar aflað honum margra aðdá-
enda. Skákin við Kasparov var tefld
af þrótti af hans hálfu og eins og svo
oft vill verða leyndist sitthvað und-
ir yfirborðinu.
Lítum á stöðuna í skák Topalovs
við Kasparov sem hafði svart og átti
leik.
Kasparov lék 16. - Ha6 og þá kom
17. Rd8! fB 18. Rf7 og Kasparov
lenti í vanda sem honum tókst ekki
að klóra sig fram úr.
í stað 16. - Ha6 hafa margir skák-
skýrendur stungið upp á 16. - Bd7
en þá hafði Topalov býsna snoturt
svar í huga, 17. Re7!!, sem hótar 18.
Bxf7+! Kxf719. Dh5+ með vinnings-
stöðu. Svartur á í mesta vanda. T.d.
17. - Bxe7 18. Bxe7 Kxe7 (ef 18. - f6 er
19. Dg4 mögulegt svar) 19. f6+ og
auðvelt er að sjá að hvítur vinmn-,
eða 17. - f6 18. Dh5+ Kxe7 19. Bxf6+!
gxf6 20. Df7+ Kd8 21. Dxf6+ Kc8 22.
Dxh8+ og hvíta taflið er vænlegt
vegna frelsingjans á f-línunni.
Önnur staða frá mótinu er úr
skák Shorts sjálfs við Lautier. Short
tekur hana sem dæmi um einfaldan
leik sem auðvelt er að láta fara fram
Umsjón
Jón L Ámason
hjá sér en tölvur sjá hins vegar á
augabragði. Lautier hafði hvítt og
átti leik í þessari stöðu:
26. Rxd5! Bxd5 27. Bxd5 Rxd5
28. Hxd5.
Short kaus að þiggja ekki fómina.
Lék 28. - Hf5 en sat þá uppi með
peði minna og vonda stöðu - tapaði
taflinu um síðir.
Það sem Short óttaðist var af-
brigðið 28. - Dxd5 29. Rxg6+! hxg6
30. Dxg6 Hf7 31. e4! með hótun á
drottningunni, auk 32. Hhl+ með
máti i kjölfarið.
En hér missti Short af óvæntum
vamarmöguleika: 31. - Db7! og ef
32. Hhl+ Bh4! 33. Hxh4 Hh7 34. Df6+
Dg7 og svartur vinnur! Hins vegar
getur hvítur teflt betur með 32.
Dh5+ Hh7 33. De5+ Bf6 34. Dxf6+
Hg7 35. Dh6+ Kg8 36. De6+ og þar
sem 36. - Kf8 37. Hhl er óþægilegt
verður niðurstaðan 36. - Kh8 og jafn-
tefli með þráskák.
Þennan einfalda leik, 31. - Db7!, sá
hvorugur keppenda yfir borðinu en
hann blasir við sæmilega skyn-
samri tölvu.
Vel skipaður
landsliusflokkur
Keppni í landsliðsflokki á skák-
þingi íslands hefst 20. maí nk. og
stendur til 2. júní. Teflt verður í
húsakynnum Taflfélags Reykjavík-
ur viö Faxafen. Útlit er fyrir að
flokkurinn verði skipaður öflugri
skákmeisturum en mörg undanfar-
in ár. Þeir sem hafa skráð sig til
leiks em stórmeistaramir Margeir
Pétursson, Jóhann Hjartarson,
Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Áss
Grétarsson og Helgi Ólafsson, al-
þjóðlegu meistaramir Þröstur Þór-
hallsson og Sævar Bjarnason,
Magnús Öm Úlfarsson, Jón Garðar
Viðarsson, Jón Viktor Gunnarsson
og Torfi Leósson. Enn er ekki ljóst
hver kemur til með að skipa tólfta
sætið.
Úlafur H. formaður TR
Ólafúr H. Ólafsson var endurkjör-
inn formaður Taflfélags Reykjavík-
ur á aðalfundi félagsins sem hald-
inn var sl. fimmtudag. I kosningu
um formannssætið féllu atkvæði
þannig að Ólafur fékk 44 atkvæði en
Daði Öm Jónsson 24 atkvæði; 5
seðlar vom auðir og 1 ógildur. í
stjóm vom tilnefndir Sigurður Daði
Sigfússon, Vilhelm Steindórsson,
Frimann Sturluson, Láms Knúts-
son, Þröstur Þórhallsson, Ingimar
Jóhannsson, Amar E. Gunnarsson
og Friðrik Örn Egilssort:
Skákmót öðlinga
Dr. Kristján Guðmundsson sigr-
aði tvöfalt á skákmót öðlinga. í aðal-
keppninni hlaut hann 5,5 v. úr 7
skákum. í 2.-5. sæti urðu Sæbjöm
Guðfinnsson, Jóhann Örn Sigur-
jónsson, Hermcum Ragnarsson og
Júlíus Friðjónsson sem fengu 5 v.
Ögmundur Kristinsson haftiaði í 6.
sæti með 4,5 v. Keppendur vom 22
að „skottu" meðtalinni.
í hraöskákkeppninni hlaut dr.
Kristján 12,5 vinninga af 14 mögu-
legum, Jóhann Öm Sigurjónsson
fékk 10,5 v. og Sigurður Herlufsen 9
v. Teflt var í félagsheimili TR við
Faxafen. Skákstjóri var Ólafur S.
Ásgrímsson.
Jarðarfarir
Sólveig Magnúsdóttir, Barðavogi
26, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Breiðabólsstaðarkirkju í Fljótshlíð
laugardaginn 11. maí klukkan 14.00.
Guðfiiuia Sigurðardóttir verður
jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 11. maí kl. 14.00.
Finnbogi Ásbjömsson, Sæunnar-
götu 6, Borgamesi, sem lést 4. maí,
verður jarðsunginn frá Borgames-
kirkju laugardaginn 11. maí klukk-
an 14.00.
Helga María Jónsdóttir Snædal,
Búðarvegi 39a, Fáskrúðsfirði, sem
lést miðvikudaginn 1. maí, verður
jarðsungin frá Fáskrúðsfjarðar-
kirkju laugardaginn 11. maí klukk-
an 14.
Ingibjörg M. Jónsdóttir, sem lést
1. maí, verður jarðsungin frá Stykk-
ishólmskirkju laugardaginn 11. maí
kl. 14.
UPPBOÐ
Sýslumaðurinn í Kópavogi tilkynnir að haldið verður uppboð í reiðhöll
Gusts, Kópavogi, laugardaginn 11. maí 1996 kl. 13.00. Fjöldi muna
veröur boðinn upp og er áætlað að uppboðiö standi til kl. 18.00.
Eftirtaldir munir verða boðnir upp:
fjöldi verkfæra og verkfærasetta (skrúfur, lóðbretti, smergill, slípirokkur,
borvélar, hamrar, sporjárn, skrúfjárn, sagir, lyklasett o.fl.), rekkar fyrir
skrúfur og smádót, rennibekkur, rafsuðuvélar, nokkur sláttuorf,
sprautukönnur, sandblásturskanna, viðgerðarsett í Damixa
blöndunartæki, barnastólar í bifreiðar, leirtau, hnífasett, rafmagnsofnar,
skrifstofuhúsgögn, kjötiðnaðartæki, allt í útileguna, s.s. tjöld, bakpokar,
vindsængur, regngallar, stígvél og feröa-pottasett, ýmis skófatnaður,
garðhúsgögn, hjólhaldari á bifreið, skápar og hillur (einfaldir og
tvöfaldir), rafmagnsgirðing ásamt rafstöð, reiðtygi, m.a. hnakkar, einnig
reiðbuxur og reiðhjálmar.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki
uppboðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Kópavogi
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
SÍMI 568-8000
STÓRA SVIÐ KL. 20.00:
KVÁSARVALSINN
eftir Jónas Árnason
9. sýn. Id. 18/5, bleik kort gilda, fld.
23/5, föd. 31/5. Síðustu sýningar.
HIÐ UÓSA MAN
eftir íslandsklukku Halldórs
Laxness í leikgerð Bríetar
Héðinsdóttur
í kvöld, 11/5, föd. 17/5, föd. 24/5.
Sýningum fer fækkandi!
Samstarfsverkefni við
Leikfélag Reykjavíkur:
Alheimsleikhúsið sýnir á
Litla svlðl kl. 20.00:
KONUR SKELFA
toilet-drama eftir Hlín
Agnarsdóttur.
I kvöld, 11/5, örfá sæti, sud.12/5, föst.
17/5, uppselt, 50 sýnlng Id. 18/5, fáein
sætl laus, fld. 23/5, föd. 24/5, fid. 30/5,
föd. 31/5, laud. 1/6.
Síðustu sýningar.
Barflugurnar sýna á
Leynlbarnum kl. 20.30.
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
Aukasýningar sud. 12/5, kl. 20.30,
uppselt, Id. 18/5, kl. 20.30, fáein sæti
laus, síðustu sýningar!
Höfundasmiðja L.R.
Laugardaginn 11. maí kl. 16.00.
Allsnægtaborðlð _ Leikrit eftit
Elísabetu Jökulsdóttur.
Mlðaverð 500 kr.
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
13-20, nema mánudaga frá kl. 13-
17, auk þess er tekið a móti
miðapöntunum í síma 568-8000
alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar
- frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
ÞJÓÐLEIKHÚSID
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20.00:
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Ld. 18/5, nokkur sæti laus, sud. 19/5,
nokkur sæti laus, fid. 30/5.
SEM YÐUR PÓKNAST
eftir Wiliiam Shakespeare
5. sýn. í kvöld, nokkur sæti laus, 6.
sýn. mid. 15/5, 7. sýn. fld. 16/5, 8. sýn.
föd. 31/5.
TRÖLLAKIRKJA
eftir Ólaf Gunnarsson í leikgerð
Þórunnar Sigurðardóttur.
Á morgun, síðasta sýning.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
í dag kl. 14.00, nokkur sæti laus, 60.
sýn. á morgun kl. 14.00, nokkur sætl
laus, Id. 18/5 kl. 14.00, sud. 19/5 kl.
14.00.
Ath. fáar sýningar eftir.
LITLA SVIDIÐ KL. 20.30.
KIRKJUGARÐSKLÚBBURINN
eftir ívan Menchell
í kvöld, á morgun, nokkur sæti laus,
mld. 15/5, fid. 16/5, föd. 17/5, nokkur
sæti iaus, fid. 23/5, næstsíðasta
sýning, föd. 24/5, síðasta sýning.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ KL. 20.30
HAMINGJURÁNIÐ
söngleikur eftir Bengt Ahlfors
f kvöld, uppselt, á morgun, nokkur
sæti laus, mvd. 15/5, örfá sæti laus,
fid. 16/5, nokkur sæti laus, föd. 17/5,
föd. 31/5., uppselt.
G jafakort í leikhús -
sígila og skemmtileg gjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og
fram að sýningu sýningardaga.
Einnig símaþjónusta frá kl. 10.00
virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200
SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ!
UPPB0Ð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Auðbrekku 10,
Kópavogi, sem hér segir, á eftir-
farandi eignum:
Álfhólsvegur 37, þingl. kaupsamn-
ingshafi Agla Björk Róbertsdóttir,
gerðarbeiðandi húsbréfadeild Hús-
næðisstofnunar ríkisins, miðvikudag-
inn 15. maí 1996 kl. 10.00.
Ásbraut 9, 1. hæð, þingl. eig. Garðar
Guðjónsson, gerðarbeiðendur Búnað-
arbanki íslands, húsbréfadeild Hús-
næðisstofnunar ríkisins, íslandsbanki
hf., Lífeyrissjóður verksmiðjufólks og
Lífeyrissjóður verslunarmanna, mið-
vikudaginn 15. maí 1996 kl. 10.00.
Borgarholtsbraut 61,2. hæð t.v., þingl.
eig. Jón Páll Þorbergsson og Sigur-
björg Lárusdóttir, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins, miðviku-
daginn 15. maí 1996 kl. 10.00.
Dimmuhvarf 14, þingl. eig. Ásgerður
Ólafsdóttir og Sigurður R. Jónsson,
gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í
Reykjavík, Iðnlánasjóður og Toll-
stjóraskrifstofa, miðvikudaginn 15.
maí 1996 kl. 10.00.
Engihjalli 9, 4. hæð D, þingl. eig. Að-
alheiður Sveinbjömsdóttir og Geir
Sigurðsson, gerðarbeiðandi Bygging-
arsjóður ríkisins, miðvikudaginn 15.
maí 1996 kl. 10.00.
Gmpuheiði 7, 02.01.01., þingl. eig.
Victor J. Jacobsen og Þórhildur Jóns-
dóttir, gerðarbeiðendur húsbréfa-
deild Húsnæðisstofnunar ríkisins og
Vátryggingafélag íslands hf., mið-
vikudaginn 15. maí 1996 kl. 10.00.
Grófarsmári 16, þingl. eig. Sigurður
Þór Sigurðsson og Sigrún Inga Magn-
úsdóttir, gerðarbeiðandi húsbréfa-
deild Húsnæðisstofnunar ríkisins,
miðvikudaginn 15. maí 1996 kl. 10.00.
Hamraborg 26, 1. hæð B, þingl. eig.
Gunnar Þorsteinn Sigurðsson, gerð-
arbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins,
miðvikudaginn 15. maí 1996 kl. 10.00.
Hamraborg 32, 1. hæð C, þingl. eig.
Ninja Kristmannsdóttir, gerðarbeið-
andi sýslumaðurinn í Kópavogi, mið-
vikudaginn 15. maí 1996 kl. 10.00.
Hlíðarvegur 4, þingl. eig. Sigrún Sig-
valdadóttir, gerðarbeiðandi Lífeyris-
sjóður verslunarmanna, miðvikudag-
inn 15. maí 1996 kl. 10.00.
Huldubraut 13, efri hæð, þingl. eig.
Jóhann S. Vilhjálmsson og Guð-
munda Ingjaldsdóttir, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins, miðviku-
daginn 15. maí 1996 kl. 10.00.
Skeifa v/Nýbýlaveg, þingl. eignar-
hluti Viggós Dýrfjörð, gerðarbeiðandi
Búnaðarbanki íslands, miðvikudag-
inn 15. maí 1996 kl. 10.00.______
Víðigrund 19, þingl. eig. Kristinn
Breiðfjörð Guðlaugsson og Ema
Svanhvít Jóhannesdóttir, gerðarbeið-
andi Innheimtustofnun sveitarfélaga,
miðvikudagirtn 15. maí 1996 kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI