Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1996, Blaðsíða 29
PRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1996
33
Menning
Nálgun við sjálfs-
vitund þjóðar
Birgir Andrésson á sjónþingi í Gerðubergi og Sjónarhóli
Frásögnin hefur frá öndverðu
verið ríkur þáttur í íslenskri
myndlist. Frumforsenda myndlist-
ar frá fyrstu árum íslandsbyggðar
og allt fram á þessa öld var að segja
sögu. Birgir Andrésson, sem
kynnti list sína á sjónþingi um
helgina, er í mörgum verka sinna
að grafast fyrir um rætur mynd-
menningar okkar, sýna fram á sér-
kenni hennar og frásagnarmáta. Á
Feneyjatvíæringnum á síðasta ári
var Birgir fulltrúi íslands og sýndi
þar m.a. ullarfána í sauðalitunum
og blýantsteikningar af tóftabrot-
um íslenskra torfbæja. í slíku al-
þjóðasamhengi er tvíbent hvort svo
þjóðernisleg uppstilling hafi nei-
kvæð eða jákvæð áhrif. Sé nánar
grafist fyrir um ástæðurnar að
baki slíkri list hlýtur þörfin á þjóð-
legri sjálfsvitund að koma fljótlega
upp á yfirborðið. Myndmenning
landans hefur nefnilega ekki verið
eins sýnileg og nágrannaþjóðanna,
sem við erum jafnan að bera okkur
saman við, hvað þá annarra Evr-
ópuþjóða sem státa velflestar af
aldagömlum höllum uppfullum af
fagurlistum.
Birgir Andrésson 1976.
Ljósmyndaðar eyktir og
þjóðlegar lágmyndir
Birgir var einn þeirra nemenda Magnúsar Pálsson-
ar í Myndlista- og handíðaskólanum sem mynduðu
kjarnann í því sem þá kallaðist deild
í mótun, síðar nýlistadeild, loks fjöl-
tæknideild. Magnús varð mikill
áhrifavaldur hinna ungu listamanna,
ekki síður en félagi. Hann fékk Birgi
til að sýna með sér meðan hann var____________
enn nemandi og meðal þess sem Birg-
ir sýndi var röð ljósmynda af eyktarmörkum, séðum
frá bæ gamals bónda í Hækingsdal í Kjós. Endurgerð
röð þessara sjö ljósmynda er á sýningu á eldri verk-
um Birgis í Gerðubergi. Önnur athyglisverð myndröð
en nokkuð annarrar ættar er af Birgi að múra upp í
dyrnar á Gallerí SÚM fyrir réttum tuttugu árum.
Ljósmynd af listamanninum að blása upp moldarbarð
er ber titilinn Náttúruspjall vísar fyrst og fremst til
sjálfsmynda Sigurðar Guðmundssonar. Uppistaða
eldri verka Birgis í Gerðubergi er hins vegar lág-
myndir, annars vegar nokkur verk er bera titilinn
Stjörnumerki (frá 1986), gerð úr offsetplötum og
steypustyrktarjárni, og hins vegar verkið Fundin ný
lönd frá 1994, þar sem misupphleyptir landshlutar á
íslandskorti úr gifsi og hrútshornalampar skapa
skemmtilega þjóðlegan blæ.
Myndlist
Olafur J. Engilbertsson
Nálægð, ímyndir, litir
Nýrri verkin á Sjónarhóli eru mörg hver lítið nýrri
en þau í Gerðubergi. Raunar kom í ljós á sjónþinginu
að mörg eldri verka Birgis eru glötuð og hefði gjarn-
an mátt endurgera fleiri fyrir sýn-
inguna. Á Sjónarhóli eru hins vegar
mest áberandi „portrett" þar sem
meginuppistaðan er letur á lituðum
grunni. Hér er um silkiþrykk að
ræða af mannlýsingum líkt og þær
hafa tíðkast í gegnum Islandssöguna,
allt frá íslendingasögum til jólabóka og minningar-
greina samtímans. Yfirskrift sýningarinnar er Ná-
lægð, ímyndir, litir og það eru einmitt þessi viðfangs-
efni sem Birgir er að fást við í dag, fyrst og fremst út
frá spurningunni um hvað.er séríslenskt. Bókverk
Birgis í gegnum tíðina fjalla jafnframt um þessi efni.
Nálægð frímerkis frá prentunarsjónarmiði vísar til
kynna Birgis af prenti og graflskri hönnun. Hér eru
sérstaklega áhugaverðir þrír skápar gerðir út frá út-
litshönnun gamals frímerkis. Þó ekki sé yflr jafnlang-
an feril að fara og á fyrri sjónþingum er mikils um
vert að Gerðuberg og Sjónarhóll skuli á þennan hátt
standa að kynningum á samtímalistamönnum sem
alltof sjaldan fá inni á ljósvakamiðlunum fyrir við-
horf sín. Sýningin á Sjónarhóli stendur til 30. maí en
til 28. júní í Gerðubergi.
Fréttir
Kveikt í ibúðarhúsi við Stórholt:
Vöknuðu viðreykí morgun
„Ég hélt fyrst að sá sem býr í
kjallaranum væri að grínast. Hann
kom og sagði að búið væri að
kveikja í húsinu," segir Ríkey Ingi-
mundardóttir myndhöggvari sem
vaknaði upp við það um miðja nótt
í nótt að búið var að henda logandi
rusli inn um kjallaraglugga.
„Það var heppni að maðurinn í
kjallaranum var heima. Annars
hefði eldurinn kraumað þar í alla
nótt og þá er útilokað að segja til
um hvað hefði gerst,“ segir Rikey.
Skemmdir urðu nokkrar af reyk
og einnig brann teppi í kjallaranum.
Ríkey hefur ekki hugmynd um hver
var þarna að verki. Brennuvargur-
inn skildi þó eftir orðin „die fuck“
krotuð á húsvegginn. -GK
Ekiö á 10
ára dreng
Ekið var á 10 ára gamlan dreng á
reiðhjóli við Öskjuhlíð í gærkvöldi.
Drengurinn var ekki með hjálm og
var. hann fluttur á slysadeild. Hann
mun ekki vera alvarlega slasaður.
-GK
Ríkey Ingimundardóttir myndhöggvari varð fyrir þeirri óskemmtilegu
reynsiu í morgun að logandi rusli var hent inn í kjailarann á húsi
hennar.Töluverðar skemmdir urðu af reyk. DV-mynd S
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
SÍMI 568-8000
STÓRA SVIÐ KL. 20.00:
KVÁSARVALSINN
eftir Jónas Árnason
9. sýn. Id. 18/5, bleik kort gilda, fid.
23/5, föd. 31/5. Síöustu sýningar.
HIÐ LJÓSA MAN
eftir íslandsklukku Halldórs
Laxness í leikgerð Bríetar
Héðinsdóttur
Föd. 17/5, föd. 24/5, Id. 1/6. Sýningum
fer fækkandi!
fslenska mafían
eftir Einar Karason og Kjartan
Ragnarsson
Fid. 16/5. Allra síðasta sýningl! Tilboð:
Tveirfyrireinn!
Samstarfsverkefni við
Leikfélag Reykjavikur:
Alheimsleikhúsiö sýnir á
Litla sviði kl. 20.00:
KONUR SKELFA
toilet-drama eftir Hlín
Agnarsdóttur
Fid. 16/5, laus sæti, föst. 17/5, uppselt,
50 sýning Id. 18/5, laus sæti, fid. 23/5,
föd. 24/5, örfá sæti laus, fid. 30/5, föd.
31/5, laud. 1/6.
Síðustu sýningar.
Barflugurnar sýna á
Leynibarnum kl. 20.30.
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
Aukasýningar Id. 18/5, örfá sæti laus,
fid, 23/5, föd. 31/5. Síðustu sýningar!
Höfundasmiðja L.R.
Laugardaginn 18. maí kl. 16.00
Mig dreymir ekki vitleysu -
einþáttungur eftir Súsönnu
Svavarsdóttur. Miðaverð 500 kr.
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
13-20, nema mánudaga frá kl. 13-
17, auk þess er tekið á móti
miðapöntunum í síma 568-8000
alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar
- frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
Tilkynningar
Ferðaklúbburinn Flækjufótur
efnir til helgarferðar á Snæfellsjök-
ul helgina 17.-19. maí nk. Vegna for-
falla eru nokkur sæti laus. Uppl. í
síma 557 2468 eftir kl. 17 á daginn.
Reykjavíkurdeild RKÍ
gengst fyrir tveggja daga námskeiði
í sálrænni skyndihjálp - stórslysa-
sálarfræði (áfallahjálp) 15. og 22.
maí n.k. Kennt verður frá kl. 18 til
21 báða dagana. Námskeiðið er ætl-
að fyrir alla þá sem áhuga hafa á
áfalla- og stórslysasálarfræði og eru
eldri en 15 ára. Væntanlegir þátttak-
endur þurfa ekki að hafa neina
fræðilega þekkingu né reynslu á
þessu syiði. Námskeiðshaldari verð-
ur Lárus H. Blöndal sálfræðingur.
Kennslustaður Fákafen 11, 2. hæð.
Skráning í síma 568 8188 frá kl. 8 til
16. Námskeiðsgjald er aðeins 2000
kr.
Slysavarnakonur í Reykjavík
Látið vita um þátttöku í sum-
arferðalaginu fyrir 18. maí. Sími 562
6601, Guðrún, og 581 4548 Svala.
Kynnisferð um Snæfellsnes
Ferðaþjónustuaðilar á Snæfellsnesi
bjóða þér í kynnisferð um Snæfells-
nes þar sem lögð verður áhersla á
að kynna þá þjónustu sem er í boði,
auk ferðamöguleika. Lagt verður af
stað frá BSÍ fóstudaginn 17. maí kl.
18. Sjáir þú þér fært að koma og
njóta þess sem náttúra Snæfellsness
hefur upp á að bjóða, þá vinsamlega
hringdu í síma 438 6630 í dag, 14.
maí.
ÞJÓÐLEIKHÚSID
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20.00:
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Ld. 18/5, nokkur sæti laus, sud. 19/5,
nokkur sætl laus, fld. 30/5.
SEM YÐUR ÞÓKNAST
eftir William Shakespeare
6. sýn. á morgun, 7. sýn. fid. 16/5, 8.
sýn. föd. 31/5.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Ld. 18/5 kl. 14.00, sud. 19/5 kl. 14.00.
Ath. fáar sýningar eftir.
LITLA SVIÐIÐ KL. 20.30.
KIRKJUGARÐSKLÚBBURINN
eftir Ivan Menchell
Á morgun, fid. 16/5, föd. 17/5, örfá sæti
laus, fid. 23/5, næstsíðasta sýning, föd.
24/5, síðasta sýning.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ KL. 20.30
HAMINGJURÁNIÐ
söngleikur eftir Bengt Ahlfors
Mvd. 15/5, uppselt, fid. 16/5, laus sæti;
föd. 17/5, uppselt, föd. 31/5., uppselt.
Gjafakort í leikhús -
sígild og skemmtileg gjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og
fram að sýningu sýningardaga.
Einnig símaþjónusta frá ki. 10.00
virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200
SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ!
Tapað fundið
Gamalt kvengullúr
tapaðist 8. maí í Gnoðarvoginum.
Vinsamlega hringið í síma 581 1069.
Tvíhjól
í óskilum í Hlíðunum síðan 20, -apr-
íl. Upplýsingar í síma 561 0216.
DANMÖRK
Verð frá kr.
hvora leið
með flug-
vallaskatti
og greiðslukorta-
afsláttur og
stighækkandi
birtingarafsláttur
5505999
Smá-
auglýsingar