Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996
* ÍK
l stutíar fréttir
Rúta sprakk
Um tlu manns létust og rúm-
; lega tuttugu slösuðust þegar
\ sprenging varð í rútu í Norður-
| Kákasus í Rússlandi í gær.
Stjórn í næstu viku
I Vaclav
Havel Tékk-
landsforseti
sagði í gær
í að hann
; byggist fast-
lega viö því
að ný minni-
| hlutasfjóm
; landsins
| tæki við í næstu viku þegar
\ samkomulag núverandi hæg-
! ristjómar og jafhaðarmanna um
3 stjómarstuðning gengi i gildi.
Mafían íhugaði morð
Uppijóstrari úr maflunni seg-
ir að fyrirhugað hafi verið að
j drepa eitt af bömum Andreott-
j is, fyrrum forsætisráðherra
Ítalíu, þar sem hann sneri baki
I við glæpasamtökunum.
Broccoli látinn
Albert Broccoli, aðalmaður-
inn á bak við kvikmyndimar
um James Bond, ofumjósnara
hennar hátignar, lést á heimili
j sínu i Kalifomíu eftir langvar-
andi veikindi, 87 ára að aldri.
Hættuleg geislun
Kínversk yfirvöld hafa fund-
jj ið hættulega mikla geislavirkni
í brotamálmi sem kom frá
Bandaríkjunum.
Mánuður til viðbótar
Samningamenn á fundi um
kjarnorkutilraunabann hafa
1 fengið mánuð til viðbótar til að
leysa ágreining sinn um mikil-
væg atriði.
Tsjernomyrdin á fund
Viktor Tsjemomyrdin, for-
sætisráðherra Rússlands, slóst i
lið með leiötogum iðnríkjanna
sjö eftir að þeir höfðu hvatt til
áframhaldandi efnahags- og
| stjórnmálaumbóta í Rússlandi.
Ekki kjósa komma
Rússneski
þjóðem-
j isöfgamaður-
inn Vladimír
Zhirínovskí,
sem varð í
l fimmta sæti
í fyrri um-
ferð forseta-
kosning-
I anna, bað kjósendur sína í gær
um að styðja ekki kommúnist-
ann Zjúganov í síðari umferð-
; inni á miðvikudag.
Konsúls minnst
Aung San Suu Kyi, leiðtogi
lýðræðissinna í Burma, og
danski sendiherrann sóttu
búddíska minningarathöfn um
fyrrum ræðismann Norður-
i landanna sem lést í fangelsi á
dögunum. Reuter
-
Kauphallir erlendis:
Met í Frankfurt
og Tokyo
Hlutabréfavísitölur í kauphöllun-
um í Frankfurt og Tokyo slógu met
í vikunni. Nikkei-visitalan í Tokyo
fór í 22.666 stig og hefur ekki verið
hærri síðastliðið ár en DAX-30 í
Frankfurt setti sögulegt met, fór í
2.573 stig. Þetta gerðist um miðja
vikuna en síðan hafa vísitölumar
lækkað. Dow Jones í New York og
FT-SE 100 í London hafa tekið
óverulegum breytingum. Svipaða
sögu er að segja um Hang Seng vísi-
töluna í Hong Kong.
Á heimsmarkaði undanfama vik-
ur hefur bensínverð lækkaö lítillega
en hráolía hins vegar hækkaö. Þeg-
ar viðskiptum lauk á miðvikudag
var tunnan að nálgast 19 dollara.
Frá því í apríl hefur sykur og kaffi
lækkað í verði á heimsmarkaði.
-Reuter
Ný ríkisstjórn múslíma og íhaldsmanna í Tyrklandi:
Harðlínumenn
við stjórnvölinn
Suleyman Demirel, forseti Tyrk-
lands, féllst á Necmettin Erbakan,
leiðtoga velferðarflokks bókstafstrú-
aðra múslíma, sem næsta forsætis-
ráðherra landsins í gær. Þá hafði
Erbakan komist að samkomulagi
við Tansu Ciller, leiðtoga íhalds-
manna og fyrrum forsætisráðherra,
um myndun nýrrar samsteypu-
stjómar. Bókstafstrúarmaður hefur
aldrei fyrr gegnt embætti forsætis-
ráðherra í Tyrklandi.
„Ég hef mjög góðar fréttir fyrir
ykkur, ný ríkisstjórn hefur verið
mynduð," sagði Erbakan við frétta-
menn eftir að hann hafði gengið á
fund Demirels.
Erbakan las upp ráðherralista
sem Demirel hafði samþykkt, með
sjálfum sér sem forsætisráðherra en
Ciller sem aðstoðarforsætisráðherra
og utanríkisráðherra.
Bókstafstrúarmenn fengu flesta
menn kjörna á þing, 158 af 550
mönnum á tyrkneska þinginu, í
kosningunum sem fram fóm í des-
ember síðastliðnum.
Stjómarflokkarnir hafa alls 276
þingmenn, sem er nóg til að fá
traust þingsins, en ýmsir flokks-
menn Ciller hafa þó lýst yfir því að
þeir mundu ekki styðja samkomu-
lag við bókstafstrúarmenn.
Velferðarflokkurinn og flokkur
Ciller hafa rætt stjórnarmyndun í
fjórgang frá því minnihlutastjórn
Mesuts Yilmaz sagði af sér fyrr í
mánuðinum.
Reuter
V f i *
w' * P Ikml
.. V-" . ..
. wm WÍ. ■ -LÍfl*
S tlf
Konur, sem taka þátt í fyrstu kvennaráðstefnunni í Bosníu, leggja blóm á staðinn þar sem sextán manns voru myrt-
ir á meöan þeir biðu eftir að kaupa brauð í miðborg Sarajevo í maí 1992. Ráðstefnan er haldin á vegum tvennra mann-
úðarsamtaka og lýkur á morgun. Símamynd Reuter
Sænsk stjórnvöld vilja fá
pabbana heim til barnanna
Sænsk stjórnvöld ætla að efna til
umfangsmikillar auglýsingaherferð-
ar þar sem feður verða hvattir til að
taka sér mánaðarfrí frá vinnu, á
næstum fullu kaupi, til að vera
heima með bömum sínum.
„Við viljum að fleiri karlar séu
heima við og dvelji þar lengur,“
sagði Inger Axe, talsmaður sænsku
tryggingastofnunarinnar.
Sænskir foreldrar geta fengið 75
prósent af launum sínum í meira en
ár til að vera heima með ungum
bömum sínum. Það em einkum
mæðurnar sem nýta sér þetta þótt
feðumir eigi einnig rétt á hluta tím-
ans.
Til stendur að verja sem svarar
um þrjátíu milljónum íslenskra
króna I auglýsingar í þessu skyni og
verður þeim beint að feðrum, mæðr-
um og atvinnurekendum. Fénu
verður að£illega varið til sjónvarps-
auglýsinga en einnig verður sett
upp heimasíða á Intemetinu.
Axe sagði að margir atvinnurek-
endur væru ekkert of hrifnir af því
aö leyfa körlunum sem þeir hafa í
vinnu að vera heima í föðurhlut-
verkinu.
Nýjustu upplýsingar, sem eru frá
árinu 1990, sýna að 48,3 prósent
feðra nýttu sér að vera heima í fæð-
ingarorlofi og var meðaltíminn 63
dagar.
Áður hefur verið efnt til auglýs-
ingaherferðar cif þessu tagi og þá
var slagorðið: Pabbi, komdu heim.
Reuter
Borís Jeltsín
þarfnast hvíldar
og hressingar
Boris
Jeltsín
Rússlands-
forseti varð
? að aflýsa
;; fyrirhuguð-
um fúndi i
gærmorgun,
aöeins fimm
dögum fyrir
| síðari umferð forsetakosning-
!. anna, og segja aðstoðarmenn
| hans að hann þurfi aðeins að
; hvila sig.
f „Við vonum að forsetanum
I takist að endumýja kraftana
j þegar hann hefur hvílst, eins og
' hann ætlar nú að gera,“ sagði
| Viktor Iljúsjín, helsti aðstoðar-
S maður Jeltsíns. Hann sagði að
I Jeltsín hefði misst röddina eftir
| að hafa veitt mikinn flölda við-
% tala.
Norðmenn
ganga af fundi
hvaiveiðiráðs
Norska sendinefndin gekk út
af ársfundi Alþjóða hvalveiði-
| ráðsins í Aberdeen í Skotlandi í
1 gær í mótmælaskyni við tillögu
þar sem Norðmönnum var gert
i að virða hvalveiðibannið frá
1982, koma í veg fyrir smygl á
’ hvalkjöti og leggja fram gögn
I um birgðir sínar af kjöti og
hvalspiki. Önnur tillaga sem
I samþykkt var í gær, lokadegi
fúndarins, meinar Norðmönn-
I um að aflétta banni við útflutn-
ingi á hvalaafurðum.
Norðmenn, sem hafa heimil-
að veiðar á 425 hrefnum á þessu
* ári, kölluðu samþykktir árs-
fundarins móðgún við sig.
Fé sett til höf-
uðs morðingj-
um blaðakonu
Atvinnuveitendur írsku
Iblaðakonunnar Veronicu Guer-
in buðu í gær eitt hundrað þús-
und írsk pund, eða rúmlega tíu
og hálfa milljón króna, fyrir
upplýsingar sem leitt gætu til
handtöku tveggja manna sem
myrtu hana á miðvikudag og
glæpaforingjans sem grunaður
ér um aö hafa fyrirskipað
morðið. Guerin var þekkt fyrir
j að fletta ofan af alls konar glæp-
astarfsemi í skrifúm sínum
| Kaldrifjað morðið á blaöakon-
| unni varð til þess að auka reiði
almennings í garð glæpaforingja
| sem til þessa hafa komist undan
| löngum armi laganna. í frétt í
; blaði Guerin í gær sagði að lög-
| regluna grunaði hver hefði fyr-
irskipað morðið en nokkur bið
gæti þó orðið á því að hann yrði
Ihandtekinn.
Karadzic þrá-
ast enn við að
segja af sér
Stórvelam ihuga að beita
Bosníu-
| Serba refsi-
aðgerðum
að nýju
vegna þrá-
kelkni
Radovans
I' Karadzics,
leiðtoga
! þeirra, sem
neitar enn að segja af sér nema
I að uppfylltum skilyrðum sem
3 Vesturveldin segja óásættanleg.
Heimildarmaður á fundi leið-
í toga sjö helstu iðnríkja heims
| sagði að gefin yrði út harðorð
| yfirlýsing í fúndarlok í dag.
; Bandarískir embættismenn á
leiðtogafundinum virtust gera
lítið úr fréttum frá Belgrad um
; að Ratko Mladic, herstjóri
Bosníu-Serba, hefði fengið
heilablóðfall og tvísýnt væri
um líf hans. Reuter
m