Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996 Í 3~%7‘ Þorgils Óttar Mathiesen, fyrrum fyrirliði landsliðsins í handbolta, og kona hans, Berta G. Guðmundsdóttir, hafa ásamt fjögurra mánaða dóttur sinni, Sigrúnu Þ. Mathiesen, hreiðrað um sig í einu elsta og sögufrægasta húsi Hafnarfjarðar, Einars- búð. Húsið blasir nú við þeim sem keyra Strandgötuna og ber með sér notalegan blæ aldamótanna í grænum, hvít- um og rauðum litum. Húsið var mjög illa farið þegar þau keyptu það og orðið hrörlegt, enda byggt árið 1907. Nú hef- ur það aldeilis fengið andlits- lyftingu og er komið í upp- runalegt horf, málað í þeim litum sem það var í árið 1907, með tilheyrandi hlerum fyrir gluggum. Nú gleður það augu Hafnfirðinga og þeirra sem leið eiga um hæinn. Þorgils Óttar og Berta búa á efri hæð- inni en á neðri hæðinni var opnuð ný Einarsbúð og bak- arí í gær. Tengist húsinu „Mig hefur lengi langað til þess að kaupa þetta gamla hús og gera eitthvað fyrir það. Að vel athuguðu máli ákváðum við að selja íbúðina \ /SHÍ r v-'; ' 1 Mfm' ’j w’ «k- V ' *" • '***&#’ . ’-v :;-í}#'VÍ 1 • ■ - ’yj&Æéit ft ■ ‘■'*í1E3L: Handboltahetjan Þorgils Óttar Mathiesen og kona hans, Berta G. Guðmundsdóttir, hafa ásamt fjögurra mánaða dóttur sinni, Sig- rúnu Þ. Mathiesen, hreiðrað um sig í einu elsta og sögufrægasta húsi Hafnarfjarðar, Einarsbúð. vinnan hefur verið unnin af fagmönnum. Sigurður Einars- son, arkitekt hjá Batteríinu, aðstoðaði okkur við að færa húsið í upprunalegt horf og Ingvar og Kristján sf. hafa mestmegnis séð um smíða- vinnuna. Einnig hefur fjöldi annarra iðnaðarmanna tekið til hendinni," segir Þorgils Óttar. Skipta varð um glugga í öllu húsinu því þeir voru illa fam- ir og hlerar voru settir fyrir suma þeirra í sama anda og þegar húsið var byggt og voru þeir málaðir rauðir. Hjónin eru nýbúin að fá eldhúsinn- réttingú og eru ekki endanlega búin að ganga frá íbúðinni. Þau eiga enn þá eftir að ráð- stafa í kringum hundrað fer- metra plássi á efri hæðinni. Ekki er búið að ákveða hvað verður um þá en möguleiki er á því að stækka íbúðina seinna meir ef fjölskyldan stækkar meira. Einnig kemur til greina að leigja það hús- næði þegar búið er að vinna í því. Bakarí og ný Einarsbúð „Þegar við fengum leigjend- Gerðu upp eitt sögufrægasta hús Hafnarfjarðar: Notalegur blær aldamótanna okkar og ráðast í kaupin. Ég tengist þessu húsi sérstaklega mikið þar sem langafi minn byggði það og það hafði alla tíð verið í eigu fjölskyld- unnar. Ég lét því verða af að kaupa Einarsbúðina af afkomendum Ein- ars Þorgilssonar, langafa míns. Á einu ári höfum við varið tímanum í það að breyta húsinu í sitt uppruna- lega horf,“ segir Þorgils Óttar Mathiesen þegar DV heimsótti þau hjónin til þess að skoða nýju híbýl- in þeirra. Langafi Þorgils Óttars, Einar Þorgilsson, útgeröirmaður •' Hafn- arflrði, byggði húsið árið 1907 og rak þar verslun á fyrstu hæðinni. Olíudælurnar eru notaðar sem skraut í bakaríinu en áður var hægt að kaupa olíu úr þeim. Verslunin var á sínum tíma fræg fyrir lágt verð og allir sem komnir eru af bamsaldri muna eftir Einars- búð. í kringum 1940 var búðin stækkuð og öll jarðhæðin tekin und- ir verslunina. Á efri hæð, þar sem íbúð Þorgils og Bertu er núna, voru skrifstofur og pakkhús. Þegar versl- unin var stækkuð var húsinu breytt í nýtískulegra horf á sama tíma og upprunalega yfirbragðið týndist. í kringum 1950 var gömlu búðinni lokað og þar varð lagerpláss í stað- inn. Verslunarinnréttingarnar varð- veittust vegna þess. Upprunalegar innréttingarnar frá 1907 voru gerðar upp og eru notaðar í bakaríinu. Hjóliö tilheyrði Einarsbúð á sínum tíma og var notað í sendiferöir. Gamaldags og nútímaleg blanda Þorgils og Berta hafa innréttað í kringum 85 fermetra ibúð á efri hæðinni sem ber merki gamalla og nýrra tíma. Upprunalegt furugólf sem var pússað upp ásamt listum i lofti er skemmtileg andstæöa við nýtískulegt yfirbragð íbúðarinnar annars. Hurðir eru einnig gamal- dags ásamt gluggum sem færðir voru til upprunalegs horfs með þvi að skipta um þá alla. Allir veggir voru rifnir niður og nýir reistir í staðinn. íbúðin hefur yflr sér ný- tískulegan blæ og er máluð í ljósum litum. í stofunni er hluti af einum veggn- um málaður dökkblár til þess að brjóta upp ljósa yfir- bragðið. Upp- runalega handriðið upp stigann var látið halda sér en það er út- skorið og mál- að í rústrauð- um lit sem undirstrikar eldri stil. „Breyting- arnar hafa Einarsbúð hefur fengið verið kostnaðarsamar og við ákváð- um að gera meira en við ætluðum í upphafi,“ segir Berta, en Þorgils Óttar segir þó dæmið ganga vel upp. Þau hafa unnið aö breytingum á húsinu í eitt ár og fluttu inn í íbúð- ina í apríl, stuttu eftir að þau eign- uðust litlu dótturina, Sigrúnu. Við- gerðir á húsinu að utan gátu hafist eftir að þau voru flutt inn og er nán- ast lokið þegar þetta er ritað. Styrkur úr húsfriðunarnefnd „Kaupin voru mjög vel undirbúin en við fengum styrk hjá húsfriðun- arnefnd ríkisins þar sem húsið hef- ur menningarlegt og sögulegt gildi. Það var mjög illa farið en við gátum stuðst við teikningar og myndir sem til voru af því. Við unnum mikið af undirvinnunni sjálf, rifum niður ur að plássinu niðri komst skriður á framkvæmdir. Elsa Aðalsteinsdóttir og Ingvar Árnason hyggjast reka Einarsbúð en það verður vinnufata og útivistarbúð. í búðinni eru upp- runalegar innréttingar sem málaðar hafa verið grænar og gerðar upp. í búðinni er einnig forláta sendlahjól sem einnig var í eigu Einarsbúðar á sínum tíma. Þar er að auki eldgam- all peningakassi í stíl við allt annað gamaldags í búðinni," segir Þorgils Óttar. í Einarsbúð eru upprunalegar ljósafestingar og borð úr verslun Haraldar Ámasonar í Reykjavík. Borðin hafa verið gerð upp én þau eru frá 1915. Þetta verður áreiðan- lega finasta vinnufatabúð sem um getur. Það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar maður gengur inn í verslunina og bakaríið er að maður sé dottinn inn í gamla bíómynd. Þorsteinn Stígsson, eigandi Köku- bankans, kemur til með að reka bakarí á jarðhæðinni en á sama stað var Einarsbúð opnuð árið 1907. Innréttingarnar þar eru einnig látn- ar halda sér en þær eru frá 1907. Þegar farið var að skafa af máln- ingu kom í ljós mynstur á innrétt- ingunni sem frískað var upp á. Bak- aríið er málað í ljós- og dökkgræn- um litum. Viðarbúðarborð eru að öllu leyti látin halda sér. Meira að segja útihurðin er máluð með sér- stakri málningu sem gefur henni gamaldags blæ. -em glæsilegt nýtt útlit enda er hún komin í upprunalegt horf. DV- myndir Pjetur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.