Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ1996 ^sérstæð sakamál Yvonne Snowden varð mjög mið- ur sín þegar maðurinn hennar, Dene, yfirgaf hana og tók saman við aðra konu, Glynis McGowan. Yvonne hefði svo sem fundist nógu slæmt þótt konan sem hann hreifst af hefði verið yngri og laglegri en hún sjálf, en að Glynis skyldi bara vera tveimur árum yngri en hún og ekki sérstaklega lagleg gerði áfallið enn meira. Yvonne komst að raun um útlit og aldur keppinautarins þegar hún fór og heimsótti konuna sem hafði heillað mann hennar, en á þessum fundi rifust þær mikið og lá Yvonne ekki á þeirri skoðun sinni að konur sem tældu til sín eiginmenn ann- arra kvenna væru ekki í miklu áliti hjá sér. Það hjálpaði Yvonne að fá þannig útrás fyrir tilfinningar sínar, og nokkru síðar virtist sem hún hefði sætt sig við orðinn hlut. En svo var gengið frá skilnaðinum og þá fylltist Yvonne hatri til Glynis McGowan. En Yvonne var ekki sú eina sem varð gripin sterkum tilfinningum vegna ákvörðunar Denes, því Oriel, átján ára dóttir þeirra hjóna, tók brotthvarf hans af heimilinu nærri sér. Kynnin I ágúst 1988, ekki ýkjalöngu eftir skilnaðinn, varð mikil breyting á Yvonne á skömmum tíma. Kvöld eitt fór hún með tveimur vinkonum sínum á Næturklúbb Frankies í Ro- ath, útborg Cardiff í Wales, þar sem sagan gerist. Er þær vinkonurnar höfðu setið um stund á klúbbnum tók Yvonne eftir því að ungur mað- ur gaf henni auga. í fyrstu var hún í vafa um að hann væri í raun að horfa á sig, því hann var miklu yngri en hún og mjög laglegur. En svo varð henni ljóst að athygli hans beindist að henni, og nokkru síðar bauð hann henni upp í dans. Chad Elkins hét ungi maðurinn og var tvítugur, en Yvonne var þrjá- tíu og níu ára. í fyrstu hélt Yvonne að allir myndu glápa á þau vegna aldursmunarins, en hún komst von bráðar að því að enginn gaf þeim auga. Og þau dönsuðu margoft sam- an þetta kvöld. Rétt áður en þær vinkonurnar ákváðu að halda heim bað Chad Yvonne um símanúmer hennar. Það vildi hún þó ekki gefa honum, en hún fékk símanúmer hans og sagð- ist myndu hringja í hann. Það gerði hún svo tveimur dögum síðar. Móð- ir hans kom í símann og sagði að hann væri ekki heima. Yvonne lét hana þá hafa símanúmer sitt ásamt skilaboðum til Chads um að hringja í sig. Nánari kynni Skömmu eftir klukkan sex að kvöldi þessa sama dags hringdi Chad til Yvonne. Hann dró enga dul á hve glaður hann var yfir því að Yvonne skyldi hafa hringt og beðið hann að hafa samband við sig. Ákváðu þau að hittast á Peacock- kránni í Cardiff þetta kvöld. Þegar þau settust saman við borð á kránni fannst Yvonne aftur að nú myndu allir horfa á þau. En hún sannfærðist brátt um að svo var ekki. Enginn virtist veita þeim sér- staka athygli. Hún fór því að halda að ef til vill væri ekki svo mikinn aldursmun að sjá á þeim, enda hafði stundum verið haft á orði við hana að hún væri ungleg þegar haft væri í huga að hún væri að verða fertug. Þegar leið á kvöldið fannst Yvonne ró færast yfir sig, og í fyrsta sinn síðan vandræðin komu upp í hjónabandinu fannst henni sér líða vel. Næsta tvo og hálfan mánuð hitt- Chad Elkins. Yvonne Snowden. ust þau Yvonne og Chad fjórum til fimm sinnum í viku. Á þeim tíma varð Yvonne ljóst að hún var orðin ástfangin af unga manninum. Andúð dótturinnar Oriel, dóttir Yvonne, komst ekki hjá því að taka eftir hver breyting var orðin á móður hennar á skömm- um tíma, og henni var fullljóst hver ástæðan var. Móðir hennar var orð- in ástfangin af pilti sem gat vel ver- ið sonur hennar, því Chad var að- eins tveimur árum eldri en Oriel. Dag einn krafðist Oriel þess af móður sinni að hún hætti að vera með Chad. Ekki bar sú krafa árang- ur, og brátt fóru þær mæðgur að ríf- ast í tíma og ótíma út af þessu sam- bandi, sem Oriel taldi óeðlilegt. En móðir hennar var ekki á sama máli. Þar kom því að Oriel fór að láta an- dúð sína í ljós á annan hátt. í hvert sinn sem Chad kom í heimsókn gætti hún þess að þau fengju ekki að vera ein saman, eða þá að hún stillti hljómflutningstæki hússins svo hátt að við lá að rúður titruðu. En Yvonne hélt fast við sitt. Og þar kom að hún sagði dóttur sinni að ef hún gæti ekki fellt sig við heimsóknir Chads skyldi hún taka föggur sínar og flytja til föður síns. morðingjann að hann hafði verið stunginn aftan frá. Að öllum líkind- um hafði hann óhræddur snúið baki í hann. Sönnunargögnin Grunur fór nú að beinast að Ori- el. Hún hafði haft ástæðu til að ráða Chad af dögum, og hann hafði þekkt hana og því kom vel til greina að hún hefði komið í heimsókn til hans og hann boðið henni inn til sín. En það sem færði í raun heim sanninn um að Oriel hafði myrt Chad voru gallabuxur og skór með blóðblettum sem fundust í skáp hennar. Kom í ljós að blóðið gat ver- ið úr Chad. 17. nóvember var Oriel handtek- in. í fyrstu neitaði hún að vera sek, en svo var henni sagt frá því sem fundist hafði. Því væri aðeins um tvennt að ræða. Annaðhvort hefði hún sjálf myrt Chad eða þá að móð- Húsið sem Chad bjó í með foreldrum sínum. hans, Ford Fiesta, stóð á heimtröð- inni. Chad gæti því ekki hafa farið langt. Yvonne beið við húsið í fjörutíu minútur, en Chad var hvergi að sjá. Hún fór þvi heim, og þegar þangað kom hringdi hún fimm sinnum til hans en án árangurs. Yvonne var nú í senn vonsvikin og í miklu upp- námi, því henni kom til hugar að Chad hefði skyndilega snúið við henni bakinu. Hún varð því and- vaka, og klukkan sjö um morguninn fór hún aftur heim til hans. Þá log- aði enn sama ljósið í húsinu og bíll hans stóð enn á tröðinni. Fimm sinnum hringdi Yvonne heim til Chads þennan morgun, en þá þóttist hún viss um að eitthvað hefði komið fyrir og hringdi á lög- regluna. Ljót aðkoma Klukkan hálfellefu um morgun- inn hafði lögreglan orðið sér úti um heimild til þess að fara inn í húsið. Nokkrir lögregluþjónar héldu þang- að í bíl og höfðu með sér tæki til að opna lásinn í útihurðinni. Vart voru þeir komnir inn í húsið þegar þeir sáu líkið af Chad. Hafði hann verið stunginn fimm sinnum í bak- ið með hnífi. Yvonne fékk áfall þegar henni barst fréttin, og það var ekki fyrr en eftir tvo daga að rannsóknarlög- reglumenn gátu yfírheyrt hana. Þá lagði hún spilin á borðið og greindi frá ástarsambandi sínu við Chad. Oriel var líka yfirheyrð, og það leið ekki á löngu þár til sá sem það gerði áttaði sig á að Oriel hafði hatað hinn unga ástmann móður sinnar. Þegar Yvonne var síðan spurð að því hvort svo hefði verið gat hún ekki annað en viðurkennt það. Tæknimenn rannsóknarlögregl- unnar gátu staðfest að ekki hafði verið brotist inn í húsið. Þá benti það til þess að Chad hefði þekkt ir hennar hefði klæðst gallabuxun- um og skónum og myrt hinn unga elskhuga sinn. Þegar Oriel heyrði þetta brast hún í grát og játaði á sig morðið. Siðar sagði Oriel að i raun hefði verið um slys að ræða. Hún hefði farið heim til Chads með það í huga að biðja hann um að hætta að vera með móður sinni, en fundi þeirra hefði lyktað á þann hátt sem raun bar vitni. Málalok Þegar málið kom fyrir rétt hélt Oriel því enn fram að um óviljaverk hefði verið að ræða. En hvorki kvið- dómendur né dómari virtust taka mark á þeirri yfirlýsingu, enda væri því ósvarað hvað henni hefði gengið til með því að koma með hníf með tólf sentimetra löngu blaði ef hún hefði aðeins ætlað sér að ræða við Chad. Þá var einnig bent á að hnífsstungurnar hefðu verið funm talsins. Kviðdómendur voru ekki lengi að komast að niðurstöðu. Þeir fundu Oriel Snowden seka um morð að yfirlögðu ráði, og í framhaldi af þeim úrskurði var ekki um annað að ræða fyrir dómarann en dæma hana í ævilangt fangelsi. í raun táknar þó slíkur dómur á Bretlandi ekki að viðkomandi sitji inni þar til hann deyr ellidauða, heldur á hann möguleika á lausn. Því fær Oriel að öllu óbreyttu frelsið árið 2004, en þá verður hún þrítug og án nokkurrar menntunar, en hún var næstum því útlærð hárgreiðslukona þegar hún var handtekin. Yvonne Snowden neitaði að ræða við fréttamenn eftir dómsuppkvaðn- inguna, en ímynda má sér hugar- ástand hennar. Allir sem höfðu ver- ið henni kærir voru Korfnir frá henni. En Oriel hafði enn meiri andúð á Glynis McGowan en á sambandi móður sinnar og Chads og ákvað því að fara hvergi. En henni var ljóst að hún hafði tapað fyrsta bar- daganum í þessu stríði. Stefnumót sem fór út um þúfur Rétt fyrir miðjan nóvember sagði Chad Yvonne frá því að foreldrar hans ætluðu að fara í þriggja daga ferðalag og gæfist þeim nú gætt tækifæri til að vera ein saman. Ori- el heyrði þau leggja á ráðin um þessa samveru og varð reið. Það var á fóstudegi sem foreldrar Chads fóru að heiman, og þegar kvölda tók hélt Yvonne heim til hans. En þegar hún hringdi dyra- bjöllunni svaraði enginn. Samt var Ijós í húsinu, og það sem Yvonne þótti enn einkennilegi'a var að bíll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.