Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Síða 19
JD'V' LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996
sviðsljós
PÚSLAÐU OC ÞEYTTU SVIFDISKI I ALLTSUMAR
SAFNAÐU SVALAFERNU-FLIPUM 06 SVALA-
FROSTPINNABRÉFUM 06 ÞÁ 6ETUR ÞÚ
PÚSLAO 06 ÞEYTT SVIFDISKI í ALLT SUMAR.
FYRIR HVERN MYNDFLIPA AF SVALAFERNU
FÆRÐU 1 STI6. FYRIR HVERT BRÉF UTAN AF
SVALA-FROSTPINNA FÆRÐU 2 STI6. ÞE6AR ÞÚ HEFUR SAFNAÐ RÉTTUM STI6AFJÖLDA
6ETUR ÞÚ NÁL6AST PÚSL 06 SVIFDISKA Á
NÆSTU SHELLSTÖD - FRÁ 06 MEÐ 4. JÚLÍ.
LEIKURINN STENDURTIL 20. A6UST.
Það er draumur að vera með
Blaka og berjast fram á nótt,
svo maður snúi nú út úr göml-
um og góðum íslenskum slag-
ara. í alvöru talað. Það viröist
ekki vera neinum vandkvæðum
bundið að fá stórfræga leikara
og rándýra til að leika óvin
Leðurblökumannsins, eða
Blaka. Allir muna eftir Jack
Nicholson og Danny DeVito. Nú
er það sjálfur Arnold
Schwarzenegger. Hann hefur
gert samning um að leika herra
Frost, sem er mikið varmenni, í
næstu mynd, Batman og Robin,
eða bara Bíbí og Blaka, og segja
illar tungur að hann fái 25
milljónir dollara fyrir sex
vikna vinnu. Reikni nú hver
sem betur getur tímakaupið á
þeim bæ.
Ekki nóg með það. Amold
fær lika hluta af ágóðanum,
bæði af sýningu myndarinnar
og sölu alls kyns vamings, eins
og nú er mjög í tísku. Því bíó-
mynd er ekki lengur bara bíó-
mynd i Hollywood, heldur líka
hattar og bolir og dúkkur og
sælgæti og leikfóng og guð má
vita hvað þeim dettur í hug.
Amold kann því að verða enn
rikari en nú er útlit fyrir. Sum-
ir segja að hann geti halað inn
allt að tíu milljónir dollara til
viðbótar við fyrrnefndar 25
milljónir.
Það er ekki ónýtt að vera ill-
menni þessa dagana.
ur sér þó ekki allt fyrir brjósti
brenna og gefst ekki upp þó að erf-
iðleikar steðji að.
Þegar Clapton brá sér af bæ ný-
lega kviknaði í húsinu hans í Chel-
sea í Bretlandi. Rétt áður en
slökkviliðið kom á staðinn kom
kappinn heim og sá reykinn upp úr
húsinu og tókst honum að fara inn í
húsið og bjarga gíturunum sínum
út.
Óheppnin eltir gítarleikarann
fræga, Eric Clapton, en kappinn læt-
Gítarleikarinn frægi, Eric Clapton, er
óheppinn maður.
Tveimur efstu hæðum hússins
varð þó ekki bjargað og nemur fjár-
hagstjónið því milljónum króna.
Eric Clapton hefur lent í ýmsu
um ævina. Hann hefur þurft að berj-
ast við áfengissýki og eiturlyfja-
vanda, hann syrgir enn vini sina
sem fórust í þyrluslysi fyrir
nokkram áram og sonur hans féll
úr örmum móður sinnar úti á svöl-
um í New York 1991.
Það kviknaði í húsi Erics Claptons nýlega og varð tveimur efstu hæöunum
ekki bjargað. Fjárhagstjónið nemur milljónatugum en Clapton tókst að
bjarga sínum dýrmætu gíturum.
Bjargaði gíturunum sínum
úr brennandi húsi
Arnold fær
milljarða
fyrir að vera
illmenni