Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1996
Fréttir
________________________________________________________________________PV
Óvenju þungar og margslungnar sakargiftir á hendur tvítugum Borgfirðingi:
Akærður fyrir að valda 12
manns líkamsmeiðingum
- nefbraut tvo með mjög heiftarlegum hætti, olli meiðslum sjö unglinga
Tvítugur Borgfirðingur, sem í vor
var ákærður fyrir að valda samtals
tíu manns líkamsmeiðingum, ílest
ungmennum, með mismunandi
hætti á nokkurra mánaða tímabili á
síðasta ári, hefur nú verið ákærður
fyrir tvær líkamsárásir að auki, sem
teljast stórfelldar og heiftarlegar. Þar
er honum gefið að sök að nefbrjóta
ungling og ungan mann við ólík tæk-
ifæri í janúar og apríl síðastliðnum.
I annað skiptið, sem var í Borgar-
nesi i janúar, sparkaði hann í 17 ára
ungling þar sem hann lá og kýldi
hann með þeim afleiðingum að
hann nefbeinsbrotnaði, fékk glóðar-
augu báðum megin, og mar og bólg-
ur út um allan líkama. í síðara
skiptið er maðurinn ákærður fyrir
að hafa bæði skallaö og sparkað í
andlit fómarlambsins, tvítugs karl-
manns, og síðan kýlt hann í auga
með þeim afleiðingum að maðurinn
nefbrotnaöi og fékk mikið glóðar-
auga og fleiri meiðsl á andliti og
höfði.
Samkvæmt upplýsingum DV eru
fleiri kærur ekki til formlegrar
meðferðar á hendur unga mannin-
um i löggæslukerfmu en réttarhöld
í öllum ákærumálum unga manns-
ins, sem nú eru orðin samtals átta í
misstórum afbrotamálum, og
spanna yfir eitt ár, fara að líkindum
fram í lok ágúst.
Einn heimildarmanna DV vegna
málsins sagði eftirfarandi í gær:
„Þessi drengur hefur aldrei verið
stoppaður af með refsingu, þess
vegna heldur hann áfram.“
Eins og áður hefúr komið fram í
DV var ungi maðurinn ákærður fyr-
ir að hafa valdið því að 7 unglingar
slösuðust í bilslysi, flestir alvarlega,
er hann ók á ofsahraða fram úr
tveimur bílum í veg fyrir þriðju bif-
reiðina í Borgamesi þann 12. maí
1995. Sex ungmennanna voru flutt á
sjúkrahús í Reykjavík, þar af fjögur
með þyrlu. Með þessu telst pilturinn
hafa raskað umferðaröryggi og hafa
valdið líkamsmeiðingum af gáleysi.
Ungi maðurinn er einnig ákærð-
ur fyrir alvarlega árás síðastliðið
sumai' í félagi við tvo félaga sína á
karlmann og frelsissvipt hann.
Þannig hafi þeir tekið hann nauðug-
an frá bensínstöð Shell með hálstaki
inn í bílinn og ekið með hann suður
Borgarfjarðarbrú. Á leiðinni hafi
þeir snúið upp á hendur hans og
eyrnasnepla og reynt að stinga gat á
vinstri eymasnepil með kúlupenna.
Bíllinn var stöövaður i malamámu
undir Hafnarfjalli og era þremenn-
ingarnir einnig ákærðir fyrir að
hafa þá klætt fómarlambið úr fötum
að ofanverðu og misþyrmt því með
hrindingum, spörkum og höggum
og auk þess úðað yfir manninn
málningu, í hár hans og fatnað.
Ungi maðurinn er auk þessa
ákærður fyrir að hafa ógnað og veitt
tveimur mönnum högg og áverka
með riffilskefti. Hann er jafhframt
ákærður fyrir hlutdeild að líkams-
árás hinna tveggja framangreindu
félaga sinna í öðra máli auk tveggja
brotamála sem snúa að ölvuna-
rakstri. -Ótt
Viðskiptavinur vildi ekki greiða fyrir pitsu:
Hótaði að henda
fram af svölum
Jóhann Oddsson pitsusendill en á hann var ráðist þegar hann var að send-
ast með pitsu aðfaranótt sunnudags. DV-mynd GVA
Lokun fiskvinnslustööva um allt land:
Ástæðan er oft bara
óstjórn á fyrirtækjunum
- segir formaður fiskvinnsludeildar Verkamannasambandsins
„Hann hreinlega réöst að mér og
tók mig hálstaki. Hann hótaði að
berja mig og henda mér fram af
svölunum ef ég léti hann ekki fá
pitsuna. Ég sagði honum þá að
hirða bara pitsuna og forðaði mér i
snarhasti. Ég varð mjög hræddur
enda vissi ég ekki hve langt hann
mundi ganga. Ég ætlaði alla vega
ekki að láta berja mig út af einni
pitsu,“ sagði Jóhann Oddsson,
pitsusendill hjá Pizza 67, en hann
lenti í óhugnanlegri lífsreynslu að-
faranótt sunnudags.
Jóhann var á næturvakt að send-
ast með pitsu í blokk í Yrsufelli en
viðskiptavinurinn sagðist ekki geta
borgað honum og réðst þá að hon-
um og hótaði honum öllu illu. Jó-
hann segir að þetta sé ekki í fyrsta
skipti sem honum hafi verið hótað
og á hann ráðist í þessu starfi.
„Maðurinn, sem var ölvaður,
vildi að ég kæmi eftir 2-3 tíma því
þá mundi vinur hann borga pits-
una. Hann spurði hvort ég vildi
„Þetta er alvarlegt og óskemmti-
legt mál. Ég held því fram að hluti
af þessu sé bein óstjóm á fyrirtækj-
unum. Sú staðreynd blasir við að
ýmsum fyrirtækjum, sem ekki eiga
taka styttu í pant á meðan en ég
sagði honum það væri ekki venjan.
Ég gerði honum grein fyrir að ég
gæti ekki annað en tekið pitsuna til
baka ef ég fengi hana ekki borgaða
á staðnum og þá trylltist hann og
réðst að mér.
Ég hringdi í lögregluna og sagði
frá þessu. Mér var sagt að fara nið-
ur á rannsóknardeild og kæra þetta
en mér fannst ekki taka því vegna
þess að ég held að það sé lítið hægt
að gera og þessir náungar sleppa
strax út aftur. Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem svona gerist. Ég er búinn
að vera pitsusendill í fjögur ár og
það hefur nokkram sinnum verið
ráðist á mig og mér hefur verið ógn-
að, m.a. með hnííi. Ég veit af mörg-
um öðrum sendlum sem hafa lent í
svipuðum atvikum. Ég var heppinn
því það sér ekkert á mér en maður
verður bara svo skelkaður því það
er aldrei að vita hvað gerist næst,“
sagði Jóhann.
-RR
mikinn kvóta, tekst að halda starf-
seminni gangandi allt árið. Þessi
fyrirtæki skipuleggja starfsemi sína
þannig að þau halda uppi atvinnu
fyrir sitt fólk árið um kring með því
til að mynda að kaupa Rússafisk.
Aftur á móti er sumum stærri fyrir-
tækjum bara illa stjórnað og skipu-
lagið í lágmarki. Það þarf enginn að
segja mér að til að mynda Grandi
hf. geti ekki stýrt veiðum sinna
skipa þannig að það geti haldið uppi
vinnu í landi allt árið,“ sagði Aðal-
steinn Á. Baldursson, formaður
fiskvinnsludeildar Verkamanna-
sambandsins, í samtali við DV.
Hann segist ekki taka þær hótan-
ir alvarlega að einhver frystihúsin
opni ekki aftur.
„Maður er orðinn vanur þessu
væli í þeim. Það hefst alltaf þegar
þeir vilja að ríkið hlaupi undir
bagga með þeim. Það má segja að
þetta sé orðið árvisst hjá fískvinnslu-
stöðvunum. Þá hjálpar það ekki til
núna að fram undan eru nýir kjara-
samningar og þá borgar sig ekki að
bera sig vel,“ sagði Aðalsteinn.
Hann segir að það sé mjög alvar-
legt mál að frystihúsin loki þegar
þeim hentar og segi lokunina vegna
sumarleyfa.
„Ef fólk hefði vitað það strax í vor
að það ætti að loka í mánuð og feng-
ið að vita hvenær loka ætti, hefði
það getað skipulegt sumarleyfl sitt
samkvæmt því. Þetta er ekki gert og
þvi fólk um allt land sem er þegar
búið að taka sitt sumarfrí. Fólkið er
skikkað í launalaust frí hvort sem
því líkar betur eða verr. Ef fólk er
sannanlega búið að taka sitt sumar-
frí og er byrjað að vinna aftur á það
rétt á atvinnuleysisbótum sam-
kvæmt okkar áliti. Það er samt mik-
il tekjuskerðing fyrir fólk að þurfa
að fara á atvinnuleysibætur. Þetta
mál allt er að mínum dómi mjög al-
varlegt. Við eram vamarlaus gagn-
vart þessu núna en það verður tek-
ið fóstum tökum í næstu kjarasamn-
ingum,“ sagði Aðalsteinn Á. Bald-
ursson. -S.dór
Eyjafjörður:
Játuðu
fjölda
innbrota
DV, Akureyri:
Þrír aðilar komu við sögu í fjölda
innbrota sem framin hafa verið í
Eyjafirði að undanfömu og hugðust
þremenningarnir nota söluverð-
mæti þýfisins til kaupa á fikniefn-
um.
Innbrotin voru m.a. í golfskálann
í Ólafsfirði þar sem stolið var 5 golf-
settum og í golfskálann í Svarfað-
ardal þar sem m.a var stolið tölvu
með öllum gögnum klúbbsins.
Einnig var stolið utanborðsmótor af
báti á Akureyri og brotist inn í
nokkrar bifreiðar í bænum.
Karlmaður og kona vora handtek-
in vegna málsins og gæsluvarð-
haldsúrskurðar krafist yfir mannin-
um. Áður en til þess kom játuðu að-
ilarnir innbrotin og í ljós kom að
þriðji aðilinn í Reykjavík var við-
riðinn einhvern hluta innbrotanna.
Þýfið hefur fundist að langmestu
leyti, m.a. fannst tölvan úr golfskál-
anum í Svarfaðardal falin í ræsi í
Hörgárdal og finnandinn, sem var
ungur drengur, fær ævilanga leik-
heimild á golfvellinum þar leggi
hann golfiþróttina fyrir sig. -gk
Stuttar fréttir
Hræddir um launin
Kennarar óttast að fá ekki
laun eða vitlaust útreiknuð laun
þegar grunnskólinn flyst til
sveitarfélaganna 1. ágúst. Út-
varpið greindi frá.
Olíuvinnsla í Gufunesi?
Bandaríkjamenn vilja kaupa
Áburðarverksmiðjuna í Gufu-
nesi og reisa þar olíuvinnslu-
stöð. Óformlegt tilboð liggur fyr-
ir. Niðurstaða liggur fyrir i vet-
ur. Sjónvarpið greindi frá.
Eldgosum veröi spáö
Fjölþjóðlegar rannsóknir á
jarðskorpu íslands gefa vonir
um að hægt verði að spá miklum
eldgosum með áratuga fyrirvara,
að sögn Mogga.
Ráöa
málmiönaöarmenn
Eftirspurn eftir málmiðnaðar-
mönnum hefur aukist. Norð-
menn vilja ráða þá á tvöfalt
hærri launum. Stöð 2 sagði frá.
-GHS
r
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Verður KR loksins íslands-
meistari í knattspyrnu?