Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ1996
5
Fréttir
Framkvæmdastjóri Hvíta hússins um bannið við beinagrindum á strætó:
Pempíulegt og
skrítið viðhorf
Framkvæmdastjóri auglýsinga-
stofunnar Hvíta húsið fer fram á
það við stjóm Strætisvagna Reykja-
víkur, SVR, að banni forstjóra fyrir-
tækisins við beinagrindaauglýsingu
á vögnunum verði aflétt. Um er að
ræða ostaauglýsingu þar sem ráð-
gert var að líma mynd af sitjandi,
hauslausum beinagrindum fyrir
neðan rúður strætisvagnanna.
„Við töldum að það gæti komið
illa við farþegana okkar ef þessar
auglýsingar væru settar upp. Þetta
eru hauslausar beinagrindur fyrir
neðan höfuð farþeganna," segir
Lilja Ólafsdóttir, forstjóri SVR.
„Mér finnst þetta pempíulegt við-
horf og skrítið. Ég held að það sé al-
veg ástæðulaus ótti um ímynd far-
þeganna og efast um að þeir kæri
sig um þá forsjárhyggju sem kemur
fram í banninu. Ég hygg að farþeg-
ar hafi gaman af að taka þátt í grín-
inu,“ segir Halldór Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Hvíta hússins.
Lilja bendir á að samkvæmt siða-
reglum auglýsingastofa megi ekki
birta myndir af fólki í auglýsingum
nema samþykkis þess hafi verið
leitað. „Fólk getur neitað að ferðast
með vögnunum okkar sem er ekki
okkar meining. Þess vegna sam-
þykktum við ekki auglýsinguna. Ef
hún hefði verið borin undir okkur á
eðlilegu stigi málsins hefði verið
hægt að koma í veg fyrir að vinnsl-
Auglýsingin sem forstjóri SVR bannaði af ótta við aö hún kæmi illa við far-
þega.
an kæmist á lokastig. En við erum
tilbúin að ræða aðra útfærslu."
Að sögn Lilju er það fyrirtækið
Eureka sem leigir auglýsingaplássið
á strætisvögnunum. „Auglýsingarn-
ar eru af tvennum toga; borðaauglýs-
ingar og aðrar. Bera á allar auglýs-
ingar, aörar en borðaauglýsingar,
sérstaklega undir SVR. Það gerðist
hins vegar að komnar voru auglýs-
ingar sem ekki höfðu verið bornar
undir okkur,“ tekur Lilja fram. -IBS
Ólafur Ólafsson landlæknir:
Sparlega farið með
„Fullyrðingar talsmanna Lifsvog-
ar um að landiæknir geri ekkert í
málunum eru öfugmæli. Staðreynd-
in er að i rúmlega 40% tilfella er
mál sjúklings staðfest og í yfir 20%
tilfella er gripið til aðgerða. Þessi
málalok landlæknis eru talsmönn-
um Lífsvogar mjög vel kunn. Væg-
ast sagt fara því talsmenn Lífsvogar
sparlega með sannleikann," sagði
Ólafur Ólafsson við DV vegna um-
mæla samtakanna Lífsvogar í fjöl-
miðlum að undanförnu.
„Flestir gera sér grein fyrir því
að aldrei er hægt að búast við 100%
árangri, jafnvel við minnstu aðgerð-
ir. Til þess eru mennirnir of ólíkir.
Viðbrögð manna eru misjöfn og
hvarvetna þar sem mannsins hönd
kemur nálægt má búast við að eitt-
hvað fari úrskeiðis. Sem dæmi má
búast við að 5-7 manns af hverjum
hundrað sem gangast undir aðgerð-
ir fái sýkingu, misjafnlega alvar-
lega. í mörgum tilfellum er um að
ræða sýkingu frá sjálfum sjúklingn-
um en vissulega koma líka fyrir
spítalasýkingar. Sýkingartiðni á ís-
lenskum sérgreinasjúkrahúsum er
svipuð og á bestu sjúkrahúsum ná-
grannalanda og jafnvel lægri hér ef
eitthvað er.“
Ólafur Ólafsson landlæknir.
Leitað eftir áliti
óháðra lækna
„Mér fallast því ekki hendur þó
að nokkur hópur sé nú lifandi á Is-
landi sem telur sig hafa fengið ófull-
nægjandi læknismeðferð eða orðið
fyrir fylgikvillum þegar aðgerðar-
tækni var skemmra á veg komin.
Hafa skal í huga að á 5 ára tímabili
eiga sér stað 8 milljónir samskipta
lækna og sjúklinga ásamt 100 þús-
und aðgerðum. En að líkja öllum að-
gerðum sem ekki hafa heppnast vel
við mistök gera fáir aðrir en tals-
menn Lífsvogar.
Þá skal það koma fram að land-
læknir hefur aldrei neitað að skoða
sjúkraskýrslur að beiðni Lífsvogar
ef skriflegt samþykki sjúklings hef-
ur fylgt. Leitað er eftir áliti óháðra
lækna nema í minni háttar málum.
Vissulega er geranda gefið tækifæri
til þess að skýra mál sitt. Þessi
málshögun hefur verið rækilega
skýrð fyrir talsmönnum Lífsvogar
en aftur fara þær sparlega með
sannleikann.
Það á að vera skylda landlæknis
að gæta hagsmuna sjúklinga og það
hefur hann leitast við að gera. Land-
læknir hefur m.a. leyft sjúklingum
að lesa eigin sjúkraskýrslur, allt frá
árinu 1972, vel á undan heilbrigðis-
yfirvöldumn annarra landa. Land-
læknir hefur lagt áherslu á sjúklin-
gatryggingar og barist fyrir að
koma á skriflegu samþykki sjúk-
linga fyrir aðgerð sem verið er að
taka upp þessa dagana."
Fleiri læknar sviptir leyfi
á Islandi en í nágrannalöndum
„Á yfir 20 ára ferli núverandi
landlæknis hefur nokkur hópur
sannleikann
lækna og annarra heilbrigðisstarfs-
manna veriö kallaður úr starfi
vegna óhæfi þar, þ.e. vegna veik-
inda, neyslu áfengis og annarra
vímuefna. Undantekingarlaust hafa
menn verið skikkaðir í meðferð og
misst leyfið um tíma eða alfarið ef
meðferð misheppnaðist. Árangur
hefur verið góður því um 70% þess-
ara lækna hafa náð sér að fullu og
jafnvel náð langt á framabrautinni.
Því miður hafa sumir ekki náð sér
og þá hefur tekið við örorka og
óstarfhæfni eða alvarlegri afleiðing-
ar. Þetta hefur landlæknir rætt um
í ræðu og riti og kemur mönnum
því sjálfsagt ekki á óvart. Hlutfalls-
lega hafa t.d. mun fleiri læknar á ís-
landi orðið fyrir leyfissviptingu en í
nágrannalöndunum. Talsmenn Lífs-
vogar halda því fram að nú séu
læknar í starfi sem sprauta sig með
ávanabindandi lyfjum. Slíkt kemur
mér á óvart. Ef svo er ber talsmönn-
um Lífsvogar samkvæmt lögum að
tilkynna landlækni um slíkt.“
Sjúklingatrygginga-
lögin mjög gölluö
„Af lestri greina talsmanna Lifs-
vogar undanfarið er ljóst að þeim er
ekki ljúft að skipta við landlækni-
sembættið. Ef til vill liggja persónu-
legar ástæður þar að baki. Land-
læknir hefur því bent talsmönnum
Lifsvogar á að skipta við nefnd um
ágreiningsmál sjúklinga sem starfar
fyrir utan kerfið og er launuð af því
opinbera.
Ljóst er að meðal okkar gengur
fólk sem ekki hefur fengið bót
meina sinna þrátt fyrir læknisað-
gerðir. Ef um mistök var að ræða
getur fólk fengið bætur en síðan
kemur nokkurt tómarúm. Slysa-
trygging sjúklings var hugsuð á
þann veg að bæta sjúklingi tjón,
jafnvel þó staðið hafi verið rétt að
verki. Þetta hefur ekki gengið eftir.
Sjúklingatryggingalögin eru gölluð.
Tillögur hafa komið fram um úr-
bætur, m.a. frá landlækni, en þær
hafa ekki hlotið náð þingmanna.
Þess vegna býr reiði og vanmáttur
hjá ýmsum sjúklingum sem ekki
hafa fengið aðstoð. Menn geta létt af
sér reiðinni með því að ryðja úr sér,
en það nægir ekki. En eigi að síður
ber að gæta þess að þrátt fyrir að
sannleikurnn sé dýrmætur er óþarfi
að fara sparlega með hann,“ sagði
Ólafur. -RR
Þetta e.rJ°!vaP sem þjód-
nofðing/um sæmirí
sjónvarp
i /—-
pess að
'é/ÍS-l/HSJ.
sjalfsögðu á íslensku.
eW síst sjónvarpsspjald. Með -• °tó^ s®ast en
motaldinuerhægtað
ítennsfuforr^^ð/eteefrÍTn10/ tólf 9eisl^iskar
0
Apple-umboðið