Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUÐAGUR 16. JÚLÍ 1996
Fréttir
DV
Þjófar tóku út af Visakorti án leyninúmers:
Mjög dularfullt og
á ekki að vera hægt
- segir Sigríður Pétursdóttir, eigandi kortsins
„Þeir hafa verið rajög kræfir því
þeir fóru inn á skrifstofuna hjá
mér og stálu filofaxinu á meðan ég
skrapp frá i 5 mínútur. í filofaxinu
var Visakortið mitt og þeir fóru
beint í hraðbanka í Sparisjóði vél-
stjóra hér rétt hjá. Þeir náðu að
taka út 20 þúsund krónur án þess
að hafa leyninúmerið og það finnst
mér dularfyllst í þessu öllu sam-
an,“ sagði Sigríður Pétursdóttir
sem varð fyrir þessari óþægilegu
reynslu fyrir rúmri viku. Rann-
sóknarlögregla ríkisins er með
málið til rannsóknar.
„Ég hringdi í bankann hálftíma
síðar, um leið og ég varð vör viö
þjófnaðinn, en þeir hafa haft hrað-
ar hendur því þeir höfðu þegar tek-
ið út peninga. Ég sá á myndbands-
spólum sem lögi-eglan sýndi mér að
þeir hafa gert tvær tilraunir. Sú
fyrri mistókst en þeim tókst að slá
inn réttar tölur i seinna skiptið og
mér er sagt að það sé nánast ógern-
ingur. Annaðhvort hafa þeir verið
svona ofsalega heppnir eða þeir
hafa fengið númerið með öðrum
ráðum. í bankanum og hjá Reikni-
stofnun bankanna var mér sagt að
þeir gætu hvergi fengið upplýsing-
ar um leyninúmerið því það væri í
undirkerfi í tölvunum sem enginn
utanaðkomandi hefði aðgang að.
Þeir hafa ekki reynt aftur að taka
út af kortinu því þá kemst upp um
þá og þeir vita alveg greinilega
hvað þeir eru að gera.
Mesti missirinn er samt að tapa
filofaxinu því ég er handalaus án
þess. Það eru gífurlega miklar per-
sónulegar upplýsingar I því og ég
vona að þjófarnir sjái sér fært að
skUa því. Ég veit ekki hver er bóta-
skyldur í þessu tUviki þvi fyrirtæk-
ið er ekki tryggt fyrir svona löguðu
og þetta er ekki inni i heimUis-
tryggingunni," sagði Sigríður.
-RR
BÖRKUR
Frá loönumiöunum þar sem mokveiöi hefur veriö aö undanförnu og sumir spá metvertíö. Hér er veriö aö dæla þessu
silfri hafsins um borö í Börk NK. DV-mynd Hjörvar
m ■ ? , j Ár* ^ • f
Wm ! r; n -
Uppboðskerfi
fiskmarkaðanna
selt til USA
DV, Suðurnesjum:
Undirritaður var samningur milli
Reiknistofu fiskmarkaða hf. (RSF)
og bandaríska fyrirtækisins BASE í
New Bedford 9. júlí. Hann felur í sér
að BASE kaupir afnotarétt á upp-
boðskerfi RSF og hyggst selja þjón-
ustu sína til fiskmarkaða í
Massachusetts-fylki í USA.
Að sögn Loga Þormóðssonar,
stjórnarformanns Reiknistofunnar,
og Ólafs Þórs Jóhannssonar, fram-
kvæmdastjóra Fiskmarkaðs Suður-
nesja, hefur BASE þegar tryggt sér
nokkra fiskmarkaði í viðskipti og
ætlar að selja fiskkaupendum að-
gang að kerfinu. Einnig felur samn-
ingurinn í sér að BASE mun sjá um
dreifingu og sölu á kerfinu í Banda-
ríkjunum og Kanada. Þá eru áform
um að koma kerfinu í notkun í fleiri
vörum.
Samningurinn hefur átt töluverð-
an aðdraganda en þreifingar byrj-
uðu í mars á sjávarutvegssýningu í
Boston. RSF á að afhenda kerfið 1.
okt. og sér um áframhaldandi þróun
og viðhald á því. Kerfið var þróað
1990- 1991 af Verk- og kerfisfræði-
stofunni og hefur reynst vel enda
verið í stöðugri þróun. Logi og Ólaf-
ur segja að styrkur þess liggi í því
að vera það fyrsta i heiminum sem
býður upp fisk á mörgum fiskmörk-
uðum samtímis.
Kerfið er sett upp á eina miðlæga
tölvu sem fiskmarkaðirnir tengjast í
fiarskiptum. Eitt samfellt net kaup-
enda og seljenda gerir það að verk-
um að framboð og eftirspurn, og þar
með verð, verður mun jafnara en
það kemur sér mjög vel. RSF var
stofnuð í maí 1992. Eigendur eru
fiskmarkaðir á Suðurnesjum (85%),
Snæfellsnesi og Hornafirði. -ÆMK
Rúmlega 140 þúsund tonn af loðnu á land:
Sáum íslenskt varð-
skip í fyrsta skipti
- á miðunum, segir Sveinn Orri Jóhannsson, stýrimaður
Ekki nógu vel
að verki staðið
- segja Lífsvogarkonur vegna
„Samtökin Lifsvog geta á engan
hátt fallist á röksemdafærslu að-
stoðarlandlæknis, Matthíasar
Halldórssonar, gagnvart málefn-
um Bryndísar Ernu Garðarsdótt-
ir. Hjúkrunarskýrslur Bryndísar
staðfesta nær stöðuga vanlíðan
hennar fyrir útskrift. Sá læknir
sem ber ábyrgð á því að útskrifa
sjúkling með tvo þriðju af blóði
líkamans í kviðarholi hlýtur
einnig að bera ábyrgð á afleiðing-
um þess hins sama. Hér var ekki
nógu vel að verki staðið, það
verða menn að viðurkenna,
hvernig sem þeir fara að því,“
segja þær Guðrún María Óskars-
dóttir og Ásdís Frímannsdóttir
hjá samtökunum Lífsvog, vegna
ummæla aðstoðarlandlæknis
ummæla aðstoðarlandlæknis í DV
í gær. Þær segjast ekki geta séð á
málsmeðferð Bryndísar að læknar
utan landlæknisembættisins hafi
rannsakað mál hennar.
Siðaráð samtakanna Lífsvogar
hefur sent út fréttatilkynningu
þess efnis að tryggingaráði beri að
segja af sér i ljósi vanhæfni ráðs-
ins til ákvarðanatöku í máli
meintra tryggingasvikara. Af því
tilefni bendir siðaráð samtakanna
Lífsvogar á að þeim er fialla um
ágreiningsmál beri að draga
ályktanir af faglegum upplýsing-
um. Siðaráðið fagnar jafnframt
faglegri framgöngu Jóns K. Jó-
hannssonar tryggingalæknis.
-RR
Djúpivogur:
Exap
Tveir slösuðust
„Þaö var fiöldi norskra skipa að
veiðum á loðnumiðunum og meö
þeim norskt varðskip eins og vant
er. En svo gerðist það um helgina að
við sáum í fyrsta skipti íslenskt
varðskip á miðunum. Mönnum hef-
ur þótt það hart að sjá alltaf varð-
skip til staðar með norsku loðnu-
skipunum en aldrei íslenskt,“ sagði
Sveinn Orri Jóhannsson, stýrimað-
ur á Guðrúnu Þorkelsdóttur SU.
Þeir voru á heimleið með 700 lest-
ir af loðnu sem fékkst um 180 til 190
mílur norður af Langanesi. Farm-
inn fengu þeir í sjö köstum.
Sveinn segir að það sé enn gríðar-
lega mikið af loðnu á svæðinu en
hún hafi verið erfiðari við að eiga
en áður. Það gerist oft að hún dreifi
sér eöa eitthvað gerist sem veldur
þvi að erfitt er að veiða hana öðru
hvoru. Hann segir loðnuna einstak-
lega feita og fallega en fulla af átu og
því geymist hún illa. Hann sagði að
það hefðu ekki verið margir islensk-
ir bátar að veiðum á svæðinu enda
veiðunum stýrt úr landi eftir því
hvernig gengur að bræða loðnuna
vegna þess að hún geymist stutt.
Að sögn Sveins Jónssonar hjá Fé-
lagi íslenskra fiskimjölsframleið-
enda hafði verið tilkynnt um veiði á
142.700 lestum af loönu frá því veið-
amar hófust 1. apríl. Aðalsteinn
Jónsson, forstjóri á Eskifirði, sagði í
samtali við DV að önnur eins byij-
un og nú hefði ekki verið á sumar-
loðnuvertíð í manna minnum.
-S.dór
Tveir menn vom fluttir með
sjúkraflugi suður aðfaranótt laugar-
dags eftir að ökumaðurinn missti
stjóm á bílnum í beygju við Djúpa-
vog. Bíllinn er gjörónýtur.
Ökumaðurinn var ekki með belt-
ið spennt og kastaðist hann út úr
bílnum. Hann er mun slasaðri en
farþeginn sem var með öryggisbelti.
Farþeginn er aftur kominn austur
en ökumaðurinn liggur á sjúkra-
húsi. -GHS