Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1996 13 Er nýsköpunin týnd? Aukin sókn fiskiskipa og betri nýting afla á ekkert skylt við nýsköpun, segir Gunnlaugur m.a. Forsætisráð- herra flutti þjóð- inni þann boðskap 17. júní að auka verði framlegð ef þjóðin eigi að ná svipuðu kaupmátt- arstigi og gerist í nágranalöndum. Ég benti einnig á þetta í þingsálykt- unartillögu sem ég flutti sl. vetur þeg- ar ég bar saman laun í fiskvinnslu á íslandi og í Dan- mörku. Þótt rétt sé að ís- lendingar séu á eft- ir mörgum þjóðum þegar skoðuð er framlegð á unna klukkustund má samt ekki gleym- ast að það er ekki nóg að auka framlegð á vinnustund eina og sér. Það sem mestu skiptir um lífskjör þjóða er hvort tekst að byggja upp atvinnulíf og fjölga störfum í at- vinnugreinum sem í eðli sínu bjóða upp á mikla framlegð. - í þeim efnum eru íslendingar þegar orðnir verulega á eftir. Lág heildarframlegð Það skiptir t.d. ekki sköpum, þegar rætt er um möguleika þjóða til að ná stórauknum kaupmætti, hvort tekst að auka framlegð á vinnustund um 30% ef viðkom- andi rekstur býr við þannig sam- keppnisstöðu að heildar- framlegð rekstrar er og verður lág. Slík er t.d. staðan með matvæla- framleiðslu og ýmsan hefðbundinn iðnað. Menntun er í dag grund- völlur allrar nýsköpunar og ef við ætlum að halda í menntað og hæfileika- ríkt fólk verður að Sölga atvinnutækifærum í há- tæknigreinum en þar getur framlegð auðveld- lega náð 60%. Því miður virðist sem sú viðleitni til nýsköpunar atvinnulífs sem var til staðar hér á landi fyrir nokkrum árum sé nú rokin út í veður og vind. - Mér heyrist sumir sem vinna eiga að nýsköpun farnir að friða samviskuna með því að tala um eðlilega þróun í hefðbundnum greinum sem nýsköpun. Dæmið um Marel Nýlega sá ég haft eftir forstjóra í hlutabréfasjóði að sókn fiski- skipaflotans á fjarlæg mið og full- vinnsla afla væri dæmi um ný- sköpun sem heppnast hefði vel. En þetta er misskilningur því aukin sókn fiskiskipa og betri nýting afla á ekkert skylt við nýsköpun. Sjósókn og auk- inn afli munu vonandi um mörg ár færa sjó- mönnum og þjóð- arbúinu í heild góðar tekjur en það er engu að síður staðreynd að úrvinnsla matvæla hvaða nafni sem hún nefnist er og verður at- vinnugrein með lága framlegð og ekki er fyrirsjáanlegt að störfum fjölgi í vinnslu sjávarafla á næstu árum. Stóriðja er heldur ekki at- vinnugrein sem greiða mun há laun þó hún sé velkomin viðbót við fábrotið atvinnulíf. íslendingar verða að byggja upp fleiri fyrirtæki sem grund- vallast á að selja reynslu, þekk- ingu og hugvit. í slíkum fyrir- tækjum er framlegðin mest og þau geta greitt hæsta kaupið. Með samstilltu átaki er þetta hægt. Um það er Marel hf. besta dæmið. Sú var tíðin að Marel hf. rambaði á barmi gjaldþrots en var bjargað með áhættufé úr Þróunarélaginu. Þróunarfélag íslands hf. var stofnað til slíkra verka en það fé- lag gafst að mestu upp á áhættu- fjármögnun og nýsköpun eftir að lífeyrissjóðir yfirtóku félagið. Lif- eyrissjóðir hafa reynslu í að vera áskrifendur að spariskírteinum en þeir kunna ekki að meta áhætturekstur. Eftir stendur spurningin: Er viljinn til nýsköp- unar endanlega týndur eða þarf kreppu til að yfirvöld vakni aft- ur? Gunnlaugur M. Sigmundsson Kjallarinn Gunnlaugur M. Sigmundsson alþingismaður „Mér heyríst sumir sem vinna eiga að nýsköpun farnir að friða sam- viskuna með því að tala um eðli- lega þróun í hefðbundum greinum sem nýsköpun.“ Af ættarnöfnum Sem viðbót við umræðuna, sem nú fer fram um ættarnöfn á ís- landi, vil ég segja frá reynslu minni af eigin ættarnafni. Ættarnafn mitt, Líndal, er frá fyrstu áratugum þessarar aldar. Óljóst er hvort það er dregið af nafninu Línakradal í Víðidal í A- Húnavatnssýslu eða hvort það tengist hinu algenga nafni í Skand- inavíu, Líndal eða Lindahl. Ég veit um óskylda hópa víða um land sem hafa tekið upp þetta ætt- arnafn og það er einnig algengt sem miðnafh. Erlend tengsl Eitt er þó vit- að með vissu um upprunann: Maður að nafni Jakobn Lindal Hannsson flutt- ist úr Húnaþing- um til Kanada í lok síðustu ald- ar. Þar gerðist hann síðar rit- höfundur meðal Vestur-íslend- inga rmdir nafn- inu Jakob H. Líndal. Sá hinn sami hafði átt fyrir vin, sem varð eftir í Húnaþingi, alls óskyldan alnafna; Jakob Hannsson. Sá tók nú upp ættarnafnið Líndal til að minnast hins og hét síðan einnig Jakob H. Líndal. Varð sá einnig nafntogaður rithöfundm- en sem jarðfræðingur, búfræðingur og bóndi að Lækjamóti í A-Húna- vatnssýslu. Var það afi minn og hefur þeim vinunum verið ruglað saman í bókasafnsskrám. Um þetta leyti voru fleiri svei- tungar nyrðra að taka upp ættarn- afnið Líndal og virðist hending ráða hvort þeir reyndust skyldir. Má og verá að þeim hafi þótt fínt að líkjast þeirri ætt löglærðra embætt- ismanna er þá bjó þar og bar þegar þetta sama ættamafn. Risu þá jafn- vel í kjölfarið lagadeilur um forræði manna til að bera þetta nafn. Arftaki Jakobs á Lækjamóti varð sonur hans, Sigurður J.(akobsson) Lindal, varaþingmaður og rithöf- undur. (Dóttir hans, Elín Líndal, er nú tekin við og einnig sem varaþing- maður Framsóknar). En Sigurði þessum var gjaman mglað saman við Sigurð Líndal lagaprófessor af fyrmefndri lögmannaætt sem mun nú vera nafhtogaðastur Lindala. Villandi nöfn Faðir minn, (Tryggvi) Baldur (Jakobsson) Lindal efhaverkfræð- ingur (sem hafði í sínu ungdæmi staðið í bréfasambandi við V-íslend- inga), fór hins vegar til Bandaríkj- anna til háskólanáms og kom aftur heim með bandaríska kona af fram- andlegum uppnma, Amalia Gour- din. Tók hún upp hið íslenska ætt- arnafn eiginmanns sins, svo sem þá var alsiða, og nefhdist Amalía Líndal. Þar eð hún var (há- skólamenntaður) blaðamaður, rithöf- undur og skáld viðhélt hún þessu nýja nafhi sínu sem rithöfundar- nafni þótt hún ætti eft- ir að setjast að í Kanada áratugum sið- ar og giftast í annað sinn. Nefnist hún þar Amalia Líndal-Webb á sumum plöggum. Nú er orðið sjal- gæfara að kona taki upp ættarnafn manns- ins síns og svo er td. ekki með konur okkar bræðra á ís- landi. Mismunun Er akkur i því að heita ættar- nafni í íslensku sámfélagi? Ég held að vegna þess að ættarnöfn eru til- tölulega sjaldgæf höfum við systk- inin t.d. fengið meiri jákvæða at- hygli í skóla hér en ella. Einnig þegar nöfnin okkar hafa birst á prenti. Enda er bæði auðveldara að muna ættarnöfn og að heim- færa þau en flest venjuleg íslensk mannanöfn. Þó geta þau af sömu ástæðum valdið meiri ruglingi: T.d. var í fyrra lýst eftir Tryggva nokkrum Líndal í útvarpinu og töldu þá margir víst að átt væri við mig. Kom svo í ljós í Þjóðskrá að kom- inn var fram alnafni minn, alls óskyldur. Hefur enda slíkt valdið ruglingi áður; ég var um tíma nefndur Tryggvi Lín- dal sem ljóðskáld í Morgunblaðinu og héldu þá sumir að þar færi annar maður en Tryggvi V. Líndal, kjallaragreinahöfund- ur í Dagblaðinu Vísi. Galli við ættarnafn á íslandi er að ef ein- hver handhafi þess verður sér til skamm- ar færist skugginn yfir á hina nafna hans. Þó kveður meira að hinu gagn- stæða; að hróður frægra nafnbera gæði hina ljóma þeirra. Samkvæmt nýjustu mannanafnalögum hefði ég nú mátt taka mér ættarnafn móður og heita Tryggvi Gourdin Líndal. En um leið hefði ég verið að stimpla mig sem útlending gagnvart ís- lenskri mál- og þjóðarvitund. Eru það víst örlög margra íslendinga sem þráast við að halda á lofti ætt- arnöfnum sínum þótt þau séu af greinilega erlendum toga. Jafnvel ættarnafnið Lindal virk- ar framandlega i eyrum sumra sem álykta að öll ættarnöfn hljóti að koma erlendis frá. Þannig hafa menn tilhneigingu til að misheyra það sem væri það Lyngdal. (Einnig hef ég heyrt útúrsnúninga; svo sem Ljóðdal, Ljótdal og Lindal). Að lokum má nefna að mörgum þykir einfaldlega of ópersónulegt að heita ættarnafni; að láta kenna sig við ættina frekar en föðurinn. Tryggvi V. Líndal „Galli við ættarnafn á íslandi er að ef einhver handhafi þess verður sér til skammar færist skugginn yfir á hina nafna hans. Þó kveður meira að hinu gagnstæða; að hróð■ ur frægra nafnbera gæði hina Ijóma þeirra.“ Kjallarinn Tryggvi V. Líndal þjóðfélagsfræðingur Meö og á móti Valfrelsi um sjúkratryggingar Samstaða mikilvæg Það er fagn- aðarefni að heilbrigðisráð- herra skuli hafa ákveðið að efla heilsugæsluna og tryggja með því eðlilega verkaskiptingu í heilbrigðis- þjónustunni. Heilsugæslan er faglega vel upp- byggð um allt land en á höfuð- borgarsvæðinu er henni enn ábótavant, m.a. vegna skorts á heimilislæknum. Ráðuneytið vill koma á valfrjálsu stýrikerfi þar sem fólki gefst kostur á að láta í ljós vilja sinn með þvi að merkja í vissan reit á skattskýrslunni sinni. Enn er eftir að útfæra þessa stefnu nánar og verður haf- ist handa um það í sumar. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort um gjaldtöku verður að ræða, hvað þá hve há sú upphæð gæti verið, en gert er ráð fyrir því að á móti yrðu komugjöld í heilsu- gæslunni felld niður. Líta má á þetta fyrirkomulag sem eins kon- ar afsláttarkort sem fólk fær í upphafi árs. Með núverandi fyr- irkomulagi þurfa t.d. hjón meö tvö börn undir 16 ára aldri að borga alls 30 þúsund krónur til að fá afsláttarkort fyrir tjölskyld- una. Fyrir efnalitlar fjölskyldur, með mikil og tíð veikindi, getur þetta orðið til mikilla bóta og því er mikilvægt að samstaða náist um þessar breytingar". Kerfi sem mismunar Katrín Fjcldsted læknir. „Hugmyndin er sú að fólk geti valið hvort það greiðir tryggingagjald og fái þá frítt inn á heilsu- gæslustöðvar eða láti vera að greiða gjaldið en borgi að- son’fomaöur gangseyri að BSRB' heilsugæslustöðvum þess í stað. Það er mikið framfaramál að falla frá aðgangseyri að heilsu- gæslustöövum og þaö má til sanns vegar færa að það sé skref fram á við að deila kostnaði af heilsugæslunni á alla þá sem gi-eiða tryggingagjaldið i stað þess að láta þá eina borga sem veikjast og þurfa að leita til hennar. Hins vegar á að mínu mati að stíga skrefið til fulls og fjármagna þetta með tekjuskatti en ekki nefskatti eins og trygg- ingagjaldið er. Nefskattur er ranglátur af því að hann er jafn hár fyrir tekjuháa og tekjulága og valfrelsi um skattlagningu af þessu tæi þýðir að tveir hópar verða undanskildir. Hátekjufólk sem er heilsuhraust mun ekki greiða trygginguna af því að það óttast ekki áhættuna. Það er lík- legt hvort eð er til að leita beint til sérfræðinga án milligöngu heilsugæslunnar. Svo er það lág- tekjufólkið sem þarf að velta fyr- ir sér hverri krónu. Það munar um minna en tíu þúsund krónur fyrir fimm manna fjölskyldu. Fyrir þetta fólk er áhætta þó hættulegust og fyrir þjóðfélagið allt er varasamt að búa til kerfi sem mismunar fólki. Mismunun í greiðslufyrirkomulagi mun fyrr en varir leiða til mismunun- ar í þjónustu." -ilk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.