Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Page 14
14 tilveran
ÞRIÐJUDAGUR 16. JULI 1996
Pönnusteiktur, gríllaður
og soðinn humar
- Qölbreyttar uppskriftir frá humarhátíöinni á Höfn
Skrúðganga, trúðar, hljómsveitir,
grínarar, sölubásar, harmóníkuleikur
og dans settu svo um munaði
skemmtilegan svip á Höth í Homa-
firði þegar humarhátíðin stóð sem
hæst en þar vom um þrjú þúsund
manns þegar mest var. Naut fólkið
fjölbreyttrar dagskrár frá morgni til
kvölds og var ekki annað að sjá en að
jafnt ungir sem aldnir skemmtu sér
hið besta.
Útimarkaður hafði verið settur upp
á gömlu bryggjimni þar sem hægt var
að kaupa gos, sælgæti, heimatilbúnar
hannyrðir, boli, minjagripi og sitt-
hvað fleira og hljómsveitarsviði hafði
verið komið fyrir á Hafriarvoginni
þar sem Radíusbræður, Emilíana
Torrini, Bítlavinir og fleiri skemmtu
hátíðargestum fram eftir degi. Einnig
var boðið upp á kraftakeppni, kassa-
bflarall, málverkasýningar, ótrúlega
vel æft og glæsilegt listflug yfir höfn-
inni, humarveislu við bryggjuna og
dansleiki á kvöldin. Sérstakir dans-
leikir vora fyrir unglingana og aðrir
fyrir þá eldri og var alls staðar sneisa-
frillt út úr dyrum. Opinn bar var í Ak-
ureynni og þar var mikið ijör og dans-
að á dekki langt fram á kvöld. Það er
því óhætt að segja að allir hafi fengið
eitthvað við sitt hæfi.
Betri tíö nú en í fyrra
Seinni part laugardagsins var
humarveisla á bryggjunni í umsjá út-
gerðarfélagsins Borgeyjar hf. en þar
var hægt að kaupa 5 grillaða humar-
hala fyrii' 100 krónur. Löng biðröð
myndaðist við grillin. „Mér finnst
vera fleira fólk á humarhátíðinni
núna en í fyrra,“ sagði Svanhvít
Kristjánsdóttir, verkstjóri yfir humr-
inum hjá Borgey hf., en seld vora í
kringum 80 kg af humri á þremur
klukkustundum og var reyndar farið
að gefa hann í restina.
Aðspurð sagði Svanhvít humarver-
tíðina vera mun betri en í fyrra, sem
reyndar var mjög slæmt ár, og hum-
arinn heldur stærri. „Aflinn hefur þó
minnkað heilmikið frá því fyrir 5-6
árum. Þá vorum við með 80-90
krakka í vinnu en 22 núna og þá vora
bátamir 14 en 4-6 núna,“ sagði Svan-
hvít.
Það var margt um manninn á humarhátíöinni á Höfn, alis voru þar um þrjú þúsund manns þegar mest var.
DV-myndir ingo
Gestir humarhátíöarinnar kunnu vel að meta herlegheitin, enda humarinn
hreint lostæti þegar búiö er aö grilla hann.
Hann gerist varla ferskari. Hér er humarinn tekinn beint úr sjónum og ekki
leiö á löngu þar til hann var kominn á diskinn.
------}-----------------------------------
Italskur ellilífeyrisþegi á humarhátíðinni:
Las Sölku Völku og
hreifst af landinu
- hitti Jón Pál á íslandi fyrir 11 árum
„Ég las Sölku Völku eftir Laxness á ítölsku og
hreifst svo af landinu að ég ákvað að heimsækja
það,“ sagði Nico Buono frá Verona á Italíu á
frekar bjagaðri ensku er hann var spurður hvað
hann væri að gera á humarhátíðinni á Höfn.
Hann er fyrram prófarkalesari en notar nú tíma
sinn í að ferðast til annarra landa og er ávallt
einn á ferð. Hann hefur tvisvar farið umhverfis
hnöttinn og einu sinni áður komið til íslands.
„Þá leitaði ég uppi Jón Pál Sigmarsson þvi mig
langaði að hitta sterkasta mann heims. Hann tók
mér vel og bauð mér heim til sín og sýndi mér
myndband af kraftakeppni,“ sagði Nico hæstá-
nægður en bætti við hryggur í bragði að sér
hefði þótt mjög leiðinlegt að frétta að hann væri
látinn.
„Mér finnst meira gaman að heimsækja lönd
þar sem túrisminn er ekki allsráðandi. Hér er
svo ferskt loft og bæði fallegt og óvenjulegt
landslag. Fólkið er sérstaklega kurteist og glæpa-
tíðnin lág. Þó finnst mér allt hér mjög dýrt,“
sagði Nico sem gisti á farfuglaheimili. Hans
næsti áfangi er Vík í Mýrdal en hann ætlaði að
eyða hér einum mánuði og fara hringinn í kring-
um landið.
-ingo
Nico var hrifinn af humarhátíöinni á Höfn. Hann
var einn á ferö á leið hringinn í kringum landiö.
DV-mynd ingo
Hátíöaruppskriftir meö humri
Svanhvít var ekki í vandræðum
með að gefa okkur uppskriftir að
humri enda er hann mjög oft á mat-
seðlinum hjá henni. Við birtum þær
hér fyrir neðan.
Humar meö kryddsmjöri
Klippið skelina í tvennt, takið
kjötið úr, lokið skelinni aftur og
leggið kjötið ofan á hana. Raðið
þessu á grind. Hrærið samán smjöri,
sítrónupipar og salti, setjið í rjóma-
sprautu og sprautið rönd ofan á kjöt-
ið sem liggur á skeljunum. Grillið ör-
stutt í ofni og berið fram strax með
hrísgrjónum, hrásalati og frönskum.
Skreytið fatið e.t.v. með sítrónu og
tómat.
Djúpsteiktur humar
Búið til orly-deig úr 3 b. hveiti, 2
eggjum, y4-y2 1 bjór og sítrónupipar
(miðað við u.þ.b. 3 kg af humri).
Hrærið þessu saman, takið humar-
inn úr skelinni og dýfið honum ofan
í og djúpsteikið í ólifuolíu. Berið
fram með hrisgrjónum, salati og
sósu úr majonesi, sýrðum rjóma og
appelsínusafa.
Pönnusteiktur humar
Rifið niður kínakál og skerið nið-
ur papriku og sveppi. Léttsteikið
þetta i ólífuolíu á pönnu og hellið því
á fat. Setjið síðan ólífuolíu á pönn-
una ásamt karríi og salti. Hrærið í á
meðan þetta hitnar. Takið skelina af
humrinum og snöggsteikið í krydd-
inu á pönmmni. Hellið grænmetinu
síðan saman við og berið fram.
Humar alla Grelli
Grétar Vilbergsson skipstjóri, eða
Grelli eins og hann er kaflaður, gaf
okkur eftirfarandi uppskriftir að
humri sem hann segir bæði einfald-
ar og góðar. í skel: Kryddið með hvít-
lauks- og paprikudufti og steikið ör-
stutt í smjöri á pönnu. Berið fram
með ristuðu brauði. Án skeljar:
Smyrjið pressuðum hvítlauk á hum-
arinn og sjóðið örstutt í rjóma á
pönnu. Berið fram með hrísgrjónum.
Aðspurður sagði hann einfalt að
sjóða humar. „Þú setur hann í pott
með köldu vatni og hann er tilbúinn
þegar suðan kemur upp.“ Einfaldara
getur það varla verið!
-ingo