Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Síða 21
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1996
Fréttir
Hringiðan
Útbreiöslumörkin eru áætluð og miBuð við notkun 2W slma
'Húsavík
iauðárkróki
’Hvammstangi
Egilsstaðira
Reyðarfjöröi
LangjökuH/
Vatnajökull
Ivolsvöllur
Mýrda I sjö kúj,l
urangjokull
^ísafiöröur , . Ólafsfjörður^fc-
OPatreksfjöröur
-
kkishólmur
Hofsjökull
GSM-kerfið sækir stöðugt fram:
Notendum fjölgar
um 1500 á mánuði
útbreiddara kerfi hér á landi en
Hrefna segir að GSM-notkunin
hafi samt aukist verulega upp á
síðkastið. Notendur NMT eru
22.000 og notendur GSM 16.200 en
Hrefna segir að fjölgun GSM-not-
enda hafi verið frá 1000 upp i 1500
á mánuði. Hvað kostnað við far-
símanotkun varðar segir Hrefna
að GSM-minútugjaldið á íslandi,
kr. 24,90, sé eitt það lægsta í heim-
inum og hafi ekkert hækkað frá
upphafi. Uppbyggingu NMT kerfis-
ins sé að mestu lokið og farið að
skila talsverðum tekjum til Póst
og síma en mínútugjaldið í því er
mun lægra, kr. 16,60.
-saa
Þórshafnarbúar
fagna 150 ára
verslunarafmæli
Tvö ný þjónustusvæði GSM-far-
símakerfisins voru tekin í notkun
í síðustu viku. Stöðvar voru settar
upp í Skorradal og á Úlfljótsvatns-
fjalli og á síðanefnda stöðin að
þjóna suðurhluta Þingvállavatns
og virkjununum en erfitt hefur
verið að segja til um þjónustu-
svæðið á Þingvöllum vegna stað-
hátta þar. „Ekki hefur verið hægt
að nota GSM á Þingvöllum nema
maður sé í sjónlínu við einhverja
senda og svo er til dæmis ekki fyr-
ir utan Valhöll," segir Hrefna Ing-
ólfsdóttir upplýsingafulltrúi Pósts
og síma. Hún segir jafnframt að
fjölbýlustu staðirnir sem ekki eru
innan þjónustusvæðisins sitji fyr-
ir þeim minni í uppsetningu
stöðva. Ekki eru uppi áætlanir um
lok uppbyggingar kerfisins heldur
sjá menn fyrir sér stöðuga þróun á
meðan markaður falist eftir þvi.
„Við ákveðum að vísu hvaða
svæði verða tekin fyrir það sem
eftir er ársins en svo er misjafnt
hvernig úr því vinnst og við negl-
um ekkert fast niður í þeim efn-
um,“ segir Hrefna.
NMT farsímakerfið er líka í
uppbyggingu. Nýjasta þjónustu-
svæðið er í Skrokköldu á
Sprengisandi en annars eru helstu
skuggasvæði NMT á hálendinu og
milli jökla. Að sögn Pósts og síma-
manna mun NMT þó alltaf verða
Marlon Leepollock og Bjartur Guðjóns-
son ætluðu ekkert að standa upp úr
klessubílunum í tívolíinu á hafnarbakk-
anum þegar tíminn þeirra var búinn
laugardagskvöldið.
DV-mynd Hari
Leikritið Stone Free eftir
Jim Cartwright var
heimsfrumsýnt í Borg-
arleikhúsinu á föstu-
dagskvölið. Ragnheiður
Gestsdóttir og Elsa Ei-
ríksdóttir voru meðal
frumsýningargesta.
DV-mynd
Árný Þráinsdóttir nýtti góða veðrið á sunnudaginn og heimsótti
Ingu Hlín Pálsdóttur í vinnuna sína á Árbæjarsafni enda fínt fyr-
ir Ingu að fá smá pásu.
DV-mmynd Hari
DV, Akureyri:
Á þessu ári eru liðin 150 ár síðan
Þórshöfn á Langanesi varð löggiltur
verslunarstaður og verður þess
mixmst með veglegum hátíðahöld-
um 19.-21. júlí nk. Reiknað er með
talsverðum fjölda gesta til bæjarins
af því tilefni og sett hefur verið upp
vegleg afmælisdagskrá.
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, mun setja afmælishátíð-
ina en fulltrúar erlendra sendiráða
og þingmenn verða viðstaddir auk
heimamanna og brottfluttra Lang-
nesinga. í hátíðardagskránni koma
„Jörðin er til sölu, félagsmenn
felldu tilboð sem einkaaðili bauð í
hana. Þetta er ekki bara spurning
um verð, heldur skiptir greiðslutil-
högun og annað líka máli,“ sagði
Óskár Bjartmars formaður Lög-
reglufélagsins en jörð þessi hefur
m.a. fram listamenn sem ættaðir
eru frá Þórshöfn og hafa náð langt á
sínu sviði.
Opnaðar verða myndlistarsýning-
ar á vegum brottfluttra Langnes-
inga, sýndar verða gamlar ljós-
myndir, gamalt og nýtt handverk og
minjasýning verður opnuð í sam-
vinnu við byggðasafnið á Kópaskeri
þar sem gamlir verslunarhættir
verða kynntir. Boðið verður upp á
tívolí, bryggjuveiði, sjóferðir, skoð-
unarferðir auk þess sem trússlest
kemur úr sveitinni og börn á staðn-
um taka þátt í kamivalgöngu með
eldgleypum og trúðum.
verið lengi til sölu og félagið hafði
m.a. rætt við stjórnendur Hitaveitu
Reykjavíkur, sem á jarðhitaréttindi
á jörðinni, um hugsanleg kaup á
henni. Ekki kom neitt út úr þeim
viðræðum þannig að nú er bara
beðið eftir vænlegu tilboði. -gdt
Hátíðin verður formlega sett
laugardaginn 20. júlí á útisviði við
höfnina en þar varða flutt ávörp,
kór heimamanna syngur, jasssveit-
in Blúsbræður leikur og Súrheys-
systur taka lagið. Eftir dagskrána
verður boðið upp á mikla matar-
veislu við höfnina þar sem fyrir-
tæki bjóða gestum að bragða á ýms-
um nýjungum í matvælafram-
leiðslu. Þá verður hátíðardagskrá í
félagsheimilinu þar sem m.a. koma
fram leikararnir Amar Jónsson og
Helga Jónsdóttir, tónlistarmennirn-
ir Áskell Másson, Anna Guðný Guð-
mundsdóttir, Einar Kristján Einars-
son, Sigurður Ingvi Snorrason og
Þuríður Vilhjálmsdóttirt söngkona
en allt á þetta fólk ættir að rekja til
Þórshafnar. Auk þess syngur sam-
kór Þórshafnar. Flutt verður leikrit-
ið „Ambrið" eftir Aðalbjörn Am-
grímsson. Dansleikur verður við
höfnina, flugeldasýning en hátíð-
inni lýkur á sunnudag með flautu-
blæstri skipa og báta. Fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar er Már
Guðlaugsson en formaður afmælis-
nefndar Freyja Önundardóttir.
-gk
Beðið eftir tilboði
í Hvammsvík
Umgjörðin á leikritinu Stone
Free er ekki eins og fólk á að
venjast þvf að áhorfendur taka
virkan þátt í sýningunni, bæði
með samræðum við leikarana
og með því að sitja á sviðinu.
Ragnheiður Th. Antonsdóttir og
Elfa Arnardóttir sátu uppi á
sviði og létu vel af.
DV-mynd Hari
Mikið er farið að bera á því að
fólk sem er að fara að gifta
sig sé látið gera hina furðu-
legustu hluti áður en stóri
dagurinn rennur upp. Katrín
Þormar var t.d. látin ganga
um og mæla kynorku vegfar-
enda í gæsapartíinu sínu. Þar
stóð Ulfar Erlingsson sig
bara nokkuð vel.
DV-mynd Hari