Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1996
27-
x>v
Einleikur
á selló
Á þriöjudagstónleikunum í
Listasafni Sigurjóns í kvöld kl.
20.30 mun Stefán Örn Arnarson
sellóleikari flytja einleiksverk
fyrir selló. Á efnisskrá eru eftir-
talin verk: Sónata fyrir einleiks-
selló opus 25 nr. 3 eftir Paul
Hindemith, Dal Regno Del Si-
ienzio eftir Atla Heimi Sveinsson
og Svíta fyrir selló opus 72 eftir
Benjamin Britten. Aö loknu ein-
leikaraprófi frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík, þar sem hann
naut tilsagnar Gunnars Kvaran í
sellóleik, fór Stefán Öm í fram-
haldsnám við University og
Michigan í Ann Arbor þai- sem
Erling Blöndal Bengtsson var að-
alkennari hans. Stefán hlaut
mastersgráðu eftir tveggja ára
nám og fór að starfa með sinfón-
íuhljómsveitum ytra og kenndi
einnig í tónlistarskóla fyrir börn.
í mars á þessu ári flutti Stefán
Örn heim ásamt fjölskyldu sinni
og hefur tekið við stöðu sem sell-
ókennari við Tónlistarskólann á
Akureyri og er jafnframt ráðinn
sem fyrsti sellóleikari í Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands. Stefán
Örn er einn af fimm tónlistar-
mönnum sem keppa til úrslita í
Tónvakanum, tónlistarkeppni
Ríkisútvarpsins, á þessu sumri.
Kammertónleik-
ar á Kirkjubæj-
arklaustri
Hinir árlegu kammertónleikar
á Kirkjubæjarklaustri verða að
venju haldnir þriðju helgina í
ágúst, föstudaginn 16. ágúst kl.
21.00 og laugardaginn og sunnu-
daginn 17. og 18. ágúst kl. 17.00.
Flytjendur eru að vanda allt
kunnir listamenn, innlendir sem
erlendir, en þeir eru: Edda Er-
lendsdóttir píanóleikari, Gunnar
Guðbjömsson tenór, Joseph
Ognibene, sem leikur á horn,
Norma Fisher á píanó og
Berndel-strengjakvartettinn.
Þetta eru allt velþekktir lista-
menn og má t.d. geta þess að Jos-
eph Bgnibene hefur verið fyrsti
hornleikari Sinfóníuhljómsveitar
Islands frá árinu 1981 og einnig
leiðbeinandi hjá Sinfóníuhljóm-
sveit æskunnar. Þeim sem hyggj-
ast sækja þessa tónleika er bent á
að tryggja sér gistingu á Kirkju-
bæjarklaustri tímanlega því
reynslan hefur sýnt aö þessa
helgi er oft erfitt að fá inni nema
með góðum fyrirvara.
Kjarvalssýning
í Kanada
Þann 1. júlí sl„ þjóðhátíðardag
Kanada, var opnuð í Gimli sýn-
ing á verkum Jóhannesar Sveins-
sonar Kjarvals. Þessi fyrsta sýn-
ing á verkum Kjarvals í Gimli er
til komin vegna áhuga og frum-
kvæðis nýstofnaörar menningar-
og menntamálanefndar í Gimli
sem starfar f tengslum við safnið
í Gimli. Sýningin er unnin í sam-
vinnu við Kjarvalsstaði sem
skipulagði sýninguna og lánaði
verk. Á sýningunni eru 6 olíu-
málverk en auk þess vatnslita-
myndir og andlitsteikningar, öll
úr éigu Kjarvalsstaða. Opnun
sýningarinnar var hluti af hátíð-
ardagskrá vegna þjóðhátíðardags
Kanada og fór fram í blíöviðri
fyrir utan Gamla skólann í Gimli
að viðstöddu fjölmenni. Sýning-
in, sem haldin er í Gamla skólan-
um í Gimli nýuppgerðum sem
hýsir nú m.a. Gimli-safn, mun
standa til loka ágústmánaðar.
Búist er við að fjöldi manna
muni sjá sýninguna, sérstaklega
fyrstu helgina í ágúst þegar hinn
árlegi íslendingadagur verður
haldinn. Kjarval er íbúum Gimli
ekki óþekktur því elliheimilið í
Gimli, Bethel, á stórt Kjarvals-
málverk sem elliheimilinu var
geflð en einnig er til í Winnipeg
olíumálverk af Snæfellsjökli í
eigu háskólabókasafns Manitoba-
háskóla.
Menning
Tvöföld afmælissýning í Listasafni Kópavogs:
Er að verða innhverfari
- segir Sigurður Örlygsson listmálari um nýrri verk sín
Þann 13. júlí síðastliðinn opnaði
Sigurður Örlygsson sýningu á mál-
verkum í Listasafni Kópavogs,
Gerðarsafni, og stendur sýningin til
12. ágúst. Sýningin er yfirlitssýning
en um þessar mundir er liðin aldar-
fjórðungur frá fyrstu málverkasýn-
ingu Sigurðar. Sigurður hefur hald-
ið margar einkasýningar hér heima
og erlendis og hefur einnig tekið
þátt í fjölda samsýninga. Mörg
verka hans eru í opinberri eigu og
hefur hann hlotið ýmsar viðurkenn-
ingar fyrir verk sín, m.a. hlaut
hann Menningarverðlaun DV fyrir
myndlist árið 1988.
Er ekki geðklofi!
Eins og fyrr er sagt á Sigurður 25
ára sýningarafmæli á þessu ári en
hann fagnar líka fimmtugsafmæli
sínu í þessum mánuði svo hér er
um tvöfalt tilefni að ræða. Nú þegar
Sigurður horfir yfir afrakstur 25 ára
listsköpunar, hvað er honum þá efst
í huga?
Sigurður Örlygsson listmálari.
„Ég hélt alltaf að ég væri að mála
myndir svona hér og þar en nú sé
ég að það er um samfellda þróun að
ræða. Það er þróun frá einhverju
mjög einfóldu abstraktmálverki og i
„Valgerður", olía og akrýl frá 1995, eitt verkanna á yfirlitssýningu Siguröar Örlygssonar.
mjög fígúratíft málverk þar sem eru
einhverjar ákveðnar persónur.
Þetta er allt ákveðin samfelld þróun
og það er ég einna ánægðastur með.
Ég hélt að ég væri hálfgerður geð-
klofi í myndlistinni en nú sé ég að
svo er ekki,“ segir Sigurður og hlær
við.
Er um ákveðin tímabil að ræða í
verkunum?
„Já, ég hef yfirleitt unnið þannig
að ég hef pantað sal og málað svo
sérstaklega í salinn. Þannig hef ég
unnið svo að segja frá fyrstu sýn-
ingu. Hugsunin hefur verið að
myndirnar vinni saman í salnum,
þá myndast ákveðin heild. Því er ég
alltaf að hugsa um það sem er kall-
að í dag innsetning, það er að verk-
in passi alveg í þennan ákveðna
sal.“
Eins og í tímavél
Kemur eitthvað ákveðið upp í
hugann þegar Sigurður lítur til
baka yfir afrakstur 25 ára vinnu?
„Nei, kannski ekkert svona sérs-
takt. Ja og þó, ég þurfti nú að gera
við töluvert af myndum, mála aftur
gömlu myndirnar sem voru illa
farnar og þá rifjaðist allt upp fyrir
mér sem ég var að hugsa á þeim
tíma. Það var svolítið gaman að því,
það var eins og að fara inn í tímavél
og var mjög sérkennilegt."
Hvað liggur fyrir Sigurði Örlygs-
syni í nánustu framtíð?
„Ég ætla bara að halda áfram þar<
sem frá var horfið, ég er einmitt að
laga til í vinnustofunni núna og er
að fara að byrja aftur. Það verður
framhald af því sem þegar er komið,
þetta er sífellt að verða innhverfara
hjá mér enda mála ég mest fjöl-
skyldu mína og sjálfan mig um þess-
ar mundir. Þróunin heldur áfram,
það fer ekki á milli mála,“ sagði Sig-
urður Örlygsson að lokum. -ggá
í Prag fyrr í þessum mánuði hélt kór Grafarvogskirkju tvenna tónleika og
flutti guðsþjónustur ásamt séra Vigfúsi Þór Árnasyni, sóknarpresti Grafar-
vogssóknar. Stjórnandi kórsins er Agúst Ármann Þorláksson. Að áliti presta
mun þetta vera í fyrsta sinn sem íslensk guösþjónusta er flutt í Prag.
Kirkjukórinn söng íslenska sálma og flutti hátíöartón séra Bjarna Þorsteins-
sonar ásamt sóknarprestinum, séra Vigfúsi. Predikun var flutt á íslensku en
túlkuð jafnóðum af háskólanema sem stundað hefur íslenskunám viö Há-
skóla Islands. Þórir Gunnarsson, aðalræðismaöur íslands í Tékklandi,
ávarpaði íslendingana á veitingahúsi sínu, Restaurant Reykjavík, og á
myndinni heldur hann á skildi sem hann fékk á íslandi. Á hann er ietraö Kon-
ungsríkiö ísland en slíkir skildir munu vera vandfundnir.
^ Þrívíddarhönnun:
Islenskur
verðlaunahafi
Kristín Yr Hrafnkelsdóttir, nem-
andi á þriðja ári við Myndlista- og
handíðaskóla íslands,
dvaldi við
Hogeschool voor
de Kunsten í Ut-
recht í Hollandi
fyrri hluta
þessa árs. Þar
var hún á svo-
nefndum Eras-
musstyrk og
lagði stund á
nám í þrívídd-
arhönnun.
Ásamt þremur
öðrum nem-
endum við
skólann tók
hún þátt í
hönnunar-
keppni um
verðlauna-
gripi fyrir
þrjú fyrir-
tæki í Utrecht
og var tilgang-
urinn að
hvetja fólk til
að nýta hug-
myndaflugið og
auka dugnað.
Það var fyrirtæk-
ið Werk In í Ut-
recht sem stóð fyr-
ir keppninni og
stóð undir kostnaði
við verkin. Var þetta
í fyrsta skipti sem slík keppni var
haldin og var markmiðið að hanna
hluti með notagildi en ekki griþi
sem aðeins væru geymdir á hill-
um. Kristín og hennar hópur
hönnuðu hurðamottu úr
polýúretan og gólfskúlptúr
fyrir keppnina og voru
báðar hugmyndirnar
valdar til fyrstu verð-
launa. Borgarstjórinn í
Utrecht mun afhenda
verðlaunin í lok októ-
ber nk.
-ggá