Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1996, Side 10
10
FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 1996
Menning
íslensk skáldverk:
Spennandi bóka-
haust framundan
Á hausti komanda er von á glaðn-
ingi fyrir lestrarhesta því að út
koma mörg ný íslensk skáldverk.
Auk þess er töluvert um þýdd verk
eftir virta erlenda rithöfunda að
ógleymdum ljóðabókum. Margir
auka við sig lesturinn þegar sól
lækkar á lofti og hafði DV hug á að
vita til hvers væri að hlakka. Þvi
var haft samband við nokkrar bóka-
útgáfur til þess að heyra hvað væri
það helsta sem von væri á.
Hjá Máli og menningu fengust
þær upplýsingar að töluvert væri
um nýjar íslenskar skáldsögur auk
fleira efnis. Þar er meðal annars að
finna nýja skáldsögu eftir Guðmund
Andra Thorsson en nú er liðinn
töluverður tími frá því „íslenski
draumurinn" kom út og er því nýju
bókarinnar beðið með töluverðum
spenningi. Einnig eru líkur á nýrri
bók eftir hinn stórskemmtilega
penna Hallgrím Helgason en hann
fékk mjög góð viðbrögð við sinni
síðustu bók. Böðvar Guðmundsson
lýkur við seinni hluta verks síns
um vesturfarana, Híbýli vindanna,
en fyrri hlutinn kom út í fyrra og
seldist mjög vel. Björn Th. Björns-
son kemur með nýtt skáldverk eða
þætti en ekki er fullkomlega búið að
ganga frá málum tengdum því
verki. Einnig byrjar Mál og menn-
ing útgáfu með ritröð kornungra
höfunda. í þeim flokki koma út með-
al annars skáldsögur eftir Gerði
Kristnýju og Kristján B. Jónasson. í
þeirri röð koma einnig út smásögur
eftir Andra Snæ Magnason.
Hjá Forlaginu mun koma út ný
skáldsaga eftir Þórarin Eldjárn.
Einhig er þar von á nýrri skáldsögu
frá Ólafi Gunnarssyni en Trölla-
kirkja hans vakti verðskuldaða at-
hygli.
Af mörgu fleiru er að taka en
e.t.v. má telja að ofangreind verk
séu með því helsta sem von er á.
Auk þess sögðu talsmenn Máls og
menningar og Forlagsins að
kannski væri von á meiru, það væri
aldrei að vita hvernig málin þróuð-
ust.
Hvað varðar flokk þýddra skáld-
sagna er einnig til margs að hlakka
þótt ekki verði farið nánar ofan i
það hér. Þó má þar til dæmis nefna
nýjustu bók danska metsöluhöfund-
arins Peters Hoeg, Konan og apinn,
auk nýrrar bókar frá Sahlman
Rushdie en hvert mannsbarn þekk-
ir hann eftir öll þau læti sem fylgdu
í kjölfar bókar hans, Söngvar
Satans.
Einnig er ýmislegs að vænt úr
ljóðadeild Máls og menningar, m.a.
bók frá Gyrði Elíassyni, Lindu Vil-
hjálmsdóttur og Geirlaugi Magnús-
syni.
Hjá Vöku-Helgafelli fengust þær
upplýsingar að svipað magn kæmi
út af nýjum íslenskum titlum og
verið hefði undanfarin ár. Annars
mun ekki allt vera fastmótað hvað
varðar útgáfúmál haustsins en það
sem einna hæst ber er afhending
Bókmenntaverðlauna Halldórs Lax-
ness. Þau verða nú afhent í fyrsta
skipti og sama dag verður gefið út
verðlaunahandritið á vegum Vöku-
Helgafells.
Einnig kemur mikið út af öðrum
forvitnilegum bókum hjá þessum
útgáfufyrirtækjum sem enn sem
komið er eru leyndarmál þannig að
spennandi bið er í vændum fyrir
bókaunnendur.
-ggá
Bókaormar geta sett sig í stellingar og beöiö haustsins meö spenningi. DV-mynd ÞÖK.
Sigluíjörður:
Sýning Birgis Schioth
Á þriöjudagstónleikunum í Listasafni Sigurjóns Óiafssonar þann 23. júlí kl.
20.30 koma fram þær Hildigunnur Halldórsdóttir fiöluleikari og Sólveig Anna
Jónsdóttir píanóleikari. Á efnisskrá tónleikanna eru eftirtalin verk: Sónata K
454 í B-dúr eftir W.A. Mozart, Fjórir þættir fyrir fiölu og píanó eftir Anton
Webern og sónata í G-dúr opus 78 eftir Johannes Brahms.
ísland, töfrandi land
Snerruútgáfan er nú að hefja sitt
fimmtánda útgáfuár með almanaks-
útgáfunni 1997. Þess má geta að nú
eru útgáfumar orðnar 70 talsins fyr-
ir utan aðrar vörur sem Snerruút-
gáfan hefur staðið að. Nú koma út 6
ný almanök fyrir árið 1997. Þau eru:
íslenska almanakið, Breiða náttúru-
almanakið, íslenska náttúrualman-
akið, Stóra náttúrualmanakið, ís-
lenska hestaalmanakið og íslenskir
fossar sem er borðalmanak. Á þess-
um tímamótum sendir útgáfan einn-
ig frá sér nýja landkynningarbók,
ísland „Töfrandi land“, og skiptist
hún i 6 kafla um Þingvelli og Þing-
vallavatn, Hornstrandir, Mývatn,
KverkQöll, Jökulsá á Breiðamerkur-
sandi og Skaftafell. Töfrandi land er
á íslensku, sænsku, ensku, þýsku og
frönsku. í bókinni eru 80 ljósmynd-
ir og formáli um hvern kafla. Áður
hafa komið út 6 landkynningar-
bæklingar. -ggá
í Ráðhúsinu á Siglufirði þann 19.
júlí næstkomandi hefst sýning Birg-
is Schioth myndlistarkennara. Á
sýningunni er að finna 51 verk og
eru flest verkin pastelmálverk en
þar er einnig að finna olíumálverk,
vatnslitamyndir, krítarverk og blý-
antsteikningar.
Birgir er sjálfur fæddur á Siglu-
firði 1931, stundaði nám við Gagn-
fræðaskólann þar og síðar við
Menntaskólann á Akureyri og
Kennaraháskóla íslands. Birgir
kenndi verkmennt og myndlist við
Gagnfræðaskólann á Siglufirði í 20
ár og síðustu 15 árin myndlist við
grunnskólana í Garðabæ. Hann hef-
ur verið í myndlistarnámi með
fram kennslustarfinu í Myndlistar-
skóla Reykjavikur og Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Einnig hefur
hann sótt einkakennslu til Gunn-
laugs St. Gíslasonar.
Birgir hefur áður haldið sýningar
í Hafnarfirði, Hveragerði, Reykja-
DV, Akranesi:
Dagana 1.-6. júlí voru á Akranesi
13 krakkar frá Lofoten í Norður-
Noregi á vegum Skagaleikflokksins.
Krakkarnir voru með leiksýningu í
Borgarnesi og sóttu leiklistarnám-
skeið í Brekkubæjarskóla á Akra-
nesi. Forsaga málsins var að Banda-
lagi íslenskra leikfélaga barst bréf
frá Lofoten þar sem leitað var eftir
samstarfi við unglingaleikhópa á ís-
landi, Grænlandi og í Færeyjum.
Sett var í gang verkefnið Reet Vest
og á það að tengjast hafinu á einn
eða annan hátt. í vetur æfðu krakk-
Birgir Schioht viö eitt verka sinna.
vík og í afmælisboði til Siglufjarðar
20. maí 1983. í fyrravor fór Birgir
sýningarferð til Austurlands og
sýndi þar á fjórum stöðum; Seyðis-
firði, Egiisstöðum, Reyðarflrði og á
Norðfirði. í apríl sl. var hann með
sína fimmtándu einkasýningu í
Eden í Hveragerði. Birgir er nú
hættur kennslunni og sinnir ein-
göngu myndlistinni. Sýningin
stendur til 7. ágúst. -ggá
amir frá Lofoten verk sem þau
kalla Da det sprakk en það fjallar
um samskipti mannsins og hafsins.
í vor var leikritið sýnt í Lofoten og
svo í Borgarnesi í byrjun júlí. Eftir
dvölina hér héldu norsku krakkarn-
ir til Færeyja þar sem þeir setja upp
sýningu með færeyskum krökkum
og verða á leiklistamámskeiði. Hug-
mynd verkefnisins er síðan að
krakkamir setji upp sýningu sem
tengist hafinu, sýni hana í heima-
landinu og hittist í Lofoten næsta
sumar. Enn fremur er reynt eftir
megni að fá Valgeir Skagfjörð til að
leikstýra íslensku sýningunni. -DÓ
Norrænt leiklistarsamstarf
Haukur Tómasson.
Bjartsýnis-
verðlaun
Brestes veitt
tónskáldi
Bjartsýnisverðlaun Brostes
verða veitt í Galerie Asbæk í
Kaupmannahöfn þann 24. júlí
næstkomandi og að þessu sinni
em þau veitt Hauki Tómassyni
tónskáldi, en hann er sextándi ís-
lenski listamaðurinn sem hiotn-
ast þessi heiður. Haukur er 36
ára gamall Reykvíkingur sem
hóf tónlistamám við Tónlistar-
skóiann í Reykjavík 1976 og hélt
síðan til Köinar í framhaldsnám
og lauk þaðan námi 1983. Síðar
nam hann í Amsterdam og lauk
síðan mastersgráðu frá Kalifom-
íuháskóla 1990. Tímabilið 1991 til
1995 var Haukur kennari við
Tónlistarskólann í Reykjavík.
Haukur hlaut tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs 1995 og bráð-
lega verður frumflutt eftir hann
verk í menningarborg Evrópu,
Kaupmannahöfn. -ggá
Sumar í Nor-
ræna húsinu
Þessa dagana stendur yfir
sumarsýning Norræna hússins
en þar sýna þær Edda Jónsdóttir
og Kolbrún Björgólfsdóttir
(Kogga). Á sýningunni er að
finna margs konar verk og stend-
ur hún til 11. ágúst. Hún er opin
frá kl. 13 til kl. 19 aila daga.
Silla á Sólon
Silla eða Sigurlaug Jóhannes-
dóttir opnaði sýningu í Gallerí
Sóion Islandus þann 6. júlí sl. og
mun hún standa til 28. júli. Silla
hefur tekið þátt í mörgum sýn-
ingum hér á landi og eriendis og
er þetta þrettánda einkasýning
hennar. Hún nefnir þessa sýn-
ingu Loftkastala og er verkið á
sýningunni innsetning, 10 metr-
ar úr gleri. Sýningin er opin
kl.11-21 á hverjum degi.
Heimsfrægur
kvennakór
á íslandi
Dagana 16.-22. júlí mun dvelja
hér á iandi kór frá hinni kunnu
söngstofnun Singund Spielkreis
Frankfurt sem er 30 ára gömul. í
kómum era 46 dömur á aldrin-
um 14-26 ára og stjórnandi hans
Heinz Marx. Þetta er fyrsta
heimsókn kórsins tii íslands en
hann hefur ferðast mjög víða um
heim og unnið til fjölda verð-
launa. Fjórir íslenskir kvenna-
kórar munu aðstoða kórinn á
ferð hans um landið. Félagar úr
Kvennakór Reykjavíkur og Kam-
merkór Grensáskirkju munu
hafda tónleika með hinum er-
lendu gestum í Seltjarnarnes-
kirkju í kvöld, fimmtudaginn 18.
júlí kl. 21. Á Norðurlandi bíða
eftir þeim Stúlknakór Húsavíkur
og Kvennakórinn Lissý ásamt
stjórnanda þeirra, Hólmfríði
Benediktsdóttur, og mun þýski
kórinn koma fram á tónleikum i
Húsavík um helgina.