Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1996, Qupperneq 32
!í
Vlnnlngstölur miðvlkudaginn 17.7/96
9 X13X18
Vlnnlngar
I. 6 af 6
2. 5 ofí'
36X45X48
STTaft
4.4af6
7 X32X39
\ 5. 3 afi^ -fftQ
Fjöldl
vlnnlnga
Vinningsupphxd
48.400.000
1.846.4501
235.9101
1.84Q
230l
Heildarvinninj
51.011.!
Á Islcnói
2.611.820
Vinningstölurí^) (^3) (ÍÍ) (23)
17.7/96 WW
(24) (29) (30)
KIH
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krönur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
B550 5555
Vegagerðin gaf Vestfirðingum dekk í tilraunaskyni:
Stöndum ekki í
tilraun sem valdið
getur manntjóni
- segir bílstjóri eftir útafakstur tveggja flutningabíla
„Ég þori ekki að fullyrða neitt
en var á móti þessari tilraun frá
þeirri stundu sem við vorum
beðnir um þetta. Mín tilfinning er
sú að það sé ekki skynsamlegt
hafa svona lítið loft í framdekkj-
um fulllestaðra bíla,“ segir Ár-
mann Leifsson, hjá Ármanni
Leifssyni, Vöruflutningum hf., um
þá tilraun Vegagerðarinnar að
láta vestfirska bílstjóra hafa dekk
gegn því að hleypa verulega úr
þeim loftinu.
Með nokkurra daga millibili
hefur hvellsprungið á framdekki
tveggja flutningabíla, öðrum hjá
ísafjarðarleið en hinum hjá Ár-
manni. Bill ísafjarðarleiðar fór út
af veginum í Hestfirði og út í sjó
en bíll Ármanns valt á móts við
bæinn Kirkjuból. Töluvert tjón
hlaust af.
„Ég hef fullan hug á því að
kanna hvort ekki er ástæða til
þess að bakka út úr þessu sam-
starfi og hafa eðlilegan þrýsting í
dekkjunum. Við getum ekki staðið
í því að vera að gera hluti sem
geta valdið manntjóni. Reyndar tel
ég okkur þegar vera komna út úr
þessu samstarfi því við erum bún-
ir að eyðileggja svo mikið af
dekkjum með þessu að við höfum
stórtapað á þessu,“ segir Ármann.
Ármann segist hafa fengið dekk
undir bílana sína að framan og
undir tvo að aftan með því skil-
yrði að hann minnkaði þrýsting-
inn í öllum dekkjum bila og vagna
niður í 90 pund. Hann segist vilja
kanna hvað dekkjaframleiðendur
segi við þessu því ekki sé mælt
með því að haft sé minni þrýsting
í dekkjunum en 110 til 120 pund.
Jóhann Guðjónsson, hjá ísa-
fjarðarleið, sagðist ekki sjá annað
en þar á bæ myndu menn bæta,
a.m.k. einhveiju, í dekkin. Það
væri erfitt að sanna nokkuð um
ástæður þess að sprungið hafi á
bílunum en hér væru ástæðumar
eiginlega of augljósar til þess að
horfa fram hjá þeim.
Lokun Grensásdeildar:
Sé ekki
sparnaðinn
- segir ráðherra
Stjóm Sjúkrahúss Reykjavíkur
mun koma saman til fundar á morg-
un, föstudag, en á fundinum verður
rætt hvemig frekar megi spara í
rekstri. Yfir 200 milljónir króna
vantar upp á að endar nái saman.
Starfsfólki endurhæfingardeildar-
innar, Grensásdeildar, hefur verið
tilkynnt að það megi eiga von á
breytingum í rekstri deildarinnar
og að starfsemi hennar verði jafnvel
flutt inn í aðalbyggingu Sjúkrahúss
Reykjavíkur.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra sagði í morgun að hún
þekkti fjárhagsvanda Sjúkrahúss
Reykjavíkur en í fljótu bragði sæi
hún ekki fyrir sér að spamaður
næðist fram með því að flytja starf-
semi Grensásdeildar, sem er sér-
hönnuð endurhæfing, m.a. með
sundlaug, inn á sjúkrahúsið. Þvert á
móti myndi slíkt hafa i för með sér
verulegan kostnað, svo tugum millj-
óna skipti. -SÁ
Þjófar í Valsheimilinu:
Fengu samvisku-
bitið of seint
„Koflegi minn sá tvo stráka vera
að væflast hérna með íþróttatösku,
fannst þeir eitthvað sérkennilegir í
hátt og fór því að fylgjast með þeim.
Þegar þeir svo fóru út tók hann
númerið á bílnum, fylgdist með því
þegar annar fór upp í bílinn og hinn
gekk fyrir homið með töskuna og
lét félaga sinn svo taka sig upp í.
Hann sá að videotækið var horfið og
hringdi í lögregluna," segir hús-
vörður í Valsheimilinu.
Hann segir að annar strákanna
hafi hringt og sagst vera með heift-
arlegt samviskubit og lofað að skila
tækinu ef ekki yrði kallað á lög-
reglu. Það var orðið of seint og lögg-
an var fljót að hafa uppi á bíl pilt-
anna. Tækið er komið til skila. -sv
Flj ótsdalshreppur:
Sameiningar-
kosning ógild
Viðkomandi kjömefnd ogilti með
úrskurði í gær kosningu um sam-
einingu Fljótsdals-, Valla- og Skrið-
dalshrepps sem fram fór samhliða
forsetakosningunum í lok júní. Nið-
urstaðan var að mestu leyti byggð á
því að utankjörfundaratkvæði hafði
borist frá kjósanda í Fljótsdals-
hreppi sem ekki var á kjörskrá.
Sameining var samþykkt í Valla- og
Skriðdalshreppi en hafði fallið á
jöfnu í Fljótsdalshreppi. -Ótt
Nærfataverslunin Misty við Óðinsgötu hefur komið sér upp nýstárlegri útstillingu í verslunarglugga sínum. Lifandi
„gína“ sprangar þar um og sýnir það sem verslunin hefur upp á að bjóða. Að sögn eiganda hefur þetta mælst vel
fyrir og mun módelið verða í glugganum út vikuna, frá kl. 13 til 18. DV-mynd GVA
t
Tívolíið: d
Stúlka lést t
í Top Gun i
Stúlka fékk hjartastopp í einu af
tækjum tívolísins á Miðbakka í
gærkvöldi og var látin þegar komið
var með hana í sjúkrahús. Hún
hafði farið í tæki sem nefnt er Top
Gun og snýst með miklum hraða í
með þá sem í því eru. Samkvæmt
heimildum DV er líklegt stúlkan
hafi verið hjartveik.
„Það eru allir slegnir yfir þessu
hér en því miður geta svona hlutir
gerst á svona stöðum, ekki síst ef
fólk er veikt fyrir. Við brýnum fyr- .
ir viðkvæmu fólki að það fari ekki í
svona hasartæki," sagði JÖrundur
Guðmundsson, skipuleggjandi
tívolísins, við DV í morgun. -sv
Smugan:
Skipin á reki
og engin veiði
„Það er ekkert leyndarmál að það
veiðist ekki neitt þama og skipin
eru bara á reki. Það virðist vera nóg
æti og þolanlegur hiti en vantar
bara fiskinn. Það er ómögulegt að
segja hvað við reynum lengi en ég
held að menn verði að vera þolin-
móðir og reyna áfram fram yfir
mánaðamótin. Það kemur að því að
við náum fiski, ég held að þetta sé
bara spurning um tíma. En það seg-
ir sig sjálft að þetta er mikið fjár-
hagslegt tjón að hafa þessi skip að-
gerðalaus á reki í norðurhöfum. Það
er engin óskastaða," sagði Gylfi
Guðjónsson hjá Skagstrendingi við
DV í morgun um stöðuna í Smug-
unni. 22 íslensk skip era nú í Smug-
unni. -RR
Einn á gjörgæslu
Þrír piltar slösuðust alvarlega
þegar bíll þeirra fór margar veltur
út fyrir veg á Eiðavegi i gær. Tveir
fóru á sjúkrahús í Reykjavík en sá
þriðji á Neskaupstað. Einn er illa
marinn á lungum og liggur á gjör-
gæsludeild. Hann mun ekki enn úr
hættu en ástand hans stöðugt. Hinir
tveir munu á batavegi. -sv
ER EKKI ÓDÝRARA
l=YRIR VEGAGERDINA
AÐ HAFA ÞÁ UTAN
VEGA?
Veðrið á morgun:
Rigning um
mestailt land
Á morgun er búist við sunn-
an- og súðvestangolu eða kalda
og rigningu um mestallt land.
Hiti verður á bilinu 9 til 15 stig.
Veðrið í dag er á bls. 36
IRHSIUR
\
'NDIBÍl-ASTÖf
533-1000
7
Ertu búinn að panta?
^15 P
dagar
til Þjóðhátíðar
FLUGLEIDIR
Innanlandssími 50 - 50 - 200