Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Síða 15
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
15
Hvar munu menn sjá fyrst til sólar á nýju árþúsundi? Jú, á Suðurskautslandinu þar sem miðnætursólin skín jafnt á vísindamenn sem mörgæsir um hver áramót.
í hugum margra hafa næstu
aldamót sérstaka merkingu um-
fram þá augljósu að greina á milli
loka einnar aldar og upphafs nýrr-
ar.
Það að einu árþúsundi í sögu
mannkynsins lýkur og annað hefst
hefur gjaman haft undarleg áhrif
á sumt fólk, sem vill lesa úr slík-
um tímamótum eitthvað merki-
legt, jafnvel yfimáttúrulegt.
Hjátrúin er ein þeirra fomu eig-
inda mannshugarins, sem mennt-
un 'og tæknibyltingar megna ekki
að ýta til hliðar, og hún fær jafn-
vel skynsamasta fólk til að tapa
áttum þegar árið 2000 nálgast -
eins og sagt er að gerst hafi í
nokkrum mæli í hinum kristna
heimi þegar árið 1000 nálgaðist og
margir trúðu því að endurkoma
Krists væri á næsta leiti.
Misskilningur
Þetta er reyndar þeim mun
hlægilegra þar sem tímatalið er að
sjálfsögðu mannanna verk og harla
ófullkomið að auki. Til dæmis á sú
venja manna að nota tugakerfi við
útreikninga einfaldlega rætur sín-
ar að rekja til þeirrar líkamlegu til-
viljunar að Homo sapiens hefur tíu
fingur, en ekki t.d. átta.
Skipting tímans í ár er að vísu
byggð á vísindalegum gnmni, sem
og deiling ársins í mánuði, daga,
klukkutima, mínútur og sekúnd-
ur. En upphaf tímatals kristinna
manna, sem er ríkjandi í veröld-
inni í dag, er hins vegar byggt á
misskilningi og vanþekkingu.
Kirkjunnar menn samþykktu á
sínum tíma að tímatalið skyldi
miðast við fæðingu Jesú Krists.
En það hefur lengi verið viður-
kennd staðreynd að munkurinn
Dionysius Exiguus, höfundur
þeirra útreikninga, sem lágu að
baki ákvörðuninni, hafi ruglast
nokkuð í ríminu. Hann setti árið 1
að minnsta kosti fjórum árum síð-
ar en talið er að Jesús hafi fæðst.
Þetta hefur hins vegar aldrei verið
leiðrétt.
Hvenær lýkur
árþúsundmu?
Viða um lönd er þegar hafinn
mikill undirbúningur rikisstjóma,
sveitarfélaga, félagssamtaka, fyrir-
tækja og einstaklinga vegna þeirra
miklu hátíðahalda sem efnt verður
til þegar árið 2000 rennur upp.
Þeir sem eru stærðfræðilega
sinnaðir hafa að sjálfsögðu bent á
að það sé heilu ári of snemma; að
ný öld og nýtt árþúsund hefjist
ekki fyrr en árið 2000 hefur runn-
ið sitt skeið á enda. Þetta kemur
til af því að upphaf tímatalsins er
árið eitt, en ekki árið núll. Þess
vegna er núverandi árþúsund ekki
gengið í garð fyrr en á miðnætti á
gamlársdag árið 2000.
En í reynd hlustar enginn á slík
skynsemisrök. Allur undirbúning-
ur miðast við að hátíðahöldin hefj-
ist á miðnætti aðfaranótt 1. janúar
árið 2000. Nú þegar er búið að
panta hótelherbergi, samkomusali
og veitingahús á ýmsum þekkt-
ustu gisthúsum og skemmtistöð-
um Vesturlanda vegna áramót-
anna 1999/2000. Og í mörgum lönd-
um verður haldið áfram að fagna
með ýmsum hætti allt árið. Það á
til dæmis við um borgina eilífu
sem væntir þess að fá ekki færri
en 30 milljónir pílagrima í heim-
sókn á því ári sem Vatíkanið mun
leggja áherslu á að sé tvö þúsund
ára afmæli Krists, hvað sem líður
sagnfræðilegum staðreyndum.
Heimsendismenn
Árin fram til aldamótanna
verða vafalítið gósentími alls kon-
ar sértrúarhópa og spekúlanta
sem annaðhvort trúa því að mikil
tíðindi séu í vændum eða hafa í
hyggju að græða vel á trúgimi
annarra.
Bækur sem tengjast lokum
þessa árþúsunds em þegar famar
að streyma á markað, og er fLóðið
þó vafalaust rétt að byrja. Þar
ægir saman margs konar fræðum,
allt frá samansafni af draumóram
og bulli, þar sem gjaman er búist
við miklum hörmungum um alda-
mótin og jafnvel heimsendi, upp í
Elías Snæland Jónsson
aðstoðanitstjórí
fræðirit vísindamanna sem reyna
að greina kjarnann frá hisminu.
Margir sértrúarhópar vænta
mikils af árinu 2000 og setja það þá
gjarnan fyrir misskilning í sam-
band við ummælin i Biblíunni um
þúsund ára ríkið - það er þá
gullnu tíð þegar píslarvottar
kristninnar rísi upp frá dauðum
og lifi og drottni með Kristi í þús-
und ár. Þetta er endurtekning þess
sem gerðist fyrir árið 1000, þegar
margir kristnir menn gengu frá
öllum eigum sínum og héldu aust-
ur til Jerúsalem til að taka þátt í
þúsundáraríkinu sem aldrei kom.
Annars era væntingar þessara
sértrúarhópa jafn ólíkar og þeir
era margir, og virðist hugarflug-
inu þar engin takmörk sett.
Tölvufár?
Engin ástæöa er til að hafa
áhyggjur af heimsendi árið 2000,
en hins vegar er ljóst að miklu
þarf að kosta til á næstu árum til
að fá mikilvæg forrit í tölvum fyr-
irtækja, stofiiana og einstaklinga
til að átta sig á því að árið 2000 sé
ekki árið 1900.
Ástæða þessa er misskilinn
spamaður snemma á tölvuöldinni.
Þá var ákveðið að láta tölvur skil-
greina ár með tveimur tölustöfum
en ekki fjórum. Þannig þekkja
tölvuforrit árið 1996 sem árið 96.
Tímatal þessara tölvuforita mið-
ast við að árið 00 sé árið 1900. Gall-
inn er bara sá að árið 2000 mun að
óbreyttu líka heita árið 00 á þeirra
tungumáli. Þar með stökkva
tölvurnar eitt hundrað ár aftur í
tímann með öllum þeim vand-
kvæðum sem slíkt hefur í för með
sér, ekki síst fyrir fjármálastofn-
anir og opinbera aðila sem miða
alla útreikninga við ákveðnar dag-
setningar.
Sérfræðingar hafa gamnað sér
við að benda á að þetta gæti til
dæmis haft í fór með sér að unga-
böm komist á eftirlaun en öldung-
ar verði skráðir sem nýfædd böm,
að dráttavextir verði reiknaðir
fyrir heila öld og fleira í þeim dúr.
Mikill fjöldi sérfræðinga og hug-
búnaðarfyrirtækja er nú að verki
við að lagfæra þessa grandvallar-
villu til að koma í veg fyrir ringul-
reið í fjármálaheiminum árið 2000.
Áætlaðar tölur um kostnað við
breytingamar era misjafnar, en
allir era þó sammála um að hann
sé mikill. í bandaríska dagblaðinu
Washington Post var fyrir nokkru
vitnað í kanadískan sérfræðing
sem giskaði á að heildarkostnaður
allra tölvueigenda í heiminum
yrði á bilinu 20-40 bilijónir is-
lenskra króna, hvorki meira né
minna. Þannig fer stundum þegar
menn ætla að spara.
Fyrstu sólargeislarnir
I tengslum við aldamótin er
skemmtileg keppni í gangi meðal
nokkurra þjóða á Kyrrahafi. Hún
felst i því að draga til sín ferða-
menn meö loforði um aö einungis
þar sé hægt að sjá fyrstu sólar-
geisla ársins 2000.
Nýsjálendingar hafa um hríð
reynt að vekja athygli umheims-
ins á því sem þeir kalla fyrsta
samkvæmi næstu aldar. Það á að
fara fram á Chathameyju, sem er
um 860 kílómetra austur af höfuð-
borginni Wellington og því nærri
þeirri alþjóðlegu línu sem skiptir
dögum á Kyrrahafinu.
íbúar á eynunni Tonga, sem er
nokkra norðar, telja sig hins veg-
ar vera á undan Nýsjálendingum
að sjá fyrstu sólargeisla aldarinn-
ar - nánar tiltekið á eyjunni Eua.
Fyrstu geislar sólarinnar eiga að
skríða þar yfir sjóndeildarhring-
inn kl. 5.57 aðfaranótt 1. janúar
árið 2000 - en þá er enn síðdegi á
gamlársdag í Greenwich á
Englandi (GMT). Þetta er 16 mín-
útum áður en sjást á til sólar frá
Chathameyju.
En í samkeppninni um að vera
fyrstir gleymdu þessir góðu menn
einum stað á jörðinni þar sem
hægt er að sjá nýársdagssólina
miklu fyrr.
í janúarmánuði gengur sólin
nefnilega aldrei til viðar á syðsta
byggða bóli hnattarins, Suður-
skautslandinu. Undir þeirri mið-
nætursól eru starfandi allt árið
umkring vísindamenn sem ættu
að sjá til sólar fyrstir manna á
nýrri öld - ásamt blessuðum mör-
gæsunum sem munu réttilega láta
sér fátt um finnast.