Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Síða 22
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
22 sérstæð sakamál
Christopher Bernard Wilder.
Sjö af fórnarlömbunum. Efri röö frá vinstri: Sheryl Bonaventura, Beth Dod-
ge. Dawnetta Sue Wilt, Michelle Korfman. Neöri röö frá vinstri: Suzanne
Wendy Logan, Terry Diane Walden og Terry Ferguson.
Fleiri morð
Árið 1980 fékk Wilder fimm ára skilorðs-
bundinn dóm fyrir tilraun til nauðgunar.
Tveimur árum síðar, þegar hann var í Ástral-
íu, var hann kærður fyrir að ráðast á tvær
konur. En hann flýði til Bandaríkjanna áður
en málið kom fyrir rétt.
Fyrirtæki hans gekk af sjálfu sér, eins og
sagt er, og því fór Wilder að taka þátt í
kappaksturskeppnum. Fékk hann brátt á sig
orð fyrir djarfan og tillitslausan akstur en
hann hafði þá keypt nokkra Porsche-bíla og
fengið til liðs við sig aðra bílstjóra.
Meðan lögreglan leitaði að Wilder í Flórída
og Georgíu hélt hann vestur á bóginn. Þrem-
ur dögum eftir að Linda Erika Groper slapp
frá honum rændi hann síðhærðri ljósku,
Terry Diane Walden, í Beaumont í Texas.
Hann nauðgaði henni í bílnum en stakk hana
síðan til bana með hnífi og skildi líkið eftir í
skurði við vegarbrúnina.
25. mars var Wilder kom-
inn til Oklahoma City. Þar
rændi hann Suzanne
Wendy Logan. Lík hennar
fannst í Kansas þremur
dögum síðar.
í skjóli Ijósmyndunar
í Durango í Colorado
heimsótti Wilder fegurðar-
drottningu sem þar bjó,
Sheryl Bonaventura. Hann
lést vera ljósmyndari við
eitt af stóru tískublöðun-
um og bauð henni starf.
Hún lét ginnast og sást síð-
ast að kvöldi 29. mars með
honum á Thunderbird
Lodge-mótelinu. Lík henn-
ar fannst hálfum mánuði
síðar í skógi.
Tveimur dögum síðar brá
Wilder sér aftur I gervi
ljósmyndara og tókst
þannig að ræna Michelle
Korfman þjónustustúlku.
Lík hennar fannst síðar í
gili í eyðimörk.
Næstu nótt nauðgaði Wilder Dawnette en
nokkru fyrir dögun stakk hann hana með
hnífi og kastaði út úr bílnum. Dawnette var á
lífl og tókst að stöðva bíl sem kom að. Var
henni komið í aðgerð á sjúkrahúsi. Þegar hún
hafði náð sér nokkuð gat hún skýrt frá þvi að
Wilder væri á leiðinni til Atlantic City.
I átt til Kanada
Um klukkutíma eftir að Wilder hafði kastað
Dawnette út úr bíinum fannst honum rétt að
fá sér annan farkost. í bænum Victor sá hann
Firebird-sportbíl. Þrjátíu og þriggja ára kona,
Beth Dodge, var að stíga inn í hann. Wilder
hljóp til hennar, skaut hana til bana og augna-
bliki síðar óku þau Tina burt í sportbílnum.
Er hér var komið var ferðinni enn heitið til
Atlantic City. En skyndilega skipti Wilder um
skoðun. Hann ákvað að fara ekki þangað og
sagði Tinu að nú yrði hún að yfirgefa hann.
Honum myndi reynast auveldara að sleppa ef
hann væri einn á ferð og hygðist hann fela sig
í skógunum stóru í Kanada.
Wilder ók til Boston. Þar keypti hann flug-
farseðil handa Tinu Mariu til Kaliforníu. Síð-
an ók hann í átt til kanadísku landamæranna
Daginn eftir fegurðarsamkeppnina
Ungfrú Flórída árið 1984 fóru nokkr-
ar stúlknanna sem tóku þátt í henni
að hverfa á dularfullan hátt. Rosario
Gonzales, tvítug, var sú fyrsta. Hún
hafði orðið önnur i keppninni en
kom ekki á blaðamannafund daginn
eftir. Hún lét sig einnig vanta á
tískusýningu og í veislu sem haldin
var fyrir þátttakendurna og starfslið
keppninnar. Leit á hótelherbergi
Gonzales leiddi í ljós að fót hennar,
skartgripir og aðrar persónulegar
eigur voru þar en sjálf var hún horf-
in sporlaust.
Fimm dögum síðar var tilkynnt að
annar keppandi, Elizabeth Kenyon,
væri horfin. Vinkona hennar sagði
lögreglunni að Elizabeth hefði farið á
stefnumót við kappakstursbílstjóra
sem hún hefði nýlega kynnst. En
þessa dagana stóð einmitt yfir Grand
Prix-kappaksturskeppnin í Miami og
margir þátttakendanna í henni
bjuggu á sama hóteli og stúlkumar í
fegurðarsamkeppninni höfðu gert.
Raðmorðingi?
í fyrstu taldi lögreglan í Miami
engin tengsl vera milli hvarfa
Rosario Gonazles og Elizabeth Keny-
on. En þegar þriðja stúlkan, Terry
Ferguson, hvarf vöknuðu grunsemd-
ir um að á ferðinni kynni að vera
hættulegur morðingi. Þegar lík
Terry fannst svo, illa leikið, á mótel-
herbergi í Haines City þótti ljóst að
um raðmorðingja væri að ræða,
mann sem myrti fallegar ungar
stúlkur.
Terry Ferguson hafði verið nauðg-
að áður en hún var stungin marg-
sinnis með hnífi. Daginn eftir lík-
fundinn var ráðist á starfsstúlku í
banka, Lindu Eriku Cooper, þegar
hún var að fara af vinnustað sínum í
Ocala í norðurhluta Flórída. Henni
var rænt og var maðurinn sem sást
gera það sagöur hafa tekið út allháa
fiárhæð úr bankanum fyrr um dag-
inn.
Mannræninginn ók að móteli fyrir
utan bæinn Bainbridge í grannrík-
inu Georgíu. Þar nauðgaði hann
Lindu en þegar hann þurfti að
bregða sér á salemið tókst henni að
flýja. Hún gat lýst manninum og sagt
að í bíl hans væri ýmislegt sem benti
til þess að hann væri kappakstursbíl-
stjóri. Henni voru þá sýnar myndir
af þátttakendunum í Grand Prix-
keppninni og ekki leið á löngu þar til
hún benti á mynd af manni sem
reyndist heita Christopher Wilder.
Milljónamæringur
Rannsókn hafði nú leitt í ljós að
bæði Rosario Gonzales og Elizabeth Kenyon
höfðu sést með Wilder rétt áður en þær hurfu.
Og rekstrarstjóri mótelsins þar sem Temy
Ferguson var myrt bar kennsl á mynd af
Wilder þegar honum var sýnd hún.
Christopher Bemard Wilder fæddist í Sydn-
ey í Ástralíu árið 1945. Foreldrar hans skildu
þegar hann var fimm ára og ólst drengurinn
upp hjá föður sínum. Honum gekk vel í skóla
og varð byggingaverkfærðingur. Þegar hann
var tuttugu og fimm ára fluttist hann til
Bandaríkjanna. Þar tókst honum aö koma á
fót fyrirtæki og fimm árum síðar var hann
orðinn margmilljónamæringur. Þrjátíu og
fimm ára var hann þekktur fyrir óhófslif. Þá
hafði hann fest kaup á landareign í Kaliforn-
íu og átti þrjú einbýlishús í öðrum landshlut-
um.
Wilder hafði nú fyrst og fremst áhuga á fal-
legum ungum stúlkum og spennu, hraða og
hættulegum athöfnum. Brátt fór hann að
blanda þessu öllu saman og þá fór illa.
Myndin var tekin af Porsche-bíl Wilders í Grand Prix-keppninni í Miami.
en svaf 1 bílnum um nóttina.
Snemma morguns 13. apríl stöðvaði Wilder
bílinn við bensínstöð í smábænum Colebrook,
um tvo kílómetra frá landamærunum. Þar
ætlaði hann að fylla bensingeyminn áður en
hann æki inn í Kanada. Hann var að ganga út
eftir að hafa borgað bensínið þegar lögreglubíl
þar að.
Endalokin
„Stansaðu. Það er eitthvað kunnuglegt við
andlit þessa manns,“ sagði Leo Jellison, lög-
regluþjónn frá New Hampshire, við félaga
sinn sem sat undir stýri.
Þegar Wilder kom að Firebird-bílnum stóð
þrekvaxinn lögregluþjónn við hann. Þá varð
Jellison ljóst að maðurinn sem gekk til hans
var sá sem FBI hafði sett efst á lista sinn yfir
eftirlýsta stórafbrotamenn.
Um hríð störðu mennimir hvor á annan en
svo reyndi Wilder að taka fram skammbyss-
una sína. Þá stökk Jellison á hann og hófust
nú mikil átök. Veltust mennimir tveir um á
jörðinni.
Skyndilega heyrðist hvellur og Wilder varð
máttlaus. Ekki hefur tekist að fá fyllilega úr
því skorið hvort skotið hljóp úr byssunni fyr-
ir slysni eða hvort Wilder sá að hann myndi
aldrei sleppa frá lögregluþjónunum tveimur
og ákvað að binda enda á líf sitt frekar en fá
ákæru fyrir öll morðin og verða dreginn fyrir
dóm. En ferðinni ógnvænlegu um Bandaríkin
var lokiö.
Daginn eftir að Wilder var allur gaf Tiria
Maria sig fram við yfirvöld í Kalifomíu. Þar
sagði hún sögu sína. Hún var sett í varðhald
og ákæra gefin út á hendur henni fyrir aö
hafa lokkað Dawnette út úr kaffihúsinu i
Merriville. Hún kom fyrir rétt en sakir ungs
aldurs slapp hún með væga refsingu.
4. apríl rændi Wilder
Tinu Mariu Risico, sextán
ára stúlku, á bílastæði við
stórverslun í Torrance í
Kalifomlu. Nú fór hins
vegar svo að þótt hann
nauðgaði henni varð Tina
Maria ástfangin af Wilder
en henni fannst hann hafa
yfirbragð kjarkmikils
heimsmanns. Hann lét
hana halda lífi og hún
varð félagi hans á ferða-
laginu sem stóð fyrir dyr-
um.
Frá Kalifomíu ók parið í
norðausturátt og nú leið
heil vika án þess að Wild-
er réðist á fleiri stúlkin-.
Hann var nú kominn efst á lista FBI, alríkis-
lögreglunnar, yfir eftirlýsta glæpamenn og
hópar lögreglumanna leituðu hans á ýmsum
stöðum í Bandaríkjunum.
Enn eitt morð
Dawnette Sue Wilt, sextán ára, vann á
kafflhúsi í Merriville í Indiana. Þar kom til
hennar stúlka og hafði orð á því hve vel hún
myndi koma fram á myndum. Dawnette
dreymdi um að verða ljósmyndafyrirsæta og
féllst á að fara með aðkomustúlkunni út að bíl
fyrir utan. Þegar hún opnaðu dymar horfði
hún beint inn í skammbyssuhlaup. Byssan
var í hendi Wilders sem skipaði henni að setj-
ast inn. Siðan var ferðinni heitið til New
York-ríkis en á leiðinni sagði Wilder að þau
myndu öll þrjú fara til Atlantic City. Þar hæf-
ist mikil fegurðarsamkeppni eftir þrjá daga og
myndi hann nota sér tækifærið til að kynnast
laglegiun stúlkum.