Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Síða 31
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 mák. Frá generalprufu á aöalleikvangi Ólympíuleikanna í Atlanta. DV-myndir KK Hluti hópsins sem fór til Atlanta frá ísl in eins og þeim hafði verið lofað við ráðninguna. Ekki voru allir jafn ánægðir með það. „Við fengum ekki að taka myndir af þjóðhöfðingjunum því við vorum meðal annars að passa þá fyrir að mæta til vinnu og þá eykst álag- ið á þá sem eftir eru. Við stjóm ör- yggisgæslu í hótelinu lagði ég þess vegna áherslu á að reyna að færa menn reglulega á milli verkefna til þess að gera starf þeirra fjölbreytt- ara en einnig þurfti að taka tillit til áhuga og hæfni einstakra manna. Sumir höfðu mikinn áhuga á að af- greiða dagpassa, sem var eitt flókn- asta og erfiðasta starfið, meðal ann- ars vegna þess hve oft blaðamönnunum. Þeir voru mjög aðgangsharðir og einn þeirra sagð- ist meðal annars vera mikilvægasti maður í heimi,“ segir Kristján. Lögreglumönnunum frá íslandi var boðið á generalprufu að opnun- arhátíðinni á aðalleikvanginum. Þeir fengu þó ekki að sjá íþrótta- mennina sjálfa heldur var opnunar- hátíðin sett á svið. Að sögn Krisjáns var Bill Clinton Bandarikjaforseti ekki á generalprufunni en sá sem lék hann gerði það listavel. „Ef stjórnandi sjálfboðaliða reyn- ir ekki að sinna þörfum þeirra er hætta á að þeir hætti reglur um aðgangsheimildir breyttust og leyndar sem hvíldi yfir sumum að- gangseinkennum. Aðrir vildu frek- ar starfa við sprengju- og vopnaleit eða á vöktum,“ segir Kristján. Að sögn Kristjáns var gistingin í Morehouse slæm en reynslan sem hann fékk í Atlanta vegur þyngra heldur en aðbúnaðurinn. Um helm- ingur hóps öryggisvarða var í Athens og fékk þar flna gistingu og gott fæði. Aðrir voru svo óheppnir að fá sama mat á hverjum degi og mjög lélegt fæði. -em Runólfur Þórhallsson lögreglumaöur gafst upp á óreiöunni í Atlanta. Aðbúnað urinn var i allt öðrum nótum held ur en var búið að ræða um í upphafi. Skólinn sem ís- lending- arnir gistu á var illa þrifinn og í herbergj- unum var talsvert af maur- um og pöddum. Það tók tals- vert langan tíma að komast til baka frá svæð- inu þar sem rút- umar héldu ekki áætlun. -em y Norræna VISA-bikarkeppnin í Gausdal: íslendingarnir röðuðu sér í efstu sætin - Margeir efstur og Þröstur náði langþráðum áfanga Margeir Pétursson stórmeistari og Svíinn Tiger Hillarp- Persson fengu 7 vinninga af 9 mögulegum á minningarmótinu um Arnold J. Eikrem í Gausdal í Noregi, hálfum vinningi meira en næstu ménn. Margeir hafði betri stigatölu en Sví- inn óþekkti og hreppti því efsta sæt- ið. Sigur Margeirs kemur ekki á óvart ef litið er til fyrri afreka hans á slóðum Péturs Gauts í Noregi. Margeir hefur oftsinnis sigrað á Gausdal-mótunum og gott ef hann á ekki staðarmetið, 8,5 vinninga af 9 mögulegum. í lokaumferðinni gerðu Margeir og Þröstur Þórhallsson stutt jafn- tefli. Þar með innsiglaði Þröstur hækkun um tíu Elo-stig á mótinu, sem fleytir honum væntanlega yfir 2500 stiga múrinn. Með því er lang- þráður draumur Þrastar um stór- meistaratign að verða að veruleika. Hann hefur náð tilskildum áföngum að stórmeistaratitli og hefur einung- is beðið þess að uppfylla skilyrði um lágmarksstigatölu. Tveimur af þremur áfóngum sínum náði Þröst- ur einmitt i Gausdal en þeim þriðja í Oakham í Englandi. Trúlega verð- ur hann tekinn i stórmeistaratölu á þingi FIDE í Armeniu í haust, sem haldið er samhliða ólympíuskák- mótinu. Hann yrði þá níundi stór- meistari íslendinga. Norðmenn og Islendingar höfðu fjölmennustu sveitina í Gausdal. Af norrænum frændum vorum tefldu nokkrir sænskir kappar þar einnig en Lars Bo Hansen einn Dana og Heikki Westerinen einn Finna. ís- lendingar áttu fimm af fimmtán stórmeisturum mótsins og röðuðu þeir sér i efstu sætin. Jafnir í 3.-8. sæti, á eftir Margeiri og Hiflarp- Persson, komu Helgi Ólafsson, Jó- hann Hjartarson, Helgi Áss Grétars- son og Þröstur Þórhaflsson, auk norska stórmeistarans Rune Djur- huus og ísraelsmannsins Ronen Har-Zvi. Þeir fengu 6,5 vinninga. í 9.-12. sæti með 6 vinninga komu Einar Gausel, Simen Agdestein, Heikki Westerinen og Igor Rausis með 5,5 v. í 13.-19. sæti komu Hann- es Hlífar Stefánsson, Peter Heine Nielsen, Jonathan Tisdall, Berge Östenstad, Helge Gundersen, Stig Gabrielsen og John Wallace, allir með 5,5 v. Torfi Leósson hlaut 4 vinninga. Á mótinu tefldu 66 kepp- endur. Mótið var þriðja í röðinni í nor- rænu VISA-bikarkeppninni. Fjórða mótið verður hluti af Rilton-Cup í Stokkhólmi um áramótin, fimmta mótið fer fram í Þórshöfn í Færeyj- um í febrúar á næsta ári en úrslita- keppnin fer fram í Reykjavík haust- ið 1997. Þar tefla þeir þrettán sem flestum stigum hafa safnað, auk sér- staks boðsgests. Að loknum þremur mótum er staða fjórtán efstu í bikar- keppninni þessi: 1. Tiger Hiflarp-Persson 43 stig. 2. Margeir Pétursson 42,5 stig. 3. Curt Hansen 37 stig. 4. Simen Agdestein 35,5 stig. 5. Jóhann Hjartarson 35,17 stig. 6. Jonathan Tisdall 29 stig. 7. Jonny Hector 24,17 stig. 8. Rune Djurhuus 24 stig. 9. Einar Gausel 23,67 stig. 10. Helgi Áss Grétarsson 22 stig. 11. Helgi Ólafsson 22 stig. 12. Hannes H. Ste.fánsson 21,5 stig. 13. Þröstur Þórhallsson 19 stig. 14. Nikolaj Borge 17 stig. Svíinn Hiflarp-Persson kom ræki- lega á óvart á opna mótinu í Kaup- mannahöfn i júní og bætti nú um betur í Gausdal. Hann hefur þótt farsæll í skákum sínum og stundum er eins og hann hafi náð að dáleiða andstæðinga sína. Þetta var raunar einnig sagt um mótherja Mikhails Tals . . . í lokaumferðinni lagði Hiflarp- Persson Hannes Hlífar að velli, eftir að okkar maður lék sig i mát - að vísu í erfiðri stöðu. Grípum niður í taflið, Hiflarp-Persson hafði svart og átti leik: 25. - Hf5! 26. Rc6? Nauðsynlegt er 26. h3 en eftir 26. - axb5 er svarta taflið vænlegt. 26. - Rg3+! - Og Hannes gaf, því að 27. hxg3 Hh5 er mát. íslensku stórmeistararnir tefldu grimmt innbyrðis og gáfu engin grið. Margeir lagði t.a.m. Helga Ólafsson að velli (og náði þannig að hefna harma sinna frá íslandsmót- inu í vor) og Hannes Hlífar í mikil- vægri skák í næstsíðustu umferð. Hannes varö aö játa sig sigraðan eft- ir 68 leiki en lengstum var útlit fyr- ir jafntefli. Hér er íslensk stór- meistaraglíma, þar sem endalokin eru snaggaraleg. Hvítt: Helgi Ólafsson Svart: Jóhann Hjartarson Enskur leikur. 1. Rf3 Rf6 2. c4 c5 3. Rc3 e6 4. g3 b6 5. Bg2 Bb7 6. 0-0 d6 7. d4 cxd4 8. Dxd4 a6 9. Hdl Be7 10. Rg5 Bxg2 11. Kxg2 Rc6 12. Df4 0-0 13. b3 Ha7 14. Rf3 Hd7 15. Bb2 Da8 16. Re4 Re8 17. Hacl h6 18. g4!? f5 19. gxf5 Hxf5 20. De3 Rd8 21. Kgl Db7 22. Hd3 Bf8 23. Hcdl g5? í þrengri og eilítið lakari stöðu sofnar Jóhann á verðinum. 24. Re5! Hh7 Riddarann má ekki taka vegna leppunarinnar á d-línunni en úr vöndu er að ráða. Ef 24. - Hg7 gæti teflst 25. Rxd6! Rxd6 26. Hxd6 Bxd6 27. Hxd6 og svartur á í miklum kröggum. 25. Rg6 Einnig var mögulegt að fórna á d6, sbr. afbrigðið að framan en með þessum leik, sem grefur undan d- peðinu svarta, tryggir hvítur sér ör- ugga vinningsstöðu. 25. - Rf7 26. Rg3! - Og Jóhann kaus að gefast upp. Hrókur f5 í uppnámi og peðið á e6. Borgarskákmótið í Ráðhúsinu Á morgun, sunnudag, kl. 15 hefst Borgarskákmótið í Ráðhúsinu í Reykjavík með því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri leik- ur fyrsta leikinn. Taflfélagið Hellir og Taflfélag Reykjavíkur sjá um mótið í sameiningu, sem haldið er í tilefni af afmælisdegi borgarinnar. Tefldar verða hraðskákir með 7 mínútna umhugsunartima og er öll- um frjálst að koma og fylgjast með. Helgarskákmót TR Taflfélag Reykjavíkur stendur fyrir helgarskákmóti dagana 23.-25. ágúst í húsnæði félagsins í Faxafeni 12. Fyrstu þrjár umferðirnar verða með atskákarsniði (30 mínútur á keppanda) en þær síðari með 90 mínútna umhugsunartíma á kepp- anda á 30 leiki, síðan 30 mínútur til að ljúka skákinni. Fyrstu verðlaun verða tuttugu þúsund krónur og hærri ef þátttaka verður góð. Helgarskákmót með svipuðu sniði hafa notið mikilla vinsælda undanfarin misseri. -JLÁ V SVAR M 903 j 5670 ll Aöeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.