Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Síða 35
unglingaspjall
LAUGARDAGUR 17. ÁGUST 1996
Ur sjónvarpi
í kvikmyndir
Allison Joy Langer, sem leikur í
þáttunum My So-Called Life, er á
miklu flugi um þessar mundir.
Reyndar byrjaði hún að fljúga að-
eins átta ára gömul eftir að hafa
horft á Mary Poppins í fyrsta sinn.
setadóttur sem hleypst á brott með
glæponi.
Langer, sem nú er 22ja ára, býr í
heimahúsum í San Fernando í Kali-
forníu. Hún hefur átt kærasta síðan
árið 1992, Frith-Smith, nýútskrifað-
Hér er Allison Joy ásamt fjölskyldu sinni í hengirúmi heima hjá sér. Bróö-
irinn Kirk, Aliison, móðirin Deana og faöirinn Gary.
Þá langaði hana að fljúga, tók regn-
hlíf og fór út á svalir heima hjá sér.
Kirk bróðir hennar, sem þá var tíu
ára, stóð fyrir neðan og hvatti hana
óspart. Hún stökk en sem betur fer
meiddist hún ekki.
Nú er nýbyrjað að sýna vestan-
hafs myndina Escape from L.A. sem
Langer leikur í. Þar leikur hún for-
an í lögum og félagsvísindum.
„Við höfum talað saman á hverj-
um degi í fjögur ár. Hann er besti
vinur minn, minn betri helmingur á
margan hátt. Við áformum að gifta
okkur innan fimm ára.“
Frith-Smith er alveg viss um að
Allison sé sú rétta fyrir hann. „Við
ætlum að vera saman alla ævi.“
Allison Joy Langer og unnustinn Frith-Smith eru mjög ástfangin og gera ráð
fyrir aö vera saman alla ævi.
Katla Rós Gunnarsdóttir, 15 ára ævintýraunglingur í Reykjavík:
Fer til Afríku í sex mánuði
s
hin hliðin
Skemmtilegast að sofa hjá
- segir Þorsteinn Hreggviðsson (Þossi)
Katla Rós Gunnarsdóttir, 15 ára
unglingur í Reykjavík, er ævintýra-
manneskja í meira lagi enda hefur
hún kynnst útlöndum og búið í Sví-
þjóð í tíu ár. Hún er nú búin með
skólaskylduna og er á leið til Afríku
ásamt vinkonu sinni og mömmu
hennar og ætlar að dveljast með
þeim hjá vinafólki og eyða tímanum
við leik og störf í sex mánuði. Katla
mun sækja enskan skóla og ferðast
um Afríku þegar tækifæri gefast.
Katla er á fuUu að undirbúa ferðina
og hlakkar mikið til.
„Við ætlum að búa á sama stað
rétt fyrir utan höfuðborgina í
Gambíu fyrstu fjóra mánuðina og
ferðast svo um. Ég verð að safna
mér fyrir þessari ferð sjálf og eiga
fyrir flugferðinni þó að pabbi hjálpi
mér líka. Ég ætla líka að heimsækja
vini mína í Svíþjóð í mánuð áður en
ég fer til Gambíu, ég sakna þeirra
mikið,“ segir Katla.
Katla fluttist með mömmu sinni
til Svíþjóðar þegar hún var nokk-
urra ára gömul og hefur komið til
íslands á hverju sumri til að heim-
sækja pabba sinn og ættingja. Fyrir
rúmu ári fluttust þær mæðgumar
aftur til íslands eftir að hafa búið í
Lundi í nokkur ár. Mamma Kötlu
býr í Grindavík en Katla býr hjá
pabba sínum í Reykjavík. Hún lauk
samræmdu prófunum í vor og hafði
þá verið einn vetur í íslenskum
skóla, áður hafði hún afltaf verið í
sænskum skóla.
-En hvaða munur ætli sé á því að
búa í Svíþjóð og íslandi?
„Það eina sem ég tók eftir að var
munurinn á íslandi og Svíþjóð var
skólakerfið, það var betra úti,“ seg-
ir Katía sem lenti í Hlíðaskóla og
hafði sama kennara og pabbi henn-
Katla Rós Gunnarsdóttir hefur lokiö samræmdu prófunum og ætlar aö fara
til Gambíu í Afríku í haust meö vinkonu sinni og móöur hennar og dveljast
ar hafði haft.
„Maður fékk allt ókeypis í skólan-
um úti, mat, penna, strokleður,
reiknivélar og hækur þó að það sé
kannski ekki alltaf gott. Á íslandi
þarf maður að hugsa betur um sjálf-
an sig og borga sjálfur fyrir stíla-
bækur, penna og það sem maður
þarf til skólans," segir hún en telur
sig ekki hafa lært neitt betur í Sví-
þjóð, kannski „aðeins betur."
Katla segir að íslenskir krakkar
vinni mun meira á sumrin en
sænskir krakkar. Þau megi ekki
vinna fyrir 16 ára aldur og eyði því
sumrunum í ferðalög með foreldr-
um sínum og njóti sumarleyfisins.
-GHS
„Þetta getur verið ágætt og létt-
ara en að byggja bílastæðahús,"
i' segir Þorsteinn Hreggviðsson,
( þekktari undir nafninu Þossi, út-
varpsmaður á X-inu, um það
| hvernig honum líki starfið.
Þossi hefur verið á X-inu síðast-
liðin þrjú ár og sér um þáttinn í
klóm drekans. Hann á fjölmörg
áhugamál, svo sem tónlist og kvik-
myndir, auk þess sem líkamsrækt
og áhættuíþróttir eru ofarlega á
vinsældalistanum.
Fullt nafn: Þorsteinn Hregg-
viðsson.
Fæðingardagur og ár: 4. febrú-
i; ar 1970.
Kærasta: Kristjana.
Börn: Engin.
Bifreið: VW Golf, árgerð 1995.
Starf: Útvarpsmaður.
Laun: Misjöfn.
Áhugamál: Eitt og annað, til
dæmis tónlist, líkamsrækt,
áhættuíþróttir og kvikmyndir.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Nei.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera? Að sofa hjá.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Að vaska upp.
Uppáhaldsmatur: Kalkúnn
með meðlæti eins og hjá mömmu.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Sigurbjöm Bárð-
arson.
Uppáhaldstímarit: Hustier -
Barely Legal.
Hver er fallegasta kona sem
þú hefur séð fyrir utan maka?
Hún stendur við hliðina á mér.
Ertu hlynntur eða andvígur
ríkisstjómínni? Hef enga skoðun
á því.
Hvaða persónu langar þig
mest að hitta? Judge Dredd.
Uppáhaldsleikari: A1 Pacino í
Scarface.
Uppáhaldsleikkona: Vinona
Ryder.
Uppáhaldssöngvari: Simmi
Sam.
Uppáhaldsstjómmála-
maður: Enginn.
Uppáhaldsteikni-
myndapersóna: Lobo eða
Judge Dredd.
Uppáhaldssjónvarps-
efni: Southbank Show.
Uppáhaldsmatsölustað-
ur: Kentucky Fried Chicken.
Hvaða bók langar þig
mest að lesa? Kóraninn.
Hver útvarpsrásanna
finnst þér best? X-ið.
Uppáhaldsútvarpsmaður:
Þossi.
Hvaða sjónvarpsstöð
horfir þú mest á? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarps-
maður: Eggert Skúlason
af því að hann er svo lík-
ur Bigga.
Uppáhalds-
skemmtistaður:
Skipperinn.
Uppá-
haldsfélag í íþróttum: Manchest-
er United.
Stefnir þú að einhverju sér-
stöku í framtíðinni? Að lifa líf-
inu í botn.
Hvað ætlar þú að gera í sum-
arfríinu? Ég fer trúlega til út-
landa en er ekki búinn að
ákveða hvert.
-ÞK
Þorsteinn Hreggviösson (Þossi) stefnir aö því aö lifa lífinu í botn.
DV-mynd