Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Síða 46
54
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
Afmæli____________________________
Erlingur Kristinn Stefánsson
Erlingur Kristinn Stefánsson
framkvæmdastjóri, Hryggjarseli 15,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Erlingur útskrifaðist sem vél-
virki frá Iðnskólanum í Reykjavík
árið 1967. Á árunum 1967-70 starf-
aði hann við uppbyggingu á Álver-
inu í Straumsvík á vegum Sindra-
smiðjunnar. Á árunum 1970-71 bjó
hann og starfaði hjá Dillenger
Staubau í Essen í Þýskalandi við
byggingu á álveri.
Eftir að Erlingur fluttist aftur til
Islands starfaði hann hjá Sindra-
smiðjunni 1971-73; hjá Vélsmiðju
Gísla Guðlaugssonar 1973-75 og í
Vélsmiðju Guðjóns Ólafssonar
1975-77.
Árið 1977 stofnaði Erlingur
ásamt tveim öðrum aðilum Vél-
smiðjuna Jámverk hf. og rekur
hann hana í dag.
Erlingur hefur verið í Oddfellow-
reglunni frá 1983.
Fjölskylda
Erlingur kvæntist 1967 Erlu Ott-
ósdóttur, f. 6.4. 1945, bankafulltrúa.
Foreldrar hennar voru Ottó Guð-
jónsson frá Vopnafirði, f. 1.8.1898,
og Guðbrandína Tómasdóttir úr
Dalasýslu, f. 31.8. 1899.
Þau eru bæði látin.
Börn Erlings og Erlu
eru Andrés Erlingsson,
f. 6.3. 1968, í sambúð
með Gyðu Sigurlaugs-
dóttur og eiga þau eina
dóttur, Þorgerði Erlu, og
em búsett í Reykjavík;
og Guðbrandur Erlings-
son, f. 23.11. 1972, í sam-
búð með Jessicu Larsen
og em þau búsett í Sví-
þjóð.
Systkini Erlings eru
Stella Stefánsdóttir hús-
móðir, búsett í Reykjavík; Helga
Stefánsdóttir framreiðslukona, bú-
sett í Reykjavík; Guðmundur Kr.
Stefánsson vélvirki, búsettur i
Reykjavík, og Albert Stefánsson
sjúkraliði, búsettur á Selfossi.
Foreldrar Erlings: Stefán Viktor
Guðmundsson, f. 3.2. 1912, d. 25.1.
1993, sjómaður og Jóna Erlingsdótt-
ir, f. 21.10. 1914, húsmóðir. Þau
bjuggu í Reykjavík en Jóna býr nú
á Skjóli.
Ætt
Erlingur er sonur Stef-
áns, sjómanns i Reykja-
vík, bróður Njáls, fyrrv.
skólastjóra á Akranesi,
og Bjama, fyrrv. yfirum-
sjónarmanns Pósts og
síma. Stefán er sonur
Guðmundar, skipstjóra í
Reykjavík, Bjarnasonar,
útvegsb. í Dalshúsum í
Önundarfirði, Jónssonar.
Móðir Guðmundar var
Rósamunda Guðmunds-
dóttir. Móðir Stefáns var
Sólveig Steinunn Stefánsdóttir, b. á
Stóru-Vatnsleysu á Vatnsleysu-
strönd, Magnússonar.
Móðir Erlings er Jóna, systir
Bertils málara og Alberts, málara-
meistara og kaupmanns í Reykja-
vík, afa Alberts Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Öryggismálanefndar.
Jóna er dóttir Erlings, b. á Stóm-
Dragá í Skorradal, Jóhannessonar,
b. á Þyrli, Engjalandi og á Indriða-
stöðum, Torfasonar, b. á Valdastöð-
um, Guðlaugssonar. Móðir Jóhanns
var Málfríður Einarsdóttir. Móðir
Málfríðar var Þórunn Bjömsdóttir,
b. á Fremra-Hálsi og á írafelli í
Kjós, Stefánssonar, og konu hans,
Úrsúlu, systur Helgu, ömmu Gísla,
afa Gíslínu, sem var langamma
Össurar Skarphéðinssonar þing-
flokksformanns og Kristjönu,
ömmu Þráins Bertelssonar kvik-
myndagerðarmanns. Loks var
Helga langamma Halldóru,
langömmu Styrmis Gunnarssonar,
ritstjóra Morgunblaðsins. Úrsúla
var dóttir Jóns, b. á Fremra- Hálsi,
ættföður Fremra-Hálsættarinnar,
Ámasonar. Móðir Jónu Erlings-
dóttur var Kristín, dóttir Erlends
Magnússonar, b. á Kaldárbakka í
Skorradal, og Ragnhildar Bergþórs-
dóttur.
Erlingur Kristinn
Stefánsson.
Elín Kjartansdóttir
Elín Kjartansdóttir, verslunar-
og handverksmaður, Norðurhlíð,
Aðaldælahreppi, er fertug í dag.
Starfsferill
Elín er fædd á Brúna-
laug í Eyjafirði en ólst
upp á Akureyri. Hún
gekk í bamaskóla og
gagnfræðaskóla á Akur-
eyri og hefur síðan sótt
ýmis námskeið í vefnaði,
ullarvinnu og ýmsu
fleiru. Elín hefur unnið í
frystihúsum, á leikskóla,
á hjúkrunarheimili, við
skinnaverkun, við leður-
saum, við skógerð, í slát-
urhúsi, í verslun og við
landbúnaðarstörf.
Hún rekur verslunina Gljúfrabú
við Laxárvirkjun á sumrin en á
veturna Tóverið Tumsu heima í
Norðurhlíð. Elín hefur tekið þátt í
handverkssýningum hér á landi og
í Svíþjóð auk þess að sýna ein í
Ýdölum í Aðaldal, Vín í Eyjafirði
og Hlaðvarpanum í
Reykjavík. Elín hefur
starfað með Alþýðu-
bandalaginu og verið í
leikfélögum og kórum.
Elín hefur búið á Akur-
eyri, í Biskupstungum, á
ísafirði og í Aðaldal.
Elín mun giftast á af-
mælisdaginn, 17.8. 1996,
Agnari Kristjánssyni, f.
11.10. 1948, bónda. Hann
er sonur Kristjáns Jón-
atanssonar, bónda í
Norðurhlíð, og Friðriku
Stefánsdóttur húsfreyju.
Agnar á tvo syni; Kristján Jakob
Agnarsson, f. 13.4. 1973 og Magnús
Reyr Agnarsson, f. 21.5. 1975.
Fyrri maður Elínar var Róbert
Róbertsson. Þau skildu. Synir Elín-
ar og Róberts: Ingimundur Róberts-
son, f. 27.4. 1975, Kjartan Róberts-
son, f. 17.7. 1979 og Róbert Stefán
Róbertsson, f. 5.6. 1981.
Systkini Elinar eru Einar Kjart-
ansson, f. 15.1. 1952, jarðeðlisfræð-
ingur, búsettur í Reykjavík; Árni
Kjartansson, f. 13.6.1953, vélvirki,
búsettur í Kópavogi; Ólafur Kjart-
ansson, f. 11.2.1955, vélvirki, bú-
settur á Akureyri; Amfríður Kjart-
ansdóttir, f. 17.11. 1960, sálfræðing-
ur, búsett i Danmörku; Yngvi
Kjartansson, f. 7.4.1962, dagskrár-
gerðarmaður, búsettur á Akureyri;
Jóhann Ragnar Kjartansson, f. 13.4.
1964, stálskipasmiður, búsettur í
Kópavogi og Óttar Kjartansson, f.
16.1.1973, leiðsögumaður, búsettur
á Akureyri.
Foreldrar Elínar em Kjartan
Jónsson, f. 12.6. 1928, fyrrv. skrif-
stofumaður og Hlif Einarsdóttir, f.
19.11. 1930. Þau eru skilin og býr
Kjartan í Reykjavík og Hlíf á Akur-
eyri.
Ætt
Foreldrar Kjartans voru Jón
Ólafur Jónsson og Amfríður Ingv-
arsdóttir á Isaflrði. Foreldrar Hlíf-
ar voru Einar Jörundur Helgason
og Jónasína Sveinsdóttir, Holtakot-
um, Biskupstungum, Árnessýslu.
Elín mun ganga í hjónaband með
Agnari Kristjánssyni á afmælisdag-
inn. Prestur verður séra Sigurður
Ægisson, Grenjaðarstað, og mun
athöfnin fara fram uppi á Þeista-
reykjum þar sem er gangnamanna-
kofi Aðaldælinga.
Elín Kjartansdóttir.
Sigrún Konráðsdóttir
fjallaferðum og hefur
starfað með Hjálparsveit
skáta í Reykjavík sl. 10
ár. Einnig hefur Sigrún
verið fararstjóri hjá
Ferðafélagi íslands und-
anfarin 6 ár.
Fjölskylda
Eiginmaður Sigrúnar
er Ólafur Kr. Guðmunds-
son, f. 6.8. 1956, tölvuráð-
gjafi og forseti LÍA. Hann
er sonur Guðmundar
Guðmundssonar blinda
í Víði og Ólafíu Ólafs-
dóttur. Þau bjuggu í
Reykjavík.
Börn Sigrúnar og Ólafs
eru Þorsteinn K. Ólafs-
son, f. 25.7.1975, nemi;
Guðmundur B. Ólafs-
son, f. 5.4. 1982, og Lóa
Sigga Ólaísdóttir, f.
11.11. 1983.
Systkini Sigrúnar:
Vilmar Kristinsson, f.
Sigrún Konráðs-
dóttir.
Oskar Jensen
Sigrún Konráðsdóttir, skrifstofu-
maður hjá Habitat, Viðarrima 45,
Reykjavík, er fertug í dag.
Starfsferill
Sigrún er fædd og uppalin í
Reykjavík. Hún starfaöi sem skrif-
stofumaður hjá Viðju, var aðstoðar-
rannsóknarmaður hjá Líftækni-
deild Iðntæknistofnunar, var versl-
unarstjóri hjá F&A og starfar nú
sem skrifstofumaður hjá Habitat.
Sigrún er mikið tengd útiveru og
Óskar Jensen prentari, Þinghóls-
braut 28, Kópavogi, er níræður á
morgun.
Starfsferill
Óskar er fæddur á ísafirði og bjó
þar til sjö ára aldurs. Þaðan fluttist
hann til Þórshafnar í Færeyjum
þar sem hann ólst upp hjá Tomas
og Julianne Askam. Hann fluttist
aftur til íslands 19 ára eftir að hafa
lært prentiðn í Færeyjum. Hann
vann ýmis störf eftir komuna til ís-
lands en hóf störf við prentsmiðj-
una ísrún á ísafirði 1931 og starfaði
þar til 1945 er hann fluttist ásamt
íjölskyldu sinni til Önundarfjarðar
og stundaði þar búskap til 1952.
Árið 1953 flutti Óskar til Dan-
merkur ásamt konu sinni og yngra
syni og starfaði þar við prent-
smiðju í Kaupmannahöfn. Hann
flutti aftur til Islands 1956 og hóf
störf við Prentsmiðju ísafoldar þar
sem hann starfaði til 1977 með 4
ára hléi þegar hann starfaði í Al-
þýðuprentsmiðjunni.
Óskar hefur búið á Þinghóls-
braut 28 í Kópavogi frá 1957.
Fjölskylda
Eiginkona Óskars var Hansína
Hannibalsdóttir, f. 22.10.1905, d.
27.9. 1995, húsmóðir. Foreldrar
hennar voru Hannibal Hálfdánar-
son og Guðrún Sveinsdóttir, búsett
í Önundarfirði.
Böm Óskars og Hansínu: Aðal-
heiður, f. 24.11. 1931, búsett í
Bandaríkjunum og á einn son;
Gústaf, f. 3.7. 1933, kvæntur Krist-
björgu Markúsdóttur, þau eru bú-
sett á ísafirði og eiga sjö börn; Mál-
fríður Guðrún, f. 5.2. 1935, ekkja,
búsett í Danmörku og á tvo syni;
Anna Júlía, f. 28.3. 1940, gift Guð-
5.6. 1948, flugstjóri hjá Flugleiðum;
Þorsteinn Konráðsson, f. 6.5. 1951,
d. 11.11. 1959; Marta Konráðsdóttir,
f. 15.12. 1953, líffræðingur, og Stein-
unn Ósk Konráðsdóttir, f. 8.11.
1963, húsfrú.
Foreldrar Sigrúnar: Konráð Þor-
steinsson, f. 31.8.1917, d. 10.3.1978,
kaupmaður, og Steinunn Vilhjálms-
dóttir, f. 1.5. 1930. Þau bjuggu í
Reykjavík.
Það verður haldið sameiginlega
upp á afmæli þeirra hjóna þann
24.8.
mundi V. Ottósyni, þau búa í Kópa-
vogi og eiga fjögur böm; Ómar, f.
25.7. 1949, kvæntur Ólafíu Sigur-
garðsdóttur, þau búa í Kópavogi og
eiga þrjár dætur.
Systkini Óskars: Amalía,
Brynjólfina, Magnús, Kristensa,
Herta Vigant, Napoleon Ársæll.
Þau eru öll látin.
Foreldrar Óskars vora Jens Frið-
rik Jensen, f. í Sandey í Færeyjum,
sjómaður, og Málfríður Magnús-
dóttir. Þau bjuggu á ísafirði.
Óskar tekur á móti gestum í
Perlunni á afmælisdaginn kl.
15.00-18.00.
Til hamingju
með afmælið
17. ágúst
80 ára
Greipur Ketilsson,
Grænumörk 1, Selfossi.
Þorbjörg S. Maher,
Álfaheiði lc, Kópavogi.
Sigtryggur Albertsson,
Vallholtsvegi 17, Húsavík.
Freddy Laustsen,
Furugerði 1, Reykjavík.
75 ára
Guðrún Margrét Ámadótt-
ir,
Vík, Bakkafirði.
Guðmundur Árnason,
Brekkugeröi 34, Reykjavík.
Anna Óskarsdóttir,
Laufvangi 2, Hafharfirði.
60 ára
Sigurþór Hreggviðsson,
Bakkastíg 4, Eskifirði.
Ásdís Pálsdóttir,
Suðurbraut 24, Hafnarfirði.
Áslaug Kristjánsdóttir,
Skaftahlíð 8, Reykjavik.
Áslaug og eiginmaður henn-
ar, Guttormur Sigurbjamar-
son, verða að heiman á af-
mælisdaginn.
Bragi Guðmundsson,
Kambahrauni 26, Hveragerði.
Bragi verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Guðmundur Kristinsson,
Látraströnd 7, Seltjarnamesi.
Trausti Kristjánsson,
Einiholti 2, Biskupstungna-
hreppi.
Ferdinand Ferdinandsson,
Lykkju 2, Kjalamesheppi.
Bragi Eiríksson,
Hellulandi 17, Reykjavík.
50 ára
Jóhanna Jensen,
Hólavangi 26, Hellu
Kjartan Óskarsson,
Heinabergi 11, Þorlákshöfn.
Gunnar Örnólfur Hákonar-
son,
Sunnubraut 26, Akranesi.
Auðunn Hálfdánarson,
Þórðargötu 12, Borgarbyggð.
Methúsalem Þórisson,
Fálkagötu lOa, Reykjavík.
Sigurðm1 Jónsson,
Þormóðsgötu 32, Siglufirði.
40 ára
Valgerður Jónsdóttir,
Ranavaði 2, Egilsstöðum.
Sveinbjörg Stefánsdóttir,
Hrafnakletti 2, Borgarbyggð.
Sigríður Hjaltadóttir,
Álfheimum 52, Reykjavík.
Jóhann Valgeir Jónsson,
Þórustig 3, Reykjanesbæ.
Sigriður J. Guðmundsdóttir,
Sörlaskjóli 94, Reykjavík.
Flosi Magnússon,
Bakkatúni, Vesturbyggð.
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Smáauglýsingar
550 5000