Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Side 6
6 LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 útlönd _ Nauðgari yfirheyrði fórnarlamb sitt í sex daga í breskum réttarsal: Fullnægði öfuguggahætti sínum frammi fyrir dómara Sex daga yfirheyrsla nauðgara yfir fómarlambi sinu í breskum réttarsal hefur vakið gífurleg við- brögð í Bretlandi og háværar kröfur um breytingu á þeim lögum sem heimiluðu manninum að sjá sjálfur um vörn sína í málinu. „Mér hefur verið nauðgað tvisvar. Einu sinni í skítuga gren- inu hans og svo aftur frammi fyrir dómara og kviðdómi í breskum rétt- arsal," sagði hin 34 ára Julia Mason eftir að réttarhöldin voru afstaðin. Misyndismaðurinn, Ralston Ed- wards, var á fimmtudag fundinn sekur um að hafa nauðgað Mason tvisvar meðan hann hélt henni fang- inni í íbúð sinni í London í 18 klukkustundir. Mason, sem tók þá óvenjulegu stuttar fréttir ÍSkrifuðu undir Júgóslavar og Króatar skrif- uðu undir gagnkvæma viður- kenningu og lýkur með henni fimm ára fjandskap og þykir hún mikilvæg fyrir stöðugleika á Balkanskaga. Batamerki Læknar sem annast hina 86 ára móður Theresu sögðust sjá batamerki en hún hefur þjáðst af malaríu og hjartveiki. Lofaði fundi Benjamin Netanyahu, forsæt- isráðherra ísraels, lofaði rikis- stjórnarfúndi i þeim tilgangi að hefja aftur viðræður við Frelsis- samtök Araba, PLO. íhuga kæru Lögregla í Michican íhugar að kæra Jack Kevorkian lækni fyrir að hafa hjálpa tveimur MS- sjúk- lingum að fremja sjálfsmorð. Hætti hindrunum Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna sagði írökum að hætta að hindra vopnaeftirlitsmenn sem leita að földum vopnum sem taiið er að séu flutt miÚi staða. Boðar kosningar Costas Simitis, forsætisráð- herra Grikklands, hefur beðið forseta landsins að leysa upp þingið og boða til kosninga 22. september. Neita að ræða Rannsóknaraðilar flugslyss- ins, þar sem TWA-þotan hrapaði undan strönd Bandaríkjanna með 230 manns, neituðu að ræða fréttir um að efnaleifar hefðu fundist sem bentu til að sprengja hefði sprungið um borð. Reuter Kauphallir erlendis: Metin fuku í London - vaxtalækkun í Evrópu Sögulegt met var slegið tvisvar sinnum í kauphöllinni í London í vikunni, fyrst á þriðjudag og síðan á fimmtudag. FT-SE 100 hlutabréfa- vísitalan hækkaði stöðugt og þegar viðskiptum lauk á fimmtudags- kvöldið stóð talan í 3891 stigi. Helsta ástæða hækkunarinnar er óvænt ákvörðun þýska seölabankans að morgni fimmtudags um að lækka endurkaupavexti um 30 punkta. Fjölmörg ríki í Evrópu fylgdu í kjöl- farið og lækkuðu vexti. Almennt séð þá hækkuðu hluta- bréfavísitölur í helstu kauphöllum heims í vikunni. Dow Jones var að- eins 45 stigum frá sögulegu hámarki frá maí sl. þegar viðskiptum lauk í Wall Street á fimmtudag. -Reuter ákvörðun að láta hefðbundna nafn- leynd lönd og leið svo að hún gæti sagt fjölmiðlum sögu sína, sagði að Edwards hefði fengið frekari full- nægingu út úr því að lítilsvirða hana í réttarsalnum. „Hann naut þess að sýna sig og fullnægði öfuguggahætti sínum með því að spyrja mig afar nærgöngulla spurninga um leyndustu líkams- hluta mína og hans. Þetta var sjúkt,“ sagði Mason i blaðaviðtali. Edwards hefur áður hlotið dóma fyrir kynferðisofbeldi gagnvart kon- um en samkvæmt breskum lögum mátti ekki UaUa um þau brot fyrir réttinum. Hann hlaut fangelsisdóm 1984 fyrir að nauðga nágranna sín- um og hefur þrisvar verið ákærður fyrir líkamsmeiðingar. Borís Jeltsín Rússlandsforseti vildi ekki hitta Alexander Lebed, fulltrúa sinn í málefnum Tsjetsjen- íu, þegar sá síðarnefndi kom til Moskvu í morgun. Skipti engu þó hann hefði vopnahlé og uppkast að pólitísku samkomulagi um framtíð- arsamskipti ríkjanna í farteskinu. Jeltsín vill fá skriflega skýrslu um ferð Lebeds og mun ekki hitta hann fyrr en í næstu viku þegar Lebed kemur úr seinni ferö sinni að sunn- Edwards, sem er 42 ára og hafði atvinnu af því að selja vændiskon- um smokka, rak verjanda sinn á fyrsta degi réttarhaldanna. Konan hafði ekki aðrar upplýsingar um framvinduna í réttarsalnum en þær að hann myndi einungis yfirheyra hana þegar hún kæmi í réttarsal- inn. Hún átti ekki von á sex daga kvalræði. „Mér varð hreint og beint flökurt. Hvernig getur svona lagað gerst? Það verður að breyta lögunum. Ég kæri mig ekki um að aðrar konur eigi á hættu að upplifa annað eins.“ Michael Howard innanrikisráð- herra sagðist skyldu rannsaka hvort breytinga væri þörf á um- ræddum lögum. Hann sagðist jafn áhugasamur og aðrir um þann lær- an. Rætt er að forsetinn ætli í frí í sveitum Rússlands næstu daga en það heldur enn lífi í efasemdum um heilsufar hans. Friðsamt var í Grosní, höfuðborg Tsjetsjeniu, fram eftir fyrsta degi vopnahlésins. Báðir aðilar höfðu samþykkt að flytja sveitir sínar til bækistöðva utan borgarinnar og að sjá sameiginlega um eftirlit með framkvæmd vopnahlésins. Jeltsín segist vilja frið í Tsjetsjen- dóm sem draga mætti af þessum málaferlum. Árið 1991 var breskum lögum breytt á þann hátt að hinir ákærðu sem sáu um eigin málsvörn máttu ekki yfirheyra meint fómarlömb ef börn áttu í hlut. Kvenréttindahópar hafa haft uppi háværar kröfur um að lögin eigi einnig að ná til kvenna þegar réttað er vegna nauðgana og ofbeldis. Konur fullyrða að reynsla Ma- sons muni letja konur til að kæra kynferðisglæpi í framtíðinni. „Þetta átti aldrei að eiga sér stað. Dómar- inn átti að stöðva réttarhöldin," sagði talsmaður baráttuhóps kvenna. Kveðinn verður upp dómur yfir Edwards í næstu viku. Reuter íu en hafnar alfarið kröfum skæru- liða um sjálfstæði. Stjórnmála- skýrendur era vantrúaðir á að hann muni gefa neitt eftir eftir niðurlæg- ingu Rússahers í Grosní á dögun- um. Lebed segist hins vegar reiðu- búinn að ræða sjálfsstjórn Tsjetsjena en þarfnast stuðnings Jeltsíns enda öflug andstaða við störf hans og meintan valdhroka innan Kremlar. Clinton ræðst gegn tóbaks- framleiðendum Bill Clinton Bandaríkjaforseti | samþykkti í gær ýmsar tak- | markanir gagnvart sölu og aug- lýsingum á tóbaki. Er þetta um- fangsmesta aðgerð sem boðuð hefur verið gegn tóbakframleiö- endum í meira en 30 ár eða síð- an heilbrigðisyfirvöld tengdu reykingar krabbameinsmyndun | árið 1964. Takmark Clintons er að stöðva það sem hann kallar til- . raunir tóbaksframleiðenda til að lokka ungt fólk tU að byrja að reykja. Samkvæmt þeim verður tóbaksframleiðendum bannað að hafa auglýsingaskUti nærri skólum og leikvöllum. Þá verða sett aldursskUyrði við sölu tó- baks, póstverslun með tóbak bönnuð, sala í sjálfsölum, ókeyp- is prufur, sjálfsafgreiðslustand- ar og sala á færri en 20 sígarett- : um í einu. Þá hefur Clinton hvatt til að fyrirtækjunum verði | bannað að gefa húfur, töskur og fleira með vörumerki sínu og verði einnig bannað að auglýsa á íþróttaviðburðum og skemmt- unum. Framleiðendur hyggjast berjast gegn þessum takmörkun- um fyrir dómstólum. Ljósmyndari frestar áfrýjun gegn Díönu Ljósmyndari í lausamennsku, sem dæmdur var fyrir að hund- elta Díönu prinsessu og sem gert var skylt að halda sig í að minnsta kosti 300 metra fjar- lægð frá henni, hefur hætt við að áfrýja dómnurn í bili. Ástæð- an er að hann hefur hafið af- plánun 12 vikna fangelsisdóms fyrir að hafa brotið rúðu í sendi- bil eftir rifrildi við bílstjórann. | Ljósmyndarinn, sem hefur hlot- iö refsidóma áður, ætlar hins vegar að áfrýja dómnum um leið og hann losnar. Diana sakar ljósmyndarann um að hafa elt sig á röndum á mótorhjóli sínu, ekið á bíl sinn í ákafanum og hrint sér þegar hún reyndi að hrifsa af honum filmu. Ljósmyndarinn vísar ásökunum Díönu á bug og full- yrðir að hann sé gerður að blóraböggli til að fæla aðra ljós- myndara frá prinsessunni. SPriebke slapp vegna klúöurs Nasistinn Erich Priebke slapp úr klóm þýskrar réttvísi árið 1971 vegna klúðurs við rann- sókn á meintum stríðsglæpum hans. Saksóknari í Þýskalandi fullyrðir að rannsóknaraðilar | hafi haft næg sönnunargögn undir höndum til að sakfella hann en vegna klúðurs hafi ekk- ert verið gert til að nálgast hann. Var máliö lagt á hilluna í 1971. | Herdómstóll á Ítalíu fann Priebke sekan um aðild að j fjöldamorðum nærri Róm í i seinni heimsstyröldinni en ; kvaðbt ekki getað refsað honum ; vegna fyrningarákvæða. Niður- j staðan vakti almenna reiði um heim allan. Þjóðverjar þrýsta nú : á aö fá Priebke framseldan. Enn grafið eftir fórnarlömbum Lögregla í Belgíu hélt í gær áfram uppgrefti í húsagörðum þar sem líkur eru taldar á að fórnarlömb kynferðisafbrota- 1 manna kunni að finnast, lífs eða ' liðin. Lögregla hefur nú sex manns í gæsluvarðhaldi vegna málsins sem vakið hefur óhug í Evrópu og vakið upp heita um- ræðu um öryggi barna. í gær var von á sérstökum röntgenbúnaði frá Englandi sem breska lögregl- an notaði við uppgröft í húsa- garði í Gloucester i fyrra þar sem 10 lík fundust grafin. Reuter Reuter ■1 |Jj - . : Kauphallir og vöruverð erlendis 5200 ' M A M J wm 3900 FTSE100 f 3800 — 3700 ^ nni 3600 3891,1 1 M A M J Nikkei ^OUUU , , A 11400 / 11200' 11000q 41UUU Yí 10600| 21363,24 10400 M A M J M .000 ^ B M A M J i 150 216 $/t M A M J 250 200 150 219 A 21,32 I tunnaM A M J PV| Um 1500 lögreglumenn i París beittu kylfum og táragasi í gær þegar þeir brutust í gegnum röö mótmælenda og rýmdu kirkju þar sem 300 innflytjendur hafa haldið til síöastliöna 10 daga, þar af 10 sem höföu veriö 50 daga í mót- mælasvelti. Var sveltandi fólkiö boriö út á börum meðan öörum, þar á meöal 100 börnum, var troöiö í sendibíla. Hin- um harkalegu aögeröum var mótmælt af vinstriöflum en fagnaö af hægriflokkum. Alain Juppé forsætisráöherra seg- ir innflytjendurna ekki uppfylla skilyröi um landvistarleyfi en hann muni af mannúðarástæöum endurskoöa hvert til- felli. Símamynd Reuter Jeltsín vildi ekki hitta Lebed

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.