Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 34
42
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 DV
tónlist
Topplag
Það entist ekki lengi hjá henni
Tracy Chapman. Hún var búin
að bíða í flmm vikur eftir því að
komast á toppinn en hélt svo sæt-
inu einungis í eina viku. Nú er
komið nýtt lag á toppinn, Mile
End, með Pulp, en lagið er úr
hinni frábæru mynd, Train-
spotting. Kannski endast Jarvis
Cocker og félagar hans úr Pulp .
á toppnum lengur en Tracy
Chapman.
Hástökkið
Hjartaknúsarinn og kynták-
nið sjálft, Bryan Adams, vill sko
að næturnar séu eitthvað til að
muna eftir. Um það syngur hann
í hinu ágæta lagi Letls Make a
Night to Remember. Það lag er
núna hástökk vikunnar.
Hæsta nýja lagið
Skjálfti fer nú um menn vest-
ur í Bandaríkjunum og reyndar
um allan heim þar sem kosið
verður um nýjan forseta í haust.
Það er því viðeigandi að forset-
ar Bandaríkjanna, The pres-
idents of the United States of
America, séu nú með hæsta nýja
lagið. Það heitir Dune Buggy.
Ætli þeir Bob og Bill viti af
þessu?
Bjór og
barsmíðar
Nez, bassaleikari bresku
hljómsveitarinnar Heavy Ster-
eo’s, liggur nú rúmfastur eftir
að hafa verið barinn til óbóta á
götu í Lundúnum fyrir nokkru.
Nez var á leið heim að kvöldlagi
með bjórdós í hendi þegar hon-
um öldungis ókunnugir menn
komu aövífandi og kröfðu hann
um bjórinn. Hann ansaði því
engu og réðust þá mennirnir
fyrirvaralaust á hann með bar-
smíðum og spörkum þannig að
hann vankaðist. Einhvem veg-
inn tókst honum að skreiðast
heim til sín nefbrotinn, rifinn og
tættur og þaðan var hann flutt-
ur á sjúkrahús. í allri umfiöllun
um þennan atburð hefur Nez lát-
ið það koma fram að þrátt fyrir
árásina hafi honum tekist að
halda hjórdósinni.
í boði á Bylgjunni á laugardag kl. 16.00
ís i LEl MSKI LISTINN NR. 184 vikuna 24.8. — 30.8. '96
Ss SlÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á LISTANUM TOi»l» 4®
G) 2 2 3 ...1. VIKA NR. 1... MILE END PULP (TRAINSPOTTING)
a> 1 2 8 GIVE ME ONE REASON TRACY CHAPMAN
3 4 4 6 MINTCAR CURE
<3> 6 6 6 WHERE IT'S AT BECK
Q> 10 10 4 BOOM BIDDY BYE BYE CYPRESS HILL 8i FUGEES
CD 9 (-) 2 MRS ROBINSON BON JOVI
7 3 1 8 LAY DOWN EMILÍANA TORRINI (ÚR STONE FREE)
(3> 8 7 8 NO WOMAN NO CRY FUGEES
9 16 20 3 WANNABE SPICE GIRL
10 1 ... NÝTT Á USTA ... DUNE BUGGY THE PRESIDENTS OF THE USA
NÝTT
11 5 11 6 FREE TO DECIDE CRANBERRIES
12 7 9 5 GOLDFINGER ASH
13 12 8 7 BORN SLIPPY UNDERWORLD (TRAINSPOTTING)
19 19 4 MISSING YOU TINA TURNER
15 11 14 5 A DESIGN FOR LIFE MANIC STREET PREACHERS
16 NÝTT 1 WOMAN NENAH CHERRY
Gz> 13 (-) 2 ABC SPOOKY BOOGIE
GD 20 (-) 2 FREEDOM ROBBIE WILLIAMS
19 17 17 5 CHANGE THE WORLD ERIC CLAPTON (THE PENOMENON)
21 22 3 WILD DAYS FOOL'S GARDEN
21 14 12 6 WHAT GOES AROUND COMES AROUND BOB MARLEY
(22) 29 31 4 SPINNING THE WHEEL GEORGE MICHAEL
23 ’ 15 5 7 OPNAÐU AUGUN ÞÍN KOLRASSA KRÓKRÍÐANDI
24 18 15 6 CANDY MAN EMILÍANA TORRINI
(2§) 1 YOU'LL BE MINE (PARTY TIME) GLORIA ESTEFAN
26 23 13 4 SUMARNÓTT GREIFARNIR
27 39 2 ... HÁSTÖKK VIKUNNAR... LET'S MAKE A NIGHT TO REMEMBER BRYAN ADAMS
28 24 16 7 ONLY HAPPY WHEN IT RAINS GARBAGE
(29) 30 - 2 NO SURRENDER DEUCE
(3Q) 27 21 14 THEME FROM MISSION: IMPOSSIBLE ADAM CLAYTON & LARRY MULLER
31 25 23 12 SOMEBODY TO LOVE JIM CARREY
(32) NÝTT 1 I AM, I FEEL ALISHA'S ATTIC
dD 34 35 4 DAY WE CAUGHT THE RAIN OCEAN COLOUR SCENE
34 33 25 10 MYSTERIOUS GIRL PETE ANDRE
(35) 36 38 3 TWISTED KEITH SWEAT
36 26 28 3 KAFFI TIL BRASILÍU STEFÁN HILMARS & MILUÓNAMÆRINGAR
NÝTT 1 GOODENOUGH DODGE
L.38. 31 26 9 THAT GIRL MAXI PRIEST & SHAGGY
I 39 28 | 24 4 IN TOO DEEP BELINDA CARLISLE
Es! NÝTT 1 HEAD OVER FEET ALANIS MORISSETTE
Slayer fyrir dóm
Þungarokksveitin Slayer og út-
gáfufyrirtæki hennar standa
frammi fyrir málaferlum vegna
nauðgunar og morðs á 15 ára gam-
alli stúlku. Liðsmenn Slayers
koma hvergi nærri sögu með bein-
um hætti heldur ungir liðsmenn
hljómsveitar sem kallaði sig
Hatred og hafði, að sögn foreldra
stúlkunnar, Slayer sem fyrir-
mynd. Sérstaklega höfðu piltam-
ir mikiö dálæti á lagi Siayer-
manna, Hell Awaits, sem inni-
heldur æði sóðalegan texta og er
kveikjan að árás piltanna á stúlk-
una að mati foreldra hennar.
Þetta ku vera í fyrsta sinn sem
hljómsveit er dregin fyrir dóm-
stóla, sökuð um aðild að morði
með textum sínum.
Smashing
Pumpkins ráða
Smashing Pumpkins hafa ráð-
ið trommuleikarann Matt Walker
í stað Jimmys Chamberlains en
það fylgir ekki fréttinni hvort um
varanlega eða tímabundna lausn
á trommuleikaramálum hljóm-
sveitarinnar er að ræða. Walker
kemur úr hljómsveitinni Filter
sem hitað hefur upp fyrir Smas-
hing Pumpkins á tónleikaferðum.
Þá hefur hljómborðsleikarinn
Dennis Flemion verið ráðinn til
að leika á tónleikum með Smas-
hing Pumpkins 1 stað Jonathans
heitins Melvoins.
Arthur Lee á
Hraunið?
Athur Lee, sem á árum áður var
forsprakki hinnar rómuðu hljóm-
sveitar Love, hefur verið dæmd-
iir í 12 ára fangelsi í Los Angeles.
Dóminn fær hann fyrir meðferð
ólöglegra vopna eins og það heit-
ir á fagmálinu. Lee á þess kost að
áfrýja málinu en til þess verður
hann að afla talsverðrar fjárupp-
hæðar sem hann hefur ekki hand-
bæra. Hljómsveit Lees, Love, var
upp á sitt besta á árunum 1965 til
1975 og gaf út nokkrar afbragðs-
góðar plötur. Ein þeirra, Forever
Changes sem kom út 1968, er enn
talin eitt af meistaraverkum rokk-
sögunnar.
-SþS-
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Cola á Islandi. Listinn erniðurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmd af markaðsdeild DVIhverri viku.
Fiöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV oo er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 á sunnudögum i sumar. Listinn er birtur, að hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski
listinn tekur þátt i vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express I Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music
& Media sem er rekið af bandaríska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón með skoöanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla:, Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Agúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór BacKman
og Jóhann Garðar Olafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel ólafsson