Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 49
TVX7~ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 4agsönn « Sveppa- tínslu- og skógarferð Hið íslenska náttúrufræðifélag og Ferðafélags íslands efna til sveppatínslu- og skógarskoðun- arferðar í Heiðmörk í dag. Lagt verður af stað frá Umferðarmið- stöðinni (austanverðri) klukkan 13.00 og ekið upp í Heiðmörk með viðkomu í Mörkinni 6. Þar mun Vignir Sigurðsson, skógarvörður hjá Skógræktarfé- lagi Reykjavíkur, kynna skóg- ræktina og Ásta Margrét Ás- grímsdóttir hjúknmarfræðingur leiðbeina um sveppatínslu en hún er höfundur að bókinni „Villtir íslenskir matsveppir". Stefnt er að því að koma til baka um kl. 18.00. Gjald fyrir ferðina er 600 krónur en frítt fyrir böm. Ráðstefna um dyslexíu Dagana 23.-25. ágúst stendur Dyslexíufélagið ásamt Námsráð- gjöf Hf og Endurmenntunardeild KHÍ fyrir ráðstefnu um dyslexíu. Ráðstefnan verður haldin í stofu 101 í Odda og er þegar orðið full- bókað. Aðalfyrirlesari á ráðstefnunni verður Solveig-Alma Lyster frá sérkennsludeild háskólans í Ósló. Sólveig mun fjalla um sérsvið sitt, fyrirbyggjandi aðgerðir við dyslexíu. Aðrir fyrirlesarar verða íslenskir. Samkomur f tengslum við ráðstefnuna verður einnig kynning á þjón- ustu Blindrabókasafnsins en námsbókadeild þess hefur um nokkurra ára skeið þjónað fram- haldsskólanemum með dyslexíu. Þá munu þrjú tölvufyrirtæki, Ný- herji, Appel umboðið og Einar J. Skúlason kynna tölvubúnað. Félag eldri borgara Féfagsvist verður spiluð hjá Félagi efdri borgara í Reykjavík í Risinu á morgun klukkan 14.00. Dansað verður í Goðheim- nm kl. 20.00. Bridge verður í Ris- inu mánudag kl. 13.00. Gengið Almennt gengi Ll nr. 178 23.08.1996 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollqengi Dollar 66,250 66,590 67,990 Pund 102,840 103,370 102,760 Kan. dollar 48,350 48,650 49,490 Dönsk kr. 11,5030 11,5640 11,3860 Norsk kr 10,2750 10,3320 10,2800 Sænsk kr. 10,0110 10,0660 9,9710 Fi. mark 14,6720 14,7580 14,2690 Fra. franki 13,0280 13,1030 13,0010 Belg. franki 2,1572 2,1702 2,1398 Sviss. franki 54,8500 55,1600 53,5000 Holl. gyllini 39,6400 39,8700 39,3100 Þýskt mark 44,4500 44,6800 43,9600 ít. líra 0,04359 0,04387 0,04368 Aust. sch. 6,3120 6,3520 6,2510 Port. escudo 0,4332 0,4358 0,4287 Spá. peseti 0,5260 0,5292 0,5283 Jap. yen 0,61090 0,61450 0,62670 írskt pund 106,760 107,420 105,990 SDR 96,20000 96,78000 97,60000 ECU 83,7000 84,2000 83,21000 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 Bjartviðri suðvestanlands Um 996 mb lægð var yfir írlandi sem þokast norður en hæð er yfir Grænlandi. Búist er við að á morg- un einkennist veðrið af norðaustan- Veðrið í dag golu eða kalda. Léttskýjað verður suðvestan- og vestanlands en skýjað og dálítil súld norðanlands og aust- an. Hitastig verður á bilinu 8-14 stig. Fram á mánudag er gert ráð fyrir norðlægri átt með björtu veðri um sunnanvert landið en skýjuðu með súld norðanlands. Á þriðjudag- inn og fram eftir vikunni verða suð- vestlægir vindar ráðandi með súld og rigningu um vestanvert landið en þurru og bjartara veðri austanlands. Sólarlag í Reykjavík: 21.11 Sólarupprás á morgun: 5.50 Síðdegisflóð 1 Reykjavlk: 14.23 Árdegisflóð á morgun: 02.52 Veðrið kl. 12 í dag Skjöldur við Stykkishólm: Vedrid kl. 12 í gœr: Akureyri Akurnes Bergsstaöir Bolungaruík Egilsstaöir Keflavíkurflugv. Kirkjubkl. Raufarhöfn Reykjavík Stórhöföi Helsinki Kaupmannah. Ósló Stokkhólmur Þórshöfn Amsterdam Barcelona Chicago Frankfurt Glasgow Hamborg London Los Angeles Madrid Malaga Mallorca París Róm Valencia New York Nuuk Vín Washington Winnipeg alskýjað rigning alskýjaö alskýjað léttskýjað skýjaö rignig léttskýjað■ þoka ígrennd léttskýjað léttskýjað skýjaö léttskýjaö alskýjaö skýjaö léttskýjaö alskýjaö skýjaö hálfskýjaö léttskýjað rign. á síö.kls. þokumóöa léttskýjaó heiöskírt léttskýjaö skýjað léttskýjaö heiöskírt mistur rigningi léttskýjaö heiðskírt léttskýjað 9 9 9 10 11 12 9 11 11 22 24 25 26 11 23 28 20 21 19 26 18 19 26 33 29 23 26 34 24 7 25 24 12 Afmælisveisla Vinanna Hljómsveit Vina vors og blóma er nú á lokasprett- inum á tónleikaferð sinni í sumar. Síðustu tónleikar sveitarinnar í sumar fara fram þann 1. september. Laugardaginn 24. ágúst ætla strákamir í hljóm- sveitinni að halda á heimaslóðir og spila á skemmtistaðnum Skildi sem er um tíu km frá Stykkishólmi. Að loknum þessum tónleikum eru ein- ungis fernir tónleikar eftir Skemmtanir hjá Vinum vors og blóma í sumar þannig að það fara að verða síðustu forvöð að fylgjast með þessum geð- þekku drengjum. Söngvari sveitarinnar mun halda upp á afmælið sitt um þessa helgi þannig að segja má að hér verði um heljar- mikla afmælisveislu að ræða. ! kvöld ætla strákarnir í hljómsveitinni Vinir vors og blóma aö halda á heimaslóó- ir og spila á skemmtistaönum Skildi sem er um tíu km frá Stykkishólmi. í herferð Háskólabíó, Laugarásbíó og Regnboginn sýna stórmyndina Independence Day en hún hefur slegið eftirminnilega í gegn vest- anhafs. Mikið er búið að fjalla um þessa mynd í heimspressunni og j sjálfsagt vita allir að myndin fjall- ar um árás geimvera á jörðina. Skyndilega og án viðvörunar fær- ist skuggi yfir sjóndeildarhring- inn þegar risavaxin geimför líða í ' gegnum gufuhvolfið og nema staðar fyrir ofan helstu stórborg- ir jarðarinnar. Innan fárra mín- útna mun líf hvers einasta jarðar- búa breytast. Kvikmyndir Vísindamaðurinn David (Jeff Goldblum) gefur sig fram við for- seta Bandaríkjanna (Bill Pullman) og telur sig geta ráðið samskiptaform hinna óboðnu gesta. Fljótlega kemur í ljós að geimverumar hafa illt í hyggju, bai'áttan virðist vera vonlaus en eigi að síður reyna jarðarbúar að grípa til varnaraðgerða. Hugmyndin að ID4 varð til hjá leikstjóranum Roland Emmerich | og framleiðandanum Dean Devlin en þeir hafa áður starfað saman að myndinni Stargate. Nýjar myndir: Háskólabíó: Auga fyrir auga Laugarásbíó: Mulholland Falls Saga bíó: Sérsveitin. Bíóhöllin: Eraser Bíóborgin: Tveir skrýtnir og einn verri. Regnboginn: Independence Day. Stjömubíó: Nomaklíkan. Pizarro í Hall- grímskirkju Sunnudagskvöldið 25. ágúst kl. 20.30 leikur bandaríski organistinn David Pizarro í Hallgrímskirkju á vegum „Sumarkvölds við orgelið 1996“. Þetta eru sjöundu tónleik- arnir þetta sumarið sem hófust með tónleikum Harðar Áskelsson- ar 7. júlí sl. Hingað til hafa komið fram organistar eins og Christoph- er Herrick frá Bretlandi, Gunnar Idenstam frá Svíþjóð og 21. júlí sl. bresk-bandarísku hjónin Colin Andrews og Janette Fischell sem m.a. léku tvíleik á Klais-orgel Hall- grimskirkju. Segja má að efnisskrá Pizarros sé tvíþætt; annars vegar hefðbund- in orgelverk og hins vegar umrit- anir. Tónleikarnir hefjast á hefð- bundinni spænskri Batalla frá 17. öld, á eftir koma tvö voluntary eða spunar. Pizarro leikur sónötu nr. 4 eftir Johann Sebastian Bach og umritun á síðasta kafla H-moll messunnar. Eftir Matthison-Han- sen leikur Pizarro dæmigerðan orgelkonsert en inni á milli má svo heyra sálmforleikinn Jesus Cr istus unser Heiland eftir Martin Radeck. Tónleikar Jasstónleikar í dag verða næstsíðustu jasstón leikar smurbrauðsveitingahússins Jómfrúin á milli klukkan 16 og 18 Jómfrúartorgið er á milli Lækjar götu 4 og Hótel Borgar. Að þessi sinni er það trió Ara Haraldssonai sem kemur fram og skemmtir gest um og gangandi. Ari spilar á saxó fón, Sebastian Motini á trommm og Tómas R. Einarsson á bassa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.