Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 8
{§telkerinn LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 Helgi Guðmundsson, matrc-iðslumaður í Viðeyjarstofu: Heitt sumarsalat og bleikia með kúmeni Helgi Guðmundsson, matreiðslu- maður hjá Hótel Óðinsvé og Viðeyj- arstofu, er sælkeri vikunnar að þessu sinni. Þar sem hægt er að tína kúmen ferskt í Viðey, og sjálfsagt víðar um landið, er vel við hæfi að Helgi gefi hér tvær uppskriftir að kúmenréttum, sem forvitnilegt er að prófa. Fyrri uppskriftin er að heitu sumarsalati með kúmeni og sú síðari er að grillaðri bleikju með kúmeni og sinnepi. Heitt sumarsalat með kúmeni -fyrir sex 6 tómatar V4 bolli ólífuolía 1 laukur í sneiðum 2 hvítlauksgeirar 1 tsk. söxuó, fersk steinselja 1 eggaldin í sneiöum 1 rauð paprika 3 tsk. vínedik 2 tsk. söxuó steinselja 1 tsk. ristað kúmen ’/ tsk. grófmulinn svartur pipar Sneiðið laukinn, skerið hvítlauk- inn í þunnar sneiðar, saxið stein- seljuna, sneiðið eggaldinið og kúr- bitinn í y2 cm sneiöar og saxið paprikuna. Setjið tómatana í sjóðandi vatn í 10 sekúndur, færið þá upp úr og lát- ið þá þoma áður en þeir eru afhýdd- ir. Síðan eru þeir saxaðir niður í sneiðar. Olía er hituð í pönnu, laukur, hvitlaukur og steinselja sertt á pönnuna og ristað þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Eggaldinið, kúr- bíturinn og paprikan eru sett út á pönnuna og blandað saman. Pannan er tekin af hitanum og látið standa undir loki í 30 min. Tómatamir eru svo settir í pönnuna og lá- tið standa i 10 mín. til viðbótar. Kúmenið er ristað á pönnu í 15 sek. og blandað saman við grænmetið ásamt vínedikinu og svörtum pipar. Salatið er framreitt sem grænmet- isréttur með nýbökuðu brauði eða með fiskréttum. Grilluð Grenlækjarbleikja með kúmeni og sinnepi —fyrir tvo 500 gr bleikja 2 msk. hunang 2 tsk. dijon sinnep 2 msk. heitt vatn 2 tsk. sojasósa 1 tsk. kúmen salt og pipar Hunang, vatn, sinnep, sojasósa, kúmen, salt og pipar eru sett í skál og hrært vel saman. Bleikjan er pensluð vel með kryddblöndunni utan og innan og pakkað inn í álpappír. Grilluð í ca 15 Framreidd með nýjum íslenskum kartöflum og grænmeti. -GHS min. a hvorri hlið. Helgi Guömundsson, matreiöslumaöur á Hótel Óöinsvéum og í Viöeyjar- stofu, gefur hér uppskrift aö griliaöri bleikju meö kúmeni og sinnepi og heitu sumarsalati með kúmeni. DV-mynd Pjetur {matgæðingur vikunnar Brauð með salamí og osti Mörgum þykir gaman að geta bakað sér brauð heima og jafnvel að hafa í því einhverja gómsæta fyllingu. Hér á eftir kem- ur uppskrift að brauði með salamí- og ostafyll- ingu sem sniðugt er að gera fyrir vídeóglápið á góðu helgarkvöldi. 3 dl volgt vatn 12 g ger ('/< pk) 1 msk. ólifu- eða sojaol- ía 500 g hveiti y4 tsk. salt Fylling 200 g kotasæla 3 msk. rifinn parme- sanostur 1 egg 100 g salamí í sneiðum 100 g óðalsostur í ten- ingum púrrulaukur Deig er hnoðað úr vatni, geri, olíu, hveiti og salti og látið hefast í 30 min. undir plasti. Deigið 1 er síðan breitt út á bök- unarpappír í kringlótta köku um y2 cm að þykkt. Kotasælu, parmesa- nosti og eggi er blandað saman og hugsanlega piprað. Að því búnu er blöndunni smurt á helm- ing deigsins. Salamísneið- um er raðað yfir, ostaten- ingunum raðað ofan á og púrrulauk dreift yfir. Kanturinn á deiginu er penslaður með köldu vatni, svo er deigið lagt saman og köntunum þrýst vel saman með gaffli. Brauðið er penslað með ólífuolíu og brauðið er svo bakað í miðjum ofni við 220 gráðu hita í 25-35 mín. -GHS Rannveig Ingvadóttir í Hveragerði: Fiskréttur, kúmenbollur og freistandi súkkulaðiterta „Ég er með spariútgáfu að fisk- rétti, sem er mjög vinsæll á heimil- inu og hentar mér ágætlega því að ég vil ekki eyða of miklum tíma í eld- húsinu. Hann er bæði fljótlegur, ferskur og góður. Svo er ég líka með uppskrift að bollum. Mér finnst svo gaman að bera fram heimabakað brauð,“ segir Rannveig Ingvadóttir í Hveragerði. Rannveig er matgæðingur vikunn- ar og kynnir hér uppskrift að fisk- rétti, bollum og franskri súkkulaði- tertu í eftirrétt, „sem er alveg geggj- uð kaloríubomba en hún er hverrar kaloríu virði,“ segir hún. Sælkerafiskráttur 1 ýsuflak, roóflett og beinlaust 200 g rœkjur 200 g hörpudiskur 1-2 grœn, flysjuó epli 1 laukur 2 hvítlauksrif Vrl grœn paprika /rl rauó paprika 200 g sveppir 1 dós rjómaostur (110 g) 100 g rœkju- eöa sveppasmurostur 1‘A dl kaffirjómi (mjólk eóa vatn) 1-3 tsk. karrí salt, pipar fiskikraftur Sveppir, laukur og hvítlaukur er brúnað létt. Öðru grænmeti bætt í og látið krauma smástund ásamt karríi. Kaffirjóma er hellt út á og osturinn látinn bráðna saman við. Fiskurinn er skorinn í strimla, lagður ofan á og látinn sjóða í 7 mín. Rækjum, hörpudiski og rjóma má sleppa. Ef rækjur og hörpudiskur eru í réttinum þá er það látið sjóða með 2 síðustu mínútumar. Rétturinn er borinn fram strax. í meðlæti eru hrísgrjón, brauð og soj- asósa. Kúmenbollur 900 g hveiti (má hafa grahamsmjöl til helminga) 6 dl volg mjólk, má setja vatn til helm- inga 50 g pressuger eða 1 pk. þurr- ger 2 msk. sykur 2 tsk. salt 1 dl volg olía 4 msk. kúmen Gerið er sett út í volga mjólkina og sykurinn settur út í og gerið látið leysast upp. Þurrefnin * f era sett í skál og ger- blanda og olía hnoð- uð saman við. Lát- ið hefast í skál í a.m.k. 1 klst) áður en bollur, hom eða kringlur era mótuð úr deiginu og sett á bökunar- plötu. Látið hefast í 20 mín. og pensl- að með volgu vatni öðru hvoru. Bak- að við 200 gráður í um 20 mín. Kúmeninu er sleppt ef bollurnar eru bornar fram með mat. I staðinn má setja ost ofan á þær og baka hann með síðustu 5 mínúturnar. Frönsk og freistandi 200 g smjör (alls ekki smjörlíki) 200 g súkkulaöi 4 egg 3 dl sykur 1 dl hveiti 100 g saxaöar heslihnetur/pi- kanthnetur Þeytið egg og sykur mjög vel saman. Bræðið súkkulaði og smjör í vatnsbaði, kælið og bland- ið rólega saman við eggja- hræruna. Hveiti og hnetum er blandað varlega út í. Tertan er bökuð í vel smurðu, hveiti stráðu formi í 35 mín. viö 185 gráður. Tertan er borin fram með rjóma eða ís og skreytt með sigtuðum flórsykri, ferskum jarðarberjum og i kíwí. Rannveig skorar á mág- konu sína, listakokkinn Elínu Hörpu Jóhanns- dóttur. -GHS Rannveig Ingvadóttir, mat- gæöingur vikunnar, kynnir uppskrift aö Ijúffengum fiskrétti, kúmenbollum og franskri og freistandi súkkulaöitertu. DV-mynd Sigrún Lovísa Sætabrauð og gómsætir ráttir í lautarferðina Brátt fer að hausta og því hver að verða síðastur aö taka fram nestiskörfuna, útbúa gómsætt nesti og steðja með fjölskylduna í lautarferð út í náttúruna. Þegar nestið er tekið til getui- verið gaman að muna eftir dúk til að breiða á jörði'na og hafa veiting- amar á og jafnvel diska, glös og hnífapör. Það getur komið sér vel að hafa góðan klút með í for og jafnvel auka ílát undir óhrein- an leir. Hér á eftir koma hugmyndir að því sem sniðugt er að taka með sér í lautarferðina, orkurík- ar hafrakökur og muffins með rúsínum, hnetum og súkkulaði- bitum. með döðlum og hnetum 175 g smjör eða smjörlíki 50 g púðursykur 3 tsk. síróp 225 g hafrar 175 g smátt skomar döðlur 3 tsk. ristuð sesamfræ 125 g skomar heslihnetur Smjör, síróp og sykur er brætt saman. Þegar sykurinn hefur bráðnað er höfrum, döðlum, sesamfræjum og heslihnetum hrært saman við. Sett á bökun- arplötu og flatt út með því að þrýsta vel ofan á. Bakað viö 180 gráður í 35 mín. Deigið er tekið út úr ofninum, kælt lítillega og skorið i aflangar kökur. Kökurnar má geyma í loftþéttum umbúðum upp undir eina viku. Muffins 50 g púðursykur 50 g strásykur 275 g hveiti 2 tsk. lyftiduft 1 tsk. natrón 1 stórt egg 225 ml mjólk 75 g brætt smjör 175 g hnetusmjör 175 g hnetur, rúsínur og súkkulaðibitar Sigtið saman þurrefnunum. Þeytið egg, mjólk, smjör og hnetusmjör saman. Hrærið sam- an við hnetum, rúsínum og súkkulaðibitum. Deiginu er skipt í muffinsform og bakað við 200 gráður í 20 mín. ef um lítil form er aö ræða, ann- ars í 25-30 mín. -GHS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.