Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 Qkák 43 Ólympíuskákmót barna í Svartfjallalandi: Islenska skaksveitin varð í sjötta sæti - Hannes Hlífar sigraði á Borgarskákmótinu íslensku Ólympíuskáksveitinni, 16 ára og yngri, gekk vel á Ólympíu- móti bama sem fram fór í Kotor í Svartfjallalandi. Sveitinni tókst raunar ekki að verja titilinn frá því á Kanaríeyjum í fyrra en náði 6. sæti, sem er mjög góður árangur enda við snjöllustu unglinga heims að etja. Fjórir þeirra fimm sem skip- uðu sigursveitina á Kanaríeyjum tefldu nú í Svartfjallalandi; Jón Viktor Gunnarsson, Einar Hjalti Jensson, Bergsteinn Einarsson og Bragi Þorfinnsson. Davíð Kjartans- son kom í stað Bjöms Þorfinnsson- ar. Fararstjóri var sem áður Harald- ur Baldursson. Sveit Rúmena hreppti gullverð- laun með 26 vinninga af 36 möguleg- um. Öflugt lið Rússa hafnaði í 2. sæti með 23,5 vinninga og Ungverj- ar fengu bronsverðlaun, með jafn- marga vinninga og Rússar en lakari stigatölu. í 4. sæti kom sveit Úkra- ínu með 21,5 v., Júgóslavar fengu 20,5 v. og íslendingar 19,5 v. í lokaumferðinni lögðu íslending- ar b-sveit Úkraínu með 3 vinning- um gegn 1. Jón Viktor, Bergsteinn og Bragi unnu sínar skákir en Dav- íð varð að sætta sig við ósigur. Ár- angur íslensku keppendanna var þessi: Jón Viktor 5,5 v. af 9, Einar Hjalti 5 v. af 8, Bergsteinn 4,5 af 8, Bragi 6 af 9 og Davíð 0,5 af 2 tefldum skákum. Þungu fargi látt af kamsky Enn eitt stórmótið í skák stendur nú yfir í Amsterdam í Hollandi, minningarmótið um stórmeistarann Jan Hein Donner sem haldið er í 4. sinn. Að loknum fjórum umferðum átti helmingur keppenda hlutdeild í efsta sætinu. Þeir eru stórmeistar- arnir Vassily Ivantsjúk (Úkraínu), Julian Hodgson (Englandi), Gata Kamsky og Nick de Firmian ( báðir frá Bandaríkjunum) og Loek van Wely og Jeroen Piket (báðir Hollandi), sem allir höfðu 2,5 vinn- inga. Julio Granda Zuniga (Perú) og Utut Adianto (Indónesíu) komu næstir með 2 vinninga, síðan Val- ery Salov (Spáni), Ivan Sokolov og Jan Timman (Hollandi) með 1,5 vinninga og loks Alexander Morozevitsj (Rússlandi) með 0,5 v. Athyglisvert er að fylgjast með taflmennsku Gatas Kamskys . sem hefur haft orð á sér fyrir að tefla fremur þunglamalega og af litlu list- rænu innsæi. Svo virðist sem ein- vígið við Karpov um heimsmeist- aratitil FIDE hafi haft góð áhrif á hann þrátt fyrir það að hann beið lægri hlut. Af skákum hans í Amsterdam að dæma er eins og þungu fargi sé af honum létt. Skoðum tafl hans við Salov þar sem Kamsky hristir mannsfórn fram úr erminni sem gefur skemmtilega möguleika. Salov kýs að gefa hluta liðsins aftur með góðu en við það nær Kamskv öruggum yf- irburðum. Hann lýkur svo skákinni smekklega. Hvítt: Gata Kamsky Svart: Valery Salov Drottningar-indversk vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Ba6 5. b3 b5 Sjaldséður leikur í þessari marg- tefldu stöðu og ekki talinn nægja til taflfjöfnunar. Umsjón Jón L. Árnason 6. cxb5 Bxb5 7. Bg2 d5 8. 0-0 Rbd7 9. Hel Bb4 10. Bd2 a5 11. Rc3 Ba6 12. a3 Be7 13. e4 Bb7 14. exd5 Rxd5 15. Re4 R5f6 16. Rfg5 Bd5 Hvítur hefur undirtökin eftir byrjunarleikina og nú gefst honum óvæntur möguleiki. Öruggara er 16. - Rxe4, þó svo svartur eigi undir högg að sækja. 17. Rxf7! Kxf7 18. Rg5+ Kg8 19. Rxe6 Bxe6 Ef 19. - Db8 20. Rxg7! og þriðja peðið fellur, því að biskupinn á e7 er orðinn skotspónn hróksins. 20. Hxe6 Kf7 21. De2 He8? Salov kýs að láta hrókinn á a8 með góðu og losna þar með við hættulegan hvítreita biskup hvíts. En 21. - Ha7 er betri tilraun til þess að láta hvítan sýna fram á réttmæti fórnarinnar í 17. leik. 22. Bxa8 Dxa8 23. Hel Dd8 24. Bxa5 Hvíta taflið er nú afar vænlegt - svörtum tekst ekki að fá liðsafla sín- um fótfestu. 24. - Rf8 25. He3 Rg6 26. Dc4+ Dd5 27. Dxc7 Kf8 28. Bb4 Bxb4 29. axb4 Hd8 30. b5! Dxd4 31. b6 Dd7 32. Dc5+ Kg8 33. Dc4+ Kf8 34. He6 Rd5 35. De4 Kf7?! 36. b7! Rf8 Ef 36. - Dxb7 37. Df3+ og vinnur. 37. He8! Rf6 38. He7+ - Og svartur gafst upp. Hannes Hlífar með fullt hús Borgarskákmótið 1996 var haldið í Ráðhúsi Reykjavikur sl. sunnu- dag. Taflfélagið Hellir og Taflfélag Reykjavíkur stóðu sameiginlega að mótinu sem er orðið fastur liður í afmælishátið borgarinnar. Mótið hófst með því að borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, lék fyrsta leikinn í skák Þrastar Þórhallssonar sem væntan- lega verður útnefndur ní'undi stór- meistari íslendinga í haust. Alls tóku 84 keppendur þátt í mót- inu fyrir hönd jafnmargra fyrir- tækja og stofnana. Er skemmst frá því að segja að Hannes Hlífar Stef- ánsson, sem tefldi undir merkjum Islenskra aðalverktaka, gerði sér lít- ið fyrir og lagði alla andstæðinga sín. Röð efstu keppenda varð þessi: íslenskir aðalverktakar (Hannes Hlífar Stefánsson), 7 vinningar af 7 mögulegum. 2.-3. Rarik (Helgi Áss Grétarsson) og Póstur og sími (Þráinn Vigfús- son) 6 v. 4.-6. Suzuki bílar (Magnús Örn Úlfarsson), Alþýðubandalagið (Héð- inn Steingrímsson) og Bæjarskipu- lag Reykjavíkur (Bragi Halldórs- son), 5,5 v. 7.-15. Visa ísland (Þröstur Þór- hallsson), Núðluhúsið (Ágúst Sindri Karlsson), Smurstöð Esso, Stórahjalla (Jó- hannes Gísli Jónsson), Sjóvá- Al- mennar (Sævar Bjamason), Leigj- endasamtökin (Davíð Ólafur Ingi- marsson), Tölvukjör (Arnar Þor- steinsson), Fiskifélag Islands (Jón Garðar Viðarsson), Sveinn Kristins- son, Emmess ís (Ragnar Fjalar Sæv- arsson) 5 v. 16.-23. Glitnir (Ólafur Kristjáns- son), Ofnasmiðjan (Ingvar Ás- mundsson), Dælubílar hf. (Sæberg Sigurðsson), Árnason sf. (Magnús Pálmi Ömólfsson), Úrval-útsýn (Einar Kristinn Ein- arsson), Gámaþjónustan hf. (Áskell Öm Kárason), Bílapartar Garðabæjar (Ingólfur Hjaltalín) og Stefán Þór Sigurjóns- son 4,5 v. o.s.frv. Skákstjórar voru Gunnar Björns- son og Ólafur S. Ásgrímsson. ________________ %~idge Bikarkeppni BSÍ 1996: Dregið hefur verið í fjórðu um- ferð bikarkeppni Bridgesambands íslands og munu þessar sveitir spila saman: Garðar Garðarsson og Landsbréf Umsjón Stefán Guðjohnsen Sparisjóður Þingeyinga og Hrafn- hildur Skúladóttir Búlki hf. og Jón Ág. Guðmunds- son Samvinnuferðir/Landsýn og VÍB Þessum leikjum skal lokið fyrir 9. september en undanúrslit og úrslit verða spiluð helgina 21. og 22. sept- ember Fram að þessu hafa úrslit verið nokkuð hefðbundin. Þær fjórar sveitir sem eru stigahæstar halda enn þá velli en nú dregur til tíðinda þegar sveitir Samvinnuferða/Land- sýnar og Verðbréfamarkaðar ís- landsbanka mætast. Verður það mest spennandi leikur fjórðungsúr- slitanna. Annars sluppu Samvinnuferð- ir/Landsýn með skrekkinn í þriðju umferð þegar sveitin mætti sveit Eurocard. Samvinnuferðir byrjuðu vel og voru 22 impa yfir eftir tvær lotur. I þriðju lotu tapaði sveitin 20 impum en síðasta lotan var jöfn og hún komst áfram á tveimur impum. Við skulum skoða eitt skemmti- legt spil úr þriðju lotunni þar sem Karl Sigurhjartarson í sveit Sam- vinnuferða lenti í erfiðri stöðu, tók ranga ákvörðun og tapaði dýr- mætum 14 impum. V/Allir * ÁG104 «* KG102 + 10543 * G * 5 A* D9853 * ÁKDG6 * K3 * KD982 M 4 * 972 * ÁD94 N V A S * 763 4* A76 ♦ 8 * 1087652 I lokaða salnum sátu n-s Ragnar Hermannsson og Einar Jónsson en a-v Björn Theodórsson og Kristján Blöndal. Þar voru sagnir á rólegu nótunum: Vestur Norður 1 hjarta pass 3 tíglar pass pass pass Austur Suður 1 grand pass 3 hjörtu pass Eins og sést þá liggur trompið af- leitlega og Kristján fékk ekki nema sjö slagi og tapaði 200. Það virtist samt ekki alvont því n-s geta unnið þrjá spaða. I opna salnum var hins vegar meira mn að vera. Þar sátu n-s Val- garð Blöndal og Rúnar Magnússon en a-v Bjöm Eysteinsson og Karl Sigurhjartarson. Vestur Norður Austur Suður 1 hjarta 1 spaði 2 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu dobl Allir pass Spaðasögn norðurs var vel heppn- uð og fjögurra spaða sögn suðurs ekki siðri. Frá sjónarhóli Karls gátu íjórir spaðar hæglega unnist og ólík- legt væri að fimm hjörtu væru marga niður. Á góðum degi gætu þau jafnvel unnist. En sú var síður en svo raunin. Valgarð spilaði út spaöaási og ég hugsa að Karl hafi búist við meiri spilum í blindi. Það kom meiri spaði sem Karl trompaði. Hann tók sér góðan tíma, spilaði síöan út hjarta- drottningu í þeirri von að háspil kæmi frá suðri. Norður lagði kóng- inn á og ásinn i blindum átti slag- inn. Nú kom lauf, suður fór upp með ás og íhugaði framhaldið. Auðvitað var norður með einspil í laufi en lík- lega væri betra aö stytta sagnhafa með meiri spaða. Það reyndist rétt og Karl trompaði. Hann las nú stöð- una rétt og spilaði tígulháspilunum. Þar með fékk hann sjö slagi en það kostaði 1114 impa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.