Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Blaðsíða 46
»*i afmæli LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 T>V Halldór Björnsson Halldór Bjömsson verktaki, Kópa- vogsbraut 4, Kópavogi, er fimmtug- ur á morgun. Starfsferill Halldór er fæddur og uppalinn í Keflavík, þriöji elstur í 12 systkina hópi. Ungur aö árum fór hann aö vinna við ýmis störf til að létta und- ir með þungu heimili. Hugleiðingar um nám voru ekki á dagskrá eftir að skyldunámi lauk, það varð að bíða betri tíma. Halldór vann sem sendill og seinna innanbúðar hjá Nonna og Bubba. Þá hóf hann störf hjá Kefla- víkurbæ. Árið 1971 keypti Halldór veghefil og hóf eigin rekstur sem smám sam- an efldist og stækkaði og hefur sá rekstur verið í nánu og góðu sam- starfi við bróður Halldórs, Guð- mund. í dag reka þeir bræður i sam- vinnu malbikunarfyrirtæki ásamt eiginkonum sínum, Huldu og Halld- óru B. Gunnarsdóttur. Námsdraumarnir dvöldu með Halldóri og þegar tæki- færi gafst dreif hann sig í söngnám í Tónlistarskóla Kópavogs, undir leiðsögn Önnu Júlíönu Sveins- dóttur. Áður hafði Halld- ór verið í kórum, Sam- kór Kópavogs, Kirkjukór Kópavogskirkju og Skagfirsku söngsveit- inni. Halldóri hefur sóst námið vel og er nú kom- inn á 7. stig. Hann syng- ur nú i Tónakórnum og Kirkjukór Kópavogs- kirkju. Halldór hefur komið fram á mörgum nemendatónleikum í Tón- listarskóla Kópavogs, einnig hefur hann sungið einsöng við hátíðar- messur í Kópavogskirkju, við brúð- kaup o.fl. Fjölskylda Halldór kvæntist 25.4. 1969 Huldu Harðardóttur, f. 5.1. 1950, þroska- þjálfa og forstöðumanni í Keflavik. Hún er dóttir Harðar Þórhallssonar, f. 5.6. 1916, d. 17.12. 1959, hag- fræðings og löggilts dóm- túlks og skjalaþýðanda, og Guðrúnar Þór, f. 19.4. 1919, skrifstofumanns. Guðrún býr í Kópavogi. Böm Halldórs og Huldu eru: Þórhallur, f. 5.8. 1969, nemi. Maki hans er Huldís Frank, f. 5.5. 1968, þroskaþjálfi, og á hún soninn Annel Helga Finnbogason. Þór- hallur og Huldís eiga börnin Bjart, f. 19.5.1990, og Aðalheiði, f. 26.11.1992. Þau starfa, nema og búa í Hró- arskeldu. Bjarney, f. 13.11. 1970, nemi. Maki hennar er Elías Birkir Bjarnason, f. 30.11. 1971, bifreiðasmiður, og eru börn þeirra Hrund, f. 15.9. 1991, og Eyrún, f. 3.9. 1993. Þau dvelja nú í Kaupmannahöfn. Arnar, f. 30.11. 1972, nemi og starfsmaður íslensku óperunnar. Unnusta hans er Helga Þórkelsdótt- ir, f. 5.11. 1973, og eru þau búsett í Reykjavík. Daði, f. 27.9. 1975, hann dvelur nú um stundir á írlandi. Hálfbróðir Halldórs, sammæðra: Sigurður G. Ólafsson, búsettur í Keflavík. Alsystkini Halldórs: Sigurbjöm, búsettur í Keflavík; Grétar, búsettur í Borgarfirði; Lilja, búsett í Kefla- vík; Símon, búsettur í Keflavík, Guðmundur, búsettur í Reykjavík; 'ísleifur, búsettur í Njarðvíkum; Hrönn, búsett í Mývatnssveit; Frið- bjöm, búsettur í Keflavík; Ómar, bú- settur í Hafnarfirði, og Viggó, bú- settur í Keflavík. Foreldrar Halldórs: Bjöm Símon- arson, f. 16.8. 1916, d. 2.2. 1964, bíl- stjóri í Keflavík, og Sigurlaug Gísla- dóttir, f. 25.5. 1920, húsmóðir. Sigurlaug er búsett í Keflavík. Halldór og Hulda bjóða ættingjum og vinum til fagnaðar aö heimili sínu og bjóða tii garðveislu laugar- daginn 24.8. kl. 18.00-24.00. Halldór Björnsson. Þorbjörn Halldór Jóhannesson Þorbjöm Halldór Jó- hannesson bæjarverk- stjóri, Hlíðarvegi 14, ísa- firði, er fertugur í dag. Starfsferill Þorbjöm er fæddur á ísafirði og ólst upp þar og í Fremrihúsum i Arnardal. Hann hefur unnið ýmis störf hjá ísa- fjarðarkaupstað frá ár- inu 1975, fyrst sem verkamaður, síðar sem tækjamaður og hefur verið bæjarverkstjóri frá ÞorbjörnHalldór Jó- hannnesson. 1984. Maki Þorbjörns frá 1976 er Pálína Jóhanna Jensdóttir, f . 5.3. 1955. Hún er dóttir Jens Guð- mundssonar, bónda í Kirkjubæ, áður bónda á Snæfjallaströnd og Lóns- eyri í Kaldalóni, og Guð- mundu Helgadóttur. Þorbjörn og Pálína eiga þrjú böm. Þau eru: Hermann Þór Þorbjöms- son, f. 17.12.1978; Hilmar Öm Þorbjörnsson, f. 8.3. 1981, og Guðríður Þor- bjömsdóttir, f. 31.7. 1985. Hálfbróðir Þorbjörns, samfeðra, er Guðni Geir Jóhannesson, f. 7.7. 1947, kvæntur Margréti Jónsdóttur. Þau eru búsett á ísafirði og eiga þrjú börn. Alsystkini Þorbjarnar em tvö: Halldóra Matthildur Jóhannesdótt- ir, f. 20.4.1951, gift Herði Steingríms- syni, búsett í Kópavogi og eiga fjög- ur börn. Jón Sigurður Jóhannesson, f. 10.7. 1954, kvæntur Kristínu Sillu . Þórðardóttur. Þau eru búsett í Garðabæ og eiga tvö böm, Fósturbróðir Þorbjarnar er Jó- hannes Berg, f. 12.8. 1962, giftur Steinunni Snorradóttur og eru þau búsett í Reykjavík. Foreldrar Þorbjarnar eru Jóhann- es Guðni Jónsson, f. 16.11. 1928, framkvæmdastjóri, og Guðríður Jó- hanna Matthíasdóttir, f. 12.2. 1928, kaupfélagsstjóri. Þau eru búsett á ísafirði. Ætt Guðríður er dóttir Matthíasar Berg Guðmundssonar, bónda í Fremrihúsum í Arnardal, og Halld- óru Friðgerðar Katarínusdóttur. Jóhannes er sonur Jóns Ólafsson- ar, bónda á Mýrarlóni í Eyjafirði, og Jónasínu Sigríðar Helgadóttur. Þorbjörn verður að heiman á af- mælisdaginn. Þórir Steingrímsson Þórir Steingrímsson, rannsóknar- lögreglumaður og leikstjóri, Hamra- borg 18, Kópavogi, er fimmtugur í dag. Starfsferill Þórir er rannsóknarlögreglumað- ur og leikstjóri auk þess sem hann er formaður Hamraborgarráðsins í Kópavogi. Fjölskylda Þórir kvæntist 13.6. 1976 Sögu Geirdal Jónsdóttur, f. 28.7.1948, leik- ara. Foreldrar hennar voru Jón Kristján Hólm Ingimarsson, f. 6.2. 1913, d. 15.2. 1981, iðnverkamaður á Akureyri, og k.h. Gefn Jóhanna Geirdal Steinólfsdóttir, f. 20.8. 1910, d. 11.7. 1988. Þau skildu. Þórir og Saga eiga einn son, Helga Pál, f. 10.3. 1978. Sambýliskona Þóris er Unnur Gunnarsdóttir, f. 17.3. 1947. Foreldr- ar hennar em Gunnar Helgason, f. 10.4. 1925, erindreki í Reykjavík, og k.h., Sigríður Pálmadóttir, f. 30.9. 1923. Þórir og Unnur eiga einn son, Gunnstein, f. 16.9. 1987. Barnsmóðir Þóris er Sigrún Magnúsdóttir, f. 12.6. 1945, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur. Barn þeirra er Jón Júlíus, f. 16.8.1973. Sigrún er dóttir Magnúsar Jochumssonar, f. 19.10. 1913, d. 21.8. 1989, járnsmiðs og rennismiðs, og k.h. Júliu Jónsdóttir, f. 29.5. 1924. Foreldrar Þóris: Stein- grímur Páls- son, f. 29.5. 1918, d. 10.3. 1981, alþing- ismaður og stöðvarstjóri Pósts og síma á Brú í Hrútafirði, síðar skrifstofu- maður í Reykjavík, og k.h. Lára Helgadóttir, f.3.1.1924, d. 17.8.1979, símritara. Ætt Foreldar Steingríms vom Páll Sigurðsson, f. 29.8. 1884, d. 15.7. 1949, prestur í Garði, síðar Bolung- arvík, og Þorbjörg Steingrímsdótt- ir, f. 8.12. 1885, d. 18.11. 1962, hús- freyja í Gardar, Norður-Dakota í Bandaríkjunum, síðar í Bolunga- vík. Foreldrar Láru voru Helgi Ket- ilsson, f. 30.11.1885, d. 8.9.1968, vél- stjóri og íshússtjóri á ísafirði, og Lára Tómasdóttir, d. 26.11. 1888, d. 29.6. 1980. Þórir Steingrímsson. A Biörn Guðmundsson Bjöm Guðmundsson, verkstjóri við Sogsvirkj- animar, Hlíð við Ljósa- foss, er sjötugur í dag. Fjölskylda Eiginkona Bjöms er Bergþóra Snæbjöms- dóttir. Böm þeirra em Guðmundur Björnsson, kvæntur Helgu Egils- dóttur og eiga þau þrjá syni, Bjöm, Egil og Ósk- ar; Hildur Bjömsdóttir, gift Áma Val Garðars- syni og eiga þau þrjú böm, Rán, Garðar og Birnu; Snæbjöm Bjöms- son, kvæntur Margréti Sigurðar- dóttur og eiga þau þrjú böm, Berg- þóra, Frey og Snæ; Pétur Bjömsson, Björn Guömundsson kvæntur Ingibjörgu Óskarsdóttur og eiga þau dótturina Viktoríu; Helgi Bjömsson, kvænt- ur Berglindi L. Bjarna- son; Magnea Lena Bjömsdóttir, gift Pétri Gunnari Þjóðólfssyni og eiga þau tvo syni, Hin- rik og Jóel; Bjöm Þór Bjömsson, kvæntur Guðbjörgu Eiríksdóttur og eiga þau tvö börn, Brynju Dögg og Stefán Ara; Benedikta Bjöms- dóttir, gift Viggó Val- garðssyni og á hún dæturnar Elisa- betu Rós og Emelíu Rós Ómarsdæt- ur. Bjöm verður að heiman á afmæl- isdaginn. Þórarinn Þórarinn Ólafsson, fyrrv. skip- stjóri, Marargötu 4, Grindavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Þórarinn er fæddur og uppalinn í Grindavík. Hann lauk skyldunámi og fór eftir það í Stýrimannaskól- ann þar sem hann lauk námi. Hann hefur starfað við sjómennsku í hátt í hálfa öld. Fjölskylda Þórarinn kvæntist 1.1. 1950 Guð- veigu Sigurðardóttur, f. 9.12. 1931, húsmóður. Hún er dóttir Sigurðar Magnússonar og Sæunnar Bjama- dóttur. Börn Þórarins og Guðveigar: Sævar B. Þórarinsson, f. 21.6. 1950, skipstjóri, kvæntur Ragnhildi Guð- jónsdóttur og eiga þau þijú böm og Olafsson eitt barnabam; Helga Þórarinsdótt- ir, f. 1.10. 1952, húsmóðir, gift Ólafi Amberg og eiga þau þrjú börn og þrjú barnaböm; Ólöf Þórarinsdóttir, f. 17.1. 1955, húsmóðir, hún er frá- skilin og á fjögur börn og eitt barna- barn; Ingibjörg Þórarinsdóttir, f. 5.10. 1958, húsmóðir, gift Scott Bartley og eiga þau þrjú börn; Svala Þórarinsdóttir, gift Tom Hellas og á hún eitt barn. Þórarinn á sjö alsystkini. Einnig átti hann einn hálfbróðir, Albert Eg- ilsson, en hann lést 16.11. 1953. Foreldrar Þórarins voru Ólafur Jónsson, f. 24.1. 1897, d. 10.10. 1954, verkamaður og sjómaður, og Helga Þórarinsdóttir, f. 6.7. 1903, d. 27.5. 1989, húsmóðir og verkakona. Þórarinn er af Járngerðisstaða- ætt í föðurætt og af Víkingslækja- rætt í móðurætt. Þórarinn verður að heiman á af- mælisdaginn. Til hamingju með afmælið 24. ágúst 95 ára Þorsteinn Magnússon, Vitabraut 5, Hólmavík. 90 ára Ingibjörg Stefánsdóttir, Marklandi 16, Reykjavík. 85 ára Jenný H. Hansen, Blesugróf 1, Reykjavík. Pála Elínborg Michelsen, Vesturhlíð, Reykjavík. Jóhanna Hjartardóttir, Dalbraut 20, Reykjavík. Ólafur Guðmundsson, Hrafnistu, Kleppsvegi, Reykja- vík. 80 ára Egill A. Kristbjörnsson, Aflagranda 40, Reykjavík. 75 ára Olgeir Gottliebsson, Túngötu 1, Ólafsfirði. Gísli Magnússon, Vöglum, Akrahreppi. 60 ára Jakob Sigfinnsson, Ormsstöðum 1, Neskaupstað. Ásta Kristjana Ólafsdóttir, Seljalandi 1, Reykjavík. Sverrir Sighvatsson, Kelduhvammi 6, Hafnarfirði. Margrét Magnúsdóttir, Þórufelli 12, Reykjavík. 50 ára Guðríður Þ. Valgeirsdóttir, Arnarstöðum, Hraungerðis- hreppi. Guömundur Halldórsson, Austurbergi 6, Reykjavík. Jón Ingi Baldvinsson, Freyvangi 3, Hellu. Friðrikka Gústafsdóttir, Búhamri 35, Vestmannaeyj- um. 40 ára Vilborg Ragnarsdóttir, Reynigrund 10, Akranesi. Hallbjörg Jónsdóttir, Faxabraut 2a, Reykjanesbæ. Ásta Þórunn Þráinsdóttir, Fannafold 24, Reykjavík. Jón Þórarinn Sverrisson, Seiðakvísl 43, Reykjavík. Jósefína Guðný Stefánsdótt- ir, Hverafold 10, Reykjavík. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Suðurbraut 9, Kópavogi. Pétur Jónsson, Kópavogsbraut 55, Kópavogi. Anna Gréta Sigurbjörns- dóttir, Hrísmóum 11, Garðabæ. Guðmundur Svanberg Pét- ursson, Reykjabyggð 23, Mosfellsbæ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.