Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 JjV
„Ég vaknaði afar snemma, löngu á undan
öðrum i fjölskyldunni, því að ég þurfti að
mæta klukkan 7.45 við Alþingihúsið þar sem
þingmenn og landsstjórn framsóknarmanna,
alls hátt í 50 manns, fóru af stað með stórri
rútu, sem Hreggviður bílstjóri keyrði. Við
vorum mjög heppin með veður og ókum í
blíðskaparveðri um Suðurland. Framsóknar-
menn fara í sumarferð í eitt kjördæmi einu
sinni á ári og komast þá nær fólkinu í land-
inu. Nú varð Suðurlandskjördæmi fyrir val-
inu en í fyrra var það Vesturland," segir Siv
Friðleifsdóttir, bæjarfulltrúi á Seltjarnamesi
og alþingismaður Framsóknarflokks.
„Við byrjuðum á því að keyra til Þorláks-
hafnar en þar skoðuðum við tvö fyrirtæki,
Meitilinn og Árnes. Það var ákaflega
skemmtilegt að sjá hversu fiskvinnslan er
breytt frá því sem áður var. Ég vann í fiski
í sex sumur i gamla daga og það hefur orðið
geysimikil breyting á allri aðstöðu og hrein-
læti.
Gras í matinn
Síðan ókum við til Hveragerðis og skoðuð-
um garðyrkjustöð, sem Þorvaldur Snorrason
rekur. Þaðan fórum við á Heilsuhælið í
Hveragerði og fengum þar gras að borða -
það var nú reyndar meira en gras því að við
borðuðum fínar kartöflubollur, mjög góður
Á rútuferðalagi um Suðurland með þingmönnum og landsstjórn Framsóknarflokksins gerði
Siv Friöleifsdóttir sitt besta til að sinna fjölskyldunni gegnum síma, minnti eiginmanninn á að
sækja yngsta soninn á barnaheimilið og hringdi í elsta soninn þar sem hann var á hækjum
heima.
fyrir fjölfatlaða einstaklinga og Eggert Jó-
hannesson framkvæmdastjóri skýrði frá
starfseminni. Þama voru starfsmennimir að
vefa teppi, framleiða leirker og búa til bast-
körfur. Að þessari heimsókn lokinni fórum
við í Kaupfélag Ámesinga, KÁ, þar sem Guð-
mundur Búason fjármálastjóri og Erlingur
Loftsson sljórnarformaður kynntu okkur
starfsemina og fengum kaffi. Það var mjög
gaman að sjá hvað þeir hafa mikið úrval og
lágt vömverð.
Ég þurfti að hringja i manninn minn til að
minna hann á að sækja yngsta soninn á
bamaheimilið og svo hringdi ég heim til að
tala við elsta son minn. Hann er á hækjum
eftir að hafa meiðst í fótbolta þannig að mað-
ur reyndi að fylgjast með fjölskyldunni þó
maður væri á hlaupum.
Heimamenn með
skemmtidagskrá
Síðdegis héldum við fund þingflokks og
landsstjómar á Inghóli þar sem við fórum
yfír flokksmál og þau mál sem brenna helst
á okkur í dag. Eftir fundinn bauð Halldór
Ásgrímsson okkur í sumarbústaðinn sinn í
Grímsnesinu og þar áttum við smástund
saman enda alltaf gaman í hópi framsóknar-
manna. Um kvöldið snæddum við svo kvöld-
Dagur í lífi Sivjar Friðleifsdóttur, bæjarfulltrúa og alþingismanns:
Annasamur símadagur í
rútuferðalagi á Suðurlandi
matur. Við fengum fyrirlestur um heilsu-
hælið og Ámi Gunnarsson, forstjóri þess,
sýndi okkur starfsemina.
Að þessu loknu ókum við sem leið lá að
Gestshúsum á Selfossi og fórum með farang-
urinn inn því að þar áttum við að gista um
nóttina. Að því búnu áttum við fund með
fjölmiðlum þar sem ráðherrarnir okkar sátu
fyrir svörum og við tókum þátt í skemmti-
legum umræðum. Á fundinum var mikið
spurt um þau mál sem brenna á fólki í dag.
Keyrði slökkvibíl
Við komum við á slökkvistöðinni á Sel-
fossi hjá Kristjáni Einarssyni og þar brá for-
maður flokksins, Halldór Ásgrímsson, sér
upp í slökkviliðsbíl og keyrði hann aðeins
um. Okkur þótti þetta mjög skondið og þeir
sem fóru inn í bílinn með honum þóttu mikl-
ir ofurhugar. Síðan komumst við að því að
þeir sem voru fyrir utan bílinn voru senni-
lega í meiri hættu en þeir sem voru inni í
bílnum. Þetta tókst þó allt vel hjá formann-
inum.
Við heimsóttum svæðisstjóm fatlaðra á
Selfossi og skoðuðum vemdaðan vinnustað
verð á Inghóli með trúnaðarmönnum flokks-
ins á Suðurlandi og þeir stóðu fyrir
skemmtidagskrá.
Dagurinn var annasamur, ekki síst í síma,
því að á Seltjamamesi vorum við að upplýsa
bæjarbúa um stöðu mála varðandi
deiliskipulag á vestursvæðinu svokallaða og
GSM-síminn og farsíminn í rútunni óspart
notaðir." -GHS
Finnur þú fimm breytingar? 373
Halló! Vakti ég þig, elskan mín?
Nafn:____________________________
Heimili:-------------------------
sots QJC&t>
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð sjötugustu og
fyrstu getraun reyndust vera:
1. Rúnar Þórarinsson
Hólagötu 4
245 Sandgerði
2. Karitas Heimisdóttir
Oddnýjarbraut 3
245 Sandgerði
.-4
■ W*
soos QJCSfc
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í Ijós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum veriö breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi, að
verðmæti kr. 7.100, frá Bræðranum
Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond-bókin
Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rík og liðin lík.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 373
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík