Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Page 21
21
M > X/ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996
3-5000 kr. á mánuði í félagsgjald.
Kalli hafði skyldum að gegna
gagnvart klúbbnum. Eitt af því var
vakt frá sex á kvöldin til sex að
morgni í næturklúbbnum. Stuðn-
ingsmenn sem ekki eru komnir inn
i klúbbinn verða að vera til reiðu
hvenær sem er.
„Ég þurfti að sýna að ég væri trúr
málstaðnum og skilyrði var að vera
ekki hræddur við að berjast ef til
þess kæmi. Klúbbmeðlimir mega
ekki veigra sér við því að vinna þau
störf sem lögð eru fyrir þá. Stund-
um þurfti maður að gera hluti sem
voru manni persónulega á móti
skapi. Maður þurfti þá að vega og
meta hvers virði klúbburinn var og
taka afstöðu til þess hvort þetta
væri þess virði.
Flestir klúbbmeðlimir eru tattó-
veraðir og einn lét setja nafn
klúbbsins á höndina á sér. Sá hinn
sami var síðar rekinn og sat uppi
með óafturkallanlegt húðflúr, að
sögn Kalla.
„Það er ekki gefið að aflir séu
tattóveraðb' upp að öxlum og myrði
fólk. Ég lét að vísu tattóvera mig en
það var ekki nauðsynlegt. Flestir
voru það þó. Mig langaði ekki til
þess að tattóvera neitt endanlegt á
mig og þurfa að útskýra það fyrir
barnabörnunum.“
Reiðubúnir í bardaga
Kalli þurfti afltaf að vera reiðubú-
inn ef klúbburinn þarfnaðist hans.
Ef annar mótorhjólaklúbbur lét
gera merki sitt of líkt öðru klúbb-
merki var það nægileg ástæða til að
vígbúast.
„Við ræddum um hvort við ætt-
um að fara og neyða þá til þess að
taka niður merkið eða berja þá í
spað ella.“
Ýmislegt er til ritað um Vítiseng-
lana en frekar erfitt er að nálgast
það á íslandi. Fyrrum Engifl, Jönke,
gaf út bók sem heitir Jönke, Mit liv
sem fjallar um hugsanagang
Englanna. Hann var samkvæmt
fréttum skotinn með vélbyssu í
magann og særður lífshættulega þar
sem hann sat í fangelsi. Vítisengl-
arnir ruddust þangað inn og skutu
hann. Gefin hefur verið út bók sem
heitir „Hells Angels: Three Can
Keep a Secret If Two Are Dead“ eða
Vítisenglarnir: Þrír geta þagað yfir
leyndarmáli ef tveir eru látnir, en
það segir ýmislegt um Englana og
þögnina sem hvílir yfir félagsskap
þessum.
Villtir Finnar
Fjölmargar útihátíðir mótorhjóla-
manna eru haldnar árlega þar sem
hundruð mótorhjólamanna safnast
saman. Að sögn Kalla eru mótor-
hjólamenn í Finnlandi mjög villtir.
Á stórmóti í Finnlandi, sem hann og
félagar hans fóru á, var slegist með
gúmmíhamri.
„Á samkomunni brutust út slags-
mál því að einn félaginn sprautaði
táragasi á aðra klíku. Allt logaði í
slagsmálum og einn Finninn lét
stóran gúmmíhamar vaða í hausinn
á þeim sem fyrir voru.“
Undir það síðasta dró Jón sig al-
veg frá þessu og nennti ekki að
standa í þessum ósköpum, eins og
hann segir.
Fjölskylda Kalla var ekki meðvit-
uð um hörkuna í mótorhjólaklúbbn-
um sem hann var i. Á þessum tíma
bjó hann erlendis og foreldrar og
systkini á íslandi. Þetta var því fjar-
lægur heimur fyrir þau. Fjölskyldan
var mjög forvitin en fékk ekki að
vita allt.
„Svona klúbbur getur verið mjög
breiður, allt frá þokkalega heil-
brigðum fjölskylduföður upp í
krimma sem fmnst þeir ekki passa
inn í þjóðfélagið."
„íslendingar ættu erfitt með að
byggja upp félagslegan bakgrunn til
þess að vera stuðningsklúbbur fyrir
Englana. Þeir þyrftu að vera reiðu-
búnir til þess að vinna fyrir þá hvar
sem væri. Þeir þyrftu að geta hopp-
að upp í næstu flugvél og farið til
Evrópu eða Ameríku til þess að
vinna á Englamóti. Þeir yrðu einnig
að geta haldið mót hér á landi til
þess að sýna að þeir væru sterkt afl
í íslensku mótorhjólalífi. Klúbbur
sem ætlar að dufla við Englana yrði
að hafa gott skipulag og hafa yfir að
ráða stóru klúbbhúsi og getað tekið
á móti öðrum Englum." -em
(slenskir bifhjólamenn eru friðsamir:
Halda haustógleði
og vetrarsorgardrykkju
Á íslandi eru samkvæmt heimild-
um DV rúmlega tíu mótorhjóla-
klúbbar, sumir innan Sniglanna og
aðrir utan. Verið er að kortleggja
þessa klúbba. Sniglamir eru aðilar
að Evrópusamtökum sem vinna
nær eingöngu að því að fylgjast með
löggjöf, sem Evrópusambandið
hyggst setja, um allt er varðar bif-
hjól og bifhjólamenningu.
íslendingar eru ekki i sambandi
við erlendar ribbaldaklíkur. Að því
er blaðið kemst næst eru engir
klúbbar á íslandi sem sverma fyrir
Vítisenglunum þessa stundina. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins reyndi
islensk klíka, Óskaböm Óðins af fá
inngöngu í Vítisenglana en án ár-
angurs. í dag er þessi klíka öðruvísi
samansett og heimildir herma að
þeir hafi ekki vakið máls á því aftur.
í tímariti Vítisenglanna, Scanhike,
var grein í vor um þennan klúbb.
Oddviti Óskabamanna, Gunnar Þór
Jónsson, Gunni klútur, neitar að
Óskabömin hafi áhuga á inngöngu í
Vítisenglana og segir engan stuðn-
ingsklúbb Englanna hér á landi.
Hann segir Sniglana halda sambandi
við Englana vegna þess að Vítisengl-
amir vilji vita hvað sé að gerast í
mótorhjólamálum um aflan heim.
Ekkert óeðlilegt sé við að grein um
Óskaböm Óðins, sem em flest heið-
in, hafi birst í Scanbike.
Engar hefndir
„Nokkrir íslendingar hafa farið á
landsmót í Noregi og við fáum til
okkar útlendinga á landsmót. Bif-
hjólasamtökin eru ekki i beinu sam-
bandi við erlendar mótorhjólaklíkur.
Erlendis eru klúbbarnir minni og
starfa eins og fjölskyldur en Snigl-
amir eru ekki stuðpúðar fyrir félaga
sina. Allt gengið fer ekki og hefnir ef
eitthvað kemur fyrir einn,“ segir
Þóra Hjartar Blöndal Snigifl.
Tfl þess að geta gengið í Sniglana
á íslandi verða þrettán félagar að
samþykkja viðkomandi en mótor-
hjólapróf er ekki skilyrði. Kæmstur
og kærastar Snigla, eða „hnakk-
skraut", eins og þau em köfluð,
vildu fá leyfi til þess að ganga í
Sniglana og vom þá ekki alltaf með
próf.
Friðsælir klúbbar
„Allir mótorhjólaklúbbar á Islandi
eru mjög friðsælir. Þeir líkjast ekkert
klúbbunum úti þar sem verið er að
berja fólk ef merkin eru of lík. Snigl-
amir eru hálfgerður skátaklúbbur ís-
lands,“ segir Valgerður Guðrún
Hjartardóttir, Snigill frá 1989.
„Markmiðið með stofnun Snigl-
anna var frá byrjun að efla samskipti
bifhjólamanna en núna era 1087 með-
limir i Bifhjólasamtökum lýðveldis-
ins. Margir sem era i minni klúbbun-
um era líka í Sniglunum. Litið er á
Sniglana í dag eins og FÍB eða hags-
munasamtök,“ segir Valgerður.
Á hverju ári standa Sniglarnir fyr-
ir heilmikilli dagskrá. í febrúar er
grimuball, árshátíð í byrjun apríl, 1.
maí hópkeyrsla, landsmót Snigla og
hjóladagur Snigla. Einnig fara Snigl-
amir í Landmannalaugar síðustu
helgina í ágúst á hjólunum. Snigl-
arnir halda aðalfund á hverju ári og-
haustógleði ásamt vetrarsorgar-
drykkju. Einnig era farnar smáferð-
ir á milli, meðal annars bamaferð.
Á landsmót Snigla mæta allir
klúbbar á landinu en ekki er á
hreinu hversu margir þeir eru.
Klíkur og kunningsskap-
ur
„Landið er meira og minna ein
„Stelpum hefur fjölgað og það gapir enginn iengur þegar maður tekur af sér
hjálminn," segir Valgerður Guðrún Hjartardóttir Snigill. DV-mynd JAK
heild og í þorpum halda klúbbarnir
þétt saman en þeir eru flestir Snigl-
ar. Klíkumar eru yfirleitt tengdar
kunningsskap en ekki búsetu. Þær
eru yfirleitt ekki skipulögð félög,"
segir Þorsteinn Marel, eða Steini
Tótu eins og hann er kallaður hjá
Sniglunum.
„Ég hef ekki heyrt að Sniglarnir
hafi neitt sérstakt álit á Vítisengl-
unum eða Banditos. Ég er ekkert
minni hjólamanneskja vegna þess
að ég keyri um á Racer heldur en ef
ég keyrði um á biluðum Harley Dav-
idson. Öllum sem ég þekki þykir of-
beldið sem fylgir erlendu klúbbun-
um fáránlegt. Af hverju ættum við
ekki að geta hjólað saman í sátt og
samlyndi án þess að vera með of-
beldi eða nota dóp? Klúbbar á ís-
landi eru af hinu góða því það
myndast góður kjarni sem þjappar
fólki saman," segir Valgerður.
Sniglarnir mæta yfirleitt góðu
viðmóti hjá fólki og hefur það
breyst á undanförnum árum. Snigl-
arnir taka að sér gæslu á hátíðum
og tónleikum og hafa yfirhöfuð
mjög góð samskipti. Sniglar og lög-
regla eiga fund á hverju ári þar sem
báðir aðilar koma sjónarmiðum sín-
um á framfæri.
Stelpum fjölgað
„Stelpum hefur fjölgað og það
gapir enginn lengur þegar maður
tekur af sér hjálminn. Félagsskap-
urinn er mjög misjafn því það eru
allar tegundir fólks þarna, frá at-
vinnuleysingjum til alþingismanna.
Meirihlutinn er þó mjög gott fólk en
svartir sauðir eru til í þessum fé-
lagsskap eins og annars staðar. Við
erum engir englar,“ segir Valgerð-
ur. -em
Full búð afnýjum vöru,
frá Mexícó og lndlandi