Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1996, Síða 29
i;; helgarviðtalið
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996 UV
JLlV LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1996
helgarviðtattð „
hlýtur hann að missa svefn þegar
hann er að spila á kvöldin. Hann
leikur einnig knattspymu í frístund-
um og segist nokkuð liðtækur í
henni. Að auki æfir hann taik won
du.
Barnaleg keppni við
Oasis
í sumar hefur einhvers konar
keppni staðið yflr á milli hljómsveit-
anna Blur og Oasis. Damon segir þá
keppni vera yfirstaðna þar sem hann
telji ekki hægt að hafa keppni um
hvor hljómsveitin sé vinsælli og leiki
betri tónlist.
„Þetta var keppni sem enginn gat
unnið í raun og veru. Þetta var
barnalegt af okkur að láta svona. Það
var ég sem byrjaði á þessu en ég hef
séð að mér núna,“ segir Damon.
Vaxnir upp úr drykkju
Sögusagnir gengu um það fyrir
nokkrum árum að meðlimir hljóm-
sveitarinnar Blur væru yfirleitt
drukknir eða undir áhrifum eitur-
lyfja á tónleikum. Damon segir að
þeir hafi alltaf verið drukknir fyrir
nokkrum árum en séu nú vaxnir upp
úr því. Þeir fái sér stundum tvo
drykki til þess að hita sig upp og
koma sér í gott skap. Drykkja skiptir
þó minna og minna máli fyrir þá.
Nýja platan þyngri
„Eg veit ekki alveg hvemig ég ætti
að lýsa nýju plötunni því við erum
ekki alveg búnir að ganga endanlega
frá henni. Tónlistin á henni er þó ör-
lítið harðari heldur en við höfum
gert áður. Með henni er ég ekki endi-
lega að reyna að hrífa fólk en ég er
ánægður með hana sjálfur. Efnið er
tormeltara og það tekur fólk örugg-
lega lengri tíma að melta þessa plötu.
„Ég hef ekki nokkra hugmynd um
hvað gerist í framtíðinni hjá mér eða
hljómsveitinni. Mér er efst í huga að
halda áfram að semja tónlist og ég
vonast til þess að fólki liki hún. Mig
dreymir um að verða enn þá betri
tónlistarmaður en ég veit ekki
hvernig ég fer að því að bæta mig. Ég
býst við að ég reyni ávallt að breyta
tH í tónlistinni með hverri plötu. Það
hefur enga þýðingu að gera margar
plötur sem hljóma alveg eins,“ segir
þessi heimsfrægi söngvari sem ætlar
að heimsækja landið sem hann hefur
kolfallið fyrir í byrjun september.
-em
„Ég átti mjög auðvelt með að ná
sambandi við raunveruleikann á ís-
landi sem mér tekst alls ekki í
London. Ég saknaði íslands eftir að
ég var farinn til Bretlands og hlakka
auðvitað mikið til þess að koma aft-
ur, annars væri ég ekki aö koma,“
segir nýjasta popp-átrúnaðargoöið
Damon Albarn, söngvari bresku
hljómsveitarinnar Blur, í einkavið-
tali við Helgarblað DV á heimili sínu
í London. Hljómsveitin Blur hefur
slegið rækilega i gegn í Bretlandi
undanfarin tvö ár og vinsældir henn-
ar hafa teygt sig alla leiö til íslands
með íslandsvininum Albarn.
Fyrir tveimur árum var hljóm-
sveitin lítið þekkt en nú eru þeir á
hátindi frægöar sinnar og ókrýndir
konungar breska rokksins. Blur ætl-
ar að halda tónleika í Laugardals-
höllinni þann áttunda september og
er nánast uppselt á tónleikana sem
verða þeir stærstu á árinu. Lesendur
eru áreiðanlega minnugir þess að
Damon var staddur hér á landi í
sumar við upptökur á nýjustu plötu
hljómsveitarinnar Blur. Við það tæk-
ifæri söng hann tvö lög með Emilí-
önu Torrini í miðbænum sautjánda
júní viö mikinn fognuð aðdáenda
sinna. Unglingsstúlka tróðst
næstum því
undir þegar
hann birt-
ist á svið-
inu. Alex
James,
bassa-
leikari
segir Albarn sem heldur tónleika á Islandi í september
hljómsveitarinnar, upptökustjóri og
hljóðmaður komu hingað til lands
með Damon og unnu hörðum hönd-
um í Stúdíó Sýrlandi að nýjustu
plötu sveitarinnar.
Damon á kærustu
Damon Albarn er 28 ára Lundúna-
búi sem er því miður fyrir stúlkurn-
ar frátekinn. Kærastan hans heitir
Justine en hún er söngkona hljóm-
sveitarinnar Elastica. Þau sjást mik-
ið núorðið en á síðasta ári voru þau
bæði mjög upptekin og gátu lítið
hist. Justine verður upptekin og
kemur ekki með Damon til ís-
lands að þessu sinni en að sögn
hans gæti það orðið seinna
meir. Blaðamanni lék forvitni
á að vita hvort skötuhjúin
hefðu einhverjar áætlanir um
að gifta sig.
Gifting ekki á dag-
skrá
„Ég veit ekki hvort við ætl-
um að gifta okk-
ur.
Justine líður best í hita en mér 1
kulda. Við erum svolítið ólík að eðl-
isfari og mjög upptekin af því sem
við erum að gera. Mér finnst hjóna-
band og barneignir allt i lagi en þeg-
ar maður er svona upptekinn af ein-
hverju sem heldur manni frá heimil-
inu gengur það ekki upp. Ég held að
ég þyrfti að hætta því sem ég er að
gera ef ég ætlaði að eignast börn til
þess að geta sinnt því almenni-
lega,“ segir Damon.
Foreldrar
Damons voru
listamenn og
i hann ólst upp
I í frekar
slæmu hverfi
í borginni.
Fyrstu tíu
árin var hann
hamingjusam-
ur eða þar til
foreldrar hans
ákváðu að flytja út
á land
þar
sem faðir hans fékk kennarastöðu.
Þau notuðu tækifærið að flytja á
meðan Damon var sendur til Tyrk-
lands. Á landsbyggðinni varð Damon
svolítið út undan. Hann segir fólkinu
í sveitinni líka illa við borgarbúa og
þvi hafi honum og foreldrum hans
ekki verið tekið mjög vel. Damon
segist hafa verið einfari þegar hann
var lítill og ekki átt mjög marga vini.
Reyndar langaði hann ekki mikið til
þess að eiga marga vini. Damon
hafði mestan áhuga á fótbolta og
stelpum þegar hann var lítill en
sneri sér að tónlist og leiklist. Hann
fór síðan aðallega út með stúlkum
sem voru í leiklist en hann lærði
sjálfur á píanó frá unga aldri.
Lítil menntun
„Ég var í mjög lélegum skólum og
menntun mín er ekkert sérstaklega
góð. Ég tók eftir því þegar ég kom til
íslands að allir eru jafnir á íslandi og
hafa hlotið svipaða menntun. Mér
finnst íslendingar yfirleitt vel
menntað fólk. Þannig er það ekki í
Bretlandi því þar er menntunin mjög
misjöfn. Þar sem ég var í skóla var
fólk nokkum veginn þjálfað til þess
að keyra strætó
og starfa í
34«
búðum. Það var enginn sérstakur
metnaður til þess að koma sér áfram.
Tedrenaur hjá
hljómpldtufyrirtæki
Þegar Damon var nítján ára gaf afi
hans honum. 3000 pund sem hann
notaði til þess að taka upp fyrsta lag-
ið sem hann segir ekki hafa verið
neitt sérstakt. Honum var boðið að
vera tedrengur hjá hljómplötufyrir-
tæki. Blur byrjaði ferilinn á því að
leika í hljómsveit sem félagarnir
kölluðu Seymour. Hljómplata Blur
Modern Life, sem kom út 1992, kom
þeim á kortið og seldist í 50.000 ein-
tökum. Á þeim tíma byrjuðu strák-
amir í Blur að birtast á forsíðum
allra tímarita. Smáskifan Girls &
Boys náði talsvet miklum vinsæld-
um og hristi heldur betur upp í aðdá-
endum og gagnrýnendum. Á fjórum
mánuðum sendist platan The Great
Excape í 750 þúsund eintökum.
Hljómsveitin Blur hefur verið til-
nefnd til fimm Brit verðlauna sem
besta hljómsveitin, fyrir bestu plöt-
una, besta myndbandið (Country
House), besta myndbandið (The Uni-
versal) og bestu smáskífuna
(Country House).
Meðlimir hljómsveitar-
innar Blur eru Bítlar
síns tíma og tónlist
þeirra er einmitt líkt
t við tónlist hinna einu
* sönnu Bítla sem er frægasta
hljómsveit sem uppi hefur verið.
Blur hefur náð allmiklum vinsæld-
um á íslandi, sérstaklega meðal
yngri kynslóðarinnar sem fylgist
með því nýjasta sem kemur á mark-
að.
Tengdur íslandi
Albarn hefur tekið ástfóstri við ís-
land. Hann fór og skoðaði Gullfoss og
Geysi og áritaði plötur í Kringlunni.
Aðdáendur hans, aðallega af hinu
kyninu, hópuðust utan um hann og
fengu áritun og sumar koss sem var
þeim áreiðanlega mjög eftirminnileg-
ur.
Villtir tónleikar
„Ég hlakka mjög til þess aö leika á
tónleikunum á íslandi og ég ímynda
mér að þeir verði mjög villtir. Ég
býst við og vonast til þess að áhorf-
endur á íslandi njóti tónleikanna og
haldi alls ekki aftur af sér.
Ég sá tónleika á íslandi með David
Bowie og Pulp í sumar á þjóðhátíð-
ardaginn en þar voru áhorfendur
nokkuð villtir. Ég vonast til þess að
það verði svipað hjá okkur,“ segir
Damon.
íbúðarkaup fyrirhuguð
Damon segist- ekki vita hvenær
hans næsta ferö til íslands eftir tón-
leikana verði. í síðustu ferð komust
sögusagnir á kreik um að hann væri
að leita sér að húsnæði á íslandi.
Hann kvað það rétt vera og sagðist
ætla að nota
tímann í þessari ferð til þess að
reyna að finna húsnæði í
Reykjavík. Hann hefur áhuga á
að halda áfram að starfa eitt-
hvað hér á landi þar sem hon-
um finnst hann geta unnið í
friði hér.
„Andinn kemur yfir mig á ís-
landi og róar mig. Áhrifln
verða þau að ég fer að líta öðr-
um augum á sjálfan mig og verð
meðvitaðri um hvað ég er að
gera. Ég hef skoðað nokkrar
íbúðir og ég ætla áreiðanlega að
skoða fleiri. Mig langar mest til
þess að eyða jólunum á íslandi.
Ég er viss um að það yrði
skemmtilegt. Það væri meira
vandamál með fjölskylduna
mína þvi það gæti orðið dýrt að
koma henni allri til íslands. Ég
er viss um að þau myndu öll
njóta þess.
Kyntákn
unglingsstúlkna
Damon getur varla um frjálst
höfuð strokið þar sem kvenpen-
ingurinn hópast í kringum hann
hvar sem hann sést. Til þess að
forðast þetta ke/rir hann um á mót-
orhjóli með hjálm, þannig að hann
þekkist ekki. Unglingsstúlkur falla í
yfirlið þegar þær standa augliti til
auglitis við Damon og hópast i kring-
um hann hvar sem hann fer. Hann
fékk ekki heldur að vera í friði á ís-
landi.
„Ég er alls ekki mjög meðvitaður
um að ungar stúlkur hugsi um mig
sem kyntákn og ég hugsa alls ekki
um mig sem slíkan. Ég er ekkert að
velta mér upp úr slíkum hlutum.
Framkoma stúlknanna þegar þær
skrækja og reyna að koma við mig
hefur alls engin áhrif á mig og ég
reyni að lita fram hjá þessu.“
Hamingjusamur maður
„Ég er afar heppinn að geta lifað af
því sem ég er að gera og er farinn að
græða vel á. Ég er mjög hamingju-
samur maður en ég væri heldur ekki
óánægður þó ég græddi ekki neitt
því ég er að gera það eina sem ég
kann og þykir skemmtilegt.
Ég hef aldrei skilið almennilega
hvers vegna ég sem tónlist. Ég samdi
tónlist vegna þess að mér var sagt að
gera það þegar ég var í tónlistar-
skóla. Ég skildi í raun aldrei hvað ég
Sumir hafa haft á orði að tónlist
Blur sé afar lík meisturum allra
tíma, Bítlunum. Damon hefur þá
skoðun að Bítlarnir hljóti að hafa
haft einhver áhrif á nánast allar
hljómsveitir í Bretlandi.
„Ég á erfitt með að sjá hvernig
nokkur bresk hljómsveit getur kom-
ist hjá því að fá einhver áhrif frá
Bítlunum. Bítlamir em í blóði okkar
Breta. Það verður engin hljómsveit
nokkurn tíma frægari heldur en Bítl-
arnir. Á vissum tímapunkti kemst
maður að því hvað frægðin þýðir fyr-
ir mann. Þá skiptir engu máli hvort
hún eykst að einhverju marki. Ég
held að of mikil frægð geti haft slæm
áhrif á fólk sem kann ekki að taka
henni. Það getur orðið svolítið rugl-
ingslegt stundum. Ég er meðvitaður
um frægðina en ég er ekki viss um
hvort hún fer neitt í taugarnar á
mér. Það er svolítið erfítt að segja til
um hvort frægðin hafi haft einhver
bein áhrif á mig. Ég hef auðvitað fuU-
orðnast á þessum árum og orðið
frægur á sama tíma. Ég veit satt að
segja ekki hvort af þessu tvennu hef-
ur haft meiri áhrif á mig. Frægðin
var ekki eitthvað sem ég bjóst við að
yrði að veruleika. Hún kom frekar
eins og uppfylling á draumum mín-
um,“ segir Damon.
Vinnualki á batavegi
Damon segist hafa verið vinnualki
áður en hann uppgötvaði hversu
notalegt er að slappa af. Hann hefúr
lært að líkaminn þarfnast hvíldar og
nú nýtur hann þess að gera aUs ekki
neitt. Hann eyðir frítímanum sínum
meðal annars mikið í svefn enda
Hljómsveitin Blur hefur náð geysilegum vinsældum á Islandi.
var að gera fyrr en ég var kominn
yfir unglingsárin. Ég vUdi óska þess
að ég hefði lagt betur á minnið hvað
ég var að gera í tónlistarskólanum
því ég hef gleymt því hvemig á að
leika þessa faUegu tónlist sem ég
lærði að leika þar,“ segir Damon.
Langt hjónaband
Hljómsveitin Blur hefur leikið
saman í átta ár og á að baki mjög
gott samstarf. Að sögn Damons eru
félagar hans í sveitinni, Alex, Gra-
ham og Dave, mjög góðir vinir hans
og samstarfsmenn enda hafa þeir
verið saman á hverjum degi í mörg
ár,“
Enninn frægari en
Bítlarnir
„Ég tók eftir því þegar ég kom til íslands að allir eru jafn-
ir á íslandi og hafa hlotið svipaða menntun," segir
Damon. DV-mynd Pjetur
Damon Albarn, söngvari Blur, í einkaviðtali við DV:
Andinn kemur vfir
mig
y
Islandi