Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1996, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1996, Síða 28
36 FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 Sitt sýnist hverjum um endurnýj- aöa samvinnu Jóns Baldvins og Jóhönnu Sigurðardóttur. Heródes og Pflatus orðnir vinir „Þau tíðindi hafa gerst að Heródes og Pílatus eru orðnir vinir. Þau Jón Baldvin og Jó- hanna hafa náð saman...“ Steingrímur J. Sigfússon al- þingismaður, í Dagur-Tíminn. Kommakollarnir Einhvern veginn virka við- brögð Steingríms Sigfússonar og fleiri þannig að þetta hafi þmft til að þeirra kommakoOar kæmu í ljós.“ Gísli S. Einarsson alþingismað- ur, í DV. Ummæli Sláturtíð í Hafnarfirði „Upp til sveita eru blessuð lömbin leidd til slátrunar en hér í Hafnarfirði eru það einstaka kratar." Erlingur Kristensson, Alþýðu- flokksfélagi Hafnarfjarðar, i Al- þýðublaðinu. Leiðinlegir framsóknarmenn „Þú hittir sjaldan skemmtileg- an framsóknarmann úti i lands- byggðinni." Steingrímur St.Th. Sigurðsson, í Morgunblaðinu. fslenskur fótbolti „Ég verð að játa að maður var haldinn ákveðnum fordómum um að íslensk lið beittu löngum sendingum og hlaupum." Erik Hamrén, þjálfari AIK, í Morgunblaðinu. Vopnaiðnaður er elsti iðnaðurinn Vopnaiðnaður er elsti þekkti iðnaðurinn og í þeim iðnaði er elst tinnufleygim til framleiðslu eggvopna og verkfæra. Talið er að tinnufleygun hafi hafist fyrir um 2 milljónum ára í Eþíópíu. Elstu merki þess að verslað hafi verið með sjaldgæfa steina og raf er að finna í Evrópu frá því um 28.000 f. Kr. Landbúnaður er oft sagður vera elsta atvinnugreinin en í rauninni er ekkert sem sannar að hann hafi verið stund- aður fyrir 11.000 f.Kr. Blessuð veröldin Námugröftur Stutt er síðan uppgröftur í La Tolita í Ekvador leiddi í ljós að farið var aö vinna hvítagull í stórum stíl á 2. öld f.Kr. Elstu Usbendingar um sinknám hafa fundist í Zawar í Rajastan. Eru þær taldar að minnsta kosti 2000 ára gamlar samkvæmt aldurs- greiningu á timbri úr námunum. Elsta fyrirtækið Elsta fyrirtæki í heiminum er breskt og heitir Faversham Oyst- er Fishing Co. í Faversham- ostruveiðilögunum frá 1930 er minnst á það og sagt vera frá örófi alda, en það merkir að fyr- irtækið sé eldra en frá árinu 1189. Sums staðar allhvasst í dag verður hæg vestan- og suð- vestanátt í fyrstu en vaxandi suð- vestanátt þegar líður á daginn, stinningskaldi eða allhvasst sums Veðrið í dag staðar norðvestan- og vestanlands í kvöld og nótt en hægari í öðrum landshlutum. Suðvestan-, vestan- og norðanlands má búast við súld eða rigningu. Austan til á landinu verð- ur úrkomulítið og sums staðar al- veg úrkomulaust. Hiti 8 til 17 stig. Á höfuðborgarsvæðinu verður sunnan og suðvestan gola eða kaldi og þokusúld í dag en úrkomulítið í kvöld. Aftur sunnan og suðvestan gola eða súld í nótt og á morgun. Hiti 10 til 14 stig. Sólarlag í Reykjavík: 20.04 Sólarupprás á morgun: 06.45 Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.19 Árdegisflóð á morgun: 06.38f Veórið kl. 6 í morgun: Akureyri léttskýjað 11 Akurnes alskýjað 8 Bergstaöir skýjað 11 Bolungarvík úrkoma í grennd 15 Egilsstaðir súld 10 Keflavíkurflugv. alskýjað 11 Kirkjubkl. léttskýjað 9 Raufarhöfn súld 10 Reykjavík alskýjað 11 Stórhöfði súld 10 Helsinki alskýjað 8 Kaupmannah. rigning 12 Ósló rigning 6 Stokkhólmur skýjaó 9 Þórshöfn léttskýjað 6 Amsterdam súld 13 Barcelona skýjaó 17 Chicago heiöskírt 14 Frankfurt rigning 10 Glasgow léttskýjað 4 Hamborg rigning og súld 11 London rigning og súld 14 Los Angeles heióskírt 18 Madrid skýjað 14 Malaga skýjað 16 Mallorca þrumuv. á sið.kls. 21 París skýjaó 9 Róm rigning 18 Valencia skúr 15 New York alskýjað 21 Nuuk súld 3 Vín skýjað 11 Washington þokumóöa 21 Winnipeg skýjað 12 Sigmar Þröstur Óskarsson: Lékum fjórtán leiki á tveimur vikum Um síðustu helgi lauk í Reykja- vík fyrsta handknattleiksmótinu á keppnistímabilinu, opna Reykjavík- urmótinu. Þótti mótið takast vel en það stóð aðeins í nokkra daga og voru margir leikir á dag. Sigurveg- arar urðu Vestmannaeyingar og kom sigur þeirra nokkuð á óvart en i fyrra baröist ÍBV fyrir veru sinni í 1. deildinni og slapp með skrekk- inn. Það er greinilegt að iBV kemur vel undirbúið til leiks undir stjóm Þorbergs Aðalsteinssonar, fyrrum landsliðsþjálfara, og var sigurinn verðskuldaður. Markmaðurinn kunni, Sigmar Þröstur Óskarsson, er fyrirliði ÍBV og var hann í stuttu spjalli spurður hvemig þeir hefðu farið að því að vinna. Maður dagsins „Það má segja að eftir þjóðhátíð höfum við verið að æfa reglulega en það sem sjálfsagt gerir gæfumuninn er að við erum nýkomnir úr keppn- isferðalagi í Svíþjóð þar sem við tókum þátt í opna Stokkhólmsmót- inu og lékum átta leiki í því móti og komumst í átta liða úrslit. Mótið í Svíþjóð var með líku sniði og opna Reykjavíkumótið, við spiluðum tvo leiki á dag og vorum þvi komnir í Sigmar Þröstur Óskarsson. þjálfun fyrir svona mót. í Svíþjóð lékum við gegn sterkum liðum, þremur úr sænsku 1. deildinni og finnsku meisturunum." Sigmar Þröstur sagði að veturinn legðist vel í sig: „Við vorum ánægðir í fyrra að halda sætinu í 1. deild og nú er stefht á úrslitakeppnina og ég held að það eigi að geta gengið eftir. Við erum með nokkum veginn sama lið og í fyrra. Bilo kemur aftur inn í lið- ið en hann var frá að mestu vegna meiðsla í fyrra. Deildin er að jafnast þar sem margir sterkir menn úr þeim liðum sem efst voru í fyrra eru famir að leika í útlöndum svo við emm bjartsýnir á okkar gengi í vetur.“ Sigmar Þröstur sagði að fyrir- komulagið i opna Reykjavíkurmót- inu væri mjög gott: „Leikmenn fá góða spilareynslu og það reynir á úthald og þol. Með þátttöku okkar í þessum tveimur mótum náðum við að leika ijórtán leiki á tveimur vik- um og þessi leikreynsla kemur okk- ur örugglega til góða þegar 1. deOd- in hefst.“ Sigmar Þröstur er Vestmannaey- ingur og byrjaði feril sinn þar en lék um tima með KA og Stjömunni en er nú kominn heim. Hann sagði að lítill tími gæfist fyrir önnur áhugamál en hann er lærður neta- gerðarmaður og hefur starfað við það á veturna: „Síðustu tíu ár hef ég verið til sjós á sumrin svo það hef- ur verið lítill tími til að sinna áhugamálum en ég hef mjög gaman af að spila golf, enda má segja að ég hafi alist upp með golfínu hér í Eyj- um og reyni alltaf að spila þegar fer að hausta og ég er hættur á sjón- um.“ Eiginkona Sigmars Þrastar er Vilborg Friðriksdóttir og eiga þau einn son, Friðrik Þór, sem er sjö ára. -HK Myndgátan Reisa eyrun Myndgátan hér að ofan lýsir lýsingarorði KR mætir hinu sterka liði AIK frá Svíþjóð á Laugardalsvellinum í kvöld. KR-AIK KR er eina íslenska knatt- spyrnuliðið sem ekki er búið að slá út úr Evrópukeppnunum, en það tekur þátt í Evrópukeppni bikarhafa. KR er búið að slá út tvö lið og nú er komið að hinu sterka sænska liöi AIK og er fyrri leikur liðanna á Laug- ardalsvelli í kvöld kl. 19. íþróttir KR-ingar eru í harðri baráttu við Skagamenn um íslandsmeist- aratitilinn og eru með sterkt lið sem ætti að veita sænska liðinu verðuga keppni og á heimavelli ætti KR að hafa góða möguleika. AIK byrjaði frekar illa í sænsku deildarkeppninni en hefur verið á mikilli uppleið að undanfómu og er skemmst að minnast þess að liðið vann Svíþjóðarmeistar- ana IFK Gautaborg 6-0, þá vann það einnig hið sterka lið Malmö FF, 3-0. Af þessum tölum sést að það era engir viðvaningar sem koma til með að leika á Laugar- dalsvellinum í kvöld og þarf KR örugglega að sýna sínar bestu hliðar ef sigur á að nást. Síðari leikurinn fer svo fram í Stokk- hólmi 26. september. Bridge Það þarf enga tölvugjöf til að fá uppgefin æsileg spil. Dálkahöfundur er á þeirri skoðun að handgefin spil séu ekkert síður með villtar skipt- ingar á höndunum heldur en þau tölvugefnu. Hér er eitt handgefið sem kom fyrir í spilamennsku í heimahúsi í siðustu viku. Sagnir gengu þannig, norður gjafari og eng- inn á hættu: 4 9643 * Á1076 * D83 * 95 4 KD «4 KG93 * KG1065 * DG 4 G2 «4 54 * Á * ÁK1086432 Norður Austur Suður Vestur 1 Grand dobl 3 Grönd dobl pass pass redobl p/h N-s notuðu sjaldgæfa sagnvenju: Opnun á einu grandi var hindrun með lauflit eða a.m.k. 4-4 í hálitum og 5-10 punkta. Suður sá þá i hendi sér að 3 grönd gætu vel staðið ef laufliturinn myndi brotna og var alls óhræddur við að redobla þann djarfa samning. I ljós kom að fjögur grönd eru óhnekkjandi, eins og spil- ið liggur, á aðeins 18 punkta og þar skipti spaðanían miklu máli fyrir sóknina. Ef norður hefði átt spaða- áttuna í stað níunnar, hefði vörnin getað tekið 5 slagi, það er að segja ef hún hefði borið gæfu til þess að byrja á þeim lit. Þrjú grönd er hins vegar mjög góður samningur þvi spaðinn gat vel legið 4-3 hjá andstöð- unni að því gefnu að laufliturinn liggi ekki verr en 2-1. ísak Öm Sigurðsson 4 A10875 »4 D82 •f 9742 4 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.