Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1996, Síða 32
jí
í
Vinningstölur miðvikudaginn 11.9.’96
17 128X37
44X45X46
6 13)36
Vlnningar Fjöldl vlnnlnga Vlnnlngsupphxð
1* íafí 3 14.620.000
l.Saft' 1.495.845
3. 5 af 6 6 36.010
4.taft —1 VI ro 1.990
5. 3 af i ■6^9 220
46.056,
'pafph
965
2.196.965
Vinningstölur
11.9/96
KIN
> ca czs FRÉTTASKOTIÐ
CC _ j LU SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
^ ŒD Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
.SE _ í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
OO * I— LO
550 5555
Frjálst.óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996
Arnarvatnsheiði:
Gangna-
maður týnd-
ur í 15 tíma
- fannst heill á húfi
Mikil leit var gerð að gangna-
manni sem týndist á Amarvatns-
heiði um miðjan dag í gær. Maður-
inn varð viðskila við félaga sína hjá
Álftakróksskála og hófu þeir fljót-
lega leit að honum. Kallað var eftir
aðstoð björgunarsveita og lögreglu
og var gerð leit að honum í gær-
kvöldi.
Mikil þoka var á svæðinu og var
leit þvi hætt seint í gærkvöldi. í
morgunsárið voru leitarflokkar
kallaðir aftur út og einnig þyrla
landhelgisgæslunnar en um klukk-
an hálfsjö I morgun fannst maður-
"•'"’tinn heill á húfi.
Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi
var maðurinn í ágætu ásigkomulagi
þegar hann fannst eftir 15 klukku-
tíma enda vel búinn vistum eins og
gangnamenn eru venjulega. -RR
Meirihlutinn
í Borgarbyggð
sprunginn
DV, Vesturlandi:
Meirihlutinn í Borgarbyggð
sprakk í gær þegar Jenni R. Ólason,
fulltrúi Alþýðubandalagsins, sleit
samstarfinu við fjóra framsóknar-
menn. Jenni segir að framsóknar-
mennirnir hafi ætlað að valta yfir
hann með tillöguflutningi um kjara-
niðurskurð á starfsfólki bæjarins,
m.a. með 20 prósenta lækkun launa
hjá starfsfólki leikskóla. Jenni sagði
ástæðuna einnig vera trúnaðarbrest
milli sín og Óla Jóns Gunnarssonar
bæjarstjóra sem leiði til þess að þeir
muni ekki eiga samleið í neins kon-
ar meirihlutasamstarfi í framtíð-
inni. -DVÓ
Súðavíkurrannsókn:
Eðlileg krafa
- segir Guðjón Petersen
„Telji fólkið að allir þættir þessa
máls hafi ekki verið skoðaðir nógu
vel ofan í kjölinn finnst mér ósköp
eðlilegt að það fari þessa leið og vilji
fá sannleikann upp á borðið,“ segir
Guðjón Petersen, fyrrverandi for-
stjóri Almannavarna ríkisins.
DV leitaði álits hans á þeirri
beiðni sjömenninganna frá Súðavík
til ríkissaksóknara að fram fari op-
inber rannsókn á aðdraganda og af-
leiðingum snjóflóðanna í Súðavík
-rrsog hvort koma hefði mátt í veg fyr-
ir manntjón hefði öðruvísi verið
staðið að málum. -SÁ
L O K I
Alvarleg líkamsárás í miðborg Reykjavíkur:
Sá mér til hryllings
að blóðið fossaði
- segir Kristján Björn Omarsson sem fékk djúpan 9 sentímetra skurö á kjálka
„Þetta var skelflleg lífsreynsla
og ég er heppinn að vera á lífi. Ef
skurðurinn hefði komið tveimur
sentímetrum neðar hefði slagæð
farið í sundur og þá væri ég dauð-
ur,“ sagði Kristján Bjöm Ómars-
son en hann varð fyrir alvarlegri
líkamsárás í miðborg Reykjavíkur
aðfaranótt sunnudags.
Kristján Björn var ásamt vini
sínum við Ingólfstorg þegar hópur
ungmenna réðst á þá. Hann var
skorinn djúpum 9 sentímetra löng-
um skurði á kjálka og telja læknar
að árásarvopnið hafi verið hnífur
þar sem skuröurinn er djúpur og
Kristján Björn Ómarsson varð fyrir alvarlegri líkamsárás í miðborg Reykja-
víkur um síðustu helgi. Hann var skorinn djúpum 9 sentímetra skuröi á
kjálka af árásarmönnum sem enn eru ófundnir. DV-mynd GVA
beinn. Árásarmennimir hafa enn
ekki náðst.
„Við vinirnir voram að spjalla
saman við Ingólfstorg og báðir blá-
edrú. Vinur minn var að tala í
GSM- síma þegar einhver ungur
maður kom aðvífandi og ætlaði að
hrifsa af honum símann. Við
þekktum náungann ekki neitt og
báðum hann um að koma sér í
burtu en hann hélt áfram að vera
með stæla. Vinur minn og þessi
náungi byrjuðu að rífast heiftar-
lega og síðan lenti þeim saman. Þá
komu fleiri ungmenni að og allt i
einu réðust einhverjir á mig og
hrintu mér í götuna. Ég missti
gleraugun mín og þegar ég reyndi
að komast á fætur sá ég mér til
hryllings að blóðið fossaði úr and-
litinu á mér.
Ég hljóp í burtu og náði mér í
servíettur til að setja yfir blóðugt
sárið. Þegar ég sneri við fann ég
vin minn en hann haföi verið sleg-
inn með flösku eða glasi í höfuðið
sem var blóðugt. Við komumst á
lögreglustöðina og þaðan vorum
við keyrðir á slysadeild,“ segir
Kristján Björn.
Ekki lengur öruggur
„Maður hefur fariö víða erlend-
is en aldrei lent í eða orðið vitni
að svona nokkra. Mér finnst
hræðilegt til þess að vita að mað-
ur er ekki lengur öruggur um líf
sitt í þessu litla samfélagi. Ég er
mjög sleginn yfir þessum atburði
og mér finnst óhugnanlegt að ung-
menni gangi um og skeri fólk með
hnífum að tilefnislausu. Við
þekktum ekki einu sinni árásar-
mennina en málið er í rannsókn
hjá lögreglu og við ætlum að kæra
þetta. Ég vil óska eftir því að vitni
að þessari árás gefi sig fram við
lögreglu og aðstoði við að ná árás-
armönnunum," segir Kristján
Bjöm. -RR
Læknadeilan:
Læknar þurfa að
sækja um störf sln
Læknar hafa ekki mætt til starfa
eftir að kjarasamningar tókust í
gær og hittast i dag til að ræða um
réttarstöðu sína gagnvart störfum
sínum sem þeir sögðu upp og gengu
úr fyrir sex vikum. Þar sem þeir
sögðu upp störfum sínum verða þeir
að sækja um á ný og hljóta endur-
ráðningu. Engin hókun um endur-
ráðningu er í sjálfum kjarasamn-
ingnum, enda mun það óheimilt
samkvæmt nýjum lögum um
stéttarfélög og vinnudeilur að
sögn Katrinar Fjeldsted, for-
manns Félags heilsugæslulækna.
„Það er óvissa í mönnum.
Læknar eru búnir að vera frá
störfum í sex vikur og vilja að-
eins vita um hvað málið snýst,“
segir Katrin Fjeldsted, formaður
Félags heilsugæslulækna.
Katrín segir í samtali við DV
að samkvæmt nýjum lögum um
stéttarfélög og vinnudeilur virð-
ist ekki vera heimilt að fólk sem
sagt hefur upp störfum í kjara-
deilu eins og læknadeilunni geti
gengið beint inn í sín gömlu störf
eftir að kjarasamningar hafa tekist.
Katrín segir að um 30 heilsu-
gæslulæknar, sem sögðu upp störf-
um í nýafstaðinni deilu, séu að
störfum á Norðurlöndunum. Hún
býst við að flestir þeirra hyggist
koma til baka, þar sem þeir starfi
aðeins í afleysingum erlendis. -SÁ
Nýi kjarasamningurinn handsalaöur
síödegis í Karphúsinu í gær.
DV-munH Qtroinn
Veörið á morgun:
Þokusúld
vestan-
lands
Á morgun er búist við suð-
vestan- og vestangolu eða
kalda. Þokusúld verður allvíða
við suðvestur- og vesturströnd-
ina en annars þurrt og hlýtt í
veðri.
Veðrið í dag er á bls. 36
kululegur
JPóulsen
SuAuriandsbniut 10. S. 686483.
Kvöld- og
helgarþjónusta