Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 5
MANUDAGUR 23. SEPTEMBER 1996 5 DV Fréttir P b .. ■, ■ i-..: tt', 1 'H V. Fékk verölaun í Berlín fyrir rannsóknir á tannholdssýklum: Skilst að þetta sé góð viðurkenning „Ég hef verið að gera samanburð á greiningaraðferðum fyrir tannholds- sýkla og hef fundið heppilegustu greiningaraðferðirnar," segir Gunn- steinn Haraldsson líffræðingur en hann hlaut nú um liðna helgi fyrstu verðlaun á þingi Skandinavíu- og Evrópudeilda félaga rannsókna í tannlækningum sem haldið var i Berlín um liðna helgi. Gunnsteinn lauk BS-prófi í líffræði fyrir tveimur árum og vinnur nú að verkefni til meistaragráðu. Hann hef- ur undanfarið verið að rækta bakter- íur og skoða þær og niðurstöður hans þykja merkilegar. „Mér skilst að það þyki mjög merkilegt að fá þessi verðlaun og eitt er víst að þeim þóttu rannsóknir minar a.m.k. verðar fyrstu verð- launa. Það sem er einna merkilegast í þessum niðurstöðum minum er að við höfum fundið eitthvað sem við vonumst til að sé undirtegund sýkla og tengist mjög tannsjúkdómum. Stofninn hefur a.m.k. aðeins einangr- ast úr fólki með tannholdssjúkdóma. Þessir sýklar kekkja blóðkom og það er talið tengjast sýkingarmætti." Gunnsteinn vonast til þess að í framtíðinni verði hægt að útskýra eitthvað af sjúkdómum þar sem þess- ar bakteríur koma við sögu. Þessi tegund, sem stofnamir sem hann hef- ur fundið em af, hefur ekki verið sterklega tengd við sjúkdóma. „Ef til em tvö afbrigði af þessari bakteríu, annað kekkir blóðkorn og hitt ekki, þá er þetta mjög skemmti- legur vísindalegur og faglegur grunn- ur. Ég efast um að meðhöndlun sjúk- dómanna breytist en menn vita þó a.m.k. betur við hvað þeir eru að fást,“ segir Gunnsteinn. Ný gata í gegnum skólahverfið á Sauðárkróki Dy Sauðárkróki: Innan skamms munu hefjast framkvæmdir við gerð nýrrar götu neðst í Sæmundarhlíð, í gegnum skólahverfið á Sauðárkróki. Verkið var boðið út í síðustu viku og á því að vera lokið 8. nóvember næstkom- andi. Tvenn stálgöng verða undir hina nýju götu, önnur verða í far- vegi Sauðár en hin eru ætluð fyrir gangandi umferð um skólahverfið, þannig að skólafólk þarf í framtíð- inni ekki að ganga yfir götuna milli bygginga í hverfinu. Umferðin gegnum skólahverfið hefur lengi verið áhyggjuefni ráða- manna á Sauðárkróki og að margra áliti eru þessar framkvæmdir mjög brýnar. Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri segir að ætlunin hafi verið að ráðast í verkið í sumar, en tafir hafi orðið á undirbúningi og það ekki verið tilbúið til útboðs fyrr en nú. Með tilliti til umferðar gang- andi fólks um hverfið sé þetta ekki besti tíminn til framkvæmda en við því sé ekkert að gera. Reiknað er með að loka þurfi á bílaumferð í gegnum skólahverfið einhvern hluta framkvæmdatímans og verð- ur umferð þá beint suður fyrir Túnahverflð, um Túngötuna. Aðspurður um kostnað vegna framkvæmdanna sagði Snorri Bjöm að á fjárhagsáætlun væri 25 milljón- um varið til verksins og hann von- aðist til að sú fjárveiting mundi duga. -ÞÁ Gunnsteinn Haraldsson líffræðing- ur fékk verðlaun fyrir rannsóknir á • . TT i'rty x • tannholdssýklum á ráðstefnu f segir Gunnstemn Haraldsson lrffræömgur Benm um nöna heigi. Hér er hann á Verðlaun Gunnsteins eru ferð til ráðstefnu svipaða þeirri sem hann stærri. Þar segist hann munu kynna rannsóknarstofunni í húsi tann- Bandaríkjanna í mars á næsta ári á fór á i Berlín á dögunum, bara miklu sömu rannsóknir og í Berlín. -sv Iseknadeildar Haskola Islands. DV-mynd GVA Þetjar þú kaupir notaðan bí hja okkur fylgir allt þetta: Vetrardekk Vetrarskoðun smurstöðvar Heklu: • skipt um olíu á vél • ísvari á rúðusprautu • frostlögur mældur • silicone á hurðargúmmí • smurt í læsingar og lamir • olíusía athuguð • loftsía athuguð • rúðuþurrkur athugaðar • ljósaperur athugaðar • reimar athugaðar • pústkerfi athugað • drifhosur athugaðar í L A VEGI 174-SIMI 569 566

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.