Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 20
20 MANUDAGUR 23. SEPTEMBER 1996 Fréttir DV Málstofa um sálarlíf sjómanna: Þarf að hlúa mun betur að úthafssjómönnum - segir Benedikt Valsson „Ætiunin er að reyna að fræðast meira um þessi mál á málstofunni. Ég vil gjaman fá eitthvert mat á þessum hlutum. Málið er viðkvæmt og þarf að kynna sér það betur. Það er viðkvæmt því að ýmsar fréttir hafa borist sem eru alvarlegar og við viljum kanna sannleiksgildi þeirra. Þetta þarf allt að skoðast mjög vandlega," segir Benedikt Valsson, framkvæmdastjóri Far- manna- og fiskimannasambands ís- lands, við DV vegna umræðu um ástand og sálarlíf úthafssjómanna. Eins og fram hefur komið í DV hafa sjómenn fjallað um slæmt sál- arástand margra þeirra einstak- linga sem stunda sjómennsku í Smugunni og víðar á úthöfunum. Vitað er um sjálfsvíg sjómanna sem verið hafa í Smugunni og margir hafa verið langt leiddir eftir langa dvöl á sjónum. Stjórnir Farmanna- og fiski- mannasambandsins og Sjómanna- sambands íslands hafa boðað til sameiginlegrar málstofu í lok sept- ember og munu fá þar til sín tvo sérfræðinga til að fjalla um heilsu sjómanna. Þar verða tekin fyrir sál- arleg og félagsleg áhrif á úthafssjó- menn og fjölskyldur þeirra. „Þetta hefur greinilega lagst mjög misjafnlega á menn. Sumir hafa minna úthald en aðrir en svona hlutir eru auðvitað mjög einstak- lingsbundnir. Það eru margir sam- verkandi þættir sem þarna hafa áhrif. Það er misjafn aðbúnaður á skipunum og margt fleira sem spil- ar inn 1 og hefur áhrif á líðan manna ijarri heimilum sínum og fjölskyldum," segir Benedikt. Aöstæður misjafnar „Það er ekkert launungarmál að það þarf að hlúa mun betur að út- hafsjómönnum. Aðstæður eru mjög misjafnar á skipunum. Sums staðar eru þær góðar en annars staðar þarf að bæta þær verulega. Það var líka mjög,slæmt hve varðskipið fór seint í Smuguna. Þarna var búinn að vera mikill tiöldi manna vikum saman áður en varðskipið kom. Þar sem útgerðin er að leggja þetta á herðar manna þá þarf að gera betur við þá. Menn vilja eðlilega vera í betra sambandi við fjölskyldur sínar og ástvini í landi. Það er mjög dýrt að hafa sam- band heim og mér finnst að þarna þurfi bæði útgerð og Póstur og sími að koma betur til móts við sjómenn þannig að þetta leggist ekki svona fjárhagslega þungt á þá. Maður hefur heyrt dæmi um að það hafi ekki verið mikil tekjulind fyrir menn að fara í Smuguna. Sjó- menn eru að leggja heilmikið í söl- urnar að fara út í mikla óvissu um tekjuöflun og þurfa svo að standa undir mjög dýrum símakostnaði. Það er ljóst að bæði útgerð og hið opinbera þarf að sýna þessu meiri skilning og koma til móts við þarfir sjómanna og þessar erfiðu aðstæður sem þeir eru í þarna langt úti í hafi,“ segir Benedikt. -RR Aöstandendur og velunnarar Þjóöminjasafnsins meö horniö sem fékkst á uppboöinu. DV-mynd BG P Miðvikudag inn 2. október íniin aukablað um gæludýr fylgja I Meðal efnis í blaðinu yerður: Hundur og eigandinn, er hægt að þekkja eigandann af hundinum? Taminn köttur. Skrauthænsni. Búrfuglar. Fiskabúr, heill heimur. Fuglahundar (standandi) o.fl. Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði vinsamlegast hafi samband við Ragnar Sigurjónsson í síma 550-5728 hið fyrsta. Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er fímmtudagur 26. september. Auglýsingar Sími 550 5000, bréfasími 550-5727. Nýir gripir á Þjóðminjasafn I maí á þessu ári bárust Þjóð- minjasafni fréttir um að tvö gömul, útskorin drykkjarhorn og gamla vatnslitamynd af Geysi ætti að selja á uppboði í Danmörku og annaðist hið virta fyrirtæki Sotheby’s upp- boðið. Homin virtust óvenjuvan- daðir og eftirsóknarverðir gripir, einkum hið eldra sem talið var frá lokum miðalda, en hitt bar ártalið 1687. Vatnslitamyndin var einnig mjög áhugaverð enda tiltölulega fátt til af myndum frá íslandi fyrir daga ljósmyndunar. Þjóðminjasafnið lagði kapp á að eignast þessa gripi og fá þá hingað til lands og kynnti því málið for- manni félagsins Minja og sögu sem stofnað var sem styrktarfélag Þjóð- minjasafnsins og hefur áður sýnt safninu mikla velvild og hjálp í slík- um tilfellum. Ákvað félagið að fengi safnið eldra hornið á uppboðinu skyldi félagið greið kaupverðið og færa safninu það að gjöf. Á uppboðinu 20. og 21. maí fór eldra hornið, og örugglega hið merkara, fyrir neðan áætlað lág- marksmatsverð, en hitt fór hins vegar hátt yfir matsverði og yfir það verð sem talið var rétt að bjóða. Ekki er vitað hver kaupandi að því var. Vatnslitamyndina hreppti Þjóð- minjasafnið. -ggá Klettaklifurnám- skeið í Öræfum DV, Öræfum: í byrjun september var haldið námskeið í klettaklifri í Hnappa- vallahömrum í Öræfum. Hnappa- vallahamramir eru stærsta og að margra mati besta klettaklifursvæði íslands, með um 70 bóltuðum klifur- leiðum af öllum þyngdargráðum. Hamrarnir, sem nú standa 4 km inni í landinu, eru sæbarðir en eftir ísöldina, sem lauk fyrir um 10.000 áram, náði sjórinn alla leið upp að þeim. Þátttakendur á námskeiðinu voru félagar úr Björgunarfélagi Horna- fjarðar, auk félaga úr Björgunar- sveitinni Kára í Öræfum. Leiðbein- andi var Páll Sveinsson frá Björgun- arskóla Landsbjargar og SVFÍ, en hann er enn fremur formaður Alpa- klúbbsins, auk þess að vera í Hjálp- arsveit skáta í Reykjavík. Veðrið lék við klifrarana og tóku menn stórum framförum í kletta- klifri þessa tvo daga sem námskeið- ið stóð. Flestir voru þó orðnir sár- hentir seinni daginn, enda ekki dag- legt brauð að hanga á fingurgómun- um á smáklettanibbum með 20 metra hengiflug fyrir neðan. -ERS Páll Sveinsson frá Björgunarskóla Landsbjargar sýnir félögum úr Björgun- arfélagi Hornafjaröar og Björgunarsveitinni Kára hvernig á aö bera sig aö á námskeiöi í klettaklifri. DV-mynd Einar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.